Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990.
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990.
25
Iþróttir
Iþróttir
Sport-
stúfar
BAustur-Þjóðverjar
tefla fram sínu sterk-
asta liði í heimsmeist-
arakeppninni í hand-
knattleik í Tékkóslóvakxu.
Reyndar vántar einn leikmann í
hópinn, línumanninn Michael
Handschke, sem flúði til Vestur-
Þýskalands í desember og leikur
nú með Dússeldorf. Hann er 21
árs gamall og mjög efnilegur og
Langhoff þjálfari segir að það sé
mikil eftirsjá aö honum úr hópn-
um. Hinn linumaðurinn, Michael
Hahn, er meiddur en á að vera
búinn að ná sér í tæka tið.
Wahl og Schmidt
til Hameln
Wieland Schmidt, handknatt-
leiksmarkvörðurinn frægi, flutt-
ist til Vestur-Þýskalands í des-
ember og leikur nú með Hameln
sem er efst í 2. deild. Nú er ákveð-
ið aö Frank Wahl, fyrirliði aust-
ur-þýska landsliðsíns, fari eínnig
til Hameln í vor að loknu keppn-
istímabilinu heima fyrir. Hand-
knattleikssambönd þýsku ríkj-
anna eru reyndar búin að komast
að samkomulagi um að einungis
einn austur-þýskur leikmaðxxr
geti leikið með vestur-þýsku liðí
en í þessu tilvikí litur út fyrir að
Schmidt verði talinn Vestur-
Þjóðveiji-
Rostock ætlar
sér stóra hluti
Empor Rostock, sera hefur veriö
í fremstu röð í austur-þýska
handknattleiknum um árabil,
ætlar sér stóra hluti í sameinuðu
Þýskalandi. Vestur-þýskt stálfyr-
irtæki hefur tekið viö sem helsti
stuðningsaðili félagsins og mark-
miðið er að þaö verði Þýskalands-
meistari þegar þar aö kemur.
Rostock hefur nú samið við
landsliðsmennina Mathias Hahn
og Rúdiger Borchardt um að leika
með félaginu fram yfir ólympíu-
leikana 1992 og þeir félagar keyra
nú um á glæsilegumFord-bifreið-
um sem þeir fengu í sinn hlut viö
samningsgerðina.
Nýja nafnió
er FC Berlin
BFC Dynamo, austur-
þýskur meistari í
knattspyrnu samfleytt
frá 1979-1988, skipti
&
um nafn í síðustu viku. Nú nefn-
istfélagið FC Berlin, og formaður
hefúr verið ráðinn Júrgen Bogs,
fyrrum þjálfari liðsins, FC Berlin
hefúr ieikið tvo leiki gegn vestur-
þýskum félögum síðustu daga,
tapaði 4-0 í Dortmund og 0-2
heima gegn Werder Bremen. Fé-
lagið hefur þegar séö á bak
Andreas Thom til Leverkusen og
Marco Köller til Duisburg og
Thomas Doll hefur geflö til kynna
að hann vilji líka halda vestur á
bóginn í sumar. Hins vegar varð
ekkert af því að Rainer Ernst
færi til Dortmund en hannhyggst
freista þess á ný fyrir næsta tíma-
bil.
Áttatíu farnir
til vesturs
Talið er að um áttatíu austur-
þýskir knattspyrnumenn leiki nú
í vestur-þýsku 2. deiidinni og
búist er við að fleiri fari í sumar
þegar samningar þeirra heima
fyrir renna út. Austur-Þjóðverjar
ætla nú að reyna að snúa þróun-
inni við, þeir hafa ný leyft sínum
félagsliðum að fá til sín þrjá er-
lenda leikmenn. Sá fyrsti er kom-
inn, til Wismut Aue, en hann er
reyndar Austur-Þjóöverji sem
flúði vestur í.fyrra, og telst nú
vestur-þýskur þó hann hafi snúiö
til baka.
