Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 9
9 MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. Útlönd Farþegar sem bjargað var af brennandi ferjunni. Símamynd Reuter Hörð gagnrýni: Brunavarnir ófullnægjandi Gagnrýnin á útgerð feijunnar Scandinavian Star óx stöðugt í gær í kjölfar frásagna þeirra farþega sem björguðust. Sjálfvirkar brunadyr virkuðu ekki sem skyldi og úðunar- kerfi fór bara sums staðar í gang. Margir farþegar segjast ekki hafa heyrt í brunavarnakerfinu. Skipveijar vissu ekki hvernig bregðast átti við. Við yfirheyrslur í Frederikshavn hefur komið fram aö margir skipveija höfðu aldrei tekið þátt í brunaæfingu um borð og að margir þeirra töluðu ekkert annað en sitt eigið tungumál. Flestir skip- verjanna voru frá Portúgal og Filippseyjum. Skipstjórinn, Hugo Larsen, ogtveir aðrir yfirmenn hafa einnig verið gagnrýndir fyrir að hafa yfirgefið brennandi skipið á meðan enn voru farþegar á lífi um borð. Skipstjórinn sneri þó aftur til feijunnar. Skipstjórinn sagði í viðtali við norsku fréttastofuna NTB í gær- kvöldi að hann hefði ekki svikið far- þegana. „Það var þegar ljóst var að ekki var hægt að fara niður til að athuga hvort fleiri farþegar væru á neðri þilfórum sem ég gaf fyrirskip- un um að farið skyldi frá borði. Eg hefði aldrei gefið shka fyrirskipun ef ég hefði tahð að hægt hefði verið að bjarga einhveijum án þess að stofna lífi skipveija í hættu.“ Skipstjórinn var sofandi þegar til- kynnt var um fyrsta brunann. Hann var vakinn klukkan 1.55 að norskum tíma af stýrimanni á vakt sem sagði: „Geturðu komið upp á dekk, ég held Hugo Larsen skipstjóri segist ekki hafa svikið farþega sína. Símamynd Reuter að brennuvargur sé um borð.“ Vart hafði orðið við eld tíu mínútum áður í teppi sem nokkrir farþegar höfðu getað slökkt. Stuttu síðar var til- kynnt um reyk annars staðar og er í ljós kom að eldur var á tveimur stöðum setti stýrimaður bruna- varnakerfið í gang, að eigin sögn. Hugo Larsen var einnig skipstjóri á Holger Danske þegar eldur kom upp í því skipi í Oslóarfirði í sept- ember 1988. Þá var skipverjum kennt um óaðgætni og fimm þeirra voru sektaðir. Að sögn lögreglunnar brutu þeir reglur með því að láta ekki skip- stjórann vita um brunann. Larsen skipstjóri sætti þá engri gagnrýni. Eldurinn um borð í Holger Danske kom upp í plastfótu með skítugum tuskum í. Tahð var að kviknaö hefði í útfrá sígarettuglóð. Skipstjóri á skipinu Stena Saga sem þátt tók í björgunaraðgerðunum um helgina segir að skipstjórinn eða ein- hver annar yfirmaður hafi sagt snemma að allir væru farnir frá borði þannig að björgunarstarfi var hagað í samræmi við það. Þetta reyndust hins vegar rangar upplýs- ingar. Formaður í samtökum danskra sjó- manna, Henrik Berlau, sagði í gær að hörmungarnar um borð í Scand- inavian Star myndu ekki hafa átt sér stað ef iðnaðarráðherrann, Anne Birgite Lundholt, hefði neytt útgerð- ina til að fara eftir dönskum örygg- iskröfum. Samkvæmt dönskum kröf- um, sem eru strangari en alþjóðleg- ar, eiga brunaæfingar um borð í far- þegafeijum að fara fram vikulega. Ráðherrann mun leggja til að sett veröi á laggimar samnorræn rann- sóknarnefnd sem semja eigi sam- norrænar reglur um eftirlit með far- þegaferjum á Norðurlöndum. Einnig á að breyta reglum varðandi far- þegalista. Scandinavian Star var dæmi um skip sem samtök norrænna sjó- manna hafa varað við. Á föstudaginn lauk í Stokkhólmi norrænni ráð- stefnu um ferjusiglingar og var Scandinavian Star einmitt rætt á þeirri ráðstefnu. Daginn eftir geröist þaðsemmennóttuðust. Ritzau Var skipstjórinn varaður við? Lögreglan í Lysikil í Svíþjóð vildi í gær htið tjá sig um hugsanlegar orsakir eldsvoðans í Scandinavian Star. Vísað var á bug fregn um að verið væri að rannsaka farþegahsta frá öðrum norrænum skipum sem kviknað hefur í. Hins vegar neitaði lögreglan því ekki að nota mætti shka aðferð. Orðrómur hefur verið á kreiki um að skipstjórinn á Scandinavian Star hafi fengið viðvörun um að brennu- vargur yrði um borö. Nokkrir sjó- menn eiga að hafa varað skipstjór- ann við tíu klukkustundum fyrir brottför. Við yfirheyrslur hefur enn ekki komið fram nein heildarmynd af at- burðarásinni, að því er fréttamönn- um skilst af viðtölum við lögregluna. TT Líkin flutt til Oslóar Lagt var af stað með fjörutíu og Vegna reykjarkófsins og hitans þijú fórnarlömb feijuslyssins til þurftuslökkvihðsmennaðskríðaeft- Oslóar i gærkvöldi þar sem bera á irgöngumfeijunnarþarsemlíklágu kennsl á líkin í dag. Búist er við að í hrúgum. Svo virtist sem flestir búið verði að flytja lík ahra fórnar- hefðu reynt að komast úr eldhafinu lambanna úr skipinu á morgun. en ekki fundið útgönguleiðir. Lík Samkvæmt frásögn læknis sem , voru einnig í káetum, í einkabílum hefur verið um borð bendir allt til og vöruflutningabílum. að flest fórnarlambanna hafi látist í morgun ætluðu slökkvihðsmenn úr reykeitrun. Mörg líkanna sem aðreynaaðflytjaahabílafráborði. voru framarlega í feijunni eru einnig Reuter mikið brennd. Lik tornarlamba ferjuslyssins flutt fra borði i gærkvoldi. Simamynd Reuter —PABBAR— Sængurgjafir fyrir mömmu og litla barnið á þægilegasta stað í bænum. Alltaf í leiðinni. Næg bílastæði. Þumalína - sérverslun með sængurgjafir - Leifsgötu 32, sími 12136 Opið virka daga frá kl. 11-18. 4! Manf rotto Þnfætur íyrirmyndavélar og videoupptökuvélar t c BARONSTIG 18 101REYKJAVÍK SÍMI (91)23411

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.