Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. 39 Fréttir * Ný slökkvistöö á Akureyri: Agreiningur um stað- setningu slökkvistöðvar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Meirihluti skipulagsnefndar Akur- eyrarbæjar tekur fram í bókun sinni varðandi staðsetningu nýrrar slökkvistöðvar í bænum að hann sé andvígur staðsetningu slökkvi- stöðvarinnar við Drottningar- braut. Þó fellst meirihluti nefndar- innar á að sú staðsetning verði sýnd á tillögu að aðalskipulagi, m.a. til að kanna viðhorf bæjarbúa í því máli áður en endanleg ákvörð- un verði tekin Hugsardeg staðsetning slökkvi- stöðvar við Drottningarbraut er fyrst og fremst tilkomin vegna hug- mynda um sameiningu slökkviliðs Akureyrar og slökkviliðs Akur- eyrarflugvallar og þeirrar hagræð- ingar sem sbk sameining myndi hafa í fór með sér. Rætt hefur verið um að slökkvistöðin yrði staðsett rétt sunnan Leiruvegar, nærri norðurenda flugbrautarinnar, og yrði stöðin tengd flugbrautinni með nýjum vegi yfir Leirurnar. Umhverfisnefnd hefur einnig fjallað um hugsanlega staðsetningu og var nefndin ekki sammála í nið- urstöðu sinni. í áliti meirihiutans segir að staösetning við Drottning- arbraut sé ekki bkleg til að valda spjöllum á lífríki og umhverfi enda sé séð fyrir því að vatnsskipti eigi sér stað með gerð ræsa eða brúa gegnum tengibraut við flugvöll og Leiruveg til norðurs. Þar sem ekk- ert liggi fyrir um útlit og umhverfi fyrirhugaðrar byggingar taki meirihlutinn hins vegar ekki af- stöðu á útlitsforsendum. Minnihluti nefndarinnar, sem þær skipa Margrét Kristinsdóttir og Guðlaug Hermannsdóttir, segir það mat sitt að þaö sé ekki vænleg- ur kostur að byggja slökkvistöð með tilheyrandi vegagerð við Drottningarbraut, hvorki frá ör- yggis- né umhverfismálasjónamið- um. Þær telja að umtalsverð sjón- mengun verði af slíkum fram- kvæmdum, litlar sem engar upp- lýsingar liggi fyrir um áhrif slíkrar starfsemi á llfríki svæðisins og þeirra mat er að slökkvistöð sé í eðb sínu miðlæg starfsemi og til þess að hún komi bæjarbúum að fullu gagni þurfi hún að vera stað- sett sem slík. Stykkishólmur: Tannlæknastofa í nýju heilsugæslustöðinni wfr SNJ ÓSLEÐ AG ALLAR ► Efníð og saumar eru 100% vatnsþétt ► Hrokkið loðfóður - betrí einangrun ► Tvöfalt efní í ísetu ► Hetta áföst með rennilás ► Hár kragi fyrir hjálm ► Margar fleirí nýjungar ► Ný glæsileg hönnun og litasamsetníngar ► Bjóðum nú sérstakt kynníngarverð Valdimar HreiðaiBson, DV, Styktóshólmi: Nú fyrir stuttu fluttí Klæmint An- tóníusson tannlæknir hér í Stykkis- hólmi í nýja taiíhlæknastofu í heilsu- gæslustöðinni. Til skamms tíma var tannlæknastofan til húsa í kjallara bæjarskrifstofunnar en það er hús- næði sem lögreglan taldi sér ekki fært að nota eins og fram hefur kom- ið í fréttum. Er hér um mikla fram- fór að ræða, bæði fyrir starfsfólk tannlæknastofunnar og sjúkbnga. Fyrstí viðskiptavinur Klæmints í nýju stofunni var Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og lýstí hann ánægju sinni með bætta aðstöðu. Róbert Jörgensen, framkvæmdastjóri St. Fransiskus-sjúkrahússins og heilsu- gæslustöðvarinnar, fluttí ræðu