Stórsigur
KR á Nesinu
- sigruðu Þórsara, 105-70
KR-ingar halda áfram sigurgöngu
sinni í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. í gærkvöldi sigraði KR lið Þórs
með miklum yflrburðum, 150-70, eft-
ir að staðan í hálfleik var 53-29 fyrir
KR. Leikur liðanna fór fram í iþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi.
Eins og lokatölur leiksins gefa
glöggt til kynna, höfðu KR-ingar leik-
inn í sínum höndum frá upphafi til
enda. Vesturbæjarhðið byrjaði leik-
inn af miklum krafti og eftir aðeins
sex mínútna leik var staðan orðin
22-8 og spurningin aðeins hversu
stór sigur KR-inganna yrði. KR-ingar
spiluðu hraðan körfuknattleik og
léku oft á tíðum góðan leik þótt mót-
spyrna norðanmanna væri ekki mik-
il.
í síðari háfleik fengu ungu og
óreyndu leikmenn KR-liðsins að
spreyta sig og skiluðu þeir hlutverki
sínu með sóma. KR-inga eiga á að
skipa sterkasta hðinu í úrvalsdeild-
inni í dag og verður liðið ekki auð-
unnið í úrslitakeppninni um Islands-
meistaratitihnn í vor.
Birgir Mikaelsson og Páll Kolbeins-
son voru bestu leikmenn KR-inga í
leiknum en hjá Þór var Konráð
Óskarsson bestur en Dan Kennard
hefur oft leikið betur.
Bergur Steingrímsson og Kristján
Múller dæmdu leikinn og voru ekki
sannfærandi.
• Stig KR: Birgir Mikaelsson 24,
Lárus Arnason 16, Anatoli Kouvton
15, Böðvar Guðjónsson 12, Hörður
Gauti Gunnarsson 10, Guðni Guðna-
son 10, Axel Nikulásson 7, PáU Kol-
beinsson 7, Matthías Einarsson 2,
Þorbjörn Njálsson 2.
• Stig Þórs: Dan Kennard 23,
Konráð Óskarsson 15, Eiríkur Sig-
urðsson 13, Jóhann Sigurösson 5, Jón
Örn Guðmundsson 4, Guðmundur
Björnsson 3, Ágúst Guðmundsson 2,
Bjöm Sveinsson 2, Davíð Hreiðars-
son 2.
-JKS
Keflavík sigraði
með 47 stiga mun
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Keflvíkingar sigraðu Reyni meö 130
stigum gegn 83 í úrvalsdeUdinni í
körfuknattleik í gærkvöldi. Reynir
hafði undirtökin í byrjun en Keflvík-
ingar beittu á þá pressuvörn og sigu
jafnt og þétt fram úr. í hálfleik var
staðan, 60-39.
Otti Olafsson og Guðmundur Stef-
án Maríasson dæmdu leikinn mjög
vel.
• Stig ÍBK: Magnús Guðfinnsson
25, Guðjón Skúlason 23, Sandy And-
erson 18, Nökkvi Jónsson 17, Falur
Harðarson 15, Sigurður Ingimundar-
son 14, Albert Óskarsson 8, Skúh
Skúlason 6, Ingólfur Haraldsson 2,
Hjörtur Arnarsson 2.
• Stig Reynis: David Grissom 19,
Jón Ben Einarsson 17, EUert Magn-
ússon 14, Einar Skarphéðinsson 11,
Anthony Stissi 5, Helgi Sigurðsson
4, Jón Guðbrandsson 3, Sveinn Gísla-
son 2.
Guðni Bergsson í leikskrá Tottenham:
Stef nan að komast upp
um styrkleikaflokk
Gurrnar Sveiribjömsson, DV, Englandi:
í leikskrá Tottenham Hotspur sem
gefin var út fyrir leik Uðsins gegn
Aston Villa í 1. deild ensku knatt-
spymunnar í fyrrakvöld, var viötal
við Guöna Bergsson, íslenska lands-
hðsmanninn hjá Tottenham, þar sem
hann var beðinn að spá í úrslit
heimsmeistarakeppninnar í sumar,
og jafnframt spurður um möguleika
íslands í Evrópukeppni landshða.
