Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Page 6
6
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
Fréttir
Prófkjör hjá Nýju afli á Seltjamamesi:
Konur náðu kjöri í
fjögur efstu sætin
Siv Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari
hlaut flest atkvæði í prófkjöri Nýs
afls á Seltjarnarnesi um helgina. Siv
fékk 112 atkvæði. í öðru sæti varð
Guðrún K. Þorbergsdóttir fram-
kvæmdastjóri með 135 atkvæði. í
þriðja sæti varð Katrín Pálsdóttir
hjúkrunarfræðingur með 174 at-
kvæði og Anna Katrín Jónsdóttir
háskólanemi í fjórða sæti með 157
Leitaðað
fólki á Öxna-
dalsheiði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hjálparsveit skáta á Akureyri
fór til leitar á Öxnadaisheiði í
fyrrinótt en óttast var að þar
væri fólk í erfiðleikum.
Ökumaður flutningabíls á leið
suður ók fram á fólkið sem var á
fólksbíl. Hann hvatti fólkið til að
snúa við þar sem veðrið var mjög
slæmt og heiðfn nær ófær. Beðið
var um að fólk í Varmahlíð léti
vita ef fólkið sneri við og kæmi
til baka.
Þegar þaö gerðist ekki fóru
skátarnir af stað um kl. 4 í fyrri-
nótt. Þeir urðu fólksins ekki varir
og það var ekki fyrr en kl. 7 um
morguninn að í ljós kom að fólkiö
hafði snúið viö, farið á hótel í
Varmahlíð og svaf þar værum
blundi á meðan verið var aö leita
aö því á heiöinni.
Skátamir notuðu ferðina á
heiðina til að sækja þangað bilaða
jeppabifreið. Ökumaðurinn hafði
tilkynnt um bilunina og beið ró-
legur eftir aðstoð.
Ólafsfjarðarvegur:
Harður
árekstur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Svo virðist sem ógætilegur
akstur tveggja ökumanna hafi
valdið mjög hörðum árekstri á
Ólafsfjarðarvegi á laugardags-
morgun.
Skoda bifreiö og Range Rover
jeppi mættust þar á þröngum vegi
með ruðninga til beggja handa
og virðist lítið hafa verið slegið
af ferðinni. Bílarnir skullu saman
og tvennt, sem var í Skodanum,
var flutt á sjúkrahús. Meiðsli
voru þó ekki talin alvarleg en
bílamir vom þannig farnir að
þeir vom báðir fluttir með krana-
bíl í burtu.
Tvö innbrot
Tvö innbrot voru framin í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags.
Brotist var inn í vinnuskúra við
Skúlagötu en litlu sem engu var
stohð. Síðar um nóttina var brot-
ist inn í fyrirtækið Hárþing í
Pósthússtræti og var stolið þar á
milli 5000 og 6000 krónum í pen-
ingum og hárþurrku.
Ekki hefur enn tekist að upp-
lýsa hverjir vom að verki en
málin em til rannsóknar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
-J.Mar
atkvæði. I fimmta sæti varð Sverrir
Ólafsson rafmagnsverkfræöingur, í
sjötta Arnþór Helgason deildarstjóri
og Björn Hermannsson fræðslufull-
trúi í sjöímda.
Alls greiddu 451 atkvæði í prófkjör-
inu og voru álíka margar konur og
karlar í þeim hópi aö sögn Stefáns
Bergmann eins af forsvarsmönnum
Nýs afls.
„Eg vil þakka þeim sem veittu mér
stuöning í þessu próíkjöri og aðstoð-
uðu mig við allan undirbúning,"
sagði Siv Friðleifsdóttir í samtali við
DV. Hún sagði að ekki hefði veriö
reynt að höfða til kvenna sérstaklega
og ekki hefði verið stefnt beinlínis
að því að hafa konur í efstu sætum.
„Ég hef ekki tekið þátt í stjórn-
málum opinberlega áður en setið í
stjórn Landssambands framsóknar-
kvenna og Norræna félagsins. Ég
mestan áhuga á æskulýðs- og íþrótta-
málum enda eru það málaflokkar
sem standa mér næst vegna starfs
míns og íþróttaiökunar fjölskyld-
unnar.“
-Pá
Unnið við talningu atkvæða í prófkjöri Nýs afls á Seltjarnarnesi. Talið frá vinstri eru Sigurlaug Jónsdóttir, Ásdís
Björgvinsdóttir, Stefán Bergmann og Þorsteinn Húnbogason. DV-mynd Hanna
Frumvarpsdrög iðnaðarráðherra um virkj anaheimildir:
Hjörleifur á móti
ild og samningarnir haldist í hend- ins.“
ur.
