Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. 17 íslensk leið í stað EES Furðulegt er óðagotið sem ein- kennir umræðuna um Evrópumál- in. Það er reynt að telja almenningi trú um að við séum að missa af einstæöu tækifæri ef við ekki skell- um okkur í eina sæng með iðnríkj- um Evrópu og afnemum öll lánda- mæri fyrir fjármagn, fólk og fyrir- tæki. Meö því værum við sem smá- þjóð að taka gífurlega áhættu og kasta frá okkur að verulegu leyti þvi sjálfstæði sem við áunnum okk- ur á fyrrihluta aldarinnar. Kostir sérstöðunnar Það hafa fáir spurt um hvaða möguleika við höfum til að spjara okkur efnahagslega og menningar- lega utan efnahagsbandalaga, hvort sem þau ganga undir skammstöfuninni EES eða EB. Ég er sannfærður um að það er ekkert neyðarbrauð. Þvert á móti geta fal- ist í því flölmargir jákvæðir kostir og heillandi tækifæri fyrir íslend- inga að halda sér utan við ríkja- bandalög og hinar stóru heildir í framtíðinni. Það væri ófyrirgefan- legt fljótræði að kasta þeim mögu- leikum á glæ að lítt athuguðu máli og fórna sjálfsákvörðunarrétti okk- ar í þýðingarmestum málum, jafn- vel þótt einhver stundarhagnaður virðist í hoði. Við skulum ekki gleyma því að ísland er á margan hátt í allt ann- arri stöðu en önnur Norðurlönd, að ekki sé talað um gamalgróin iðn- ríki Vestur-Evrópu. Við höfUm landfræðilega sér- stöðu, sem gagnast getur í sam- skiptum til margra átta. KjaHarinn Hjörleifur Guttormsson alþingismaður Við erum fámenn þjóð í stóru landi og því fylgja margháttaðir kostir á meðan við ráðum ferð okk- ar sjálf en hættur ef við flytjum valdið yfir eigin málum suður til Brussel eða Berlínar. Við byggjum tilvist okkar í ríkum mæli á fábreyttum en gjöfulum náttúrulegum auðlindum sem við höfum ekki efni á að deila með öðrum þjóðum. Þjóðarbúskapur okkar hvíhr á stoðum sem eru allt aðrar en hjá iðnvæddum stórþjóð- um álfunnar. Betri leiðfyrir íslendinga Hvernig væri að menn nudduðu stírur úr augum og skoðuðu af al- vöru þá ágætu kosti sem við eigum á skerinu okkar, óháð Evrópustór- veldinu en meðgóðri samvinnu við það og keppinauta þess í Norður- Ameríku og Austur-Asíu. Er nokkurt vit í því að við skipum okkur sem jaðarsvæði í þetta Evr- ópustórveldi þegar við eigum þess kost að vera mikilvægt og miðlægt smáríki á milli voldugra keppi- nauta? Við eigum þegar í stað að leggja til hhðar öll áform um að ganga inn í fordyri Evrópubandalagsins undir merkjum EES, hvað þá að gerast þar þegnar með aðhd að stórríkinu. Við töpum ekki nokkrum hlut á því að standa álengdar meðan nú- verandi uppstokkun iönaðarvelda og fjármagns Evrópu á sér stað. Þvert á móti eigum við að vera nógu slungin og taka okkur tíma til að virða fyrir okkur átökin á meginlandinu og skyggnast til allra átta. Virk íslensk stefna Sjá menn ekki þá stórbrotnu möguleika sem felast í því svigrúmi sem stjórnarfarslegt sjálfstæði gef- ur umfram það að renna inn í evr- ópska stórríkið? Við erum þá ekki bundin á klafa Rómarsáttmála eða EES-samnings en getum leitað eftir samningum við viðskiptabandalög og ríki hvar- vetna í heiminum. Við hefðum svigrúm til að ráða sjálf aðlögun að breyttum heims- viðskiptum og vinna úr nýjum að- stæðum. Sjávarauðlindirnar yrðu áfram undir okkar forræði og undirstaða góðra lífskjara í landinu í stað þess að við glutrum þeim í hendur út- lendingum sem enn í dag horfa löngunaraugum til íslandsmiða. Aðrir landkostir munu