Guðni kvaðst eiga von á því aö
Vestur-Þjóðverjar eða Brasilíumenn
yrðu heimsmeistarar, en hann bygg-
ist einnig við því að írar gætu komið
á óvart. „Það yrði gaman að sjá Chris
Hughton og félaga fara alla leið, en
kannski er þó farið að búast við of
miklu af þeim eftir góðan árangur
síðustu árin,“ segir Guðni.
Ætlum að komast upp
um styrkleikaflokk
„í Evrópukeppni landsliða erum viö
Islendingar í erfiðum riöh, sérstak-
lega vegna þess að einungis efsta
þjóðin kemst áfram,“ segir Guðni um
möguleika íslands.
„Við getum aðeins stefnt að því
sama og Norðmenn, að komast upp
um styrkleikaflokk, en ég tel að þaö
sé síður en svo fjarlægur draumur.
Við höfum sannað getu okkar, meðal
annars með tveimur jafnteflum við
Sovétmenn og við áttum möguleika
á að komast í úrsht heimsmeistara-
keppninnar, en því miður var enda-
spretturinn ekki nógu góður.
Þetta verður ekki auðvelt en við
leggjum allt í sölurnar. Það verður
áhugavert að mæta Albaníu og auð-
velt fyrir mig að fá upplýsingar það-
an því norskir og enskir félagar mín-
ir hér á White Hart Lane hafa leikið
í Albaníu," segir Guðni Bergs'son.
Undanrásir HM í badminton:
Broddi barðist
vel á móti Frost
- Danir þurftu að hafa fyrir sigrinum gegn Islendingum
• Sovétmaðurinn í liði KR, Anatoli Kouvton, lék vel með liði sínu þann tíma sem hann var inn á. Kouvton lék ekkert með i
síðari hálfleik.
„íslenska landshðið náði oft að sýna
mjög góðan leik og oft léku liðin bad-
minton eins og það gerist best í heim-
inum. Danir eiga á að skipa einu
besta hðinu og svo fór að þeir höfðu
sigur eftir marga og jafna spennandi
leiki,“ sagði Friðrik Þór Halldórsson,
fararstjóri íslenska landsliðsins í
badminton í undanrásum heims-
meistarakeppninnar, í samtali við
DV í gærkvöldi.
íslendingar léku við Dani í 16 liða
úrslitum keppninnar, sem fram fara
í Villach í Austurríki þessa dagana.
Danir, sem hlutu bronsverðlaun á
síðustu heimsmeistarakeppni í
Malaysíu, þurftu að hafa fyrir hlut-
unum gegn íslendingum í gær.
Broddi Kristjánsson lék gegn Morten
Frost, sem er númer tvö á heimslist-
anum. Viðureign kappanna var jöfn
framan af, Broddi náði forystunni,
5-1, í fyrstu lotu en Morten Frost
sýndi styrk sinn þegar á leið og sigr-
aði, 15-7. í annarri lotu náði Broddi
aftur forystu í byriun, 5-2, en Frost
tryggði sér sigur, 15-6. Broddi á lof
fyrir sína frammistöðu að sögn Frið-
riks Þórs, fararstjóra hðsins.
Þorsteinn Páll Hængsson tapaði
fyrir Paul Erik Larsen, 15-12, og 15-6.
Þorsteinn hafði um tíma í fyrri lot-
unni forystu, 10-6. Þess má geta að
Paul Erik er annar á heimslistanum
í badminton. Viðureign Guðmundar
Adolfssonar og Jens Peter Nierhoíf
var spennandi og gerði Guðmundur
sér lítið fyrir og sigraði Danann í
annarri lotu, 18-16. Jens Peter sigr-
aði hins vegar í oddalotunni.
