Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Síða 32
tu»w*!
** i.-«■««*»
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er ga?tt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
FOSTUDAGUR 23. FEBRUAR 1990.
Tugir innbrota
upplýsast
Komiö hefur í ljós að fjórir piltar,
sem voru handteknir viö Litlu kafS-
stofuna þar sem þeir höfðu fest bíl
sinn aðfaranótt miðvikudagsins, eiga
aðild að tugum innbrota í Reykjavík
á síðastliðnum vikum.
Lögreglan á Selfossi handtók f]ór-
menningana í Svínahrauni þegar
þeir voru á leið til Reykjavíkur. Voru
þeir grunaðir um að hafa gert tilraun
til þjófnaðar í báti í Þorlákshöfn.
Voru þeir búnir að bera sjónvarps-
tæki út á þilfar bátsins þegar þeir
flúðu í burtu. Voru þeir síðan færðir
í fangageymslur lögreglunnar í
Reykjavík.
Rannsóknarlögregla ríkisins tók
síðan málið til meðferðar. Við yfir-
heyrslur kom í ljós að fjórmenning-
amir hafa mjög látið til sín taka
vegna afbrota víðsvegar um borgina
að undanförnu. Að sögn Jóns
Snorrasonar, deildarstjóra hjá RLR,
tengjast ffeiri aðilar íjórmenningun-
-um. Jón sagði við DV í morgun að
hér væri um tugi innbrota að ræða.
-ÓTT
Umhverfisráðherra í dag?
Kjaramálin
töfðu um-
neytið
LOKI
Fréttu þeir á ísberginu ekki
af B-deginum?
200 kassar af bjór og 435 kíló af skinku fundust í ísberginu:
Foldu smyglið i
fiskkössum í gámi
Tvö hundruð kassar af bjór og tæp-
lega hálft tonn af skinku fannst i
gámi í flutningaskipinu ms. ísbergi
við leit tollvarða úr rannsóknar-
deild tollgæslunnar i gær. Pimm
skipverjar hafa játað að eiga smyg-
hð. Gáraurinn stóð í annarri hæð
á þilfari þegar skipiö kom til Hafh-
arfjarðar frá Noregi i gænnorgun.
Smyglið fannst síðan í tómum fisk-
kössum som áttu að flytjast í gámn-
um með skipinu til ísafjarðar í vik-
unni.
ísbergiö komfrá útlöndum í gær-
morgun og var Beraen síðasti við-
gámurinn átti aö fara áfram til Isaíjarðar
komustaöur skipsins. Tollverðir
ákváöu að leita í öllum gámum sem
skipið kom með til landsins. Toll-
verðimir voru búnir aö íjarlægja
mikið magn af tómum fiskkössum
úr gámnum þegar þeir komu loks
að kössunum þar sem búið var að
raða smyglvamingnum í. Fisk-
kassarnir, sem smygliö fannst í,
voru aliir innst í gámnum.
Kom þá í Ijós að þar voru tvö
hundruð kassar af bjór geymdir og
87 fimm kílóa dósir af skinku. Mest
af biórnum. sem laet var haid á
var Tuborg-bjór en töluvert magn
var einnig af Carlsberg Elephant
og Beek’s. Gámurinn var hifður í
land og varningurinn síðan fluttur
til Reykjavíkur með sendibíl. Málið
er að fullu upplýst.
Að sögn Kristins Ólafssonar toll-
gæslusijóra mun bjórimr, sem lagt
ýar hald á í gær, fara á útsölustaði
ÁTVR samkvæmt lögum. Aöspurð-
ur um hvað gert yrði við skinkuna
sagði Kristinn að ef um hráa kjöt-
vöru væri áð ræða, sem er smygf,
væri slíkt yfirleitt brennt eða því
PVfff á flnnati KáH' VaWtanrK
una sagði Krístinn að hún yiöi
sennilega seld úr landi um borð í
skip sem sigla til útlanda. Aðspurð-
ur um hvort skinkan færi ekki á
innanlandsmai-kað, þar sem hún
er niðursoðin og í raun lögleg, sagði
Kristinn:
„Varðandi niðursoðið kjöt ems
og skinku þykir ekki eölilegt að
setja það á markað hér þar sem um
verndunarsjónarmið gagnvart
landbúnaði er að ræða. Það verður
þvi reynt að koma kjötinu í pening
fyrir ríkissjóð - þó ekki á innan-
landsmarkaöi."
