Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Síða 34
42
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
Afmæli
Baldvin Þ. Kristjánsson
Baldvin Þorkell Kristjánsson,
fyrrv. erindreki LÍÚ og SÍ S, og fé-
lagsmálafulltrúi Samvinnutrygg-
inga, Álfhólsvegi 123, Kópavogi, er
áttræöur í dag. Baldvin er fæddur á
Stað í Aðalvík en ólst upp í Hnífs-
dal. Föður sinn missti hann níu ára
að aldri og var því eftir það hjá Ás-
geiri Guðbjartssyni útgerðarmanni,
og konu hans, Guðbjörgu Pálsdótt-
ur. Baldvin var í námi í Núpsskóla
1927-1929 og brautskráðist úr Sam-
vinnuskólanum í Rvík 1931. Hann
var í námi í Lýðháskólanum í Jak-
obsbergi í Svíþjóð 1937-1938, var í
námskeiðum í samvinnufræðum í
sænska samvinnuskólanum að Vor
gárd 1948 og fór í námsferð til Folk-
sam, sænsku samvinnutrygging-
anna, 1960. Baldvin varsjómaður
og verkamaður í Hnífsdal og á
ísafirði 1924-1931 og skrifstofumaö-
ur hjá Samvinnufélagi ísfirðinga
1931-1934. Hann var erindreki LÍÚ
1945-1946 og erindreki SÍS1946-
1953. Baldvin var framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss SÍS á Kirkjus-
andi í Rvík 1954-1960, útbreiðslu-
stjóri Samvinnutrygginga hf. 1961-
1964 og varð félagsmálafulltrúi Sam-
vinnutrygginga 1965. Hann var rit-
ari verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafirði 1931-1935 og formaður Fé-
lags ungra jafnaðarmanna 1932-
1933. Baldur var varabæjarfulltrúi á
ísafirði 1935 og varaformaður Kaup-
félags Siglfirðinga 1940-1944. Hann
var varaformaður Vestfirðingafé-
lagsins á Siglufirði 1940-1944 og for-
maður Siglufjarðardeildar Norræna
félagsins 1941-1944. Baldur varfor-
maður fulltrúaráðs Alþýðuflokks-
ins á Siglufirði 1943-1944 og fram-
kvæmdastjóri Bamahjálpar SÞ á
íslandi 1948. Hann var formaður
Starfsmannafélags SÍS1953-1954 og
Starfsmannafélags Rvíkur 1956-
1962. Baldvin var endurskoðandi
Vélaábyrgðarfélagsins Gróttu í Rvík
1956-1962 og stofnandi og forstöðu-
maður Klúbbanna öruggur akstur á
vegum Samvinnutrygginga 1965-
1973 og landssamtaka á þeirra veg-
um einnig. Hann var fulltrúi lands-
samtakanna í Umferðarráði 1970-
1975, í undirkjörstjórn Kópavogs-
kaupstaðar 1970-1980 og safnaöar-
fulltrúi Hjallasóknar í Kópavogi frá
stofnun hennar 1987.
Riddarakross fálkaorðunnar 1980.
Heiðursskjal form. framkvæmda-
stjórna H-umferðar og lögreglu-
stjórans í Rvík 1968. Gullmerki Sam-
vinnutrygginga hf. fyrir félagsmála-
störf 1969. Silfurbíll Samvinnu-
trygginga hf. 1971. Veggskjöldur
Andvöku og starfsmannafélags
Samvinnutrygginga hf. fyrir félags-
málstörf 1972. Baldvin hefur þýtt sjö
bækur Dr. Normanns Vincent Pe-
ale: Lifðu lífmu lifandi, 1967; Vörðuð
leið að lífshamingju, 1968; Sjálfs-
stjórn í stormviðrum lífsins, 1970;
Leiðsögn til lífs án ótta, 1973; Undra-
verður árangur jákvæðrar hugs-
unar, 1975; Bjartsýni léttir þér lífið
og Jákvæður lífskraftur, 1984. Hann
var ritstjóri tímaritanna: Síldin,
Siglufirði 1938-1940, Hlynur, blað
starfsmanna SÍS, 1952-1954 „Sam-
vinnutryggingar" 1961-1966, Gjall-
arhomið, málgagn samvinnutrygg-
ingamanna, frá 1961. í ritnefnd 30
ára afmælisheftis Samvinnuskólans
1948 og 50 ára afmælisrits SÍS1952.
Baldvin kvæntist 25. apríl 1931 Gróu
Ásmundsdóttur, f. 15. september
1910. Foreldrar Gróu eru: Ásmund-
ur Magnússon, sjómaður og kennari
á Akranesi, og kona hans, Þóra Þor-
valdsdóttir. Synir Baldvins og Gróu
eru: Kristján, f. 30. nóvember 1935,
yfirlæknir á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, kvæntur Inger
Hallsdóttur kennara, og Gunnlaug-
ur, f. 1. janúar 1941, flugvélstjóri í
Rvík, kvæntur Hildi Jónsdóttur.
