Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
15
Lesendur
Um mengun
íslcndingur skrifar:
Nýlega hlustaöi ég á umræöur um
mengun og viötal viö einn af embætt-
ismönnum ríkisins á þvi sviöi. Þessi
þáttur var á rás 2 miðvikudaginn 28.
mars.
Þaö sem vakti sérstaka athygli
mína var aö ekki hafa verið gerðar
mælingar á mengun frá álverinu í
Straumsvík í fjögur ár, segi og skrifa
fjögur ár. Vitanlega kenndi viðkom-
andi maöur fjárskorti um, þaö er
venjan.
Ég ráölegg bæjarstjórn Akureyrar
að koma til Reykjavíkur næst þegar
logn hefur veriö um skeiö, eöa aðeins
hægur andvari, og sjá blámóðuna í
kringum álveriö með eigin augum.
Þegar-fariö er á báti um flóann, út
af Straumsvík, sést varla fjallgaröur-
inn vegna blámóðunnar, Þegar ekið
er um Keflavikurveginn i logni fær
maður remmu í hálsinn af blámóð-
unni. Þessi hrikalega mengun, sem
liggur meö öllum Undirhlíðunum og
nágrenni þegar súldar í hægvirði, er
afar augljós öllum þeim sem vilja
sjá, en þaö eru svo margir sem ekki
„viija sjá“ blámóöuna.
Sagt er í frásögnum um móðuharð-
indin að þá hafi blá móða legiö yfir
landinu og haft skaðvænleg áhrif á
dýr og gróöur. Þá voru þetta kallaöar
náttúruhamfarir. Nú heitir þetta
öörum nöfnun enda pólitískt ofstæki
blámóðunni verra.
Þeir vita varla hvaö þeir eru aö
biðja um, Eyfirðingar. Þeir ættu aö
koma og sjá með eigin augum hina
óhugnanlegu mengun sem kemur frá
álverinu í Straumsvík. Svo mætti
segja aö það væri ekki glæsilegt
framtíðarstarf að eyða allri ævinni
hóstandi í kerskála, líkt og hestarnir
í kolanámum Bretlands á sinni tíö.
Dr. Benjamín og
kjarasamningarnir
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Dr. Benjamín H.J. Eiríksson furðar
sig á því aö kjarasamningarnir í byrj-
un árs séu ekki gagnrýndir. En
ástæöa þess er sú aö enginn hefir
áhuga á þeim. Þeir eru fæddir and-
vana. Þaö fær ekki staðist aö lág-
tekjufólk borgi niöur veröbólguna
sem okurlán hafa blásiö upp. Þaö
eiga þeir aö gera sem hafa rakað
saman skattfrjálsu fé í áratug á
kostnaö fyrirtækja og heimila: fjár-
magnseigendur.
Hagfræðingnum finnst ósvinna aö
verkamenn fái 5% kauphækkun.
Hann telur enn meiri ósvinnu að
verölag fái ekki að hækka aö vild
kaupmanna sem mega ekki missa
spón úr sínum aski. Þessir skjólstæð-
ingar hans geta þó lítið grætt ef al-
menningur hefir ekkert til að kaupa
fyrir.
Hann er svo reiður vegna 5%
hækkunarinnar aö hann vill láta
leggja ASÍ og BSRB niður. Þaö er
hins vegar æskilegt af annarri
ástæðu. Þessi samtök eru oröin tæki
í höndum VSÍ til þess aö þrúga
verkamenn og aöra launþega. Litlu
félögin eiga aö gæta sinna hags-
muna, hvert i sínu lagi. Það er fram-
tíðin.
Vaxtaokur og verðbréfabrask
skapar engin verömæti en orkar sem
dragbítur á atvinnurekstur sem get-
ur ekki greitt rándýr lán. Nálega
daglegar greiöslustöðvanir og gjald-
þrot eru til vitnis um þaö. Kaupgjald
hér er lægra en í nágrannalöndunum
en vextir þrisvar sinnum hærri.
Mín skoöun er sú að dr. Benjamín
og aörir fyrrum kommúnistar eigi
vegna uppljóstrana austan tjalds að
biöjast afsökunar og þegja, allir sem
einn. Öfgar til hægri eru engu betri
en öfgar til vinstri. Þaö mætti dr.
Benjamín vita. Á öfgamönnum er
ekki mark takandi.
Hringið í síma
27022
milli kl. 9 og 16, eða skrifið.
ATH. Nafn og sími verður að fylgja bréfum.
C7
IPMMAILIMD
Á SKÍÐUM OG SKÍÐAVÖRUM
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Laugavagi178, afmar16770 og 84455
CHINON GL-S AD
» Fastur fókus ■ Sjálfvirk filmufærsla ■ Sjálftakari ■ Alsjálfvirkt flass
■ Möguleiki á dagsetningu inn á myndir ■ Eins árs ábyrgð
Kynningarverð kr. 6.950.
Taska og lithiuni rafhlaða fylgja
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Kodak
UMBOÐK)