Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990.
Viðskipti___________________________________________dv
Frumvarpið um greiðslukortaviðskipti brátt til umræðu á Alþingi:
Bankastjórum bannað
að taka tryggingar
- þetta gengur ekki upp, segir Stefán Pálsson, Búnaðarbanka
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans og formaður Sambands
íslenskra viðskiptabanka, segir að
það gangi engan veginn upp að bann-
að verði að taka tryggingar vegna
útgáfu greiðslukorta eins og gert sé
ráð fyrir í því lagafrumvarpi um
greiðslukortaviðskipti sem lagt var
fyrir Alþingi síðastliðið haust. Frum-
varpið mun mjög sennilega skjóta
upp kollinum aftur á Alþingi þegar
Norðurlandaráðsþinginu lýkur. Það
er nú til umsagnar hjá ýmsum aöil-
um, meðal annars Sambandi við-
skiptabankanna.
„Skylt að taka tryggingar"
„Það er mjög einkennilegt að korta-
'útgefendum verði fyrirboðið að
tryggja sig. Það gengur engan veginn
upp og stenst varla. í bankalögum
segir að bönkunum sé skylt að taka
tryggingar," segir Stefán Pálsson.
Stefán segir ennfremur aö Sam-
band íslenskra viðskiptabanka muni
einnig verða á móti því að Verðlags-
stofnun hafi eftirlit með framkvæmd
laganna.
„Bankaeftirlitið er okkar eftirlits-
aðili og þessi viðskipti, eins og önnur
bankaviðskpti, hljóta að heyra undir
bankaeftirhtið. Þessi tvö atriði í
frumvarpinu munum viö fyrst og
fremst gera athugasemdir við.“
Viðskiptatraust ráði ferðinni
í greiðslukortafrumvarpinu segir
orðrétt um tryggingar kortaútgef-
enda en bankamir annast útgáfu
kortanna fyrir hönd greiðslukorta-
Verslunarráö:
Keflavíkur-
flugvöllur
vannýtt
stór-
auðlind
Verslunarráð íslands telur að
Keflavikurflugvönur sé vannýtt
stór-auðlind vegna þess mögu-
leika sem er fyrir hendi að hafa
alþjóölega vörudreifingarstöð við
vöhinn. Þetta kom fram á aðal-
fundi ráðsins fyrr í vikunni.
i greinargerð ráðsins á fundin-
um segir að mjög ríkar ástæður
séu til þess að íslensk verslunar-
fyrirtæki geti átt miklu hlutverki
að gegna í aiþjóðaversluninni
vegna legu landsins.
„Þetta er tækifæri sem gæti lagt
okkur upp í hendurnar mögu-
leika á því meðal annars að
byggja Keflavíkurfiugvöll upp
sem dreifingarstöð fyrir vörur á
ieið milli Austurlanda og Evrópu
og mílli Norður-Ameríku og Evr-
ópu. Möguleikarnir felast i hnatt-
stöðu okkar. Plássið er nóg og
umsvifin þurfa ekki að takmark-
ast allan sólarhringinn,“ segir í
greinargerðinni.
Og ennfremur:„Keflavíkurflug-
völlur er nánast tilbúin, stóriega
vannýtt „auðiind" frá þessu sjón-
arhomi.“
-JGH
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. Það hefur
vakið athygli að Neytendasamtökin
og Kaupmannasamtökin hafa staðið
saman og óskað eindregið eftir því
að korthafar beri allan kostnað af
notkun greiðslukortanna.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir því
að verðbólgan snarminnki eftir
fyrstu þrjá mánuði þessa árs og verði
eftir það á bilinu 4 til 8 prósent. Jafn-
framt gerir Seðlabankinn ráð fyrir
að verðbólgan verði um 5 til -6 pró-
sent fyrri hluta næsta árs, ársins
1991. Svona tölur hafa ekki sést lengi
á prenti hérlendis. Þessi spá er birt
i nýjasta hefti Hagtalna mánaðarins,
efnahagsriti bankans.
Orðrétt segir um verðbólguút-
reikningana:„Útreikningar hag-
fræðideildar Seðlabankans sem
byggðir eru á kjarasamningunum og
forsendum um stöðugt gengi krón-
unnar, sýna lækkandi verðbólgu á
næstu misserum. Sökum reynslu af
óáreiðanleika mánaðartalna er hér
spáð með meðalvísitölur fyrir árs-
fjórðunga."
Þá segir að viðskiptabankamir telji
að nafnvextir geti lækkað um 14 pró-
sent og að verðlag geti þess vegna
orðið um 1 til 2 prósentum lægra í
lok ársins en fram kemur i spánni.
„Allgóðar horfur eru því á aö ekki
komi til frekari breytinga á launa-
töxtum á árinu 1990 vegna kaup-
máttarákvæða samningsins."
Þá segir Seðlabankinn að sam-
kvæmt þessari verðbólguspá lækki
kaupmáttur greiddra launa um 1 til
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
óskaði eftir því á dögunum að
greiðslukortafyrirtækin hækkuðu
gjöld sín á korthafa minna en ráð-
gert hafði verið. í fyrradag tóku
kortafyrirtækin tillit til óska ASÍ.
