Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1990, Page 32
F
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Simi 27022
Biðu eftir
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1990
rútu í nótt
Tuttugu og einn nemandi og tveir
kennarar úr Menntaskólanum við
Sund þurftu að bíða í á sjötta tíma í
rútu við afleggjarann á Þrengslavegi
skammt frá skíðaskálanum í Hvera-
dölum í nótt. Hafði hópurinn verið í
mat í skíðaskálanum og lagði fólkið
af stað áleiðis á Hótel ísland um 21.30
í gærkvöldi. Rútan festist svo í skafli
í miklu snjókófi við afleggjarann.
Björgunarsveitarmenn komu fólk-
inu svo til hjálpar og var það komið
aftur í skíðaskálann á fjórða tíman-
um í nótt. Þar gisti hópurinn í nótt.
-ÓTT
Konur ætla
að kæra klám
Samtökin Konur gegn klámi hyggj-
ast kæra dreifingu á myndabanda-
spólum sem auglýstar hafa verið sem
„fulloröinsmyndir" í smáauglýs-
ingadálki DV. Samtökin boðuöu
pingmenn, rannsóknarlögreglu-
menn og fulltrúa ríkissaksóknara á
sinn fund í gær og sýndu sýnishorn
úr þeim myndum sem hægt var að
fá í gegnum auglýsinguna. Kæran
hefur hins vegar ekki enn borist sak-
sóknara.
Síðast birtist þessi auglýsing í smá-
auglýsingadálki DV 14. febrúar síð-
asthðinn. Ritstjórar blaðsins hafa
ákveðið að þessi auglýsing fái ekki
að birtast aftur. -gse
Kjarasamningar
sjómanna í strand
í gær slitnaði upp úr samningavið-
ræðum sjómanna og útgeröarmanría
hjá sáttasemjara. Að ósk sjómanna
hefur annar sáttafundur ekki verið
boðaður. Ástæðan er sú að Sjó-
mannasamband íslands hefur boðað
til formannafundar næstkomandi
þriðjudag til að ræða stöðuna.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambandsins, sagði í morgun
aö hann vildi ekki spá neinu um
framháldið. Hann sagöist vita aö
harka væri í sjómönnum og því gæti
allt gerst ef sama mótstaða yrði hjá
útgerðarmönnum varðandi olíuhlut-
deildina og verið hefur á samninga-
fundunum tveimur.
Sjálístæðisflokkurinn á Akureyri:
■ ■ ■ m ■■ w ' i
TifAiv1 ln2Ai2iipfiiIItvii2iif ;
I WCrl IfCWGrjCBI 1M IM MCfll A
settir út í kuldann
Gylfi Kristjánsaon, DV, flkuieyri;
„Það er algiört hneyksli aö ílokkur,
sem telur síg vera lýðræðisflokk,
skuli ganga gegn niöurstöðu eigin
skoðanakönnunar meðal flokks-
manna sinna og setja tvo bæjarfull-
trúa, sem komu mjög vel út úr þess-
ari könnun, út í kuldann, hremlega
henda þeim út af listanum. Þetta er
ekkert annað en klofningur í
flokknum,“ segir sjálfstæðismaöur
úr innsta hring flokksins á Akur-
eyri, en uppstillinganefnd flokksins
hefur hathað bæjarfulltrúunum
Jóni Kr, Sólnes og Guðfinnu
Thorlacius í efstu sæti listans a.m.k.
Jón Kr. Sólnes varð í 3. sæti skoð-
anakönnunarinnar, Guðfmna
Thorlacius í 4. sæti og fékk lang-
bestu útkomu kvenna. Fljótiega
varð ljóst að uppstillingarnefndin
vildi fá konu í 3. sætið, og samning-
ar höfðu tekist milli Jóns og Guð-
finnu um það að hún yrði í 3. sæt-
inu. Uppstillingarnefndin var hins
vegar á öðru máli og niðurstaða
hennar varðandi efstu sætin er að
Sigurður J. Sigurðsson verði í 1.
sæti, Björn Jósep Arnviðarson í 2.
sæti, Birna Sigurbjörnsdóttir i 3.
sæti, Vaigerður Hrólfsdóttir í 4.
sæti og Hólmsteinn Hólmsteinsson
í 5. sæti. Flokkurinn á fióra fulltrúa
í bæjarstjórn.
