Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Page 23
LAUGARDAGUR 17, MAR&199Q.
23
Helgarpopp
Ævintýri
frá írlandi
Vel unnin, metnaðarfull og jafnvel
krefjandi popptónlist er ekki hátt
hlutfall af öllu því framboði sem er
af þeirri tegund tónlistar í dag (hér
er poppi og rokki ekki ruglað sam-
an). Því þykir maður hafa himinn
höndum tekið þegar í hendur berst
spilverk sem uppfyllir áðurnefnda
þætti.
írska hljómsveitin The Adventur-
e’s sendí nýlega frá sér sína þriöju
plötu, Trading Secrets With the Mo-
on, en þar er á ferð marglitt popp,
vendilega pælt og meðhöndlað.
Þó að nafn hljómsveitarinnar hafi
ekki farið hátt hér á landi þá getur
hún tæpast talist ný af nálinni. Þaö
var árið 1978 að skólafélagarnir Pat
Gribben og Terry Sharp ákváðu að
hleypa heimdraganum og freista
gæfunnar í háborg breskrar dægur-
tónlistar, Lundúnum. Þeim varð lítið
ágengt framan af en í árslok 1983
tóku þeir upp fjögur demolög fyrir
útgáfufyrirtækið Chrysalis og á
sama tima tók The Adventure’s á sig
mynd hljómsveitar. Árið 1985 sendi
hljómsveitin frumburð sinn á mark-
að, plötuna Theodore and Friends.
Sá gripur þótti lítt spennandi, tónlist-
in flöt og ófrumleg. Reyndar notaði
hljómsveitin fimm útsetjara á plöt-
unni og bar hún þess merki. Theod-
ore and Friends var fylgt eftir með
tónleikaferð þar sem The Adventur-
e’s túraði m.a. upphitunarband fyrir
Tears for Fears. Eftir fyrstu plötuna
ákvað hijómsveitin að söðla um,
hverfa frá hljóðgervlapoppinu og
leita þess í stað rótanna í írskri tón-
listarhefð. Breyttar áherslur skiluðu
árangri á Sea of Love frá árinu 1988.
Fiðla, munnharpa , harmóníka og
kassagitarar báru smekklegar laga-
smíðar uppi og greinilegt var að
hljómsveitin var á heimavelli. Kelt-
neskur uppruni hljómsveitarmeð-
hma skilaði sér í gegnum tónlistina
sem var full af birtu og yl. Viðtökur
voru enda góðar og ekki skemmdi
árangursríkt tónleikaferðalag The
Adventure’s með Fleetwood Mac vel-
gengni íranna.
Nýja platan
Eins og fyrr sagði kom þriðja plat-
an út fyrir stuttu þó að vinnslu við
hana hafa verið lokið á síðastliðnu
hausti. Forráðamenn Elektra útgáfu-
fyrirtækisins þótti vert að bíða fram
yfir jól með útgáfuna, enda líklegt
að Trading Secrets With the Moon
hefði týnst í jólafárinu og slíkt heföi
verið að henda beitu í dauðan sjó,
eins og gamall maður orðaði það.
Um plötuna segir Pat Gribben, gít-
arleikari og lagasmiður The Advent-
ure’s:
„Trading Secrets With the Moon
er allt sem segja þarf um The Advent-
ure’s, hún lýsir okkur sem persónum
Pat Gribben og Terry Sharpe, helmingur hljómsveitarinnar The Adventure’s.
og okkar tónhstarlegu hugmyndum.
Platan er einlæg og heiðarleg. Leik-
gleði einkenndi upptökur sem runnu
í gegn sem hrein skemmtun og án
erfiðleika.
Sea of Love var að vissu leyti barn
síns tíma, yfirbyggingin var mikil og
útsetningar oft á tíðum uppskrúfað-
ar. Við reyndum að forðast að falla
í sömu gryfju, áherslan nú var öll á
einfaldleikann og lögin sjálf látin
standa upp úr.“
Um margt er hægt að samþykkja
þessi orð Pat Gribben. Einfaldleikinn
og einlægnin eru þeir þættir sem
fyrst hrífa hlustandann. Myndrænar
tónsögur fara The Adventure’s best
eins og reyndar fleiri írskum hljóm-
sveitum. Lögin eru að stofni til bráð-
smekkleg og platan vex með hlustun
hverri.
