Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Blaðsíða 28
36
Andlát
Katrín Sigrún Árnadóttir, Smára-
túni, Vatnsleysuströnd, lést á heimili
sínu 22. febrúar.
Ásta Bergsteinsdóttir, Baldursgötu
25, Reykjavík, lést í Landspítalanum
22. febrúar.
Guðmundur Ómar Dagbjartsson,
Langholtsvegi 35, Reykjavík, lést 21.
febrúar.
Jardarfarir
Jónina Gunnarsdóttir lést 14. febrú-
ar. Hún var fædd á Neistastöðum í
Vilhngaholtshreppi 20. október 1899,
dóttir Gunnars Jónssonar og Guð-
bjargar Guðbrandsdóttur. Jónína
giftist Þorbergi Sigurjónssyni, en þau
shtu samvistum. Þau eignuðust
fimm syni og eru fjórir á hfi. Útför
Jónínu verður gerð frá Hafnarfjarð-
arkapellu í dag kl. 15.
Hafsteinn Júlíusson lést 15. febrúar.
Hann fæddist í Vestmannaeyjum 8.
júní 1928. Foreldrar hans voru hjónin
Sigurveig Björnsdóttir og Júlíus
Jónsson. Hafsteinn lærði múrverk
og vann við þá iðn mestan hluta ævi
sinnar. Frá árinu 1985 hefur hann
átt og rekið heildsölufyrirtæki sem
sér um vörur og þjónustu fyrir frysti-
iðnaðinn. Eftirhfandi eiginkona hans
er María Bjömsdóttir. Þau hjónin
eignuðust sex böm. Útfór Hafsteins
-'verður ferð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Valgeir Kristófer Hauksson, Spóa-
rima 15, Selfossi, verður jarðsunginn
laugardaginn 24. febrúar kl. 13.30 frá
Selfosskirkju.
Hólmfríður Jónsdóttir, Skólabraut
3, Seltjarnarnesbæ, lést í Borgar-
spítalanum 18. febrúar 1990. Útfór
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Útfór Guðbjargar Björnsdóttur, Suð-
urgötu 25, Sandgerði, er lést 13. þ.m.
verður gerð frá Hvalsneskirkju laug-
ardaginn 24. febrúar kl. 14.
Sigríður Ágústsdóttir frá Bíldudal
verður jarðsungin frá Bíldudals-
kirkju laugardaginn 24. febrúar kl.
14.
Magnús Þ. Mekkinósson lést 15. fe-
brúar. Hann fæddist 16. júní 1928.
Foreldrar hans vom Mekkinó
Bjömsson og Dagmar Þorláksdóttir.
Magnús rak um áratugaskeið mat-
vöruverslun á homi Oðinsgötu og
Baldursgötu. Eftirhfandi eiginkona
hans er Guðrún Siguröardóttir. Þau
hjónin eignuðust fjögur börn. Útfór
Magnúsar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Ólafur Siguijónsson lést 18. febrúar.
Hann fæddist í Reykjavík 27. mars
•1926, sonur Sigurjóns Á. Ólafssonar
og Guðlaugar Gísladóttur. Ólafur
stundaði sjómennsku á yngri árum
en 1958 hóf hann störf hjá Orkustofn-
un og starfaði hann þar til dauða-
dags. Eftirlifandi eiginkona hans er
Guðrún Pétursdóttir. Þau hjónin
eignuöust fimm höm. Útfór Ólafs
verður gerð frá Áskirkju í dag kl.
'13.30.
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990*
Tilkyiiniiigar
Fundur hjá Aglow
Fundur verður hjá Aglow mánudags-
kvöldið 26. febrúar nk. Fundurinn verður
í Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst hann
kl. 20. Formaður Aglow á íslandi, Ásta
Júliusdóttir, mun tala á fundinum og er
yfirskriftin: Persóna heilags anda - kraft-
ur guðs. Allar konur eru hjartanlega vel-
komnar og eru hvattar til aö taka með
sér gesti.