Innan Sjálfstæðisflokksins er nú
farið að ræða um sérframboð þvi
ekki sé hægt að una þessum vinnu-
brögöum uppstillingarnefndar. En
hvað segir Jón Kr. Sólnes um það?
„Éghefekki tekið afstöðu til þess.
Eins og allir vita fór fram könnun
innan flokksins en það virðist sem
lýðræðisöflin hafi ekki yfirhöndina
í Sjálfstæðisílokknum á Akureyri
og það á ekki að una niðurstöðum
þessarar könnunar vegna þess að
hún hentar ekki þeirn sem ráða
málum. Ég hef ekki gert út um
þetta mál viö mittilokksfólk,“ segir
Jón Kr. Sólnes.
„Menn eru ekki búnir að segja
sitt síðasta orð í þessu máli. Ég er
farínn að spyrja mig þeirrai’ spurn-
ingar eftir hvaða leikreglum Sjálf-
stæðisflokkurimi hér á Akureyri
starfi,“ segir heimildarmaður DV.
Hamt sagði að Þorsteini Pálssyni
hetði verið tilkynnt hvað væri að
gerast en þrátt fyrir afskipti hans
af málinu yrði uppstillingarnefnd-
inni ekki haggað. Hún mmt Ieggja
tfllögu sína fyrir flokksráðsfund í
næstu viku og segir heimildarmað-
ur DV að ljóst sé að þar sé einung-
is um formsatriði að ræða.
Þjóðverji í fangelsi:
Dæmdur fyrir
fjársvik
„Þeir hafa ekki einu sinni veriö til
viðtals um það mál en olíuhlutdeildin'
er það sem við leggjum höfuðáherslu
á,“ sagði Óskar Vigfússon.
-S.dór
Með kaffibollann i annarri hendi og pípuna í hinni horfir allsherjargoðinn Sveinbjörn Beinteinsson fram á við þar
sem hann situr á einu kaffihúsa höfuðborgarinnar í gær. Án efa hefur kaffið komið sér vel i óveðri þvi sem rikti í
gær en ekki er að sjá annað en að allsherjargoðinn sé vel útbúinn til aö takast á við veðrið. DV-mynd GVA
Þjóðverji situr nú í fangelsi hér á
landi eftir að hafa nýlega orðið upp-
vís að fjársvikum á Hótel Loftleiðum.
Pétur Guðgeirsson sakadómari kvað
upp sextíu daga-fangelsisdóm yfir
manninum síðastliðinn fóstudag.
Þjóðverjinn fór strax í afplánun þeg- |
ar dómur var upp kveöinn.
Maðurinn hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum en hann dvaldi á
hótelinu frá 19.-22. febrúar síðastlið-
inn. Að lokinni dvöl þar reyndi hann
að greiða fyrir sig með erlendri ávís-
un og reyndist viðkomandi reikning-
ur vera lokaður. Maðurinn var
kærður til Rannsóknarlögreglu rík-
isins sem síðan krafðist þess að hann
yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Ríkissaksóknari lagði síðan fram
ákæru til Sakadóms Reykjavíkur þar
sem Pétur Guðgeirsson sakadómari
dæmdi Þjóðverjann í sextíu daga
fangelsi síðastliðinn föstudag. Hon-
um var einnig gert að greiða hótelinu
90 þúsund króna skaðabætur.
Maðurinn var dæmdur fyrir fjár-
svik með því að láta skrá sig á hótel- |
ið, dvelja þar og láta færa sér veiting-
ar og annan beina án þess að hann
hefðimöguleikaáaðgreiða. -ÓTT
Veörið á morgun:
Léttskýjað
og frost
Á morgun verður norðlæg átt
um mestallt landiö, víðast gola
eða kaldi. Dálítil él við norður-
ströndina, en annars úrkomulít-
ið. Léttskýjað víða sunnanlands.
Frost verður 2-8 stig.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Uti að aka
í 40 ár
I
BÍLALEIGA Á
v/FlugvalIarveg
91-61-44-00 4
Á