Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1990, Side 42
50
LAUGARDAGUR 17. MARS 1990.
Afmæli
Einar Egilsson
Einar Egilsson, fyrrverandi inn-
kaupastjóri, Sólheimum 25, Reykja-
vík, veröuráttatíu áraá morgun,
18. mars.
Einar er fæddur í Hafnarfirði og
þarólst hann einnig upp. Hann lauk
gagnfræöaprófi frá Flensborg 1928
og stundaði síðan verslunarnám í
tvö ár við Pitsman’s College í Lon-
don og lauk prófi þaðan 1931. Á
námsárunum var hann mikiö til
sjós í sumarleyfum. Einarstarfaði á
skrifstofu Kveldiilfsí6árfrá 1931
eða þar til hann fór til Suður-
Ameríku. Þá dvaldi hann í tvö ár í
Argentínu þar sem hann vann á
skrifstofu Swift & Co. Þaðan fór
hann til Chile þar sem hann stund-
aði bátaútgerð i þrjú ár. Árið 1941
kom Einar heim til íslands og vann
við ýmiss konar verslunarstörf þar
til hann fluttist með íjölskylduna til
Mexíkó 1950. Þar veitti hann for-
stöðu gosdrykkjaverksmiðju
Canada Dry til ársins 1954. Þá flutt-
ist hann aftur heim og vann við
verslunar- og skrifstofustörf þar til
hann réðst til Rafmagnsveitu ríkis-
ins 1967, fyrst sem fulltrúi en síðar
sem innkaupastjóri. Einar lét af
störfum þar 1985.
Einar kvæntist þann 7.4.1945
Margréti Thoroddsen, viöskipta-
fræðingi, húsmóöur og fyrrverandi
deildarstjóra Tryggingastofnunar
ríkisins, f. 19.6.1917. Foreldrar
hennar voru Sigurður Jónsson
Thoroddsen, yfirkennari og lands-
verkfræðingur, d. 29.9.1955, og Mar-
ía Claessen Thoroddsen húsmóðir,
d. 24.6.1964.
Börn Einars og Margrétar eru:
María Lovísa, f. 29.10.1945, lyfja-
fræðingur, búsett í Kópavogi, gift
Hannesi Sveinbjörnssyni, f. 27.9.
1946, kennara, og eru börn þeirra:
Sveinbjörn, f. 17.12.1967, Einar, f.
30.1.1974, Ásgerður Þórunn, f. 5.7.
1980, og Sigurður, f. 19.4.1984.
Egill Þórir, f. 25.2.1948, efnaverk-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Hlaðgerði Bjartmarsdótt-
ur, f. 13.7.1951, kennara, og eiga þau
einn son, Einar Bjart, f. 8.3.1988.
Barn Egils og Hólmfríðar Gunn-
laugsdóttur fóstru er Salvör, f. 27.2.
1985.
Þórunn Sigríður, f. 24.2.1950,
meinatæknir, búsett í Reykjavík,
gift Halldóri Árnasyni, f. 21.10.1950,
forstöðumanni Ríkismats sjávaraf-
urða, og eru börn þeirra: Árni
Björgvin, f. 5.10.1972, Margrét Her-
dís, f. 3.10.1974, Einar Egill, f. 31.5.
1979, ogSteinn,f. 7.4.1989.
SigurðurThoroddsen, f. 10.8.1953,
tónlistarfræðingur, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Auði Vil-
hjálmsdóttur, f. 20.6.1954, innan-
hússarkitekt, og eiga þau eina dótt-
ur, Margréti Dögg, f.‘20.10.1976.
Margrét Herdís, f. 11.6.1961, bók-
bindari, búsett í Reykjavík, gift
Bjarna Má Bjarnasyni, f. 29.11.1955,
sjúkraliða.
Systkini Einars: Jensína, f. 21.9.
1905, húsmóðir í Hafnarfirði, ekkja
Gísla Sigurgeirssonar, f. 1.3.1893;
Sigrjður, f. 2.10.1906, d. 1.4.1950, var
gift JóniFinnbogasyni, f. 1.10.1907,
sem einnig er látinn; Guðmundur,
f. 25.10.1908, d. 31.10.1987, loft-
skeytamaður, var kvæntur Ástu
Einarsdóttur, f. 1.10.1917, enþau
slitu samvistum; Gunnþórunn, f.
