Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
19
Fréttir
Dalvík:
Framboðslistar sjá dagsins Ijós
Geir A. Guösteinsson, DV, Dalvílc
Jafnaðarmannafélag Dalvíkur var
fyrst til að birta framboðslista sinn
vegna bæjarstjórnarkosninganna í
vor en eins 'og kunnugt er var það
félag stofnað eftir að Alþýðubanda-
lag og Alþýðuflokkur hér á staðn-
um höfðu gengið til samstarfs um
framboð. Alþýðubandalag fékk 2
menn kjörna 1986 en Alþýðuflokk-
urinn bauð þá ekki fram lista. List-
inn er þannig skipaður:
1. Jón K. Gunnarsson framleiðslu-
stjón 2. Símon J. Ellertsson fram-
kvæmdastjóri 3. Þóra Rósa Geirs-
dóttir kennari 4. Halldór Sig. Guð-
mundsson forstöðumaður 5. Ólaf-
ur Árnason rekstrarstjóri 6. Helga
Matthíasdóttir húsmóðir 7. Einar
Emilsson umsjónarmaður 8.
Helga Ámadóttir skrifstofumaður
9. Bjarni Gunnarsson sjómaður
10. Grétar Kristinsson verkamaður
11. Ásta Einarsdóttir leiðbeinandi
12. Elín Rósa Ragnarsdóttir sjúkra-
liði 13. Ottó Jakobsson fram-
kvæmdastjóri 14. Kolbrún Páls-
dóttir leiðbeinandi
Listi sjálfstæðismanna og óháðra
hefur einnig verið birtur en þessi
listi var einnig boðinn fram 1986
undir sama nafni og fékk þá 3 menn
kjörna. Á listanum eru eftirtaldir:
1. Trausti Þorsteinsson fræðslu-
stjóri 2. Svanhildur Árnadóttir
hárgreiðslumeistari 3. Gunnar
Aðalbjörnsson frystihússtjóri 4.
Hjördís Jónsdóttir skrifstofumaður
5. Arnar Símonarson elliheimilis-
starfsmaður 6. Óskar Óskarsson
bifreiðarstjóri 7. Yrsa Hörn Helga-
dóttir húsmóðir 8. Jón Þ. Bald-
vinsson sjómaður 9. Albert
Ágústsson verkamaðu 10. Sævald-
ur Gunnarsson sjómaður 11. Björk
Ottósdóttir starfsstúlka 12. Eiríkur
Ágústsson verkstjóri 13. Sigurður
Kristjánsson skipstjóri 14. Bald-
vina Guðlaugsdóttir húsmóðir
Listi fram-
sóknarmanna
á Höfn
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Framsóknarmenn á Höfn hafa birt
sinn lista yflr þá sem gefa kost á sér
í framboö til bæjarstjórnar hér í vor
og hefur hann verið samþykktur á
félagsfundi. Listann skipa:
1. Guðmundur Ingi Sigurbjörns-
son, 2. Aðalsteinn Aðalsteinsson, 3.
Hannes Halldórsson, 4. Jóna Ingólfs-
dóttir, 5. Guðrun Jónsdóttir, 6. Ing-
ólfur Ásgrímsson, 7. Sigríður Lárus-
dóttir, 8. Esther Þorvaldsdóttir, 9.
Björn Júlíusson, 10. Anna Halldórs-
dóttir, 11. Reynir Árnason, 12. Stefán
Arngrímsson, 13. Guðbjartur Ös-
surarson og 14. Birnir Bjarnason.
Selfoss:
Breytingar
á Inghóli
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Ég átti nýlega tal við Erlend Half-
danarson, framkvæmdastjóra veit-
ingastaðarins Inghóls á Selfossi og
þriggja annarra þjónustufyrirtækja,
sem öll eru undir sama þaki að Aust-
urvegi 46. Þegar ég hitti hann var
verið að leggja síðustu hönd á að
teppaleggja salinn á Inghóli og koma
með stóla sem skipt hafði verið um
áklæði á. Eini lærði húsgangabólstr-
arinn hér á Selfossi, Guðbjörg Sigur-
bjömsdóttir, sá um alla vinnu og það
var falleg vinna. Gólfteppin og
áklæði frá Álafossi og breytingin
kostaði um hálfa aðra milljón króna.
Sextíu manns eru á launaskrá hjá
Erlendi í fyrirtækjunum fjórum,
þrjátíu þeirra í fullu starfi. Það eru
fimm ár frá því veitingastaðurinn
Inghóll var vígður og salurinn þar
er alltaf svo hlýlegur og heimilisleg-
ur. Guðjón rekstrarstjóri sagði mér
að mikið væri að gera, fundir daglega
og spila sveitarstjórnarkosningar í
vor þar inn í.
íslensk áhöfn á
Bakkafossi í land
íslenska áhöfnin, sem undanfarin
tvö ár hefur siglt á Bakkafossi, skipi
Eimskipafélagsins, verður nú að
hætta á skipinu. Skipið á að manna
með Þjóðverjum og Filippseyingum
ásamt fimm íslendingum, sem eru
fyrsti og annar stýrimaður, vélstjóri
og tveir hásetar.
Eimskipafélagið hefur haft Bakka-
foss á leigu án áhafnar frá þýskun
aðilum undanfarin tvö ár. Skipið var
á sínum tíma smíðað með styrk frá
þýskum stjórnvöldum og nú hefur
verið tekin upp sú regla að á þeim
skipum verði áhafnirnar að vera í
það minnsta að hluta þýskar.
Leigutíminn á Bakkafossi hefur
verið framlengdur um sex mánuði.
Um leið er Eimskipafélagið að athuga
meðkaupánýjuskipi. -GK
Sannkallað
PÁSKATILBOÐ
fyrir alla íslenska ostavini
15-20%
afsláttur!
DALABRIE
INNBAKAÐUR
DALABRIE
DALAYRJA
CAMEMBERT
DJÚPSTEIKTUR
CAMEMBERT
PORTSALUT
GRAÐAOSTUR
Birgðu þig upp fyrir páskana
í næstu búð