Hjörleifur Guttormsson, formaður
iðnaðarnefndar neðri deildar alþing-
is og fyrrverandi iönaðarráðherra
Alþýðubandalagsins, er eini þing-
maður þess sem er andvígur frum-
varpsdrögum iðnaðarráöherra um
heimildir til virkjanaframkvæmda
vegna fyrirhugaðra samninga um
nýtt álver.
„Andstaða Hjörleifs er engan veg-
inn afstaða þingflokks Alþýðubanda-
lagsins," sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, formaður Alþýðubandalagsins.
„Þingflokkurinn hefur samþykkt
þessi frumvarpsdrög sem slík að
öðru leyti en því aö við viljum skoöa
betur annað bráðabirgðaákvæði
frumvarpsdraganna þar sem kveðið
er á um lántökuheimild til að hefja
framkvæmdir áður en samningar
liggja fyrir. Við teljum hins vegar
skynsamlegt og eölilegt að slík heim-
Olafur-sagði að þetta eina atriði
yrði rætt nánar í þingflokknum í dag
en að öðru leyti hefði þingflokkurinn
samþykkt allt meginefni frumvarps-
draganna.
Nú heldur Hjörleifur því fram að
meirihlutaeign útlendinga í orku-
frekum iðnaðarfyrirtækjum hér á
landi brjóti í bága við grundvallar-
stefnu Alþýðubandalagsins?
„Já, en ég er einfaldlega ósammála
Hjörleifi í því,“ sagði Ólafur Ragnar.
„Það sem við leggjum áherslu á eru
fyrst og fremst fjögur atriöi: að fyrir-
tækin lúti íslenskum lögum og dóm-
stólum; að viðunandi umhverfiskröf-
um sé fullnægt; að raforkuverð og
skattar fyrirtækjanna tryggi íslend-
ingum arö og að fyrirtækiö verði
staðsett utan höfuðborgarsvæöis-
Hjörleifur hefur ýmislegt fleira við
frumvarpsdrögin að athuga: „Mér
sýnist allt benda til þess að samn-
ingshorfurnar séu slæmar fyrir okk-
ur, t.d. hvað varðar raforkuverðið,“
sagði hann. „Hér yrði um að ræða
fjárfestingar upp á hundrað millj-
aröa króna en það segir sig sjálft að
slíkar skuldbindingar hljóta að
þrengja aö umsvifum á öðrum svið-
um þjóðlífsins, t.d. í nýsköpun í sjáv-
arútvegi, í samgöngumálum, ferða-
málum og framkvæmdum sveitarfé-
laga.“
„Alþingi á aö halda málinu hjá sér.
Ég einfaldlega treysti ekki iðnaðar-
ráðherra og ríkisstjórninni fyrir
málinu á þessu stigi,“ sagði Hjörleif-
xur að lokum.
KGK
Bílar með snjótönn eru þarfaverkfæri á vetrum en það er betra að þeir
haldist á veginum. Myndin er af bíl Steypustöðvarinnar á Blönduósi við
snjómokstur. DV-mynd Magnús
ingsbfll stór-
Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi:
Nýr ellefu milljóna kr. bíll stór-
skemmdist skammt frá Stóru Giljá
nýlega þegar verið var aö hreinsa
þjóðveginn með snjótönn. Tönnin
rakst í svellbunka svo harkalega að
bíllinn hentist út af veginum, pallur-
inn rifnaði af, grind bílsins skekktist
og húsið skemmdist en ökumaðurinn
slapp ómeiddur.
Ökumaður bílsins var Gunnar Þor-
valdsson á Hvammstanga. Hann
sagðist hafa verið spenntur öryggis-
beltum þegar óhappið átti sér stað
og þaö örugglega bjargað honum frá
meiðslum.
