Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1990, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1990, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1990. 43 Lífsstm - algjör Borgarskipulag hefur sent frá sér tillögu sem gerir ráö fyrir því að matvöruverslanir fái umsögn skipu- lagsnefndar áöur en borgarráð veitir þeim starfsleyfi. Tillagan miðar að því að stemma stigu við útbreiðslu matvöruverslana í trássi við skipu- lag. Tillagan bggur nú hjá Kaup- mannasamtökum íslands til um- sagnar. „Þetta verður borið undir félags- menn og umsögn gefm um tillöguna. Meira get ég ekki sagt á þessu stigi,“ sagði Magnús Finnsson, fram- kvæmdastjóri Kaupmannasamtak- anna, í samtab við DV. „Þessi tblaga er algjör tímaskekkja og fáránlegt ef hún nær fram að ganga,“ sagði Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, í samtah við DV. Bónusverslanirnar tvær, sem tekið hafa til starfa, eru báðar í húsnæði sem ekki var ætlað undir slíka starf- semi. „Þetta myndi hefta okkar fram- þróun ef þetta verður samþykkt," sagði Jóhannes. „Mér finnst að ef menn hafa réttindi í sinni starfsgrein og húsnæði sem uppfybir kröfur heilbrigðisyfirvalda þá eigi yfirvöld ekki aö skipta sér af því frekar hvar þeir stunda verslun. Kerflð hefur ekki gert það fram til þessa og ég get ekki skibð hvers vegna tillagan gerir ráð fyrir að mat- vöruverslun sæti einhverju sérstöku tímaskekkja og óeðlileg afskipti, segir Jóhannes Jónsson í Bónus eftirhti umfram aðra atvinnustarf- semi. Mér finnst þetta lykta af því að samkeppnisaðilar hafl náð að beita þrýstingi í þessu máli. Þetta er í hæsta máta óeðblegt." Fjölmargar matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu, þeirra á meðal nokkrar þær stærstu, t.d. Mikhgarð- ur við Sund og Hagkaup í Skeifunni, starfa í húsnæði sem skipulag gerði ekki ráð fyrir aö notað yrði fyrir verslunarrekstur. Nái umrædd tibaga fram að ganga verða matvöruverslanir að fá um- sögn skipulagsnefndar áður en leyfi borgarráðs fæst og gera má ráð fyrir að þær fengju ekki leyfi til reksturs í skemmum, vörugeymslum og öðru slíku húsnæði sem ekki var ætlað til slíks samkvæmt skipulagi. „Það er nú einkum þróun undan- farinna ára sem er hvatinn að þess- ari tillögu," sagði Bjarni Reynarsson, skipulagsfræöingur hjá Borgar- skipulagi, einn höfunda tillögunnar í samtab við DV. „Verslanir hafa verið settar upp í iðnaðar- og at- hafnahverfum þar sem skipulag ger- ir ekki ráð fyrir því. Dæmi um þetta eru Bónusverslanimar og ýmsir af- sláttarmarkaðir. Við skipuleggjum íbúðarhverfi með verslanamiðstöðv- um og viljum því hafa hönd í bagga með því að slík starfsemi verði ekki leyfð þar sem aðkoma og annað hent- arekki." -Pá Borgarskipulag vill fá að hafa hönd i bagga með hvar matvöruverslanir eru og fá að veita umsögn um það hvort þeim verður leyft að starfa í iðnaðarhverfum. Safn aðskotahluta - þar á meðal kótelettubeina Fjölbreytt safn aðskotahluta, sem fiarlægðir hafa verið úr nefi, eyrum, hálsi, barka eða vébnda fólks, hangir uppi á göngudeild Borgarspítalans. í safninu kennir margra grasa og má nefna ýmis bein, peninga, rafhlöður og fiölbreytt úrval ýmissa plasthluta. í safninu er að finna þrjár beinflís- ar úr kótelettum sem fiarlægðar hafa verið úr vébnda. Á það var bent í DV á dögunum að fólki gæti beinlín- is stafað hætta af rangt söguðum kótelettum. 