Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1990, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1990.
Fréttir dv
Skuldir sveitarfélaganna:
Skuldir Hofsóss eru meira
en milljón á fjölskyídu
- skuldimar meira en þrefalt hærri en árstekjumar
Fimmtán skuldugustu sveitarfélögin
til samanburðar við skuldir Reykvíkinga
Hofsós
Bíldudalur
Ólafsvík
Blönduós
Siglufjörður
Hveragerði
Stykkishólmur
Vatnsleysustr.
Láxárdalshr.
Þórshöf n
Ólafsfjörður
ísafjörður
Breiðdalsvik
Kjalarnes
Sauðárkrókur
Reykjavík
0 200 400 600 800 1 000
þús. kr. á hverja fjögurra manna f jölskyldu
Hofsós er skuldugasta sveitarfélag
á íslandi. í árslok 1988 voru skuldir
sveitarfélagsins um 71 milljón króna
á núvirði. Það jafngildir því að hver
íbúi staðarins hafi skuldað um 268
þúsund krónur og hver fjögurra
manna fjölskylda um 1 milljón og 72
þúsund krónur.
Til samanburðar má geta þess að
skuldir Reykvikinga jafngilda um 122
þúsund krónum á hveija fjögurra
manna fjölskyldu. Hofsósbúar
skulda nærri því níu sinnum meira
en Reykvíkingar.
Skuldirnar þrisvar sinnum
hærri en tekjurnar
Á sama tíma og skuldir hvers Hofs-
ósbúa voru 268 þúsund krónur voru
árstekjur sveitarfélagsins um 86 þús-
und krónur. Ef allar tekjur Hofsóss
færu í að greiða niður skuldirnar
tæki það sveitarfélagið því um þrjú
ár og einn mánuð.
Reykvíkingar gætu hins vegar
greitt niður allar skuldir sínar á
þremur mánuðum ef öllum tekjum
borgarinnar yrði varið til þess.
Hofsós hefur nokkra sérstöðu með-
al sveitarfélaga vegna mikillar
skuldsetningar. Þó eru skuldir
margra sveitarfélaga gífurlegar og
ein tuttugu skulda meira en fjórum
sinnum meira en Reykvíkingar.
Fjórir bæir með meira en
800 þúsund á fjölskyldu
Mestu skuldaramir á eftir Hofsós-
búum eru Bílddælingar, Ólafsvíking-
ar, Blönduósbúar og Siglfirðingar.
Af þessum hópi skulda BOddælingar
mest eða um 836 þúsund krónur á
hveija fjölskyldu en Siglfirðingar
minnst eða 812 þúsund krónur á fjöl-
skyldu.
Tekjur þessara sveitarfélaga eru
nokkuö misjafnar. Þannig tæki það
Bílddælinga um tvö ár og fimm mán-
uði að greiða skuldir sínar, Siglfirð-
inga mánuöi skemur og Ólafsvíking-
ar yrðu búnir með skuldirnar mán-
uði fyrr en Siglfirðingar. Blönduós-
búar yrðu hins vegar búnir með
skuldirnar eftir tvö ár og einn mánuð
þó að skuldir þeirra séu hærri en
Sigfirðinga.
Skulda meira en 600
þúsund á fjölskyldu
Á eftir þessum fimm skuldugustu
sveitarfélögum landsins, kemur
Hveragerði en skuldir bæjarins jafn-
gilda um 728 þúsund krónum á
hveija fjölskyldu. Þar næst kemur
Stykkishólmur með um 700 þúsund
krónur á fjölskyldu, þá Laxárdals-
hreppur með 696 þúsund krónur og
Vatnsleysustrandarhreppur með 636
þúsund krónur á hverja fjögurra
manna íjölskyldu.
Það tæki öll þessi sveitarfélög
meira en tvö ár aö greiða niður
skuldir sínar, þó svo aö öllum tekjum
þeirra yrði varið til þess, að Stykkis-
hólmi undanskildum. Þar sem tekjur
hans eru nokkuð miklar tæki það
um eitt ár og níu mánuði að greiöa
niður skuldir bæjarins.
Tvö önnur sveitarfélög skulda
meira en 600 þúsund krónur á hveija
íjögurra manna fjölskyldu, Þórhöfn
612 þúsund krónur og Ólafsfjörður
er með rétt rúmar 600 þúsund króna
skuld á hveija fjölskyldu.