10.6.1911, húsmóðir og kaupmaður
í Hafnarfirði, gift Sigurbirni Magn-
ússyni, f. 2.10.1910, rakarameistara;
Nanna, f. 10.8.1914, lést af slysförum
22.3.1979, söngkona, var gift Birni
Sv. Björnssyni, f. 15.10.1909, kenn-
ara í Borgarnesi; Svanhvít, f. 10.8.
1914, söngkennari og fyrrv. prófess-
or í Vín í Austurríki, var gift Jan
Moravek en þau slitu samvistum;
Gísli Jón, f. 31.3.1921, d. 22.4.1978,
kaupmaður, var kvæntur Sigrúnu
Þorleifsdóttur, f. 16.12.1927, kaup-
manni í Hafnarfirði; og Ingólfur, f.
4.12.1923, d. 2.1.1988, rakarameist-
Einar Egilsson.
ari í Garðabæ, var kvæntur Svövu
Júlíusdóttur, f. 30.12.1925, húsmóð-
ur.
Foreldrar Einars voru Egill Hall-
dór Guðmundsson, f. 2.11.1881, d.
29.9.1962, sjómaður í Hafnarfirði,
og Þórunn Einarsdóttir, f. 16.12.
1883, d. 28.5.1947, húsmóðir.
Egill var sonur Guðmundar Guð-
mundssonar á Hellu í Hafnarfirði,
eins af hinum nafntoguðu Hellu-
bræðrum.
Foreldrar Þórunnar voru Einar
Jóhannesson Hansen og Jensína
Ólína Árnadóttir Mathiesen í Hafn-
arfirði.
Til hamingju með afmælið 17. mars.
85 ára 50 ára
Kristján Jóhanncsson, Efstasundi 32, Reykjavik. Valgarður Þorkclsson, Bjargarstíg 2, Reykjavík. Sigríður E. Svcrrisdóttir, Undarhvammi 2, Hafnarfirði. Kristján Þ. Stephensen, Beykihlíð 9, Reykjavik.
80 ára Þverá, Reykdælahreppi. Þorleifur Kristinn Valdimarsson,
Gísli Guðmundsson, Austurgötu 9, Hafnarfirði. Magnús Þorsteinsson, Óðinsgötu 16B, Reykjavík.
Hátúnl, Borgarfiarðarhreppí. Sigríður Pálsdóttir, Kópavogsbraut 59, Kópavogi. 40 ára
70 ára Smyrlahrauni 33, Hafnarfirði. Friðfinnur Halldórsson,
Aðalsteinn Vigmundsson, Eskihlíð 35, Reykjavík. Herbert Eyjólfsson, Valfargötu 9, Keflavik. Sefgörðum 8, Seltjarnarnesi. Guðbjörg M. Karlsdóttir, Kársnesbraut 36A, Kópavogi. Hrönn Brynjarsdóttir, Engjaseli 81, Reykjavík.
60 ára Þórunnarstræti 135, Akureyri. Ragnheiöur Pálsdóttir,
Ingvar Þorleifsson, Sólheimum, Svinavatnshreppi. Hvassabergi 12, Hafnarfirði.
Þórður Elías Sigfússon
Júlíus Sigurðsson
Júlíusson
Júlíus Sigurðsson Júlíusson leigu
bílstjóri, Þinghólsbraut 10, Kópa-
vogi, verður sjötugur á þriðjudag-
inn, 20. mars.
HANDFRÆSARAR
MOF-96E
750 W
8.000-
24.000
sn/mín
MOF-131
1.300 W
18.000
sn/mín
afi.
Skeifunni 11 d, simi 686466
Július Sigurðsson Juliusson.
Júlíus fæddist í Reykjavík og ólst
þarupp.
Eiginkona hans er Þóra Karólína
Þórormsdóttir, f. 2.5.1922 á Fá-
skrúðsfirði. Foreldrar hennar voru
Stefanía Indriðadóttir, f. 4.5.1898 á
Eyri við Fáskrúðsfjörð, og Þórorm-
ur Stefánsson, f. 23.4.1886 í Breiðdal.