í einu eða jafnvel tveimur lögum
veður hljómsveitin í villu og virðist
hreint ekki samkvæm sjálfri sér. Hér
skal sérstaklega nefna til sögunnar
lag sem kallast Love Lost Town en
þar tekur hljómsveitin útjaskaða
rokkfrasa og gerir að sínum. Þetta
feilspor brýtur plötuna dálítiö upp
sem heild.
Annars er hér um eigulegan grip
að ræða fyrir unnendur vandaðrar
popptónlistar. Af lögum sem standa
upp úr má nefna You’re Greatest
Shade of Blue sem er innblásið af
flutningi Joni Mitcheh í tónleika-
myndinni The Last Waltz, Bright
New Morning sem er samlíking á
pólitísku ástandi á írlandi nútímans
við hungursneyðina sem hrjáði þjóð-
ina í upphafi 19. aldar og orsakaðist
af kartöfluskorti (og aðgerðaleysi
Englendinga) og að síðustu má nefna
ágætt lag sem Pat Gribben samdi í
félagi við Lloyd Cole og kallast De-
sert Rose.
Shavn Ryder, söngvari Happy Monday's.
lands síðustu misserin og henni lýst
sem óhefluðum brautryðjanda. Sér-
staka gleði vekur hversu skemmti-
lega hljómsveitinni hefur tekist að
flétta „psychadelísku-indie" rokki
saman við sjóðheita iðandi danstón-
hst.
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
Happy Monday’s kemur hingað frá
meginlandi Evrópu þar sem hljóm-
sveitin hefur verið á tónleikaferða-
lagi undanfarnar vikur. Héðan held-
ur hún heim til Bretlands þar sveit-
arinnar bíða skemmtileg verkefni,
m.a. tvennir 9 þúsund manna tón-
leikar í Manchester auk tónleika í
Wembley Arena.
Happy Monday’s þykir einkar
frískleg á sviði og th að tryggja að
gleðin verði við völd hefur einn
Happy Monday's á íslandi
Rétt er að minna rokkáhugafólk á
að Menntaskólinn við Hamrahlíð er
vettvangur tónlistarviðburðar í
kvöld, en þá stígur á svið rokk-dans-
hljómsveitin áheyrilega Happy
Monday’s frá Manchester á Eng-
landi. Lesendur voru uppfræddir um
sögu og hagi hljómsveitarinnar fyrir
hálfum mánuði en þar kom m.a. fram
að Happy Monday’s hefur verið
hampað í heimalandinu sem einni
athyghsverðustu hljómsveit Eng-
hinna sex hljómsveitarmeðhma
þann starfa að dansa hljómsveitina
og áhorfendur í stuð. Góða skemmt-
un.
Ekki þýðir
að sýta
dýran
Dylan
heldur...
Listahátíö hefur hingað til stað-
ið þokkalega undir nafni. Undir
merki hátíðarinnar hefur hst-
unnendum landsins veriö boðið
til veislu íyrir augu og eyru. Á
seinni árum hefur meira að segja
þörfum unnenda alþýðutónlistar
verið sinnt og það svo ágætlega
að væntingar í garð Listahátíðar
eru orönar talsverðar hjá þeim
hópi. Nú er miður mars og dag-
skráin farin að taka á sig mynd,
enda hátíðin vanalega haldin
fyrri hluta júnímánaöar. Þegar
forvitinn rokkfýkill grennslast
fyrir um hvaða molar verða bom-
ir honum og hans hkum á borð á
komandi Listahátíð verður fátt
um svör. Engar ákvarðanir hafa
verið teknar. Ekki það að for-
ráðamönnum Listahátíðar hafi
ekki staöið neitt bitastætt til
boða, þvert á móti hafa aðilar eins
og Sinnead O’Connor, Stevie Ray
Vaughan, Lloyd Cole, Jesus &
Mary Chain, The Gypsy King og
fleiri verið tilbúnir aö koma og
það fyrir skaplega þóknun, eftir
því sem poppsíðan kemst neest.
Listahátíð hefur hins vegar ekki
haft áhuga á þeirri forsendu að
hér sé ekki um nógu þekkta flytj-
endur aö ræða.
Poppsíðan gleöst yfir metnaöi
Listahátíðar þó hún telji reyndar
fyrrnefnda tónlistarmenn vel
boðlega mörlandanum. Poppsíð-
an telur til heiha að eitthvað fari
að gerast í þessum málum þannig
að unnendur tónlistar á öllum
viröingarstigum hafi ástæðu th
aö gleöjast yfir Listahátíð 1990.