Hið íslenska
náttúrufræðifélag
Mánudagskvöldið 26. febrúar mun Kjart-
an Thors jarðfræðingur halda fyrirlestur
á vegum Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags. Meðal annars mun hann rekja um-
merki neðansjávar sem benda til að við
lok ísaldar eða upphaf nútíma hafi sjáv-
arstaða verið mun lægri í Faxaflóa,
Kollafirði og Hvalfirði og allt að 40 m
lægri í Eyjafirði. Einnig verður fjahað
um hvemig landslagi var þá háttaö á
þessum slóðum, hvemig hægt er að fara
nær um tímasetningu þessara atburða
og ástæður þess að saga sjávarstoöu-
breytinga á Islandi í ísaldarlok er frá-
bmgðin því sem þekkist annars staðar.
Fyrirlesturinn, sem er öllum opinn að
venju, verður í stofu 101 í Odda, hugvís-
indahúsi.Háskólans, og hefst kl. 20.30.
Kristilegt félag
heilbrigðisstétta
heldur fund mánudagskvoldið 26. febrúar
kl. 20.30 í safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju. Fundarefni: Heiladauði og sið-
fræðileg vandamál í ljósi Biblíunnar. 1.
Hveiju breytir viöurkenning á heila-
dauða? 2. Er hætta á misnotkun varöandi
heiladauða? Fundarstjóri sr. Jón Bjarm-
an. Frammæiendur: dr. Ásgeir B. EUerts-
son yfirlæknir og cand. theol. Gunnar J.
Gunnarsson. Fundargestir geta að lokn-
um íramsöguerindum borið fram spurn-
ingar til frummælenda. Allir sem áhuga
hafa á þessu fundarefni eru boönir vel-
komnir.
Laugardagskaffi Kvennalist-
ans
verður á morgun, laugardag, kl. 11 að
Laugavegi 17. Allir velkomnir.
Af álf um og kálf um
Indæll kunningi minn heitir Ólafur
G. Einarsson. Hann er annar þing-
maður Reykjaneskjördæmis og
formaður þingflokks sjálfstæðis-
manna. Ólafur þessi sendir mér
kveðju sína í DV 20. febrúar. Dag-
farsprúður er Ólafur en þó bregður
svo við að þegar hann ritaði kveðju
þessa þá hefur legið illa á honum
aldrei þessu vant, því Ólafur G. er
ekki fúllyndur maður.
Það er í senn veikleiki og styrkur
Ólafs að hann er með ólíkindum
drottinhollur. Drottinn Ólafs heitir
Þorsteinn Pálsson, núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, og ht-
ur Ólafur upp til Þorsteins og er
honum fylgispakur svo að með ein-
dæmum má telja. Drengskapur Ól-
afs í garð foringja síns er honum
að sumu leyti styrkur í sinni örð-
ugu pólitísku lífsbaráttu og gerir
honum vafalítið marga dagana létt-
bærari. Á hinn bóginn er þessi
óvenjulega foringjadýrkun ðlafs
G. honum mikill veikleiki af því að
hún ber ekki beinlínis vott um
þróttmikla dómgreind.
Ergelsi Ólafs G.
Sú er orsök tU geðshræringa Ól-
afs að honum þykir sem ég hafi
ekki sýnt Þorsteini Pálssyni næga
lotningu í greinarstúf sem ég skrif-
aði um nýgerða kjarasamninga í
DV fyrir nokkrum dögum.
í grein minni varaði ég sjálfstæð-
ismenn og þó sérstaklega núver-
andi formann þeirra, Þorstein Páls-
son, stranglega við því að reyna að
spilla hinum góða árangri sem náð-
ist í kjarasamningunum. Þetta var
ekki gert að ófyrirsynju af minni
hálfu vegna þess að títtnefndur
Þorsteinn haföi haft uppi ósköp
kjánalega tUburði í ræðustól á AI-
þingi þegar hann var að öfunda rík-
isstjórnina fyrir að henni hafði lán-
ast með skynsamlegu endurreisn-
arstarfi að rétta þjóðfélagíð við eft-
ir ólukkustjórn hans sjálfs og
skapa grundvöU til skynsamlegra
kjarasamninga.
Sárreiður við sannleikann
Þótt Ólafur minn hafi farið í fýlu
var ekkert ofsagt í grein minni
heldur einungis sagan rakin ná-
kvæmlega og rétt og bent á orsakir
og afleiðingar og sambandið þar á
miUi. Það er ekki mér að kenna að
Þorsteinn skyldi verða slíkur
KjaHarinn
Páll Pétursson
alþingismaður fyrir
Framsóknarflokkinn
slysarokkur í íslenskri pólitík þeg-
ar flokkur hans fól honum fyrst
ráðherrastól í fjármálaráðuneyti
og síðan forsætisráðherrastól, en
honum hélt Þorsteinn í 14 mánuði
og það var 14 mánuðum of lengi.
