Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Side 2
2
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
Fréttir
Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna:
Dregur úr fylgi
Sjálfstæðisflokks
- Alþýðuflokkur og Kvennalisti sækja á
Samkvæmt skoðanakönnun DV,
sem var gerð um helgina, hefur held-
ur dregið úr yfirburðafylgi Sjálfstæð-
isflokksins. Flokkurinn hefur þó enn
um helming fylgis. Alþýðuílokkur-
inn og Kvennalistinn hafa sótt sig.
Alþýðubandalagið heldur sínu nokk-
urn veginn, svo og Framsókn.
Heildarúrtakið í könnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt milli
kynja og jafnt milli Stór-Reykjavík-
ursvæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Hvaöa lista mundir þú
kjósa, ef þingkosningar færu fram
nú?
Af heiidarúrtakinu fær Alþýðu-
flokkur nú 4,7 prósent, sem er aukn-
ing um 1,5 prósentustig frá fyrri
könnun DV í janúar. Framsókn fær
nú 9,8 prósent, sem er minnkun um
0,4 prósentustig frá fyrri könnun.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 25,2 pró-
sent, sem er minnkun um 2,8 pró-
sentustig frá fyrri könnun. Alþýðu-
bandalagiö fær 4 prósent, sem er
minnkun um 0,5 prósentustig. Flokk-
ur Stefáns Valgeirssonar fær 0,2 pró-
sent, en komst ekki á blað síðast.
Flokkur mannsins fær 0,2 prósent,
en það er hið sama og hann hafði í
fyrri könnun. Borgaraflokkurinn
fær einnig 0,2 prósent, sem er 0,1
prósentustigi minna en í fyrri könn-
un. Kvennalistinn fær nú 5,3 pró-
sent, sem er aukning um 0,6 pró-
sentustig frá fyrri könnun. Þjóðar-
flokkurinn fær 0,3 prósent, sama og
í fyrri könnun. Frjálslyndir hægri
menn komast ekki á blað. Öákveðnir
eru 39,3 prósent, sem er minnkun um
4,5 prósentustig frá fyrri könnun.
Þeir, sem svara ekki, eru 10,8 pró-
sent, sem er 6 prósentustigum meira
en í fyrri könnun.
Samanburður við kosningar
Ef aðeins eru teknir þeir, sem taka
afstöðu, kemur eftirfarandi í ljós.
Alþýðuflokkur fær 9,4 prósentustig,
sem er aukning um 3,2 prósentustig
frá fyrri könnun en tap upp á 5,8
prósentustig frá kosningunum.
Framsókn fær nú 19,7 prósent, sem
er 0,1 prósentustigi minna en í fyrri
könnun en 0,8 prósentustigum meira
en í kosningunum. Sjálfstæðisflokk-
urinn fær 50,5 prósent, sem er
minnkun um 4 prósentustig frá fyrri
könnun en aukning um 23,3 pró-
sentustig frá kosningunum. Alþýðu-
bandalagið fær 8 prósent, sem er
minnkun um 0,8 prósentustig frá
fyrri könnun og minnkun um 5,3
prósentustig frá kosningunum.
Flokkur Stefáns Valgeirssonar fær
0,3 prósent, sem er minnkun um 0,9
prósentustig frá kosningunum.
Flokkur mannsins fær 0,3 prósent,
sama og síðast, sem er minnkun um
1,3 prósentustig frá kosningunum.
Borgaraflokkurinn fær nú 0,3 pró-
sent, sem er minnkun um 0,3 pró-
sentustig frá fyrri könnun og minnk-
un um 10,6 prósentustig frá kosning-
unum. Kvennalistinn fær 10,7 pró-
sent, sem er aukning um 1,6 pró-
sentustig frá fyrri könnun og aukn-
ing um 0,6 prósentustig frá kosning-
unum.
Sé þessu skipt í þingsæti, sam-
Ummæli fólks
í könnuninni
„Ég myndi kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn í alþingiskosningum en
fyrst ætla ég að kjósa Davíð í
borgarstjórnarkosningunum,"
sagði karl í Reykjavík. „Ég kýs
Framsókn því sá flokkur hefur
enn og aftur sannað að við lands-
byggðarmenn getum treyst á
hann,“ sagði karl á Norðurlandi.
„Ég er ein af fjölmörgum sem get
ekki gert upp á milli þessara
blessaðra flokka," sagðí kona á
Austurlandi. „Ég kýs Alþýðu-
flokkinn og Jón Sigurðsson vegna
álversins," sagði karl á Reykja-
nesi. „Þessir flokkar eru i engum
tengslum við þjóðina. Ég held að
þeir ættu að taka sig saman og
flnna þjóð sem getur þolað þenn-
an fiflagang,“ sagði karl í Reykja-
vík. „Ég styð Sjálfstæðisflokkinn
og hlakka lil næstu þingkosninga
því þá verður gaman að lifa,“
sagði karl á Vesturlandi. „Ég
kaus Bandalag jafnaðarmanna á
sínum tíma og það fór eins og það
fór. Síðan kaus ég Albert og
skammast mín fyrir það núna.
Ég held skili bara auöu næst,“
sagði kona á Suðurlandi.
-gse
kvæmt hlutfalli í könnuninni, fengi
Alþýðuflokkurinn 6, Framsókn 12,
Sjálfstæðisflokkur 33, Alþýðubanda-
lag 5 og Kvennalisti 7. -HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
sept. nóv. jan. mars júní sept. sept. nóv. jan. mars júní ágúst okt. des. jan. nú
AlþýðuMkur 7,5% 7,3% 6,2% 6,0% 4,8% 4,7% 6,7% 9,0% 5,8% 4,5% 4,2% 4,8% 3,3% 3,7% 3,2% 4,7%
Framsóknarflokkur 12,8% 19,3% 13,5% 11,3% 11,2% 11,3% 14,0% 14,0% 10,7% 10,0% 9,7% 7,3% 7,7% 11,0% 10,2% 9,8%
Sjálfaæðisflokkur 18,5% 22,0% 17,5% 18,3% 18,7% 18,0% 17,2% 16,2% 213% 25,8% 24,5% 27,7% 33,2% 26,2% 28,0% 25,2%
Alþýðubandalag 6,3% 4,8% 6,3% 5,0% 6,7% 4,3% 6,8% 4,2% 5,8% 5,7% 4,0% 7,2% 55% 5,8% 4,5% 4,0%
Stefán Valgeirsson 0,2% 0 0 0,3% 0,2% 0 0,2% 0,2% 0 0,2% 0,3% 0 03% 0,3% 0 0,2%
Flokkur mannsins 0,2% 0 0,2% 0,3% 0,2% ol 0,3% 0 0,2% 02% 05% 0,2% 0 0 0,2% 0,2%
Borgaraflokkur 4,3% 3,6% 2,5% 3,0% 1,2% 1,3% 1,8% 1,5% 1,0% 1,3% 0,5% 0,5% 0,3% 0 0,3% 0,2%
Kvennalisti 7,5% 8,2% 12,3% 19,2% 17,2% 15,2% 16,3% 13,0% 83% 8,0% 6,8% 6,6% 5,2% 4,8% 4,7% 5,3%
Þjóðarflokkur 1,3% 0,5% 0,3% 1,0% 02% 0,7% 0,8% 0,2% 0,8% 0,5% 0,7% 0,5% 0,5% 08% 03% 0,3%
Hægrimenn 0 0 02% 0,3% 0,3% 0 0
Óákveónir 32,5% 25,5% 33,3% 28,6% 302% 40,7% 33,2% 36,0% 42,2 41,5% 45,2% 38,8% 40,5% 44,8% 43,8% 39,3%
Svaraekki 6,5% 8,2% 78% 6,9% 3,7% 3,5% 2,8% 5,8% 3,8% 2,3% 3,5% 6,3% 3,3% 2,2% 4,8% 10,8%
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur 'vaxið eftir að hann lenti í stjórnarandstöðu.
Frá landsfundinum í haust hefur fylgið verið um og yfir 50 prósent.
Fylgi flokkanna í síðustu skoðanakönnun DV
60-1 %
50
40
■ Kosningar
B Janúar
E3 Nú
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu eru niðurstöðurnar þessar:
kosn. sept. nóv. jan. mars júní sept, sept. nóv. jan. mars júní ágúst okt. des. jan. nú
Alþýðuflokkur 15,2% 12,3% ii,i% 10» 9,3% 8,0% 8,4% 10,4% 15,5% 10,8% 8,0% 8,1% 8,8% 5,9% 6,9% 6,2% 9,4%
Framsóknarfl. 18,9% 21,0% 29,1% 22,9% 17,6% 18,6% 20,3% 21,9% 24,1% 19,8% 17,8% 18,8% 13,4% 13,6% 20,8% 19,8% 19,7%
Sjálfstæðisfl. 27,2% 30,3% 33,2% 29,7% 28,4% 31,0% 32,2% 26,7% 27,8% 39,5% 46,0% 47,7% 50,5% 59,1% 49,4% 54,5% 60,5%
Alþýðublag 13,3% 10,4% 7,3% 10,8% 7,8% 11,1% 7,7% 10,7% 7,2% 10,8% 101% 7,8% 13,1% 9,8% 11,0% 8,8% 8,0%
StefánVaJgs. 1,2% 0,3% 0 0 05% 0,3% 0 0,3% 00% 0 0,3% 0,6% 0 0,3% 0,6% 0 0,3%
Fl. mannsins 1,6% 0,3% 0 0,3% 0,5% 0,3% 0,6% 0,3% 0 0,3% 03% 1,0% 0,3% 0 0 0,3% 0,3%
Borgaraflokkur 100% 7,1% 5,5% 4,2% 4,7% 1,9% 2,4% 2,8% 2,6% 1,9% 2,4% 1,0% 0,9% 0,6% 0 0,6% 0,3%
Kvennalisti 10,1% 12,3% 12,3% 21,0% 29,7% 28,5% 27,2% 25,5% 22,3% 15,4% 14,2% 13,3% 11,9% 9,2% 9,1% 9,1% 10,7%
Þjóðarflokkur 1,3% 20% 00% 0,6% 1,6% 0,3% 1,2% 1,4% 0,3% 1,5% 0,9% 1,3% 0,9% 0,9% 1,6% 06% 0,7%
Hægri menn - 0 0 0,3% 0,6% 0,6% 0 0
Ef þingsætum er skipt í réttu hlutfalli við úrslit skoðanakönnunarinnar verða niðurstöður þessar.
Til samanburðar er staðan í þinginu nú:
kosn. sept. nóv. jan. mars júní sept. sept. nóv. jan. mars júní ágúst okt. des. jan. nú
AlþýðuMkur 10 8 7 6-7 6 5 5 7 10 7 5 5 5 3 4 4 6
Framsóknarfl. 13 14 19 15 11 12 13 14 16 12 11-12 13 9 9 14 - 13 12
Sjálfstæöisfl. 18 21 22 19 19 20 21 17 18 25 30-31 32 34 39 33 35-36 33
Alþýðubandalag 8 7 4 7 5 7 5 7 4 7 6 5 8 6 6 5 5
StefánValgeirs. 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0
Borgaraflokkur 7 5 3 2 3 1 1 2 1 1 1 0 0 0 0 0 0
Kvennalisti 6 8 8 13-14 19 18 18 16 14 10 9 8 7 6 5 5-6 7
Þjóðarflokkur 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 0 0 0 1 0 0
Ungur maður lét lífið í Esjunni
Ungur maður lét lífiö á laugardag
er hann gekk fyrir björg á efsta
tindi Kerhólakambs viö Blikadal í
Esju.
Tildrög slyssins voru þau að tveir
menn ákváðu að klífa Esjuna á
laugardag og lögðu þeir af stað um
morguninn. Svartaþoka var og
mikill vindur og göngufæri slæmt
vegna háiku. Þegar mennimir voru
komnir upp á efstu bungu Ker-
hólakambs sá sá er aftar gekk fé-
laga sinn ganga fram af bjarg-
brúninni og hverfa í sortann og
munaði minnstu að hann gengi
einnig fram af. Þegar honum var
Ijóst að það væri ekkert sem har.n
gæti aðliafst til bjargar félaga sin-
um sneri hann þegar í stað niður
Esjuna og hélt rakleiðis að bænum
Esjubergi þar sem hann lét vita af
slysinu.
Lögregla var kölluö út, björgun-
arsveitin Kyndill í Mosfellsbæ, svo
og þyrla Gæslunnar, Flugbjörgun-
arsveitin í Reykjavík og hjálpar-
sveit skáta. Björgunarsveitarmenn
úr Kyndli héldu á snjósleðum inn
Blikadal og þyrla Gæslunnar
reyndi að fljúga inn dalinn en varð
að snúa við vegna veöurs og sneri
hún þá að bænum Esjubergi. Þá
var ákveðið að þyrlan flytti þrjá
sérsveitarmenn úr lögreglunni og
manninn sem varð vitni að slysinu
upp á Esjuna og gat hann þegar
þangað var komið vísaö björgunar-
sveitarmönnum úr Kyndli á hvar
maðurinn hefói fallið fram af björg-
unum. Rétt fyrir klukkan 14.30
fundu Kyndilsmenn marminn og
var hann þá látinn. Hann haföi fall-
ið tugi metra, fyrst fram af kletta-
belti og síðan runniö langar leiðir
niður urð og grjót.
Mennimir vora báöir þaulvanir
fiallaferðum og kunnugir á þessu
svæði.
-J.Mar