Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Hafskipsmálið var örlagavaldur í lífi flölda manns:
Sumir misstu æruna en
metorð annarra jukust
- DV rekur áhrifin á líf 52 manna sem tengdust Hafskipsmálinu
Greinarskrif Halldórs Halldórssonar, ritstjóra Helgarpóstins, marka upphaf Hafskipsmálsins. Þetta mál mark-
aði djúp spor í líf fjölda manna. Miðað við niðurstöður sakadóms virðist þetta mál hins vegar ekki hafa
verið þess eðlis sem ætla mátti af almennri umræðu um þaö síðastiiðin fimm ár.
DV-mynd KAE
Hafskipsmálið hefur haft víötæk
áhrif á líf fjölda manna. Margir
misstu vinnuna, aðrir féllu af þingi
en sumum hefur vegnað vel. Hér
verða rakin örlög fimmtíu og
tveggja manna sem komu við sögu
málsins. Það haföi mikil áhrif á líf
þeirra allra; þó að þau áhrif séu
bæði mismikil og misgóð.
Hafskipsmennirnir
Frá því að Hafskip var tekið til
gjaldþrotaskipta í árslok 1985 hefur
Ragnar Kjartansson, fyrrum
stjómarformaður og forstjóri Haf-
skips, verið sakborningur að aðal-
atvinnu, eins hann orðar það. Hann
hefur ekki stundað neina launa-
vinnu.
Björgólfur Guðmundsson, fyrr-
um forstjóri fyrirtækisins, tók þátt
í uppbyggingu Von Veritas, með-
ferðarstöðvar fyrir áfengissjúkl-
inga í Danmörku, stuttu eftir gjald-
þrot og vann síðar fyrir breskt
skipafélag. Undanfarið ár hefur
hann ekki verið í launavinnu held-
ur einbeitt sér að málsvöm sinni.
Páll Bragi Kristjónsson, fyrmm
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Hafskips, haföi látið af störfum áð-
ur en fyrirtækið fór í gjaldþrot og
ráöið sig sem framkvæmdastjóra
Skrifstofuvéla hf. Þegar það fyrir-
tæki var sameinað Gísla J. Johnsen
lét Páll Bragi af störfum. Hann er
nú fjármálastjóri hjá auglýsinga-
stofunni Hvita húsið.
Sigurþór Charles Guðmundsson,
fyrrnrn aðalbókari, fór í endur-
skoðunamám eftir gjaldþrot fyrir-
tækisins og starfar nú hjá Endur-
skoðun hf.
Þórður H. Hilmarsson, fyrrver-
andi deildarstjóri hagdeildar Haf-
skips, starfaði fyrst eftir gjaldþrot
sem sjálfstæður ráðgjafi en varð
síðan framkvæmdastjóri Steinull-
arverksmiöjunnar. Fyrir rúmu ári
tók hann síðan viö starfi forstjóra
Glóbus.
Árni Ámason, fyrrum deildar-
stjóri fjárreiðudeildar fyrirtækis-
ins, starfaöi hjá Sölustofnun lag-
metis fyrst eftir gjaldþrot Hafskips,
síðan hjá Álafossi en er nú sjálf-
stæður ráðgjafi.
Helgi Magnússon, fyrrverandi
endurskoðandi Hafskips, seldi end-
urskoðunarstofu sína eftir að hann
kom úr gæsluvaröhaldi og skilaði
inn réttindum sínum sem löggiltur
endurskoðandi. Hann skrifaði bók
um Hafskipsmálið sem kom út um
jólin 1986. Síðar varð hann forstjóri
Utsýnar en hefur veriö ritstjóri
Fijálsrar verslunar undanfarin ár.
Útvegsbankamennirnir
Halldór Guðbjamason, fyrrver-
andi bankastjóri Útvegsbankans,
réðst fyrst til sérverkefna hjá Guð-
jóni B. Ólafssyni, forstjóra Sam-
bandsins. Síðan varð hann for-
stöðumaöur SAM-korta, greiöslu-
kortafyrirtækis samvinnuhreyf-
ingarinnar. Hann hefur nú snúið
sér að framhaldsnámi í viðskipta-
fræði í Boston í Bandaríkjunum.
Láms Jónsson, fyirum banka-
stjóri, gerðist fljótlega fram-
kvæmdastjóri Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda og gegnir
þvi starfi enn.
Ólafur Helgason, fyrram banka-
stjóri, hefur fengist lítiis háttar við
kennslu.
Axel Kristjánsson, fyrrum aö-
stoðarbankastjóri, stofnaði eigin
lögfræðistofu eftir gjaldþrotið og
er lögfræðilegur ráðgjafi Fast-
eignasölunnar Garðs.
