Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. 3 dv Fréttir Ráöstefna um gróðurvemd: Miðhálendið þjóðgarður Jóhaimes Siguijónsson, DV, Húsavik; Um 150 manns sátu ráöstefnu um stefnumörkun í gróðurvernd sem haldin var á Húsavík fyrir tilstilli samtakanna Húsgulls á Húsavík. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, setti ráöstefnuna og ávarpaði ráöstefnugesti. Hún lýsti m.a. tilgangi ráðstefnunnar meö þeim oröum að þar yröi fjallað um það hvernig viö gætum öll lagst á eitt um að gera landið okkar grænna og gróskumeira en kynslóðir margra alda hafa séð það, eða látið sig dreyma um að það nokkurn tímann yrði. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaöarráöherra ræddi meðal ann- ars um svæðisskipulag í landbúnaði, það er búskap sem tæki tillit til land- kosta á hverjum stað. í framhaldi af því vék hann að hugmyndum um að friða miðhálendi landsins og gera það að þjóðgarði. „Ég vildi gjarnan sjá það á næstu árum að menn tækju höndum saman um að gera miðhálendi landsins að sérstökum þjóðgarði, það svæði sem afmarkast af jöklum og ytri mörk þess gætu ráðist af og verið hluti af því svæðaskipulagi sem við erum að ræða um,“ sagði Steingrímur. Fulltrúar bænda, þeir Jónas Jóns- son búnaðarmálastjóri og Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsam- bands bænda, sátu ráöstefnuna. í máli þeirra kom fram að nauðsynlegt væri að friða þau svæði sem í mestri hættu væru vegna uppblásturs. Það væri hins vegar engin ástæða til þess að hætta að nýta vel gróna afrétti. Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri kvaðst sannfærður um það að á næstu árum yröi banni við lausa- göngu búíjár komið á í áíongum, þar sem því yrði tæknilega við komiö. Vel gróin afréttarlönd mætti hins vegar nýta áfram með skynsamlegri beitarstjórnun. Fjöldi sérfræðinga flutti erindi á ráðstefnunni, m.a. Jón Loftsson skógræktarstjóri, Anna Guðrún Þór- hallsdóttir beitarfræðingur, Andrés Arnalds gróðurverndarfulltrúi og Jón Gunnar Ottósson, forstöðumað- ur Rannsóknarstöðvar skógræktar ríkisins. Vigdís til Mónakó Forseti íslands,'Vigdís Finnboga- dóttir, er farin áleiðis til Mónakó. Þar mun Vigdís flytja setningarræðu á ráðstefnu sem haldin er af ferða- málasamtökum Evrópu í tilefni af ferðamálaári Evrópu 1990. Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra verður í fylgd Vigdís- ar og mun taka þátt í ráðstefnunni. -hlh ^ flokkur TÍSpmrisL la ^81286-12 nfarkeni SkóI‘tvörðUst£?1jáfeTÍS 1er að skitlda flmm Þúsund OO/ioo rgrei,Uí'imlagihinn SkuId þessi ska Skuld þessi er l verðbótahækkun f sklud þessarj vðxtum GOÐ GJOF SEM BER ÁVÖXT Með gjafabréfum SPRON býðst þér nýr gjafamöguleiki. Hér er á ferð bæði verðmæt og skemmtileg gjöf. Gjafabréf SPRON fást í 5.000, 7.500, 10.000 og 25.000 króna einingum, eru verðtryggð og bera auk þess fasta vexti. Þú færð gjafabréfin á öllum afgreiðslustöðum SPRON: Skólavörðustíg I I, Hátúni 2B, Álfabakka 14, Austurströnd 3 og Kringlunni 5. ísrR£H Sparisjóóur Reykjavíkurog nágrennis .ISQ1S5 VIKULEGAR VIÐKOMUHAFIMIR INNANLANDS - ÍSAFJÖRÐUR .....FÖSTUD./ÞRIÐJUD. - HÚS.AVÍK.......,ALLA LAUG.ARDAGA - DALVIK ...______A.L.LA IM.ANUDAG.A - AKUREYRI ........-...... JVLLA MANUDAGA - SAUDÁRKRÓKUR___AL.LA LAUGARDAGA - SUÐUREYRI/ÞINGEYRI FOSTUO./ÞRIÐJUD. - PATREKSFJ../BIL.DUD. ..FÖSTUD./ÞRIDJUD. - VEST'MAKIl'i.A.EYJAR...A.L.LA FIMWITUDAGA FRÁ REYKJ AVÍK ,.............A.LLA FIMMTUDAG.A TiL REYKJAVÍKUR ..A.LLA IWIIOVIKUDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.