skemmdar-
Sljórnarfrumvarp um Stjórnarráð
íslands kom ekki á dagskrá í efri
deild Alþingis í gær en 3. umræða
er eftir áður en frumvarpið verður
að lögum. Ætlunin er að ljúka um-
ræðu um málið í dag en að sögn Júl-
hsar Sólnes hagstofuráðherra er
íkkert samkomulág við stjórnarand-
stöðuna um að ljúka umræðunni.
Ef frumvarpið verður að lögum,
ains og flest bendir til, ætti Júlíus að
verða fyrsti umhverfismálaráðherra
andsins í dag. í gær voru það kjara-
málin sem töfðu fyrir frumvarpinu
m útht er fyrir að kjaramálafrum-
varpið verði einnig samþykkt í dag.
Júlíus sagði að næstu mánuði yrðu
starfsmenn umhverfisráðuneytisins
önnum kafnir við að skipuleggja
starfsemi þess. Vegna þess sagðist
hann ekki hafa áhyggjur af tillögum
framsóknarmanna um gróðurvernd
en þær fela í sér að ákvörðunarvald
þar um er flutt til landbúnaðarráðu-
neytisins. Júlíus játaði að hann heföi
3kki verið hrifinn þegar hann sá þær
fyrst en sagði að þær yrðu aðeins
millibilsástand þar til ný lög um
_ Landgræðsluna. og Skógræktina
yrðu samþykkt. Stefnt er að því að
samþykkja þau næsta haust. _SMJ
verk
á Sauðár-
Menn úr „svarta gengi“ tollgæslunnar, með tæki sín og tól, bera Tuborg og Elephant bjór út úr
20 feta gámi á hafnarbakkanum í Hafnarfirði í gær. Bjórinn og skinkan, sem lagt var hald á,
var upphaflega í fiskkössum inni í gámnum. Tollgæslan vildi ekki gefa upp hvort ákveðinn
grunur hefði leikið á um að smygl væri í skipinu áður en það kom til landsins.
DV-mynd S
Brotist var inn á vélaverkstæði á
Sauðárkróki í fyrrinótt og stolið það-
an tugum þúsunda króna í pening-
um. Verið var að vinna fram á nótt
á verkstæðinu og var innbrotið síðan
framið eftir að starfsmenn yfirgáfu
þaö.
Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki hefur verið mikið um innbrot
og skemmdarverk þar að undan-
fórnu. Nýlega var brotist inn í
íþróttahúsið, gagnfræðaskólann og í
sundlaugina. í öllum tilfellum var
peningum stohð og skemmdir unnar.
Mikið tjón hefur verið vegna rúðu-
brota á öllum þessum innbrotsstöð-
um. Einnig var brotist nýlega inn á
bensínstöð Shell á Sleitustöðum sem
er skammt frá Sauðárkróki. Þaðan
var stolið talsverðum verðmætum.
Lögreglan telur allt benda til þess
að við innbrotin á Sauðárkróki hafi
sömu aðilar verið að verki. Rann-
sókn stendur yfir vegna ahra þessara
innbrota.
-ÓTT
Veðrið á morgun:
Snjókoma
sunnan- og
vestanlands
Á morgun þykknar upp með
austan- og suðaustanátt. Snjó-
koma sunnan- og vestanlands síð-
degis. Úrkomulítiö á Norður- og
Austurlandi. Hitinn verður við
frostmark við suður- og austur-
ströndina en undir frostmarki
vestan- og norðanlands.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Uti að aka
í 40 ár
BILALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00
f
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
\
\