Valdimar Indriðason, fyrram
bankaráðsformaður Útvegsbank-
ans, féll af þingi í kosningunum
1987. Hann er nú forstjóri Síldar-
og fiskimjölsverksmiðju Akraness.
Garðar Sigurðsson, fyrrum
bankaráðsmaður, hafði verið efsti
maður á lista Alþýðubandalagsins
á Suðurlandi en var ekki á þeim
Usta í þingkosningunum 1987.
Hann varö veiðieftirlitsmaður
sjávarútvegsráðuneytisins en er
nú aðstoðarmaður bankastjóra hjá
Landsbanka íslands.
Jóhann Einvarðsson, fyrrum
bankaráðsmaður, var endurkjör-
inn á þing 1987 og er þar enn; með-
al annars er hann formaður utan-
ríkismálanefndar. Jóhann var
sviptur þinghelgi til að hægt væri
aö birta honum ákæra í Hafskips-
málinu.
Ambjöm Kristinsson, fyrrver-
andi bankaráðsmaður, er enn for-
stjóri Setbergs og Kristmann
Karlsson, einnig fyrram banka-
ráðsmaður, er enn heildsali í Vest-
mannaeyjum.
í ákæra Hallvarðs Einvarðssonar
ríkissaksóknara vora þrír fyrram
bankastjórar Útvegsbankans einn-
ig ákærðir, þeir Jónas Rafnar,
Bjami Guðbjömsson og Armann
Jakobsson. Þeir vora allir þá þegar
sestir í helgan stein.
Fyrri rannsóknarhópur
Þegar Hafskip kom til gjaldþrota-
skipta í árslok 1985 tóku þeir Ragn-
ar Hall og Markús Sigurbjömsson
borgarfógetar við málinu. Markús
var aðalhöfundur svokallaörar
grunsemdarskýrslu sem leiddi til
rannsóknar ríkissaksóknara og
rannsóknarlögreglu. Ragnar er
enn borgarfógeti í skiptarétti en
Markús er nú prófessor við laga-
deild Háskóla íslands.
Síðar voru þeir Gestur Jónsson,
Viðar Már Matthíasson og Jóhann
H. Níelsson ráönir sem skiptastjór-
ar. Þeir era allir starfandi lögmenn
og Gestur hefur verið bústjóri í
mörgum stóram gjaldþrotamálum
síðan, enda stundum kallaður
„skiptastjóri íslands". Þessir þrír
fengu um 34 milljónir á núvirði í
sinn hlut vegna skiptanna.
Skýrsla Markúsar var meðal
annars byggð á skýrslu Valdimars
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
Sigurjón M. Egilsson
Guðnasonar endurskoðanda sem
fór yfir reikninga Hafskips við
skiptin. Hann var og er endurskoð-
andi hjá N. Manscher - Endurskoð-
unarmiöstöðin hf.
Þórður Bjömsson, þáverandi rík-
issaksóknari, fékk málið í hendur
og sendi það daginn eftir til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins þar sem
Hallvarður Einvarðsson var rann-
sóknarlögreglustjóri. Hallvarður
tók síðar við starfi Þórðar um sum-
arið 1986 og gekk þá beint að Haf-
skipsmálinu sem ríkissaksóknari.
Þórir Oddsson var og er vararann-
sóknarstjóri og stjómaði rann-
sókninni ásamt Hallvaröi. Þeir
rannsóknarlögreglumenn, sem
unnu að rannsókninni, vora Guð-
mundur Guðjónsson, Hörður Jó-
hannesson, Högni Einarsson og
Gunnlaugur Sigurðsson. Enginn
þeirra hafði lögfræði- eða við-
skiptamenntun. Þeir era allir enn
hjá Rannsóknarlögreglunni, utan
hvað Guðmundur Guðjónsson er
nú yfirlögregluþjónn rannsóknar-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Seinni rannsóknarhópur
Eftir að Hallvarður Einvarðsson
var dæmdur vanhæfur sem sak-
sóknari í málinu var Jónatan Þór-
mundsson, lagaprófessor í Háskól-
anum og þá einn virtasti sérfræð-
ingur landsins í refsirétti, kallaður
til sem sérstakur saksóknari í mál-
inu. Eftir dóm sakadóms á fimmtu-
dag sagði Jónatan af sér áður en
ljóst var hvort máhnu yrði áfrýjað
til Hæstaréttar eða ekki. Að málinu
unnu með Jónatani þeir Tryggvi
Gunnarsson, þá héraðsdómslög-
maður, og Páll Amór Pálsson
hæstaréttarlögmaður. Þeir era enn
hjá embætti sérstaks saksóknara
þó Jónatan sé hættur.