Foreldrar Júlíusar voru Emanúel
Júlíus Bjarnason, f. 7.7.1886 að Ey-
steinseyri við Tálknafjörð, og Jó-
hanna Jóhannesdóttir, f. 19.12.1889
í Miðneshreppi.
Júlíus og eiginkona hans taka á
móti gestum á heimili sínu á morg-
un, sunnudaginn 18. mars, eftir kl.
16.
Þórður Elías Sigfússon verkamað-
ur, Dalbraut 18, Reykjavík, er ní-
ræður í dag.
Elías er fæddur á Valstrýtu í
Fljótshlíð og alinn upp í Fljótshlíð-
inni. Hann hóf sjóróðra á áraskipi
frá Herdísarvík á vertíðunum 1916
og 1917. Eftir það stundaði hann
vertíðarstörf í Vestmannaeyjum til
1925 en það ár sest hann að í Eyjum.
í Vestmannaeyjum tók Elías virkan
þátt í stjórnmála- og verkalýös-
baráttu, var einn af stofnendum sjó-
mannafélagsins Jötuns og sat í
stjórn þess. Einnig var hann í
Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja þar
sem hann var formaður um árabil.
Elías flutti til Reykjavíkur ásamt
fjölskyldu sinni 1965 og vann í
Kassagerð Reykjavíkur fram yfir
áttræðisaldur.
Fyrri kona Elíasar var Guörún.
Jónsdóttir en hún lést 1930.
Síðari kona Elísar er Guðfinna
Einarsdóttir, f. 1906. Foreldrar
hennar voru Einar Einarsson og
Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Stuðl-
um við Norðíjörð.
Börn Elíasar af fy rra hjónabandi:
Erna Kristín, áður búsett á Egils-
stöðum en nú í Kópavogi; Sigfús
Ágúst, lést af slysförum 1948.
Börn Elíasar og Guðfinnu eru:
Einar Pálmar, f. 1935, iðnrekandi á
Selfossi, og Sigfús Þór, f. 1944, pró-
fessor í tannlækningum við Háskóla
íslands.
Fóstursonur Elíasar, sonur Guð-
finnu, er Sigurbergur Hávarðsson
rafeindavirki.
Systkini Elíasar: Steingrímur Pét-
ur, f. 1894, látinn; Sigurþór Júlíus,
f. 1901, látinn; Magnús Árni, f. 1903,
látinn; Borgþór Sigurbjörn, f. 1905,
látinn, og Guðrún Lilja, f. 1911, bú-
sett í Hafnarfirði.
Foreldrar Elíasar voru Sigfús
Þórðarson, sjómaður í Hafnarfirði,
f. 30.10.1877, d. 15.5.1935, ogÞÓr-
hildur Magnúsdóttir, f. 24.6.1870,
d. 17.11.1945.
Sigfús var sonur Þórðar, b. í
Finnshúsum í Fljótshlíð og í Móabæ
á Miðnesi, Sigurðssonar, b. í Múla-
koti og í Finnshúsum, Eyjólfssonar.
Móðir Þórðar var Þórunn Jóns-
dóttir, Ólafssonar, prests í Ásum og
á Eyvindarhólum. Móðir Jóns Ól-
afssonar var Helga Jónsdóttir, pró-
fasts á Prestbakka á Síðu, Stein-
grímssonar. Móðir Þórunnar var
Ingibjörg Guðmundsdóttir, sýslu-
manns á Barkarstöðum í Fljótshlíð,
Nikulássonar.
Móðir Sigfúsar var Þórunn Ólafs-
dóttir, b. á Grjótá, Ólafsssonar, b. á
Teigi í Fljótshlíð, Jónssonar.
Þórhildur, móðir Elíasar, var dótt-
ir Magnúsar í Dagverðarnesi á
Rangárvöllum, Árnasonar, b. á
Butru í Fljótshlíð, Gíslasonar, b. á
Butru, Árnasonar, b. í Gunnarsholti
og Brekkum á Rangárvöllum, Gísla-
sonar, b. á Ægissíðu, Brynjólfsson-
ar, b. á Ægissíðu, Markússonar, b.
á Ægissíðu, Þórðarsonar.