í tvíðaleiknum biðu þeir Þorsteinn
Páll Hængsson og Broddi Kristjáns-
son lægri hlut fyrir Mark Christans-
en og Kjeldsen, 15-13, og 15-10, eftir
jafnar og spennandi lotur. Arni Þór
Hahgrímsson og Ármann Þorvalds-
son töpuðu fyrir Thomas Lund og
Max Gandrup, 15—4, og 15-4.
íslendingar léku síðan við Sovét-
menn og biðu lægri hlut, 5-0. Þreytan
var farin að segja til sín og kom hún
niður á árangri íslensku keppend-
anna. í dag sphar íslenska liðið gegn
Finnum og á góðum degi á að vera
möguleika að sigra þá.
-JKS
Bogdan samdi
við HSÍ til 1993
„Þegar Bogdan Kowalczyk skrifaði
undir viö HSÍ í fyrra gerðum við
samning við hann til 1993. Samning-
urinn er þó uppsegjanlegur af báðum
aðhum með þriggja mánaða fyrir-
vara,“ sagði Ólafur Jónsson, vara-
formaður HSÍ, í samtali við DV. Það
var Pressan sem skýröi frá þessu í
sérstöku HM-blaði í gær.
„Við stefnum á að halda þessu sam-
starfi við Bogdan áfram. Við erum
með gott lið í höndunum en líklega
á sér staö einhver breyting á hðinu
eftir heimsmeistarakeppnina en sú
uppstokkun verður þó að vera hæg,“
sagði Ólafur Jónsson.
-JKS
Spánverjar
lagðir af
stað á HM
í Tékkó
Pétur L. Pétursson, DV, Barcelona:
Spænska handboltalandsliðið, sem
leikur í sama riðli og íslendingar í
heimsmeistarakeppninni í Tékkósló-
vakíu, lagði af stað til Austurríkis í
gær þar sem fram fara síðustu æfing-
amar áður en lagt verður upp til
Tékkóslóvakíu.
Landsliðiö hefur gengið í gegnum
strangt æfingaprógramm í Castellde-
felds, smábæ nærri Barcelona, í um
vikutíma. Allt liðiö gekkst undir
læknisskoðun í gær og var leikinn
síðasti æfingaleikurinn á spænskri
grund.
Liðið verður í Vínarborg til þriðju-
dags en þá verður haldið í rútubíl til
Tékkóslóvakíu. Leiknir verða tveir
leikir gegn landsliði Austurríkis á
laugardag og sunnudag.
Spænskir flölmiðlar hafa ekki flall-
að mikiö um væntanlega mótherja
sína í keppninni. Þó er helst að um
eftirvæntingu sé að ræða viðvíkjandi
leiknum gegn Júgóslövum. ísland
mætir Spánverjum í Zlín 1. mars.
-JKS
Æfmgabuðir
Fyrir fáum dögum var upplýst í Austur-
Þýskalandi að í landinu hefðu veríð starf-
ræktar í tíu ár sérstakar æfingabúðir neðan-
jarðar, í Kienbaum sem er nálægt Berhn. Þar
hefur íþróttafólk æft í sölum þar sem líkt
hefur verið með loftþrýstingi eftir aðstæðum
í 2000-4000 metra hæð, og þar með hefur af-
kastageta þess aukist þegar það hefur kornið
í venjulegt loft.
Afreksfólk i frjálsum íþróttum, fijólreiðum,
fimieikum, handknattleik og róðri hefur fyrst
og fremst notið góðs af þessari aöstöðu, en
með þessu hafa Austur-Þjóðverjar sloppið við
að senda þetta fólk úr landi til æflnga. Kostn-
aður viö stöðina var óhemju mikill á sínum
tima, 16-17 milljónir marka, eða um 600 millj-
ónir íslenskra króna.