nýtast okkur mun betur í óháðu þjóðríki en sem hluti af stórri heild. Við erum í eftirsóknarverðri stööu varðandi orkubúskap ef við höld- um af forsjálni utan um takmark- aðar orkulindir landsins. Smáríkið ísland, sérstætt og fag- urt, hefur í sér fólgið allt annað og meira aðdráttaraíl til marghátt- aðra samskipta, m.a. á menningar- sviði og í ferðaþjónustu, en sem hluti af EB eða EES. Það er spennandi verkefni að geta rekið virka íslenska stefnu til ahra átta í stað þess að verða ofurseldur skriffinnskuveldi og kanselíum suður í álfu. Hristum af okkur minnimátt- arkenndina Smáþjóð heldur ekki hlut sínum nema hún hafi trú á málstað sinn. Þannig náðu afar okkar og ömmur því sjálfstæði sem núhfandi kyn- slóðir fengu í vöggugjöf. Það má ekki henda að við niðjar þeirra, sem teljum okkur vel upplýst og sæmilega stöndug, látum minni- máttarkennd hrekja okkur í fangið á erlendu valdi. Möguleikar á að halda hér uppi góðum lífskjörum og þróa íslenska menningu eru langtum meiri ef við höldum okkur utan við hinar stóru heildir í stað þess að tengjast þeim. Vegna sérstöðu sinnar og af sögu- legum og landfræðilegum ástæðum njóta íslendingar athygli og velvilja víða um heim. Þessi staða verður ekki skýrð út frá efnahagslegum forsendum eða þýðingu sem sam- skipti við okkur hafa fyrir aðrar þjóðir. Einmitt í þessu endurspegl- ast gildi þess að halda þétt utan um fullveldi okkar og sérstöðu sem hafa mun ómetanlega þýðingu í heimi sívaxandi samskipta. Vægi íslands og svigrúm í al- þjóðasamskiptum verður allt ann- að og meira ef við höldum stjórn- tækjunum í eigin höndum í stað þess að gerast peð í stóru viðskipta- bandalagi eða fylki í evrópsku stór- ríki. Hjörleifur Guttormsson „Hvernig væri að menn nudduðu stírur úr augum og skoðuðu af alvöru þá ágætu kosti sem við eigum á skerinu okkar, óháð Evrópustórveldinu en með góðri samvinnu við það og keppinauta þess í Norður-Ameríku og Austur- Asíu.“ Hver er fjölskyldustefna borgarstjórnar? Dagvistarmál í borginni eru í miklum ólestri, aðallega vegna þess að þeir sem ráða ferðinni eru ekki í takt við tímann. Flest dagvistarheimilin eru leik- skólar. Þetta eru tvísetnar stofnan- ir, þ.e. aðeins til þjónustu hálfan daginn í einu, 4 tíma á dag. 5 leik- skólar bjóða þó 4 til 6 tíma vistun. Leikskólakerfið var ágætt fyrir 30 árum þegar ílestar mæður voru heimavinnandi. Núna er þetta fyr- irkomulag tímaskekkja. Átta tíma leikskóli er það sem hentar flestum foreldrum í dag. Fimm og sex tíma vistun kemur ekki að gagni fyrir foreldra sem flestir vinna 8 tíma dag hvern. Börn eiga aðeins að dveljast á einum stað yflr daginn fyrir utan heimili sitt. ^ Það er með ólíkindum að foreldr- ar skuli láta bjóða sér að vera á sífelldum þeytingi með börn sín á milli gæslustaöa. Þetta er ófært fyr- irkomulag, bæði fyrir börn, for- eldra og atvinnurekendur. Helmingur barna einstæðra ádagheimilum Dagvist barna í Reykjavík getur ekki einu sinni þjónað svokölluð- um forgangshópi. Einstæðir for- eldrar vinna yfirleitt langan vinnu- dag og hafa þar af leiöandi ekki gagn af leikskólum. Einstæðum foreldrum, sem ekki fá pláss á dag- heimilum, er því beint til dag- mæðra. Margir gætu haldið að það væri ágæt lausn en svo er ekki, einkum vegna þess að meirihluti barna, sem dvelja hjá dagmæðrum, eða 64% þeirra, hættir hjá dagmóð- urinni 6 mánuðum eftir að þau byrja. Fjórar af hverjum tíu dag- mæðrum hætta starfl