En um það á ég m.a. að eiga við
sjálfan mig og Uokksbræður mína,
en við bárum hluta ábyrgðar á
þeirri ráðleysu að hafa Þorstein í
forsætisráðuneytinu.
Sögunni þeirri fáum við Ólafur
G. hvorugur breytt og það er
ósanngjarnt af Ólafi að fara í fýlu
við mig út af því að Þorsteinn var
mislukkaður forsætisráðherra. Ól-
afur ætti hins vegar að vera þakk-
látur fyrir aö Þorsteinn skyldi á
endaspretti svikja hann um ráð-
herrasæti í ríkisstjórn sinni og
velja í staðinn annan meðreiðar-
svein. Þó að Ólafl sárnaði þá sneri
Guö þessu til góðs fyrir hann.
Mismunandi drengskapur
Það er annars til marks um mis-
muninn á drengskap þeirra Þor-
steins og Ólafs að alltaf þegar Þor-
steinn þarf á að halda ber hann
hagsmuni Ólafs fyrir borð og rekur
í hann lappirnar, tekur út úr hon-
um bitana og lítillækkar hann og
gerir ómerkan. - Þetta er því
raunalegra að Ólafur G. er lang-
besti maðurinn í þingliði Sjálfstæð-
isflokksins og sá greindasti líka, þó
að hann missjái sig svona á Þor-
steini og hnipri sig saman í skugg-
anum hans.
Kærleiksheimilið
Það verður ekki sagt að Sjálfstæð-
isflokkurinn sé samhentur. Þar er
ævinlega hver höndin upp á móti
annarri og mikil hætta á að fyrir-
ferðarhtlir menn eins og Ólafur
verði troðnir undir. - Það er annars
merkilegt rannsóknarefni hvernig
regnhlifarsamtök eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn hangir saman.
Margvísleg hagsmunatengsl fyr-
irtækja, ætta og einstaklinga
krækja þessum gerólíku illskeyttu
khkum, sem mynda Sjálfstæðis-
flokkinn, saman. Stundum, þegar
klaufaskapur forsvarsmanna
flokksins er sem mestur, slitna ein-
hverjar klíkur burtu eins og gerðist
þegar Albert var sparkað, en and-
rúmsloftið hreinast ekkert við það,
allt logar í hatri og illdeilum.
Alikálfi fórnað
Á síðasta landsfundi kom þetta
berlega í ljós. Þá varð brúklegur
varaformaður Friðrik Sophusson
fyrir því að vera troðinn undir.
Einn af frekjudöllum flokksins,
Davíð Oddsson, fann upp á því að
heimta að verða varaformaður. -
Davíð hafði ofmetnast vegna þess
að hann hafði lifað of lengi í vernd-
uðu umhverfi Sjálfstæðisflokksins
í borgarstjórn.
Þar hafði hann getað barið
flokksbræður síná til hlýðni og
fannst hann sjálfur vera vel til for-
ustu fallinn á landsvísu og mál til
komið að yflrgefa borgarstjórn.
Þess vegna hrifsaði hann varafor-
mennskuna af sitjandi varafor-
manni og niðurlægði hann svo að
hann bíður þess aldrei hætur.
Ég sé í aiida þegar Davíð verður
orðinn þingmaður sumarið 1991
hversu ráðhohur Friðrik verður
honum eða þá Þorsteinn og Ólafur
sem vita að næst muni Davíð veita
þeim tilræði. - Mér segir svo hugur
um að þá komi fljótlega í ljós að
varaformaðurinn eigi torsótta leið
fyrir höndum að sameina Sjálf-
stæðisflokkinn á einu kærleiks-
heimili.
Samhentari hópur
Núverandi ríkisstjórn er studd
af fimm nokkuð ólíkum flokkum.
Þrátt fyrir það er samstarf þeirra
gott og með heilindum og mun
standa a.m.k. út kjörtíambilið.