2-3 koma árlega á slysa- deild með beinflísar úr kótelettum 'B fastar- í hálsinum. Sérstaklega er eldra fólki, sem er með gervitennur, hætt við óhöppum af þessu tagi. Einnig má sjá í þessu safni fisk- bein, kjúkbngabein og selbein sem setið hafa föst í hálsi manna. -Pá Símagjald á lyfseðla: 44 krónur á hverja tegund Sérstakt símagjald er tekið fyrir afgreiðslu á lyfseðlum gegnum síma. Gjaldið er 44 krónur fyrir hverja teg- und á lyfseðhnum. Gjald þetta þarf sjúklingurinn að greiða að fubu. Þetta þýðir að fyrir t.d. lyfseðil, sem á eru þrjár tegundir af lyfium og tek- ið er móti gegnum síma, þarf sjúkl- ingurinn að greiða 132 krónur. Hvert skref á dagtaxta kostar 2,99 krónur og er 6 mínútur að lengd. „Þetta gjald er ákveðið af hinu op- Neytendur inbera í lyfiaverðskrá. Það er ávabt lyfiafræðingur sem tekur á móti lyf- seðlum," sagði Werner Rasmussen, lyfsah í Ingólfsapóteki, í samtab við DV. „Það er engin stétt sem er eins umkringd af reglugerðum og lyfsal- ar. Þeir ráða engu um verðlagningú lyfia, hvorki álagningu né aukagjöld af þessu tagi. Ríkið ákveður þetta abt saman," sagði Werner. Miðað viö að móttaka eins lyfseðils með þremur lyfium taki sem svarar einu skrefi er móttökugjaldið rúm- lega 4.400% hærra en skrefagjaldið. -Pá Fiskdagar í Straumnesi Verslunin Straumnes í Breið- holti hefur ákveðið að hafa sér- staka fiskdaga á þriðjudögum og miðvikudögum. Þessa daga verður lögð sérstök áhersla á að bjóða mikið og fiölbreytt úrval af hvers kyns fiskréttum, svo og ferskum fiski. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að full ástæða er tU að hvetja til auk- innar fiskneyslu vegna þeirra holl- ustu sem það felur í sér. Fitusýrur þær sem er að finna í fiskinum hafa jákvæð áhrif á blóðfitu og fiölda annarra þátta sem stuðla að almennu heUbrigði. Verslunin Straumnes er við Vest- urberg 76 og er opin til kl. 19.00 á virkum dögum. -Pá Svindlað á sendibílum - reglugerð í smíðum Fjármálaráðuneytið hefur gefið út sérstaka reglugerð til varnar því aö kaupendur sendibfia fari í kringum lögin um virðisaukaskatt. Talsverð brögð munu hafa verið að því að kaupendur sendibíla láti skrá þá sem atvinnutæki og losna þar með við að borga virðisauka- skatt við kaupin. Rúm skilgreining á því hvað telj- ist vera sendibíll og hvað ekki, ákvæði í reglugerð dómsmálaráðu- neytis um þetta mál, auðveldar mönnum enn frekar að fara í kring- um lögin. „Það var vitað að reynt yrði á þanþol laganna tíl hins ýtrasta. Undirbúningsnefnd vegna virðis- aukaskatts ákvað að tekið yrði á hverju tilfelb fyrir sig og með þess- ari reglugerð er verið að gera mönnum erfiðara fyrir að fara í kringum lögin,“ sagði Mörður Árnason, upplýsingafulltrúi fiár- málaráðuneytisins, í samtab við DV. Það sem menn gera er að kaupa sendiferðabíl, skutbíla með sætum fyrir fleiri en tvo farþega og fleiri bíla. Bílamir eru skráðir sem at- vinnutæki og þar með ekki greidd- ur virðisaukaskattur af þeim. Síð- an er hægt að bæta saetum í sendi- bílana og nota til tíl einkaafnota. í reglugerðinni segir að til inn- skatts megi telja öflun, rekstur og leigu fólksbifreiðar, þ.m.t. skut- bifreiða (station) og jeppabifreiða fyrir færri en níu menn enda hafi menn ekki með höndum sölu eða leigu bifreiða þessara. Eftirtalin atriði þurfa að eiga við bifreið svo hún teljist aðallega ætluð til vöru- flutninga: Skráð þyngd í fólksrými skal vera minni en helmingur af skráðri burðargetu bifreiöar. Miða skal við að hver maður vegi 75 kfió. Farmrými, opið (pallur) eða lokað, aftan við öftustu brún sætis eða núlhþUs, skal vera að minnsta kosti 170 cm. Sé það styttra skal það vera lengra en fólksrýmið mælt frá miðri framrúðu. í farmrými mega hvorki vera sæti, sætisfestingar né annað búnaður til farþegaflutn- inga. Sé bifreið breytt úr fólksbif- reið í vöruflutninga- eða sendibif- reið skulu sæti í farmrými fiarlægð með varanlegum hætti, t.d. þannig að sætisfestingar séu einnig fiar- lægðar.-Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.