Sandkom dv
Heimsmeistarar
Þaðgetur
ýmislegt
skemmrilegt
komiðuppá
þegar mikiö
stendurtiiogí ;
mörghornerað
líta. Þettafengu
)eir að reyna á dögunum, forráöa-
menn vetraríþróttahátíðar á Akur-
eyri, en við setningarathöfri hátíðar-
irrnar áttu sovéskir heimsmeistarar
unglínga í listdansi á skautum að sýna
listir sinar. Hestamenn ætluðu að aka
með þau skötuhjú inn á skautasvæðið
þar sem athöfnin fór fram en þegar
sækja átti þau á hótelið fundust jmu
ekki. Var nú hafin „dauðaleit" að
meisturunum ogloks fúndust þeir i
skúr við skautas vellið þar sem þeir
biðu þess að geta hafið sýninguna.
Voru þeir nú drifnir inn í bíl, þaðan
i hestakemma og þeim svo ekið inn
á sveliið þar sem þeir sýndu listir sin-
ar i kuldanepju ogirosti.
Bændumir
í bjórinn
DaguráAk-
ureyriskýröi
frá þvi í síðustu
vikuaöí Akra-
hreppi í Skaga- :■ j
lirðiséstari'-
andiroenning-
ar-ogframfara-
kiúbbur og eru íelagsmenn nær ein-
göngu karlmenn. Þessir menn, sem
munu nær allir vera bændur, hittast
hálfsmánaðarlega og hluti dagskrár
funda þeirra mun vera bjórdrykkja.
Neysla sterkra vina mun ekki leyfð á
þessum firndum. Dagur segir að hug-
myndin með þessum fimdum sé að
bændur geti hist og rættlandsins gagn
ög nauðsynjar, og iýsir blaöið yfir
ánægju sinni með að hefð sé að skap-
ast á neyslu bjórsins.
Segulbandið í
aðalhlutverki
Þaðhi-fur
komiðfyrir
tmdanfarínár
tiðjtekktirog:
lyrruntþf’kkttr
erlendir
skemnitikraftar
hafilagtleið
sína til íslands og skemmt hér á klak-
anum. Ágætir skemmtikraitar hafa
verið í þessum hópi og komiö liingað
í fullri alvöru til fremjalist sína. Inn
á millí eru svo aðrir sem virðast hafa
það að leiðarljósi að sleppa sem ódýr-
ast frá öllu saman. í þeim hópi er
söngflokkurinn Boney M. sem nú er
staddur hér á landi. Eflaust er það í
spamaðarskyni að þessi hópur kemur
hingað án hljóðfæraMkara en er meö
bljóðfæraleik sitm á segulbandi. Þessi
hópur, sem kom m.a. fram í sjón-
varpinu í síðustu vtku stóð á sviði
Hemma Gunn og ekki var annað hægt
að heyra en að söngvaramir gerðu
ekkert annað en að standa þar og
hreyfa varimar, tónhstin og söngur-
inn væri leikinn af bandi.
Framkvæmda-
stjórinn
Allaballará
Akurevri hafa
veriðaðgera
havnðavegna
samningssem
gerðurhttui
vi.rið á milii
bæjaryfirvalda
og þriggja íþróttafélaga i bænum.
Bærinn sty rkir framk væmdir Skauta-
félags Akureyrar, íþróttafélagsins
Þórs og Golfklúbbsins og nemur
styrkurinn í heild um 15 railljónum
króna á þessu ári. Allaballamir virð-
ast eiga erfitt með að sætta sig við aö
Golfklúbburinn skuli hafa verið
styrktur en ekki KA eins og Sigríður
Stefánsdóttir, bæjarfufitrúi Afiaballa,
sagði í svæðisútvarpinu. Hins vegar
brá svo við aö strax eftir samnings-
gerðina var sú saga kotnin á kreik að
einn af bæjarfiifitrúum meirihlutans,
Gísli Bragi Hjartarson, hefði verið
ráðinn framkvæmdastjóri Golf-
klúbbsins en Gísli Bragi vann einmitt
aö þessu máli sem bæjarfulltrúi og
íþróttaráðsmaður. Sagteraðfram-
kvæmdastjóri Golfklúbbins, semvar
ráöínn um síöustu áramót og gegnir
því starfi í dag, hafi orðið mjög óhress
er hann heyrði þessa sögu, enda ekki
verið sagtupp störfum.
Umsjón: Gylti Kristjánsson