Við rannsókn Jónatans lögðu
Atli Hauksson, löggiltur endur-
skoðandi hjá Endurskoðunarskrif-
stofu Svavars Pálssonar, og Stefán
Svavarsson, þá lektor en nú dósent
við viðskiptadeild Háskólans,
blessun sína yfir endurskoðunar-
skýrslu Valdimars Guðnasonar.
Af hálfu rannsóknarlögreglunnar
stjómaði Arnar Guðmundsson
deildarlögfræöingur framhalds-
rannsókninni.
Helgarpósturinn
Upphaf Hafskipsmálsins má
rekja til fréttar Helgarpóstsins,
„Hafskip að sökkva“, í júní 1985.
Þá frétt skrifaöi Halldór Halldórs-
son ritstjóri eins og ótalmargar
aðrar fréttir sem fylgdu í kjölfarið.
Halldór hætti sem ritstjóri Helg-
arpóstsins í árslok 1987. Síðan var
hann ráðinn sem fréttamaður á
Ríkisútvarpið og vinnur þar við
erlendar fréttir. Halldór er vara-
maöur í siðanefnd Blaðamannafé-
lags íslands. Ingólfur Margeirson,
annar ritstjóri Helgarpóstsins á
þessum tíma, sagði upp störfum
eftir að í ljós kom að hann hafði
borgað búslóðarflutninga með Haf-
skipi með folsuðum auglýsinga-
reikningi frá Helgarpóstinum. Ing-
ólfur er nú ritstjóri Alþýðublaðs-
ins.
Goðgá, útgefandi Helgarpóstsins,
fór á hausinn í maí 1988 og er skipt-
um á þrotabúinu ekki lokið. í
tengslum við gjaldþrotið risu upp
deilur milh hluthafa þar sem þung-
ar ásakanir gengu á báða bóga;
jafnvel um refsiveröa hluti.
Tveir af heimildarmönnum Helg-
arpóstins og síðar vitni ákæra-
valdsins vora fyrrum starfsmenn
Hafskips, þeir Gunnar Andersen
og Björgvin Björgvinsson. Gunnar
var framkvæmdastjóri flutnings-
miðlunarfyrirtækisins Cosmos
sem var dótturfyrirtæki Hafskips.
Gunnar stárfaði eftir gjaldþrotið
víða í Ameríku og Noregi en er nú
atvinnulaus. Björgvin vann við
flutningadeild fyrirtækisins í New
York. Hann vinnur nú við húsa-
smíðar í Bandaríkjunum.
Sá fjölmiðill sem fjallaði mest um
máhð, að Helgarpóstinum sleppt-
um, var Þjóðviljinn. Þá var Össur
Skarphéðinsson ritstjóri en hann
sagði því starfi síðan upp og er nú
aðstoðarforstjóri Reykvískrar end-
urtryggingar, fyrirtækis sem áður
var meðal annars í eigu Björgólfs
Guðmundssonar og Ragnars Kjart-
anssonar.
Stjórnmálamennirnir
Strax og Hafskipsmáhð kom upp
í Helgarpóstinum tók það að snúast
um Albert Guðmundsson, þáver-
andi iðnaðarráðherra, en hann
hafði verið stjórnarformaður Haf-
skips og bankaráðsformaöur Út-
vegsbankans. Snemma árs 1987
sagði Albert svo af sér ráðherra-
dómi og hafnaði síðan sæti á hsta
Sjálfstæðisflokksins fyrir kosning-
arnar 1987. Hann stofnaði Borgara-
flokkinn og fékk sjö menn kjörna
á þing en sagði síðan af sér þing-
mennsku þegar hann þáði sendi-
herrastöðu í París í árslok 1988.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, hvarf af
þingi í kjölfar þess að í ljós kom
að hann hafði þegið peningagjöf frá
Hafskipi og Eimskipi með mihi-
göngu Alberts Guðmundssonar.
Guðmundur sagði sig siðan úr Al-
þýöubandalaginu í kjölfar málsins.
Þeir þingmenn, sem tóku hvað
harðasta afstööu í umræðum um
máhð á Alþingi, voru Ólafur Ragn-
ar Grímsson, Jón Baldvin Hanni-
balsson, Guðrún Helgadóttir, Jó-
hanna Sigurðardóttir, Guðmundur
Einarsson og Kristín Kvaran. Jón
Baldvin er nú utanríkisráöherra,
Ólafur Ragnar fjármálaráðherra,
Guðrún forseti sameinaðs þings,
Jóhanna félagsmálaráðherra, Guð-
mundur aðstoðarmaður viðskipta-
ráðherra og Kristín hefur séö um
sjónvarpsþætti.