Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. HARGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG SIMI 13010 Lýsingarefnið sem ekki skaðar hárið. Strípulitanir. RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG SIMI 12725 Smáauglýsingadeild verður opin um páskana sem hér segir: Miðvikudag 11. apríl kl. 9-18. Mánudag 16. apríl (annan í páskum) kl. 18-22. Lokað skírdag, föstudaginn langa, laugardaginn 14. apríl og páskadag. Athugið! Síðasta blað fyrir páska kemur út miðviku- daginn 11. apríl. Fyrsta blað eftir páska kemur út þriðjudaginn 17. apríl. Gleðilega páska. SMÁ -auglýsingadeild, Þverholti 11 - Sími91-27022. Fréttir M-hátíð á Vesturlandi Snorri Krisfleifsson, DV, Borgarfirði: M-hátíð á Vesturlandi var sett í Reykholti sl. laugardag að viðstödd- um íjölda gesta. Svavar Gestsson menntamálaráðherra flutti ávarp og lýsti hátíðina setta. M-hátíð er sam- starfsverkefni sveitarfélaga og ráðu- neytis til að efla og styrkja menning- arlíf undir kjörorðinu Menning, menntun, mál. Dagskrá hátíðarinnar er íjölbreytt og dreifist hún á næstu vikur og mánuði. Aö kvöldi laugardagsins var menn- ingarvaka í Hótel Borgarnesi. Höfðu sumir á orði að þar hefðu sum atrið- in verið menningarlegri en önnur og jafnvel fullmenningarleg. Sunnudaginn 1. apríl var svo hátíö- arsýning í Logalandi á gamansöng- leiknum Rjúkandi ráð eftir Pir 0 Man og var Pir 0 Man viðstaddur sýninguna. Bakvið nafnið standa þeir Jónas Árnason, Jón Múli Árna- son og Stefán Jónsson. Þeir voru sérstaklega hylltir að sýningu lok- inni ásamt leikstjóranum, Flosa Ól- Höfundar og leikstjóri Rjúkandi ráðs voru hylltir eftir sýninguna. Frá vinstri: Jón Múli, Stefán Jónsson, Jónas Árnason og Flosi Ólafsson. DV-mynd Snorri afssyni. Hann hefur farið frjálslega Næsta atriði M-hátíðar er bók- með texta, bætt við persónum og mennta- og menningarvaka á staðfært. Hvanneyri 6. apríl kl.21.00. Framboð á Fáskrúðsfirði: Tólf konur á lista Sjálfstæðisfélagsins Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúösfiröi: Þrír framboðslistar hafa verið lagðir fram hér á Fáskrúðsfirði fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar í vor og að þeim standa Sjálfstæðisfélag Fá- skrúðsfjarðar, Álþýðubandalagsfé- lag Fáskrúðsfjarðar og Óháðir í Búðahreppi. Listarnir eru þannig skipaðir. Framboðslisti Sjálfstæöisfélagsins. 1. Albert Kemp. 2. Guðný Þorvalds- dóttir. 3. Dóra Gunnarsdóttir. 4. Sig- urveig Agnarsdóttir. 5. Guðríður Bergkvistsdóttir. 6. Aðalbjörg Frið- Sjónvarp fyrir aldraða Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi: Kiwanisklúbburinn Borgir á Blönduósi hefur gefið félagsstarfi aldraðra á Blönduósi sjónvarps- og myndbandstæki og skáp undir þessa góðu gripi. Tækjunum hef- ur verið valinn staður í samko- musalnum Hnitbjörgum, sem er dvalarheimili fyrir aldraða og stendur á lóð Héraðshælisins. Félagsstarf aldraðra er mikið á Blönduósi og kemur fólkið reglu- lega saman í salnum á Hnitbjörg- um. Þar vinnur fólkið að fóndri ög ýmsu fleiru og oft koma góðir gestir í heimsókn. T.d. kemur fólk úr hinum ýmsu klúbbum og fé- lögum á staðnum reglulega til þess aö eiga glaða stund með þeim öldruðu. Grandi græddi 16 milljónir Um 16,5 milljóna króna hagnað- ur varð af starfsemi Granda hf. á síðasta ári. Aöalfundur félagsins var í gær. Heildarvelta félagsins var rúmir 1,9 milljarðar á síðasta ári en rúmir 1,5 milljarðar árið 1988. Launagreiðslur voru um 568 milljónir. -JGH bjarnardóttir. 7. Jóna Gunnarsdóttir. 8. Sigrún Ólafsdóttir. 9. Sigurborg Elva Þórðardóttir. 10. Lilja Lind Sæ- þórsdóttir. 11. Elísa Guðjónsdóttir. 12. Guðrún Einarsdóttir. 13. Sigríður Ólafsdóttir og 14. Bjarni Sigurðsson. Framboðslisti Aiþýðubandalags- félagsins. 1. Valur Þórarinsson. 2. Valbjörn Pálsson. 3. Helgi Elíesers- son. 4. Svanhvít Jakobsdóttir. 5. Valdimar Guðlaugsson. 6. Alberta Guðjónsdóttir. 7. Þorsteinn Bjarna- son. 8. ívar Gunnarsson. 9. Siguröur Einarsson. 10. Jóhann M. Jóhanns- son. 11. Magnús Stefánsson. 12. Gunnþór Guðjónsson. 13. Jenný Ágústsdóttir og 14. Ragnhildur Jóns- dóttir. Framboðslisti Óháðra í Búða- hreppi. 1. Eiríkur Stefánsson. 2. Eið- ur Sveinsson. 3. Jens P. Jensen. 4. Óðinn Magnason. 5. Guðmundur Þorgrímsson. 6. Jón Kárason. 7. Guöný Sigmundsdóttir. 8. Benedikt Sverrisson. 9. Guðmundur Gunn- þórsson. 10. Jón Finnbogason yngri. 11. Ingvar Sverrisson. 12. Lúðvík Daníelsson. 13. Fanney Linda Krist- insdóttir og 14. Þórarinn Bjarnason. Gunnar við rúning. DV-mynd Magnús Vetrarrúningur eykst Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi: Margir bændur, sem hafa hlý íjár- hús, láta rýja fé sitt um miðjan vet- ur. Þá hefur það farið í vaxandi að féð sé rúið á haustin um leið og það er tekið á hús en þannig fæst besta ullin. Margir bændur rýja féð sitt sjálfir en aðrir fá menn til þess sem fara milli bæja til þessara verka. Einn þessara manna er Gunnar Ellertsson á Bjarnastöðum sem er við rúning flesta daga frá því í febrúar og fram í apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.