Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
DV
43
LífsstíU
Örbylgjuofnar:
Drepa ekki
bakteríur
- salt í tilbunum réttum hindrar næga hitun
Örbylgjuofnar drepa ekki bakter-
íur í tilbúnura réttum sem hitaðir eru
fyrir neyslu, samkvæmt tilraunum
sem farið hafa fram við háskólann í
London. Svo virðist sem saltinnihald
í tilbúnum réttum komi í veg fyrir
að maturinn hitni nógu vel inn aö
miðju.
Tilraunirnar fóru þannig fram að
hættulegum bakteríum, sem valda
matareitrunum, salmonella og hster-
ia, var bætt í tilbúna rétti og þeir
síðan hitaðir í örbylgjuofnum sam-
kvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Listeriubakteríur lifðu hitunina af í
29 tilfellum af 30 og salmonella þoldi
hitann í 24 skipti af 30.
„Þetta eru skelfilegar niðurstöð-
ur,“ er haft eftir Stephen Dealler,
einum af forsvarsmanni tilraun-
anna. „Við hljótum að hvetja alla þá
sem framleiða tilbúna rétti fyrir ör-
bylgjuofna að setja minna salt en
þeir gera nú í matinn og helst að
sleppa því alveg.“
Saltið hafði þau áhrif að maturinn
varð sjóðandi heitur að utan en hálf-
kaldur að innan. Tilraunir í öðrum
löndum hafa sýnt að þó örbylgjur
drepi bakteríur auðveldlega þá þurfa
þær að ná upp hita í matnum. Þann-
ig getur við ónóga hitun hluti matar-
ins hitnað í 70-80° en það hitastig
virkar hvetjandi á bakteríugróður.
Því getur tilbúinn réttur innihaldiö
fleiri bakteríur eftir hitun í örbylgju-
ofni en áður.
Hollustuvernd ríkisins hef'ur ekki
kannað þessi mál sérstaklega en var
Rannsóknir sýna aö saltmagn i tilbúnum réttum fyrir örbylgjuofna kemur í
veg fyrir aö hitun samkvæmt leiðbeiningum nái að drepa bakteriur.
kunnugt um rannsókn sem fram fór
í Englandi á síðasta ári. „Við höfum
ekki kannað málið sérstaklega en í
ljósi nýrra upplýsinga um saltinni-
hald og áhrif þess er ástæða til að
fylgjast vel með þessu," sagði Halldór
Runólfsson, deildarstjóri hjá Holl-
ustuverndísamtahviðDV. -Pá
Nýstárleg þjónusta á Akureyri:
Heitt og nýbakað
brauð í rúmið
Frönsk-svissnesk páskaegg eru talsvert ódýrari en íslensk. DV-mynd GVA
Frönsk páskaegg komin
Undanfarin ár hafa innflutt frönsk
páskaegg keppt við íslensk á hinum
hefðbundna páskaeggiamarkaði.
Frönsku eggin komu í nokkrar versl-
anir á höfuðborgarsvæðinu á fostu-
dag og eru nú löguð úr svissnesku
súkkulaði samkvæmt íslenskri upp-
skrift, steypt í Frakklandi með ítölsk-
um leikföngum innan í. Þau eru seld
undir nafninu Gullegg.
Enn sem komið er fást innfluttu
eggin m.a. í Kjötstöðinni í Glæsibæ,
hjá Ásgeiri í Breiðholti, í Austur-
stræti 17, Mínus-mörkuðunum og
Plús-mörkuðunum.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
aflaði sér í Kjötstöðinni í Glæsibæ,
eru innfluttu eggin nokkuð ódýrari
en innlend en samanburður erfiöur
vegna mismunandi stærða.
Þannig kostar egg nr. 5 frá Nóa, 370
grömm að þyngd, 1.123 krónur í Kjöt-
stöðinni en sambærilegt innflutt egg,
470 grömm, kostar 1.077. Þarna er
um 45% verðmun að ræða miðað við
kílóverð. Á næstu stærð fyrir ofan
er verðmunurinn 28%, frönsku eggj-
unum í hag.
