Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Page 13
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990. 13 Reykjavík fyrr og nú Þessar tvær myndir eru teknar frá Lækjartorgi austur yfir Arnarhól- inn og er eldri myndin þrjátíu ára. Þaö eru einkum tvær breytingar sem greina má í bakgrunni mynd- anna frá 1960. Lindargata 9, sem á gömlu myndinni sést milli Sölu- turnsins og Þjóðleikhússins, var gosdrykkjaverksmiðja Sanitas fyr- ir þijátíu árum en 1962 var húsinu breytt í skrifstofubyggingu Dags- brúnar og Sjómannafélagsins og heitir síðan Lindarbær. Þá teygir sig upp í bakgrunni nýju myndarinnar íbúðarháhýsið á Völundarlóðinni sem verið hefur í byggingu sl. tvö ár. Söluturn með níu líf Róttækar breytingar urðu á gatnamótum Hafnarstrætis, Kalk- ofnsvegar, Hverfisgötu og Lækjar- götu, einkum með breikkun Lækj- argötu og Kalkofnsvegar 1970-71. Rafstöðvarhúsið lengst til vinstri á gömlu myndinni, Hreyfilshúsið og Söluturninn uröu að víkja við þessar framkvæmdir en það var einungis Söluturninn sem lifði umbrotin af, enda hefur hann a.m.k. níu líf og yngist með hveiju árinu þrátt fyrir þá staðreynd að borgaryfirvöld hafa haft horn í síöu hans af og til allt frá árinu 1916. Sölutuminn var færður af Lækj- artorgi á Arnarhólshornið árið 1918 og fékk að standa þar í rúma hálfa öld, þó ekki alveg óáreittur, því hann var tvisvar færður örlítið ofar í Hólinn á þessu tímabili. Húsið lengst til vinstri á nýju myndinni var byggt er Hafnar- stræti 22 var rifið 1977. Rishæð þess var svo bætt við 1985 en húsið var teiknað af Bjama Marteinssyni arkitekt. Stöðvarhús Hreyfils Stöðvarhús Hreyfils, sem á gömlu myndinni er vinstra megin við Sölutuminn, var múrhúðað timb- urhús, reist er Bílastöðin Geysir var stofnuð 1938. Þegar Samvinnufélagið Hreyfill var stofnað 1943 keypti félagið Geysisstöðina og varð húsið þá að- alstöðvarhús Hreyfils til ársins 1951 er Hreyfilsmenn keyptu Litlu- Myndasafn DV sem steyptur var á lóðamörkum Amarhóls og Hreyfils. Veggurinn er þar enn þótt einungis efsti hluti hans standi nú upp úr síðar að- keyrðum jarðvegi. Á veggnum er mjótt hlið sem einnig sést á gömlu myndinni, milli stöðvarhússins og Söluturnsins. Á Arnarhólnum hefur verið óvenju fámennt, þegar gamla myndin var tekin, en fyrir þrjátíu árum var þar oft krakkaskari á þessum árstíma og feikilegt fjör. Ibúðabyggð í Skuggahverfinu, Þingholtunum og gamla vestur- bænum var þá enn nógu fjölmenn til að fylla Arnarhólinn af táp- miklum krökkum með skíðasleða og magasleða. Þá var það geysivin- sælt, en engu að síður ískyggilegt hættuspil, að renna sér af háhóln- um í átt að Hreyfilsplaninu, í gegn- um hliðið á steinveggnum og inn á planið milli stöðvarhússins og Söluturnsins. Þeir sem þá renndu sér á Amar- hólnum á kyrrum vetrarkvöldum muna sjálfsagt enn eftir glamrinu frá Kolakrananum, tilkynningum í hátalarakerfi BSÍ við Kalofnsveg DV-mynd BG Umsjón: Kjartan G. Kjartansson bílastöðina við Hlemmtorg. Hreyf- ilsmenn höfðu þó áfram aðsetur í stöðvarhúsinu við Arnarhól uns húsið var selt Reykjavíkurborg og það rifið árið 1970. Á bensínafgreiðslu Hreyfils við Arnarhól störfuðu um skeið, m.a. Jenni Jóns tónlistarmaöur og Valdimar Lárusson leikari. Þá var Kristbjörg Kjeld leikkona skrif- stofustjóri Hreyfils í nokkur ár. Er gamla myndin var tekin og fram eftir sjöunda áratugnum var hinn góðkunni Reykvíkingur og útvarpsmaður, Pétur Pétursson, með sælgætissölu í Hreyfilshúsinu. 22 4 22 Ugglaust muna ýmsir eldri Reyk- víkingar eftir elsta símanúmeri Hreyfils, 66 33. Það fer hins vegar ekkert á milh mála að flestir Reyk- víkingar, sem komnir eru á miðjan aldur og þar yfir, muna vel eftir næsta Hreyfilssímanúmeri, 22 4 22. Þegar símanúmer í Reykjavík breyttust í fimm stafa tölu fjölguðu Hreyfilsmenn línum sínum til muna en það gerði þeim ókleift að setja tölustafinn 1 fyrir framan gamla fjögurra stafa númerið. Því reiö nú á að finna gott símanúmer sem auðvelt væri að muna. Hreyf- ilsmönnum bauðst númerið 22 4 22 en þegar auglýsa átti númerið í Morgunblaðinu auglýsti blaðið | rangt símanúmer. Hpeyfilsmenn brugðu þá á það ráð að auglýsa rösklega í útvarpinu með þeim ágæta árangri að hvert mannsbarn í Reykjavík mundi númerið. Stefán Magnússon, faðir Ás- mundar, formanns ASÍ, var fram- kvæmdastjóri Hreyfils á árunum 1956-69, en hann hefur getið þess að stundum hafi nokkur óþægindi fylgt því hversu vel þekkt síma- númerið var, því oft hringdu menn á Hreyfil til þess eins að ganga úr skugga um að sími hringjandans væri í lagi. Ef vel er aö gáð má sjá þetta víðfræga símanúmer málað á stöðvarhúsið. Þegar Arnarhóllinn var sleðabrekka Á gömlu myndinni má sjá stein- vegg, u.þ.b. sextíu sentímetra háan, og auglýsingum í formi htskyggna sem sýndar voru á norðurvegg Nýja bíós. En nú þekkja krakkar ekki leng- ur skíðasleða, Arnarhóhinn stend- ur einn og yfirgefinn hvemig sem viðrar og þaðan heyrast ekki leng- ur á vetrarkvöldum hin gamal- kunnu varnarhróp sleðamanna: „Frá, frá, frá, Fúsa liggur á!“ KGK Um miðjan mars verður efnt til samkeppni þar sem birtar verða 10 myndir, ein mynd í hverri viku, hér í D.V. Dregið verður úr réttum lausnum og fær sá sem þekkir hvað allar myndirnar fjalla um vegleg verðlaun. Einnig verða nokkur aukaverðlaun. BÓKin FÆST í FLESTUM BÓFA VFRSLUF1UM. BIBLÍAN í MYNDUM 230 lista'verk eftir Gustarve Doré. Aðaltilgangur útgáfu þessarar bókar er aðglæða áhuga almennings á að lesa ogfræðast um hina helgu bók, Biblíuna. Bókin er 248 bls. í A4 brotí Við hverja mynd er hægt að fletta upp í Ritningunni og lesa um þann atburð, sem myndin sýnir... í rúma öld hafa biblíumyndir Dorés mótað hugmyndir okkar um fólk, húsakynni og atburði sem Biblían segirfrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.