Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 40
 F R 62 É T T A S 1 2 • l KO T 1 Ð • 25 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sírr.i 27022 Ólína Þorvarðardóttir: Mjög ánægð „Eg er mjög ánægö meö niðurstöð- urnar eftir spennandi og skemmti- l lega baráttu. Mér finnst þessi listi mjög sterkur og vera góður þver- skurður af samtökunum og við sigl- um því kát og hress í kosningabarátt- una," sagði Ólína Þorvarðardóttir sem fékk fles.t atkvæði i efsta sæti lista Nýs vettvangs í prófkjörinu um helgina. „Eg stefndi alltaf á fyrsta sætið og það gerðu Kristín og Bjarni líka. Það er greinilegt að við höfðum talsvert fyrir okkur í því og þetta var hörð, skemmtileg og drengileg barátta. Næstu vikur leggjast afar vel í mig því hér er allt að vinna og engu að tapa og ég hlakka til þess sem fram- undan er,“ sagði Ólína að lokum. -Pá Kristín Á. Ólafsdóttir: Heppileg niðurstaða „Mér þykir þetta mjög heppilegur listi sem hefur mjög góða breidd. Ég tel mjög gott að það skuli vera svo mjótt á munum milli okkar Ólínu. Við getum styrkt hvor aðra,“ sagöi Kristín Á. Ólafsdóttir í samtali við t ^JIV þegar úrslit voru ljós. „Ég er sérstaklega ánægð með að fá Guörúnu Jónsdóttur í eitt af efstu sætum og hlakka mikið til að vinna með þeirri hæfu baráttukonu. Einnig þykir mér vænt um að sjá Hrafn vin minn í baráttusætinu,“ sagði Kristín sem skipar annað sæti lista Nýs vett- vangs. „ Ég er ánægð með að hafa fengiö þetta mikla traust fyrir starf mitt síð- ustu fjögur ár. Ég hlakka til aö tak- ast á við núverandi meirihluta sem ég vona að eftir 26. maí verði fyrrver- andi meirihluti," sagði Kristín. -Pá Ásgeir Hannes: Hlýt að vera ánægður LOKI Þá er Ijóst hver mun gefa ólínuna! Urslit í prófkjöri Nýs vettvangs í nótt: Ólína í efsta sæti og Kristín í öðru - Bjarni P., Guðrún Jónsdóttir, Hraín Jökulsson og Asgeir Hannes í næstu sætum Ólína Þorvarðardóttir fékk flest atkvæði í fyrsta sæti framboðslista Nýs vettvangs til borgarstjórnar í prófkjöri sem fram fór um helgina. Ólína hlaut 501 atkvæði í fyrsta sætí en alls 1.526 atkvæði í próf- kjörinu. Kosníng í átta efstu sætin er bindandi. Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins, fékk 881 atkvæði í 1.-2. sætí ogflest atkvæði alls 1.552. Hún fékk 471 atkvæði í fyrsta sætiö og skipar því 2. sæti listans. Bjarni P. Magnússon, borg- arfulltrúi Alþýðuflokksins, hlaut 784 atkvæöi í 1.- 3. sæti, 404 í það fyrsta og 1137 atkvæði alls og skip- ar þriðja sætið en fjórða sætið hlaut Guðrún Jónsdóttir arkitekt sem fékk 702 atkvæði í 1.-4. sæti og það „Ég hlýt að vera ánægður með þessi úrslit," sagði Ásgeir Hannes Eiríksson í samtali viö DV þegar úr- slit úr prófkjörinu lágu fyrir. „í þessu prófkjöri voru mörkuð þáttaskil þar sem þetta var í fyrsta skipti sem innilokað fólk fékk að nýta kosningarétt sinn til fullnustu. Ég fór út í þetta prófkjör með því að halda einn kafflfund á Hressingar- skálanum og fyrst að einn slíkur fundur skilar manni jafnmiklu fylgi og 70 ára gamall stjómmálaflokkur fær þá hlýtur eitthvað að vera að,“ •sagði Ásgeir. Hann hlaut kosningu í 6. sæti lista Nýs vettvangs. -Pá flmmta Hrafn Jökulsson rithöf- undur sem fékk 809 atkvæði í 1.