Fóstursonur Baldvins og Gróu og
sonarsonur er: Ásmundur, f. 25. jan-
úar 1959, flugvirki, kvæntur Þór-
hildi Kristjánsdóttur.
Foreldrar Baldvins voru: Kristján
Egilsson, sjómaður í Hnífsdal, og
kona hans, Halldóra Finnbjöms-
dóttir. Kristján var sonur Egils á
Flateyri Egilssonar, b. á Klukku-
landi, Jónssonar, b. á Felli í Dýra-
firði, Jónssonar, b. á Skaga, Jóns-
Baldvin Þorkell Kristjánsson.
sonar, b. á Skaga, Guðmundssonar,
b. í Mýrarhúsum, Ásbjarnarsonar.
Móðir Egils á Flateyri var Margrét
Jónsdóttir, b. í Álfadal á Ingjaldss-
andi, Sigmundssonar, b. í Sæbóls-
húsum, Ólafssonar. Halldóra var
dóttir Finnbjöms, formanns í Görð-
um í Aðalvík, Elíassonar, skipa-
smiðs í Hnífsdal, Eldjárnssonar,
skipasmiðs á Hrafnsfjarðareyri, Sig-
urðssonar, b. á Homi, Þorsteinsson-
ar. Þau hjón eru stödd erlendis um
þessar mundir.
Til hamingju með
afmælið 9. apríl
mælisdaginn á heimili sínu að Hót- elVarmahlíð. Þórður Magnússon,
85 ára
Valgerður Ingibergsdóttir, Teygingalæk, Hörgslandshreppi. Heiðarhrauni 5, Grindavík. Guðlaug Vigfúsdóttir, Árbakka 1, Seyðisfiröi.
60ára 40ára
Theodór Ingólfsson, Réttarholtsvegi 1, Reykjavík. Ingólfur J. Sigurðsson, Hraunbrún 28, Hafnarfirði. Hjörtur Sigurjón Sigurðsson, Heiðargarði 19, Keflavik. Ólöf Jónsdóttir, Trönuhólum 8, Reykjavík. Guðmundur Ártnan nsson, Stórateigi 6, Mosfellsbæ. Sveinn Hannesson, Lindarseli 8, Reykjavík. Margrét Guðlaugsdóttir, Túngötu 25, Tálknafirði.
50 ára
Jónina Jóhannsdóttir, Tjarnarbraut 15, Egilsstööum. Ásbjörg Jóhannsdóttir hótel- stjóri, Hótel Varmahlíö, Seyluhreppi. Hún tekur á móti gestum á af-
Þorvaldur Karl Helgason
Þorvaldur Karl Helgason, sókn-
arprestur í Njarðvík, Hlíðarvegi 15,
Njarðvík, er fertugur í dag. Þor-
valdur Karl er fæddur í Rvík og
lauk guðfræðiprófi frá HÍ1975.
Hann var vígður farprestur Þjóð-
kirkjunnar 29. júní 1975 og þjónaði
í Vallanesprestakalli í fjarveru
sóknarprests (Egilsstaðir og ná-
grenni). Þorvaldur var æskulýðs-
fulltrúi Þjóðkirkjunnar 1976-1979
og var kosinn sóknarprestur í
Njarðvík 1979. Hann var í fram-
haldsnámi í kennimannlegri guð-
fræði (einkum hjóna- og fjölskyldu-
ráðgjöf) sumarið 1983,1984-1985
(ársleyfi) og lauk meistaragráðu
(M.Th.) í Luther Northwestern
Theological Seminary í St. Paul í
Minnesota haustið 1989. Þorvaldur
hefur sótt fjölda ráðstefna og funda
á vegum Þjóðkirkjunnar og var
m.a. annar aðalfulltrúi á Heims-
þingi lútherskra kirkna í Tanzaníu
1977. Hann átti sæti í nokkrum
AUKABLAÐ
Ferðalög til útlanda
Miðvíkudagínn 25. apríl nk. mun aukablað um
ferðalög tíl útlanda fylgja DV.
Efní blaðsíns verður helgað sumarleyfisferðum
til útlanda í sumar og ýmsum hollráðum varð-
andí ferðalög tíl útlanda.
Þeír augíýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaðí vínsamlega hafi samband víð
auglýsíngadeild DV híð fýrsta í síma 27022.
Vínsamlegast athugið að skílafrestur auglýsínga
er fýrír föstudagínn 20. apríl.
Aaglýsíngar, Þverholtí 11, sími 27022.
nefndum, eins og kirkjufræðslu-
nefnd 1979-1989 og var formaður
hennar fyrstu árin. Þorvaldur hef-
ur staðið fyrir hjónanámskeiðum í
Skálholti, Reykjavík og víðar
ásamt tveimur öðrum prestum.