Aðstaðan leigó
til erlendra aðila
Nú hefur leyndarmálið verið opínberað og
Austur-Þjóðverjar hyggjast auðgast á því að
leigja aðstöðuna til erlendra aðila. Hver tími
verður seldur á 200-300 mörk, eða 4000-5000
íslenskar krónux- en salirnir eru tveir, annar
18x18 metrar á stærð en hinn 18x10 metrar.
-VS
Handboltalandsleikir gegn Hollandi í kvöld og á morgun:
„Munum leika á fullu
gegn Hollendingum“
- segir Guðjón Guðmundsson, Hðsstjóri íslenska landsHðsins
„Þetta verða lokaleikir okkar fyrir
heimsmeistarakeppnina í Tékkósló-
vakíu og við munum reyna að fara í
gegnum þá þætti sem unnið hefur
verið að undanfarið. Við munum
• Jakob Sigurðsson skoraði 8 mörk
þegar ísland vann Holland í B-
keppninni í Frakklandi, 31-17.
leika á fullu gegn Hohendingum og
það verður ekkert gefið eftir. Ég á
von á því aö Hohendingar muni bíta
hressilega frá sér og okkur hefur oft
gengið illa í síðustu landsleikjunum
fyrir stórmót. Ég vona að fólk flöl-
menni á leikina en þetta er síðasta
tækifærið sem íslenskir handknatt-
leiksunnendur hafa til að hta á lands-
liðið fyrir HM,“ sagði Guðjón Guð-
mundsson, liðsstjóri íslenska lands-
liðsins í handknattleik, í samtali við
DV í gær.
Landslið Hollands í handknattleik
er mætt til íslands og leikur í kvöld
og á morgun gegn okkar mönnum.
Lokahnykkinn er nú veriö að gera í
undirbúning íslenska liðsins fyrir
HM í Tékkó en liðið heldur áleiðis
til Tékkóslóvakíu á sunnudaginn.
10sigrar í 11 leikjum
íslendingar og Hohendingar hafa
leikið 11 landsleiki í handknattleik
og verður ekki sagt að Hollendingar
hafi riðið feitum hestum frá þeim
viðureignum. Fyrsti leikur þjóðanna
fór fram í B-keppni HM í Frakklandi
árið 1977 og þá sigraði ísland 26-20.
Aftur vann íslenska liðið í B-keppni
HM á Spáni 1979, þá 28-14. Á HM í
Frakklandi 1981 sigraði ísland 23-17
og aftur með sömu markatölu í B-
keppni HM í Hollandi tveimur árum
síðar. Fyrst léku íslendingar gegn
Hollandi hér á landi í Kópavogi 1985
og þá sigruðu okkar menn, 28-25.
Annar sigur vannst í Hafnarfirði,
26-18, á Akranesi, 25-19, og síðasti
leikur þjóðanna í keppnisferð Hol-
lendinga hingað 1985 fór fram í
Reykjavík og þá urðu lokatölur
23-20.
Eina tapið1986
Eini landsleikurinn sem íslendingar
hafa tapað gegn HoUendingum fór
fram í Hollandi árið 1986. Þá sigruðu
heimamenn, 26-24. Níunda sigurinn
unnu íslendingar árið 1987 á Polar
Cup, 23-17, og var það í þriðja skipti
í níu leikjum sem þær lokatölur sáust
á markatöflunni. Síðasti landsleikur
þjóðanna fór svo fram á síðustu B-
keppni í Frakklandi og þá vann ís-
land stóran og eftirminnilegan sigur,
31-17. í leikjunum 10 er markatalan
hagstæð, 280-192. Þess má geta aö
íslendingar hafa einu sinni leikið
gegn B-liði Hollendinga og sigraði
íslenska hðið, 27-18.
• Leikurinn í kvöld fer fram í
LaugardalshöU og hefst klukkan
átta. Síðari leikurinn, og jafnframt
síðasti landsleikur íslenska liðsins
fyrir HM fer svo fram á sama stað á
morgun, laugardag, og hefst klukkan
fimm.