sínu eftir eitt ár. Aðeins 4,7% barna eru lengur en þrjú ár hjá sömu dagmóður. Þetta þýðir að börnin eru sífellt að skipta um verustað. Á biðlista dagheimila má aðeins skrá forgangshópa; börn náms- manna, einstæðra foreldra, börn fóstra og börn með mjög erfiðar félagslegar aöstæður. Ljóst er að margir aðrir hópar þurfa á 8 tíma dagvist að halda, t.d. foreldrar sem hafa svo lág laun að þeir geta ekki framfleytt sér og sínum á einum KiaUcLdim Margrét Sæmundsdóttir fóstra tekjum. Síðasttaldi hópurinn er lík- lega langstærstur. Auðvitað ættu allir foreldrar að eiga sama rétt til að skrá börn sín á biðlista dag- heimila þegar þeir þurfa á slíkri hjálp að halda. Öðruvísi er ekki hægt að meta þörflna fyrir dagvist- un. Biðlistar leikskólanna eru einu biðhstarnir sem mark er takandi á en jafnvel þar er langur biðtími. Af hverju mega ekki allir foreldr- ar sækja um dagheimili? Þetta er spurning sem margir foreldrar hafa spurt en ekki fengið skynsam- leg svör viö. Það er vegna þess að niðurstöðurnar koma óþægilega á óvart. Ráðamenn þora ekki að horf- ast í augu við raunveruleikann. En foreldrum eru fáir vegir færir. Þeim er sýnt í tvo heimana og sagt; „Umönnun barna er ykkar mál en ekki borgarinnar. Skattarnir ykkar fara í þarfari hluti en að byggja dagvistarheimili. Hins vegar getið þið farið á veitingastaði, borgin er nefnilega aö byggja einn slíkan fyr- ir einn milljarð eða svo.“ Skipulagsleysi í uppbygg- ingu dagvistarheimila í einu hverfi í Breiðholti eru eitt hundraö laus pláss á fimm leik- skólum. Þetta er einkennilegt þeg- ar mikill skortur er á leikskólavist í öðrum hverfum. Hvernig skyldi standa á þessu? Hafa fyrri spár um íbúafjölda í hverfmu reynst rangar eða er þetta enn ein sönnun þess að leikskólafyrirkomulagið sé úr- elt? Það er mín skoðun að ef þessir 5 leikskólar væru gerðir að 8 tíma leikskólum væri hvert einasta rúm setið. Sem dæmi má nefna að á 7 leik- skólum í einu hverfi í Breiðholti er engin fóstra á deild. Það sem verra er að af þeim 60 fóstrum, sem útskrifast frá Fósturskóla íslands í vor, munu aðeins 7 vera ákveðnar í aö vinna hjá Reykjavíkurborg. Önnur sveitarfélög greiða nefni- lega betri laun. Það er með ólíkind- um að borgin skuli ekkert gera til þess að freista nýútskrifaöra fóstra. Á almennum vinnumarkaði er boðið í það fólk sem vinnuveitend- ur þurfa á að halda. Þetta verður Reykjavíkurborg líka að gera ef hún vill að dagvistarheimili borg- arinnar standi undir nafni. 62% starfsfólks ófaglærð Nám forskólabarna er um margt hkt námi í grunnskólum en jafn- framt er margt ólíkt með þessum skólastigum. Á sama hátt og börn þurfa menntaða kennara til þess að ná árangri í skólum þurfa börn á menntuðum fóstrum að halda, eða, eins og Fanny Jónsdóttir fóstra segir í grein í blaðinu Fóstra um nútíma dagvistarheimili: „Grunnur er lagður að lestri með sögustundum, samræðum og leik- rænni tjáningu þar sem hið talaða orö er uppistaða samskipta. Grunnur er lagður að stærðfræði með því að flokka og raða kubbum og öðrum einingum sem eru uppi- staða leikefnis forskólanna. Grunnur að skriftarnámi er lagður þegar barn málar og teiknar. Allt er þetta námsefni sem tekið er fyr- ir á markvissan hátt á góðum dag- vistarheimilum. Forskólaaldurinn er af mörgum talinn vera sá tími sem einstaklingurinn lærir mesf. Það má ekki kasta þessum árum á glæ vegna lélegra uppeldisskil- yrða.