-5. sæti. Ásgeir Hannes Eirfksson, þingmaður Borgaraflokksins, skip- ar 6. sætið en hann hlaut 624 at- kvæöi í það. Gísli Helgason tónlist- armaður fékk 710 atkvæði í 1,-7. sæti og Aöalsteinn Hallsson félags- málafulltrúl er í áttunda sætl með 558 atkvæði. Þeir átta sem hlutu bindandi kosningu mynda síðan uppstilling- amefnd fyrir listann ásamt þremur fulltrúum frá þeim samtökum sem aðframboðiNýs vettvangs standa. Alls greiddu 2.130 atkvæði í próf- kjörinu og þar af voru 110 atkvæði ógild. Kjörstöðum var lokað klukk- an 22.00 í gærkvöldi en talningu lauk ekkí fyrr en um klukkan sex í morgun. Áð sögn Þoriáks Helga- sonar kosningastjóra voru það einkum utankjörstaðaatkvæði sem drógu talningu á langinn. -Pá Eldsvoðinn 1 Scandinavian Star: Bakkafoss bjargaði 39 mönnum um borð Bakkafoss, skip Eimskipafélags Is- lands, bjargaði þrjátíu og níu manns af norsku farþegaferjunni Scandina- vian Star eftir eldsvoðann á Skager- ak aðfaranótt laugardagsins. Skip- veijar á Bakkafossi sáu þegar eldur- inn kom upp í feijunni um þijúleytið um nóttina. Björguðu þeir síðan bæði farþegum og mönnum úr áhöfn Scandinavian Star. Fólkinu var bjargað úr tveimur björgunarbátum. Nokkrir af þeim sem bjargað var voru í losti en enginn mun hafa ver- ið alvarlega slasaður. Bakkafoss var á leið frá Gautaborg til Fredrikstad í Noregi. Björgunarstarfið tók um tvær klukkustundir, að sögn Rík- harðs Sverrissonar, fyrsta stýri- manns á Bakkafossi. Að björgun lok- inni hélt skipið síðan til Fredrikstad og tók ferðin þangað um tvær klukkustundir. Þar fór fólkið í land og var fólkið flutt á sjúkrahús. Bakkafoss losaði og lestaði vörur í Fredrikstad og hélt síðan áleiðis til Þórshafnar í Færeyjum síðdegis á laugardag. Fimm íslendingar eru í áhöfn Bakkafoss, 1. og 2. stýrimaður, 1. vélstjóri og tveir hásetar. Fimm Þjóð- verjar eru í áhöfninni, þar á meðal skipstjórinn. Þrír Filippseyingar eru einnig í áhöfninni. -ÓTT Arnarflug: Þota kom í nótt Sigurður Pétursson, eiginmaður Ólínu Þorvarðardóttur, óskar konu sinni til hamingju með sigurinn og fyrsta sæti í prófkjöri Nýs vettvangs í nótt. DV-mynd Hanna „Við brosum hér út að eyrum,“ sagði Katrin Olga Jóhannsdóttir, markaðstjóri Arnarflugs, þegar DV ræddi við hana í morgun. Arnarflug fékk loks í nótt langþráða þotu eftir að hafa beðið á aðra viku. Seinast bilaði þessi nýja áður en hún átti að koma til landsins í gær. Nýja þotan kom til Keflavíkur um klukkan fimm í nótt og fór laust eftir klukka sjö til Amsterdam með far- þega. Hún er af gerðinni Boeing 737 og er í leigu frá flugfélagi í Miami í Bandaríkjunum til mánaðamótanna. Þá verður ný vél tekin á leigu. -GK Veðriö á morgun: Rigning og slydda A morgun gengur í norðanátt með heldur kólnandi veðri í bili. É1 verða norðanlands og snjó- koma eða slydda á Austurlandi framan af degi en rigning á Suð- austurlandi. Léttir heldur til um sunnanvert landið þegar líður á daginn. Hitinn verður um frost- mark. SKUTLUBÍIAR 25050 SENDIBILASrOÐIN Hf opið um kvöld oa helqar BILALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.