Skulda meira en fjórum
sinnum meira en Reykjavík
Á eftir Ólafsfirði kemur ísafjörður
sem skuldar sem svarar 596 þúsund-
um á fjölskyldu. Breiödalsvík skuld-
ar 576 þúsund, Kjalames 556 þúsund
og loks Sauöárkrókur 552 þúsund.
Á súluriti hér til hhðar má sjá
skuldir fimmtán skuldsettustu sveit-
arfélaganna. Til samanburðar eru
skuldir Reykvíkinga. Eins og sjá má
eru skuldir þessara sveitarfélaga
margfaldar á við skuldir borgarbúa.
Þau sveitarfélög, sem eru fyrir neð-
an fimmtán mestu skuldarana, eru
Raufarhöfn, Flateyri, Neskaupstað-
ur, Vopnafjörður og Djúpivogur.
Eins og áður sagði duga tekjur
Reykvíkinga til að greiða upp skuld-
irnar á þremur mánuöum. Þaö sveit-
arfélag sem er best sett af þeim
fimmtán verst settu, Sauðárskrókur,
væri hins vegar eitt og hálft ár að
greiða upp skuldirnar.
-gse
Akureyri:
Farfuglaheimili
við Bjarmastíg
hafnað
Gyjfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Erindi Bandalags islenskra far-
fugla um að breyta íbúðarhúsinu
Bjarmastíg 5 á Akureyri í 50
manna farfuglaheimili hefur tví-
vegis verið til umræðu í bygging-
arnefnd og einu sinni hjá bæjar-
stjórn og verður ekki orðið viö
erindinu.
Byggingarnefnd segir að í er-
indinu hafi ekki verið gerð grein
fyrir hvernig leysa megi vanda-
mál varðandi aðkomu og bila-
stæði sem þessari starfsemi fylgi
óhjákvæmilega og ekki verði séð-
ir neinir möguleikar í því efni í
næsta nágrenni lóðarinnar.
Faríð sé fram á 50 rúma gisti-
heimili. Hönnun þurfiþví að mið-
ast við öryggisreglur um hótel
eins óg regla sé ef um stærri gisti-
stað en 10 rúma sé að ræða. Þá
telur byggingamefnd að grennd-
arkynning verði að fara fram
verði lagöar fram teikningar sem
upptylla ákvæði um aðkomu,
bílastæði og innra skipulag. Þar
sem þessar ástæöur séu óbreyttar
itreki nefndin fyrri afstöðu sína
og hafni erindinu.
Margir vilja í
Giljahverfi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Aðalgeir Finnsson hf. og S.S.
Byggir hf. hafa fengið úthlutað
byggingarióðum í hinu nýja Gilja-
hverft á Akureyri og er byggingar-
frestur tíl 1. október n.k.
Mikill áhugi var meðal bygg-
ingarfyrirtækja i bænumá lóðum
í Giljaliverfi ef marka má umsón-
ir í byggingarlóðir í tveimur göt-
um, Tröllagili og Drekagili. Alls
sóttu 7 fyrirtæki um að fá að
byggja við Tröllagil og 8 um bygg-
ingarleyfi við Drekagil.
Niöurstaöa byggingamefndar
varð sú að Aðalgeir Finnsson hf.
fékk lóöirnar nr. 2-28 við Drekag-
il og S.S. Byggir hf. lóðirnar 1-21
viö Drekagil og 2-14 við Tröllagil.
Þá er eftir að úthluta lóðunum
1-27 við Tröllagil.
í dag mælir Dagfari_____
Bílstjórar í bófahasar
Hálfgerð borgarastyijöld er nú háð
á götum Reykjavíkur. Sendibíl-
stjórar geysast um torg og stræti
og bjóða gangandi fólki frítt far með
bílum sínum og vegfarendur eiga
fótum sínum íjör að launa svo að
þeir verði ekki fyrir þegar leigubfi-
stjórar og sendibílstjórar keppast
um að verða fyrri til að bjóöa fram
þjónustu sína.
Þetta styrjaldarástand kemur í
kjölfarið á skæruhemaðinum í
röðum langferðabOstjóra sem
lögðu sig afia fram fyrir nokkrum
dögum til að útrýma þeim atvinnu-
rekstri sem þeir starfa við. Mætti
helst halda að bflstjórar á íslandi
væru allir komnir í beinan karUegg
frá Sturlungum og séu nægjanlega
herskáir tíl að grípa til vopna ef
þjóðin þyrfti á fótgönguUði að
halda í komandi heimsstyijöldum.