Það er mikill munur fyrir okkur
framsóknarmenn að starfa með
hinum fjórum flokkunum eða með
Sjálfstæðisflokki í ríkisstjórninni
1983-1987. Sjálfstæðisflokkurinn
var þá eins og nú óhæfur til þess
að koma að landsstjórninni vegna
innbyrðis óheihnda og sundur-
þykkju. Þess vegna er það tóm vit-
leysa hjá Ólafi Ragnari og Jóni
Baldvin að vera að reyna að sam-
eina flokka sína.
Núverandi stjórnarflokkar hafa
sannað að þeir geta unnið saman
með ágætum en þurfa ekki á neinni
sameiningu að halda. Það er miklu
betra að ólíkar skoðanir og mis-
munandi lífsviðhorf fmni sér stað
í aðskildum stjórnmálaflokkum
heldur en að samtengjast í ein-
hverjum pólitískum óskapnaði eins
og Sjálfstæðisflokkurinn er.
Þessi grein er á enda. Ég vona að
kunningi minn Ólafur taki gleði
sína aftur og hætti að vera reiður
við mig en finni sér fullnægingu í
að þjónusta Þorstein Pálsson í
framtíðinni.
Þegar grein þessi gengur út á
þrykk verður þing Noröurlanda-
ráðs að hefjast í Reykjavík. Þar
verðum við Ólafur báðir og þá
verður að hafa bráð af Ólafi, enda
er hann fyrir utan aðra mannkosti
samkvæmismaður góður og þess
þarf einnig með í Norðurlandaráði.
Veislurnar situr hýr og hress
hérumbil alveg laus við stress.
Afhurða góður er til þess
annar þingmaður Reykjaness.
Páll Pétursson.
„Á hinn bóginn er þessi óvenjulega for-
ingjadýrkun Ólafs G. honum mikill
veikleiki af því að hún ber ekki beinlín-
is vott um þróttmikla dómgreind.“
Sigríður Vilhjálmsdóttir lést 15. fe-
brúar. Hún var fædd á Seltjamarnesi
18. september 1903, dóttir hjónanna
Bjargar ísaksdóttur og Vilhjálms
Guðmundssonar. Sigríður giftíst
Sveinbimi Gíslasyni en hann lést
árið 1978. Þau hjónin eignuðust tvær
dætur. Útför Sigríðar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag kl. 15.
Fjölmiðlar
Þjóðlegur matur
Heimildaþættirnir um íslenska
matargerð eru dæmi um ágætt
samstarf fjölmiöils, stofnana og
áhugafólks. Örbylgjuofnakynslóð-
in veit lítið sem ekki neitt um þjóð-
legar heföir í mat og heiti eins og
magáll eða lundabaggi eru þeim
framandi.
Matráð heitir félagsskapurinn
sem hefur það að markmiði að afla
heimilda um foma matargerð og
kynna nútíma íslendingum. Marg-
ir standa að ráðinu og má nefna
Þjóðminjasafnið, matreiðslumeist-
ara, kvenfélög um allt land og hús-
stjómarkennara.
Á síðasta vetri voru þættir um
íslenska matargerð á rás 1 og var
þá lýst eftir heimildum frá almenn-
ingi alls staðar af landinu. Það kom
í ljós að mikiö af gömlu fólki í
landinu kunni eitt og annað fyrir
sér varðandi íslenskan, þjóðlegan
mat og lét
í té vitneskju sem að öörum kosti
hefði getað glatast með tímanum.
Kostur sjónvarps umfram út-
varps í svona fræðslu er augljós.
Að sjá handbrögð og tækjakost út-
skýrir aðferöina mun betur en
mörg orð. Þeir sem aldrei hafa séð
mat eldaðan í hver, baunir brennd-
ar eða hlóðabakstur hijóta að vera
margs fróðari.
Heiti þáttana í Ríkissjónvarpinu
var Innansleikjur. Orðið þýðir í
raun matarleifar í iláti en ég er
ekki frá því að titillinn hafi virkað
fráhrindandi á margt ungt fólk sem
setur þjóðlegan mat í samband við
eitthvað subbulegt. En alíslenskt
fræðsluefni um land og þjóð er
nauösynlegt framtak í íslensku
sjónvarpi og ætti aö vera oftar á
dagskrá.
Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir