Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
11
PV__________________________Útlönd
Kosningunum 1 Ungverjalandi lokið:
Ungverska þjóðin
er sigurvegarinn
- segir Jozsef Antall, leiðtogi Lýðræðislegs vettvangs
Joszef Antall, leiðtogi Lýðræðislegs vettvangs, verður að öllum likindum
næsti forsætisráðherra Ungverjaiands. Símamynd Reuter
AUar líkur benda nú til þess að
Lýöræðislegur vettvangur Ungverja-
lands, sem er hægri-miðjuflokkur,
verði ráðandi afl í næstu ríkisstjórn
landsins. Fyrstu tölur um niðurstöð-
ur síðari hluta fyrstu frjálsu þing-
kosninganna í Ungverjalandi í íjöru-
tíu og fimm ár benda til að Vettvang-
urinn fái langmest fylgi allra flokka
en kosið var til þings í gær. Bráða-
birgðaniðurstöður benda til þess aö
hægri menn vinni yfirgnæfandi sig-
ur og aö Vettvangurinn hafl unnið
helsta keppinaut sinn, hiö vinstri
sinnaða Bandalag frjálsra demó-
krata, með miklum yflrburðum. „Ég
er fullkomlega viss um aö við höfum
borið sigur úr býtum,“ sagði Jozsef
Antall, leiðtogi Lýðræðislegs vett-
vangs, á fundi með stuðningsmönn-
um í gær. „En við erum ekki sigur-
vegarar kosninganna - það er ung-
verska þjóðin sem er sigurvegarinn."
Samkvæmt opinberri skoðana-
könnun, sem birt var snemma í
morgun, fær Lýðræðislegur vett-
vangur alls 165 sæti á þingi, sem
þýðir 42,74 prósent fylgi, en Bandalag
frjálsra demókrata 92, eða 23,83 pró-
sent fylgi. Alls sitja 386 fulltrúar á
ungverska þinginu. Bændaflokknum
er spáð 43 þingsætum, sem jafngildir
11.13 prósentum, en Ungverska jafn-
aðarmannaflokknum, gamla komm-
únistaflokknum, 33 sætum eða 8,54
prósent fylgi. Kristilega þjóðar-
flokknum er spáð 21 sæti. Atkvæða-
mestu flokkarnir hafa allir lýst því
yfir að þeir muni ekki stofna til
stjórnarsamvinnu við kommúnist-
ana gömlu.
Fastlega er búist við að Antall taki
viö af Miklos Nemeth forsætisráð-
herra fljótlega. Forsætisráðherrann
tilvonandi ítrekaði í gær að hann
vildi koma á samsteypustjórn Vett-
vangsins og tveggja annarra hægri
flokka, Bændaflokksins og Kristilega
þjóðarflokksins. Bændaflokkurinn
verður að öllum líkindum í odda-
stöðu við stjórnarmyndun þrátt fyrir
lítið fylgi í kosningunum.
Leiðtogi Bandalags frjálsra dem-
ókrat, Janos Kis, viðurkenndi í gær
að ílokkur sinn myndi þurfa að setj-
ast við borð stjórnarandstöðunnar á
komandi þingi. Bandalagið stóð sig
ekki eins vel og búist hafði verið við
en það skildi ekki mikið milli þess
og Lýðræðislegs vettvangs að lokinni
fyrri umferð kosninganna, þann 25.
mars síðastliðinn. Lokaniðurstöður
kosninganna liggja ekki fyrir fyrr en
síðar í vikunni en ljóst er að valda-
tíma kommúnistaflokksins er nú
lokið í Ungverjalandi eftir fjörutíu
ogfimmárastjórn. Reuter
AUGLÝSING
Meiri háttar Kolaports-
dagur á laugardaginn
- karnival í tilefni ársafmælis
hvað til málanna að leggja að
hafa samband við okkur sem fyrst
en auðvitað verður markaðstorg-
ið í fyrirrúmi eins og venjulega.
Gaman væri að sjá leikhópa,
nemendahópa og alla aðra hressa
hópa stormandi um Kolaportið í
virkilegri karnivalstemmningu
eins og við þekkjum erlendis frá.
Aðalatriðið er þó náttúrlega að
allir séu í hátíðarskapi, bæði selj-
endur og gestir, og við gerum
náttúrlega allt okkar besta til að
þetta verði virkilega skemmtileg-
ur laugardagur."