Hann var fulltrúi þjóðkirkjunnar í
norrænu samstarfi um fermingar-
fræðslu í nokkur ár. Þorvaldur
kvæntist 3. janúar 1971 Þóru Krist-
insdóttur, f. 14. júní 1950, kennara
og nema í bókasafnsfræði í HÍ. For-
eldrar Þóru eru Kristinn Helgason,
fyrrv. innkaupastjóri hjá Ríkisskip,
og kona hans, Ingibjörg Þorkels-
dóttir yfirkennari. Börn Þorvaldar
og Þóru eru: Ingibjörg, f. 13. sept-
ember 1973, stúlka, f. 5. júní 1975,
dáin sama dag, Helga, f. 15. ágúst
1976, Rannveig, f. 16. mars 1980 og
Kristinn, f. 25. október 1981.
Systkini Þorvaldar eru: Þorkell,
f. 2. nóvember 1942, prófessor í HÍ,
kvæntur Helgu Ingólfsdóttur sem-
balleikara, Þorsteinn, f. 16. apríl
1946, menntaskólakennari og þýð-
andi hjá sjónvarpinu, kvæntur
Guðlaugu Magnúsdóttur, félagsr-
áðgjafa hjá Rvíkurborg, Þorlákur
Helgi, f. 24. september 1948,
menntaskólakennari í Rvík, sam-
býhskona hans er Kristjana María
Sigmundsdóttir, Þorgeir Sigur-
björn, f. 13. október 1953, jarðfræð-
ingur hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaöarins, kvæntur Lauf-
eyju Tryggvadóttur faraldsfræð-
ingi og Þóra Elín, f. 22. febrúar 1962,
arkitekt í Danmörku, gift Einari
Braga Indriðasyni tæknifræðingi.
Foreldrar Þorvaldar eru Helgi
Þorláksson, f. 31. október 1915,
fyrrv. skólastjóri í Rvík, og kona
hans, Gunnþóra Kristmundsdóttir,
f. 10. j'úní 1922, skólaritari. Helgi er
sonur Þorláks, b. og kennara í
Múlakoti á Síðu, Vigfússonar, b. á
Búlandi á Síðu, Runólfssonar,
dbrm. og hreppstjóra í Holti á Síöu,
Jónssonar, b. á Búlandi, Bjöms-
sonar, b. á Búlandi, Jónssonar, b.
á Búlandi, Björnssonar. Móðir Vig-
fúsar var Sigurlaug Vigfúsdóttir,
b. og hreppstjóra í Flögu í Skaftárt-
ungu, Bótólfssonar, b. á Borgar-
felli, Jónssonar, b. í Hlíð, Björns-
sonar, bróður Björns á Búlandi.
Móðir Runólfs var Oddný Runólfs-
dóttir, b. í Hvammi í Skaftártungu,
-Þorvaldur Karl Helgason.
Gunnsteinsson. Móðir Jóns á Búl-
andi var Guðlaug Jónsdóttir, systir
Bótólfs. Móðir Þorláks var Sigríður
Vigfúsdóttir, systir Sigurlaugar.
Móðir Sigríðar var Sigríður Olafs-
dóttir, b. í Holti í Veri, Gíslasonar.
Móðir Ólafs var Sigríöur Lýðsdótt-
ir, sýslumanns í Vík í Mýrdal, Guö-
mundssonar.
Móðir Helga var Helga Bjarna-
dóttir, b. og hreppstjóra í Hörgsdal
á Síðu, Bjamasonar, b. og hrepp-
stjóra á Keldunúpi á Síðu, Bjarna-
sonar, b. á Keldunúpi, Ólafssonar.
Móðir Bjama í Hörgsdal var Rann-
veig Ólafsdóttir, b. í Seglbúðum í
Landbroti, Þórarinssonar. Móðir
Bjarna, hreppstjóra á Keldunúpi,
var Vilborg, systir Þorsteins, afa
Jóhannesar Kjarvals. Vilborg var
dóttir Sverris, b. í Seglbúðum, Ei-
ríkssonar, b. og hreppstjóra í
Hörgsdal, Bjarnasonar. Móðir Vil-
borgar var Ólöf Jónsdóttir, h. á
Núpstað, Bjamasonar, bróður Ei-
ríks. Móðir Helgu var Helga Páls-
dóttir, prófasts í Hörgsdal, Pálsson-
ar og konu hans Guðríðar, b. og
hreppstjóra á Kirkjubæjarklaustri,
Magnússonar, langafa Jóhannesar
Kjarvals. Gunnþóra er dóttir Krist-
mundar, verkamanns á Vattarnesi
í Reyðarfirði, Jóhannssonar og
konu hans, Elínar Aðalbjargar
Þorsteinsdóttur.
Kirkjukórar Innri og Ytri Njarð-
víkursóknar halda afmælisbarn-
inu kaffisamsæti í Safnaöarheimili
Innri Njarðvíkur frá kl. 20 á af-
mælisdaginn.
Missið ekki af nyjasta
Úrval • kaupið það
NÚNA STRAX á næsta blaðsölustað