Verst er hvað það er friðvænlegt í
heiminum um þessar mundir.
Annars væm íslenskir bUstjórar
áreiðanlega eftirsóttir í útlendinga-
hersveitir víða um heim og auðvit-
að hafa þeir ennþá tækifæri til að
spUla friðnum og koma iUu af staö
annars staðar en á götum Reykja-
vikur.
TUefni ófriðarins á leigubUa-
markaðnum mun vera það að
sendibílstjórum er bannað að flytja
farþega með pakka, nema taka fyr-
ir það virðisaukaskatt, meðan
leigubUstjómm er ekki bannaö að
flytja farþega með pakka án þess
aö taka fyrir það virðisaukaskatt.
Munurinn er Uka sá að sendibíl-
stjórar mega ekki flytja pakka án
farþega nema mkka um virðis-
aukaskatt meðan leigubílstjórar
flytja pakka án farþega án þess að
rukka um virðisaukaskatt.
Þetta er sumsé spumingin um
það hver má flytja hvað. Ef maður
hringir í sendibO til að flytja pakka
fyrir sig úr einu hverfinu í annað
má hann ekki taka sér far með
sendibílnum. Ef sami maður hring-
ir hins vegar í leigubíl má hann
ekki taka pakka með sér inn í leigu-
bOinn - eða þá að kúnninn þarf að
borga virðisaukaskatt af sjálfum
sér, ef hann ferðast með sendibO,
en borga aftur á móti viröisauka-
skatt af pakkanum ef hann ferðast
með leigubfl.
Þetta getur auövitað orðið ansi
snúið og þá sérstaklega fyrir bíl-
stjórana sem verða þá annaðhvort
að úthýsa farþegunurr eða pakkan-
um ef þeir vilja vera löghlýðnir og
haga sér í samræmi við reglugerð
fjármálaráðuneytisins. Þar sem
farþegar hafa yfirleitt ekki tök á
því að lesa reglugerðir fjármála-
ráðuneytisins áður en þeir leita
þeirrar þjónustu, sem bílastöðv-
amar bjóða upp á, verður stöðin
aö taka fyrirfram skýrslu af kúnn-
anum, sem pantar leigubíl, og inna
hann eftir því hvort böggull fylgi
skammrifi. Ef böggulUnn fylgir þá
eiga leigubUastöðvarnar að benda
kúnnanum á reglugerðina og segja
honum að panta sendibíl fyrir
pakkann meðan hann fari sjálfur
með leigubílnum.
Sendibílastjórar eru að vonum
óánægðir með sinn hlut í þessum
sendiferðum og vilja alveg eins geta
flutt farþega eins og pakka og skilja
ekki hvers vegna þeir þurfa aö
borga virðisaukaskatt af bögglum
en ekki skammrifum. Hafa þeir
íjölmennt niöur á Alþingi og hóta
ráðherra frekari aðgerðum og það
harðnandi ef þessum ójöfnuði linn-
ir ekki hið snarasta. Bófahasarinn
á laugardagskvöldið var aðeins
forsmekkurinn aö þeim skæru-
hernaði sem sendibílstjórar munu
grípa til á götum höfuðborgarinnar
ef ríkisstjómin ætlar áfram að fara
í manngreinarálit á mönnum og
pökkum.
Ekki hafa sendibílstjorarnir i efið
það upp í hveiju þessar aögtröir
eru fólgnar en það er eins gott fyr-
ir leigubflstjórana að vara sig og
þá ekki síöur kúnnana sem hætta
sér inn í leigubílana. Sendibílar eru
engin lömb að leika sér við þegar
þeir eru komnir á fulla ferð í hark-
inu. Það versta viö þetta er aö leigu-
bOstjórar eru sárasaklaus fóm-
arlömb í þessum bófahasar vegna
þess að þeir hafa ekki gert annað
af sér en fylgja þeirri reglugerð sem
kveður á um virðisaukaskattinn.
Það er Ólafur Ragnar sem er
syndaselurinn í þessu máli, enda
hefur Ólafur flúið land og stígur
hvorki upp í sendibíla né leigubíla
á meðan á þessu stríösástandi
stendur.
BOaleikurinn í höfuðborginni
mun halda áfram. Ef þið sjáið
sendibíl nálgast er næsta árás í
aðsigi. Varið ykkur á sendibOun-
um!
Dagfari