Hörö barátta er milli verslana hvað
varðar verð á íslenskum páskaeggj-
um eins og meðfylgjandi súlurit gef-
ur til kynna. Þar eru annars vegar
Hagkaup, Mikligarður, Fjarðarkaup,
Nóatúnsbúðirnar og Grundarkjörs-
búðirnar, sem virðast vera á svipuðu
róli í verðlagningu, og hins vegar
Bónusverslanir sem hafa skotið hin-
um ref fyrir rass í verðlagningu.
Það er páskaegg nr. 4 frá Mónu sem
miðað er við. Könnun á verði ann-
arra stæröa frá íslenskum framleið-
endum dró upp sams konar mynd.
-Pá
Akureyringar eiga nú kost á nýst-
árlegri þjónustu þar sem eru heim-
send nýbökuð brauð frá Einars-
bakaríi. Hringt er daginn áður milli
kl. 17 og 19 og pantað og þá kemur
sendingin heim milli kl. 7 og 7.30
morguninn eftir. Dyrabjöllunni er
hringt einu sinni og poki með brauð-
um hangir á snerlinum þegar við-
skiptavinurinn kemur til dyra á nátt-
sloppnum.
„Þetta byrjaöi fyrir um tveim vik-
um og hefur verið mjög vinsælt og
eftirspurn eftir þessari þjónustu fer
vaxandi," sagði Einar Viðarsson,
bakarameistari í Einarsbakaríi, í
samtali viö DV. „Fólk getur í gegnum
þessa þjónustu fengið hvað eina sem
þaö vill úr bakaríinu, þar með talda
osta og mjólkurvörur. Vinsælast er
að fá nýbökuð og volg heilhveitihorn
eöa rúnnstykki en sumir kjósa frekar
að byrja daginn með vínarbrauði,"
sagði Einar.
Það voru tveir ungir menn á Akur-
eyri, þeir Sigurður Kiernan og Torfi
Halldórsson, sem áttu hugmyndina
í DV á föstudag var rangt farið
með verð á appelsínum. Hið rétta er
að appelsínur í Hagkaupi kosta 79
krónur kílóið sem er trúlega eitt
lægsta verð sem sést hefur á appels-
að þessari þjónustu og komu henni
á laggirnar í samvinnu viö Einars-
bakarí og sjá um framkvæmdina.
Þeir taka við pöntunum og annast
útkeyrslu á morgnana. Einarsbakar^r:,
selur þeim brauðin á heildsöluverði
og því er heimsendingarþjónustan
ókeypis því að kaupendur greiða
Neytendur
sama verð og í bakaríinu. Innheimt
er fyrir úttektir tvisvar í mánuði.
„Við vildum fyrst og fremst gera
fólki lífið léttara, enda hefur þessu
verið tekið vel og eftirspurn fer vax-
andi," sagði Sigurður Kiernan í sam-
tali við DV. „Aldrað fólk, sem á er-
fitt með að komast út, er sérstaklega
ánægt með þetta.“ «.
Síminn hjá Morgunbrauði, en það
heitir fyrirtæki félaganna, er 25006 á
Akureyri. -Pá
ínum í langan tima. Þetta tilboð hófst
í síðustu viku og stendur enn og var
sett upp í tilefni þess að ný Hag-
kaupsverslun var opnuð í Hólagarði
íBreiðholti. -Pá
Verð á (í)
áskaeggjum
í 6 verslunum
585 575 572 578 572
440
Bónus Nóatún Grundarkjör
Hagkaup Mikligaröur Fjaröarkaup
Breiðabliksmenn-
Kópavogsbúar!
Opinn kynningarfundur
um nýja íþróitahúsið
í félagsheimili Kópavogs,
1. hœð, mánudaginn 9. apríl kl. 20:30
Breiðablik
Appelsínur á 79
krónur í Hagkaupi