“ í könnun sem Fóstrufélag íslands gerði árið 1987 kom fram að 28% menntaðra fóstra á höfuðborgar- svæðinu vinna önnur störf. Ekki er ástæða til að halda að þetta hafi breyst síðan könnunin var gerð. Það er líka athyglisvert að margar fóstrur vinna samhliða fullu starfl önnur störf, svo sem verslunar- störf og við ræstingar. Þetta segir heilmikið um launakjör fóstra. Skilningsleysi stjórnmálamanna á mikilvægi .starfsins og léleg laun eru meginástæður þess að svo fátt ungt fólk velur sér fóstrustarfið. Ef launin væru skárri er öruggt að fleira ungt fólk færi í fóstrunám því starflð er skemmtilegt þegar það er unnið við góð skilyrði. Það er ekki húsakosturinn sem skiptir máli þótt auðvitað verði að gera kröfur til þess að búa börnum og fóstrum hentugt umhverfi. Það er starfsfólkið sem skiptir öllu máli. Þar sem best er unnið eru margar fóstrur sem vinna saman að frjóu uppeldisstarfl. Þau dagvistarheim- ili, sem eru fóstrulaus eða svo til, eru hvorki góður vinnustaður né gott uppeldisumhverfi. Fyrir nokkrum árum kom aðstoðarfólk meö langan starfsaldur í stað fóstra. Margar þessara kvenna voru fóstruígildi vegna reynslu sinnar. Þvi miður er það liðin tíð að á dagvistarheimilum vinni ófag- lært starfsfólk með langan starfs- aldur að baki. Árið 1988 hættu 79,32% ófaglærðs starfsfólks hjá Dagvist bama í Reykjavík. Það seg- ir sig sjálft að eilíf mannaskipti hljóta að hafa mjög slæm áhrif á börnin og alla starfsemi heimil- anna. Lægstu launin Starf forstöðumanns á dagvistar- heimilum er mikið ábyrgðarstarf. Hins vegar eru launin ekki í neinu samræmi við mikilvægi starfsins. Þau eru skammarlega lág. Þó eru launin ekki eins vesæl alls staðar. Sagt er að fóstrur vilji frekar vinna á dagvistarheimilum í Kópa- vogi og Hafnarfirði en Reykjavík vegna launamunar. Byrjunarlaun forstöðumanns í Reykjavík eru kr. 62.689. Föst yfirvinna er 12 til 20 tímar eftir stærð heimila. Ath.: Þessir tímar eru ekki launauppbót eins og hjá flestum fyrirtækjum sem borga fasta yfirvinnu. Þetta eru unnir tímar. Forstöðumaður getur því haft um 75.000 kr. á mán- uði í byrjunarlaun fyrir fullt starf og aukavinnu. Forstöðumaður í Hafnarfirði, sem fær 66.000 kr. í byrjunarlaun og 30 tíma í fasta yfir- vinnu, getur haft um 87.000 kr. Laun deildarfóstru eru einnig hærri í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Þaö er skylt að geta þess að innra starf dagvistarheimila er víða mjög gott. Enda er ekki ætlunin að gagn- rýna það. Vandamál dagvistar- heimila er fyrst og fremst mikill fóstruskortur og meingallað dag- vistarkerfið sem þjónar alltof fáum. Þessu verður að breyta. Eins og dagvistarmál koma mér fyrir sjónir er gert ráð fyrir að meirihluti barna eigi aö vera á flakki á milli íverustaða daglega. Þó er fátt börnum mikilvægara en öryggi, að eiga sér tryggan stað. Flækingur í ýmsa staði, sífelld skipti, getur álið á rótleysi seinna á ævinni. Þetta er ekki það vega- nesti sem við viljum gefa börnum okkar. Borg, sem hefur efni á að byggja annan eins hégóma og Auðkúluna á Öskjuhlíð hefur vel efni á að gera vel við börn sín og á að gera það. Borgin má ekki gera sín eigin börn að hornrekum. Margrét Sæmundsdóttir „Þó er fátt börnum mikilvægara en öryggi, aö eiga sér tryggan staö. Flæk- ingur á ýmsa staði, sífelld skipti, getur alið á rótleysi seinna á ævinni. Þetta er ekki þaö veganesti sem við viljum gefa börnum okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.