Skrifstofusími Kolaportsins er
68 70 63 milli klukkan 16 og 18
og þar eru allar nánari upplýs-
ingar veittar og tekið á móti
pöntunum á sölubásum.
Kolaportið verður að venju á
laugardaginn kemur, 14. apríl, en
þá verður sérstaklega mikið um
að vera því að haldið verður upp
á ársafmæli markaðstorgsins með
ýmsum hætti.
Auk um eitt hundrað sölubása
verða ýmsar upþákomur og sér-
stakt barnatívolí fyrir börnin.
„Við vonumst til að ná upp nokk-
urs konar karnival-stemmningu
þar sem áhugamenn og leikhópar
geta lífgað upp á mannlífið þenn-
an laugardag,“ segir Helga Mog-
ensen, frumkvöðull Kolaportsins.
„Ég held að þetta verði kærkom-
in tilbreyting fyrir þann fjölda
sem dvelst í borginni yfir páskana
og við reiknum með góðri aðsókn.
Við skorum á alla sem hafa eitt-
Georgíubúar:
Minnast fórnarlamba
sjálfstæðisbaráttunnar
Georgíubúar minntust í gær fórnarlamba árásar sovéskra hermanna á frið-
samlega mótmælagöngu í Tiblisi fyrir ári. Tuttugu manns létust þegar her-
menn réðust með táragasi og skóflum að mannfjöldanum. Simamynd Reuter
Georgíubúar söfnuðust saman í
gær til að minnast þeirra tuttugu
landa sinna sem létust fyrir ári þegar
sovéskir hermenn réðust með skóíl-
um og táragassprengjum að frið-
samlegri kröfugöngu Georgíubúa í
Tiblisi, höfuðborg þessa sovéska lýð-
veldis. Kröfugangan, sem var farin
þann 19. apríl 1989, var til að krefjast
sjálfstæðis lýðveldisins. Þessi árás
vakti óhug, ekki einungis um öll Sov-
étríkin heldur og allan heim. Fórnar-
lamba hennar er nú minnst í löndun-
um við Kákasus sem píslarvotta
sjálfstæðisbaráttunnar. Forysta
kommúnistaflokks lýðveldisins
missti fótanna í'kjölfar þessa dags
og andstaða íbúa lýðveldanna við
Kákasusfjöll gegn yfirráðum
Moskvustjórnarinnar í lýðveldunum
við Kákasus skerptist til muna.
Gorbatsjov Sovétforseti sendi Ge-
orgíubúum samúðarskeyti og fórn-
arlamba árásarinnar var minnst
víða um Sovétríkin í gær. í Len-
ingrad sóttu nokkur þúsund manns
minningarathöfn og var hún blandin
stuðningsyfirlýsingum við yfirstand-
andi baráttu Litháa fyrir sjálfstæði.
Litháar eiga enn í taugastríði viö
Moskvustjórnina vegna sjálfstæðis-
yfirlýsingar þings Litháens frá 11.
mars síðastliðnum.
Sovéskir hermenn reyndu í gær aö
leggja undir sig höfuðstöðvar stærsta
dagblaðs lýöveldisins en Litháar
komu í veg fyrir það, að því er þeir
hafa skýrt frá. Hermenn Rauða hers-
ins hafa lagt undir sig nokkrar bygg-
ingar í Vilníus, höfuðborg Litháen,
þar á meðal skrifstofu saksóknara.
Þeir hafa reynt að banna útgáfu
flestra blaða í Litháen en hefur hing-
að til ekki tekist það. í gær urðu þeir
frá að hverfa er þeir reyndu að yfir-
taka byggingu stærsta blaðs Lithá-
ens eftir að varaforsætisráðherra
lýöveldisins skarst í leikinn. Reuter
Húsgögn
Itölsku leðursófasettin komin
Einstök gæði - stórkostlegt verð
GP húsgögn
Helluhrauni 10, s. €51 234
Opið um helgina kl. 10-16
Fermingargjöfin sjálfsagða bfOther
Öll fermingarbörn verða að eignast skólaritvél hvort sem er
tXOther er léttust og fullkomnust
í sínum flokki. Ótrúlega traust ritvél
Verð aðeins kr. 15.990,- staðgr.
Borgarfell, Skólavörðustíg 23, sími 11372 • Ritfangaverslanir Pennans
Grundarfirði • Stuðull, Sauðárkróki • Bókaskemman, Akranesi
Hrannarbúðin
Bókabúð Keflavíkur
f