-SK
Sportstúfar
Landsliðskandídatar í
frjálsum íþróttum munu
dveljast í æfingabúðum að
Laugarvatni um helgina,
laugardag og sunnudag. Það er
landsliðsnefnd FRÍ sem stendur fyrir
búðunum en þar verður æft af kappi
og haldnir fyrirlestrar.
Leiknir fær styrk
Leiknismenn úr Breið-
holti, sem leika í 4. deild-
inni í knattspyrnu í sum:
ar, hafa fengið góðan liðs-
styrk fyrir tímabUið. Þprleifur
Óskarsson, markvörður úr ÍR, Sig-
urður Sigurþórsson, vamarmaður
L
m
úr Snæfelli, og Þórarinn Guðnason,
miðjumaður frá Selfossi, hafa gengið
tíl liðs við Leikni. Þá mun Gunnar
Örn Gunnarsson leika með liðinu,
auk þess aö þjálfa, en hann var þjálf-
ari Leiknis í fyrra og gat þá ekkert
spilað með vegna meiðsla.
Bergþór í Val
Bergþór Magnússon mun leika á ný
með Valsmönnum í 1. deildinni í
knattspymu í sumar, en hann spilaði
með Víkverja í 3. deUd á síðasta tíma-
bih. Bergþór lék áður með Val um
nokkurra ára skeið, hefur spilað 46
leiki í 1. deild með félaginu og skorað
í þeim 5 mörk. Hann skoraði níu
mörk í 17 leikjum með Víkverja í 3.
deildinni síðasta sumar.
St. Mirren mætir
Clydebank í bikarnum
Guðmundur Torfason og félagar
hans í St. Mirren, mæta 1. deildar
hðinu Clydebank í 16 liða úrslitum
skoska bikarsins í knattspyrnu á
laugardaginn. „Möguleikar okkar að
vinna sigur í leiknum verða að telj-
ast góðir en Clydebank hefur samt
góðu liði á að skipa. Það kostur fyrir
okkur að leika á heimavelli," sagði
Guðmundur Torfason. Stórleikurinn
í 16 liða úrslitum er án efa leikur
erkiflendanna, Celtíc og Rangers, en
leikurinn verður á sunnudag á Park-
head, heimavelli Celtic.
30 manna hópur heldur
utan á þriðjudaginn
30 manna hópur á vegum
ferðaskrifstofunnar Sögu
heldur utan á heimsmeist-
arakeppnina í handknatt-
leik í Tékkóslóvakíu á þriðjudaginn
kemur. Að sögn Amar Steinsen,
framkvæmdastjóra ferðaskrifstof-
unnar, geta fleiri slegist í hópinn á
þriðjudaginn. Ef til kemur að ís-
lenska liðið komist áfram í milliriðil
keppninnar hefur ferðaskrifstofan
uppi hugmyndir aö um bjóða upp á
ferð til Bratislava en þar fara leikir
í milhriðlinum fram. Þegar sú staða
kæmi upp verður það auglýst nánar.
Islandsmót fatlaðra í
frjálsum innanhúss
Nú um helgina fer fram
íslandsmót íþróttasam-
bands fatlaðra í frjálsum
íþróttum innanhúss. Á
mótið eru skráðir 60 keppendur frá
sjö íþróttafélögum. Mótíð hefst í
Baldurshaga á morgun, laugardag,
kl. 10 og mótínu verður síðan fram
haldið í Laugardalshöhinni á sunnu-
dag kl. 13.30.