og afhenti þeim Klæmint og Sturlu blóm í tilefni dagsins. Klæmint Antóníusson er Færey- ingur að ætt og uppruna og nam tannlækningar við Kaupmannahafn- arháskóla. Fyrir tæpum 20 árum flutti hann tíl íslands og hóf tann- lækningar í Stykkishólmi. Hann hef- ur þjónað Hólmurum og fólki úr ná- grannabyggðum síðan. Fagnar hann 20 ára starfsafmæb hér í haust. Eig- inkona hans, Ólöf Ólafsdóttir, er bor- inn og bamfæddur Hólmari og vinn- ur með manni sínum á tannlækna- stofunni. Sturla bæjarstjóri í stólnum og Klæmint tannlæknir. DV-mynd Valdimar Endurgerð Hóladómkirkju lokið: Hólabríkin komin og nýtt pípuorgel vígt Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Fjölmenni var viðstatt hátíðar- messu í Hóladómkirkju á sunnudag í tilefni þess að endurgerð kirkjunn- ar er að fubu lokið. Hólabríkin, alt- aristafla kirkjunnar, er komin á sinn stað eftír viðgerð og nýtt 12 radda pípuorgel frá Frobenius-verksmiðj- unni í Danmörku var tekið í notkun. Meðal gesta að Hólum voru forsetí íslands, Vigdís Finnbpgadóttir, og kirkjumálaráðherra, Ób Þ. Guð- bjartsson. Séra Hjálmar Jónsson predikaði en Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og Gísb Gunnarsson í Glaumbæ þjónuðu fyrir altari. Albr sex organistar Skagafjarðar- prófastsdæmis léku á orgebð og fjór- ir kirkjukórar þess sungu undir stjórn Hauks Guðlaugssonar, söng- málastjóra þjóðkirkjunnar. Nýja pípuorgebð var teiknaö af Þorsteini Gunnarssyni arkitekt. Að messu lokinni fluttu ávörp vígslubiskup, kirkjumálaráðherra og Guðmundur Guðmundsson, for- maður Hólanefndar. Eftir athöfnina í kirkjunni var gestum og staðarfólki boðið til kaffisamsætis í bændaskól- fyrir páska kr. 21.700,- Sölustaðir: Reykjðvík:0. Ellingsen ► Sportval ► BYKO Akureyrí: Heildverslun Eyfjörð (oo)[ý(| sjóklæðagerðin hf. s£XTfuœsEXNOM>UR Skúlagötu 51,105 Reykjavík anum. Við gefum farþegum okkar auglýsingakostnaðinn, i stað þess að nota ferðapeninga ykkar i stórar striðsaug- lýsingar dag eftir dag. 3 vikur 16. maí, 6. júni 27,-júni, 19. sept., 10. okt. 18. júli, 8. ágúst og 29. ágúst 0ASIS ibúðahótel Magalluf svefnh. og stofa Kynningarverð á 300 sætum meðan endast Venjulcgt verð Kynningarverð á 300 sætum meðan endast til 30. mars Venjulegt verð 4 i ibúð kr. 58.300 (kr. 73.900) kr. 62.500 (kr. 79.600) 3 i ibúð kr. 61.700 (kr. 78.500) kr. 67.300 (kr. 84.600) 2 i ibúð kr. 68.500 (kr. 92.300) kr. 76.900 (kr. 99.500) Já, - og það sem meira er: Þetta er verð fyrir fullorðna en ekki börn. Tækifærisverð - Mallorca Oasis Magalluf - Glæsilegt íbúðahótel. Má bjóða þér eitt glæsilegasta íbúðahótel Spánar? Miðsvæðis i Magalluf, baðstrandarborginni, rétt við höfuðborgina Palma. Nýjar og fallegar ibúðir, svefn- herbergi og stofa, stórgóð salarkynni, setustofur, veit- ingastaðir, barir, dansstaðir og 9000 ferm hótelgarður með risasundlaugum, veitingastöðum og skemmti- atriðum. Þarna er sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það. Islenskur fararstjóri og fjöl- breyttar skemmti- og skoðunarferðir. — FmnpgRQiR = SOLRRFLUC Vesturgötu 12 - Símar 16331 og 2210U. ■v V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.