2 prósent á árinu 1990 en hækki svo
aftur á fyrri hluta ársins 1991.
Seðlabankinn segir ennfremur að
stjórnvöld geti átt þátt í að móta það
efnahagslega umhverfi sem kjara-
samningarnir hvíla á. „Æskilegt er
að leita leiða til að fjármagna fyrir-
sjáanlegan halla á ríkissjóði innan-
fyrirtækjanna:
„Útgáfa greiðslukorts skal fyrst og
fremst byggð á viðskiptatrausti um-
sækjanda. Aðeins í undantekning-
artilvikum er kortaútgefanda heimilt
að krefja korthafa fyrirfram um að
hann leggi fram tryggingar með
ábyrgð annarra aðila fyrir úttekt
sinni. Ábyrgðaraðili samkvæmt
þessari málsgrein getur hvenær sem
er og án fyrirvara krafist að greiðslu-
kortasamningur sem hann er í
ábyrgð fyrir sé afturkallaður þegar í
stað.“
Korthafar beri aukinn kostnað
Fleiri athyglisverð atriði er að
flnna í frumvarpinu en fyrirmynd
þess er að mestu sótt í dönsku
greiðslukortalögin. Það atriði sem
mjög á eftir aö koma til umræðu og
þrætt verður um er skipting kostnað-
arins við notkun kortanna á milli
korthafa og kaupmanna. Til þessa
hafa neytendur, korthafar, sloppið.
Nú verða þeir hins vegar að taka
stóran hluta kostnaðarins á sig á
móti kaupmönnum, samkvæmt
frumvarpinu. Gert ráð fyrir að viö-
skiptaráðherra setji almennar reglur
um skiptingu kostnaðarins á milli
korthafa og kaupmanna. Þess má
geta að í dönsku greiðslukortalögun-
um bera kortahafar allan kostnað-
inn.
Neytendasamtökin vilja að
korthafar borgi brúsann
Mörgum hefur þótt athyglisvert að
lands og beita fyllsta aðhaldi í pen-
ingámálum til að draga enn úr viö-
skiptahalla og fyrirbyggja launa-
skrið, svo og að gera verðjöfnunar-
sjóð virkan á ný til að bregðast við
hugsanlegri hækkun afurðaverðs
umfram forsendur samninganna.“
-JGH
Neytendasamtökin og Kaupmanna-
samtök íslands hafa saman farið þess
eindregið á leit að kostnaöur af notk-
un greiðslukorta verði lagður á kort-
hafa þannig að hann komi ekki fram
í hærra vöruverði.
Ætla má að á síðasta ári hafi kostn-
aður kaupmanna af notkun kort-
anna, þóknunin til greiðslukortafyr-
irtækjanna, verið um 360 milljónir
króna, auk rúmra 300 milljóna í
vaxtakostnað vegna þess greiðslu-
dráttar sem af notkun greiðslukort-
anna leiðir. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR <%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 4-7 LB.Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 5-7,5 Lb
6mán. uppsögn 5-8 Ib.Bb
12mán. uppsögn 8-9 Ib
18mán. uppsögn 16 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Sb
Sértékkareikninqar 4-7 Lb.Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2 5-3,0 / Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Sp
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,75-7,25 Sb
Sterlingspund 13,75-14,25 Ib.Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7.25 Sb
Danskarkrónur 10,25-11,0 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 20-22 Sb.Sp
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 21,5-28 Ib
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 25-26,5 Ib.Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 20,5-26,5 Ib
SDR 10,75-11 Ib.Bb
Bandarikjadalir 9,75-10 Bb
Sterlingspund 16,75-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Bb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 37,2
MEÐALVEXTIR
Överðtr. feb. 90 37,2
Verðtr. feb. 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 2806 stig
Lánskjaravísitala mars 2844 stig
Byggingavísitala mars 538 stig
Byggingavisitala mars 168,2 stig'
Húsaleiguvísitala 2,5% hækkaði 1. jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,702
Einingabréf 2 2,581
Einingabréf 3 3,095
Skammtímabréf 1,602
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,069
Kjarabréf 4,640
Markbréf 2,474
Tekjubréf 1,937
Skyndibréf 1,398
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,267
Sjóðsbréf 2 1,734
Sjóðsbréf 3 1,587
Sjóðsbréf 4 1,338
Vaxtasjóðsbréf 1,5060
Valsjóðsbréf / 1,6005
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 530 kr.
Eimskip 477 kr.
Flugleiðir 163 kr.
Hampiðjan 174 kr.
Hlutabréfasjóður 168 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 371 kr.
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Olíufélagið hf. 344 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb=Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að útgáfa greiðslukorts byggist á viðskipta-
trausti umsækjanda en ekki að hann leggi fram tryggingar fyrirfram. Búast
má við fjörugum umræðum á næstunni um þetta frumvarp þegar það verð-
ur tekið til umræðu á Alþingi.
Sögulegt línurit:.
Svona verður
verðbólgan
1989 1990 1991
’Heimild: Seölabanki islands
Þetta er sögulegt línurit i íslensku efnahagslífi. Verðbólgan er að snar-
minnka og verður um 4 til 6 prósent frá miðju þessu ári fram á mitt næsta ár.