?h
Stúdentar
sigruðu Víkverja
Stúdentar sigruðu Vík-
verja í 1. deild íslands-
mótsins í körfuknattleik í
gærkvöldi. Eftir venjuleg-
an leiktíma var staðan jöfn en í fram-
lengingu reyndust Stúdentar sterk-
ari og sigruðu með 82 stigum gegn
77. Leikur hðanna fór fram í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans. Austur á
Laugarvatni sigruðu heimamenn í
Laugdælum lið Léttis úr Reykjavík
með 85 stígum gegn 51.
stúfar
rn“"""j Svo gæti farið að hið
I íS I Þelíiita spánska knatt-
I /7 % I spyrnulið Real Madrid
'......* setti nýtt markamet í
spönsku 1. deildinni í knatt-
spymu á yfirstandandi keppnis-
tímabili. Leikmenn liðsins hafa
heldur betur verið á skotskónum
og skorað 74 mörk í 26 leikjum
eða tæplega 3 mörk aö meðaltah
í leik. Liðið hefur aðeins tapað
tveimur leikjum á keppnistíma-
bilinu og ekki era miklar hkur á
því að liðið tapi um næstu helgi
er Real Madrid leikur gegn einu
af botnliðunum, Rayo Valiecano.
Það gæti sem sagt bæst hressilega
við markatöluna hjá Real um
helgina.
Enr» gengur iila
hjá Boston Celtics
Enn gengur iha hjá hinu fræga
liði Boston Celtícs í NBA-deild-
inni bandarísku í körfuknattleik.
Liðið hefur tapað mörgum leikj-
um í vetur en slíkt þykir jafnan
tíðindum sæta. í fyrrinótt lék
Boston á heimavellí sínum, Bos-
ton Garden, gegn Utah Jazz og
tapaði 103-116. Úrsht í öðrum
leikjum urðu þessi:
Cleveland-Portland......121-109
Detroit-Orlando........140-109
Indiana-Atlanta........123-96
Miarai-Seattle..........85-92
NJ Nets-Minnesota.......95-93
Denver-LA Lakers......111-113
Golden State-76ers......95-96
• Loks kom að þvi að nýliöar
Minnesota töpuðu leik en liðið
hafði leikið eina sex leiki i röð
án taps fyrir leikinn gegn New
Jersey Nets.
Enn eitt áfalliö
skelIuráMike Tyson
Mike Tyson hnefaleikakappi á
ekki sjö dagana sæla um þessar
mundir. Á dögunum tapaði Ty-
son heimsmeistaratíthnum til
landa síns James Douglas efth-
sögulega viðureign sem lengi
verður í minnum höfð. Lauk
henni með þvi að Tyson sjálfur
lá rotaður í hringnum. í gær varð
Tyson svo fyrh- miklu áfalli er
eina systir hans, 24 ára gömul,
lést eftír hjartaáfall. TVson tók
fráfall systur sinnar mjög nærri
sér enda voru þau mjög samrýnd.
Systír Tysons hét Deniese. Þess
má geta að Tyson á bróður á lífi
sem heitir Rodney.
„Hvíti hákarlinn“ heldur
enn sínu toppsæti
Greg Norman, bestí
kylfmgur heims, oft
nefndur „hviti hákarl-
inn“ heldur enn topp-
sætinu á hsta alþjóðagolfsam-
bandsins yfir bestu kylfinga í
heiminum. Greg Norman vann á
dögunum opna ástralska meist-
aramótíð og styrkti þar með stöðu
sína. Bretimx Nick Faldo er í öðru
sæti og hefur lýst því yfir að hann
hafi mikinn hug á aö krækja í
toppsætið. En til þess þarf hann
að leika rnjög vel því „hákarl-
inn“ gefur ekkert eftir. Spán-
verjinn Severiano Ballesteros er
í þriðja sætí og eftír honum er
haft að liann hafi Htinn áhuga á
þessum sætum. „Ef ég fer að setja
mér of rnörg takmörk er hætta á
að einbeitingin glatist," segir Bal-
lesteros. Og hann bætir því við
að hann hafi meiri áhuga á að
flölga sigrum sínum á stærstu
golfmótum hvers árs. Ballesteros
hefur þrívegis sigi-að á Britísh
open og tvívegis á US Masters.