Móðir Þórhildar var Vilborg Jóns-
dóttir, b. í Ormsvelli í Hvolhreppi,
Erlendssonar, b. síöast í Þúfu á
Landi, Jónssonar, síðast í Litla-
Klofa á Landi, Oddssonar, b. í Ketils-
húshaga, Guðmundssonar, b. í
Vatnsdal, Jónssonar eldri, b. í Sel-
sundi, Oddssonar, b. Næfurholti,
Þórður Elias Sigfússon.
Jónssonar, prests í Fellsmúla, Jóns-
sonar, prests á Mosfelli í Grímsnesi,
Stefánssonar, skólameistara í Odd-
geirshólum, Óunnarssonar, sýslu-
manns á Víðivöllum í Skagafirði,
Gíslasonar.
Móðir Erlendar var Halldóra Hall-
dórsdóttir, b. á Tjörfastöðum,
Bjarnasonar, hreppstjóra á Víkings-
læk, Halldórssonar. Móðir Jóns Er-
lendssonar var Ingveldur Gísladótt-
ur, b. í Lindarbæ, Þorvarðssonar,
b. á Sandhólaferju í Holtum, Guö-
mundssonar.
Móðir Vilborgar var Sigríður
Jónsdóttir, b. í Ósgröf, Brandssonar,
b. í Næfurholti, Jónssonar, b. í
Tungu i Landeyjum, Sigmundsson-
ar.
Elías og eiginkona hans taka á
móti gestum í dag milli kl. 16 og 18
í samkomusal Dalbrautar 18.
Hjalti Þórðarson
Hjalti Þórðarson járnsmíðameist-
ari, Engjavegi43, Selfossi, verður
sjötugur á morgun, 18. mars.
Hjalti er fæddur á Reykjum á
Skeiðum og þar ólst hann upp. Hann
lauk fullnaðarskólaprófi frá Braut-
arholtsskóla 1934, stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni
1938-40 og var við iðnnám í járn-
smíði i Iðnskólanum 1941-45 er
hann fékk meistarabréf. Hjalti
stundaði iðnnámið hjá Kaupfélagi
Árnesinga á Selfossi. Árið 1941 flutt-
ist hann alfarið að Selfossi.
Hjalti kvæntist þann 17.10.1944
Ingibjörgu Jónsdóttur húsmóður, f.
27.12.1919. Hún er dóttir Jóns B.
Stefánssonar, verslunarmanns á
Hofi á Eyrarbakka, og Hansínu Jó-
hannsdóttur húsmóður.
SystkiniHjalta:
Margrét, f. 22.8.1907, búsett í
Reykjavík, gift Einari Ásgeirssyni
og eiga þau fjögur börn.
Jón, f. 26.2.1909, d. 1988, var bú-
settur í Reykjavík, kvæntur Lauf-
eyju Stefánsdóttur og eignuðust þau
áttabörn.
Þorsteinn, f. 13.8.1910, búsettur á
Reykjum á Skeiðum, kvæntur Unni
Jóhannsdóttur og eiga þau sjö börn.
Ingigerður, f. 21.1.1912, búsett á
Selfossi, gift Þorsteini Bjarnasyni
og eiga þau þrjú börn.
Sigríður, f. 11.5.1913, búsett á Sel-
fossi og á hún eitt barn.
Bjarni, f. 1.4.1914, búsettur á
Reykjum, kvæntur Sigurlaugu Sig-
urjónsdóttur og eiga þau sex börn.
Laufey Ása, f. 14.7.1917, látin.
Ingvar, f. 29.9.1921, búsettur í
Reykjahlíð, kvæntur Sveinfríði
Sveinsdóttur og eiga þau sex börn.
Vilhjálmur, f. 27.10.1923, búsettur
á Selfossi, kvæntur Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur og eiga þau fimm
Hjalti Þórðarson.
börn.
Laufey, Vilborg og Eysteinn dóu í
æsku.
Foreldrar Hjalta voru Þórður Þor-
steinsson, f. 9.7.1877, d. 1960, b. á
Reykjum á Skeiðum, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 19.2,1879, d. 1979.
Hjalti tekur á móti gestum á morg-
un, sunndaginn 18. mars, milli kl.
16 og 19 í Félagsheimilinu Ársölum.