Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1990, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990.
Úflönd
FJórtán farast
í sprengingu
Aö minnsta kosti fjórtán biöu
bana þegar sprenging varö í verk-
smiöjn skammt fyrir utan Houst-
on í BandaríKjunum. Eldur
kviknaði við sprenginguna og tók
þaö slökkviliðsmenn rúma þrjá
tíma aö ná tökum á honum. í gær
var tveggja manna enn saknað.
Ekki er Ijóst hvaö olli spreng-
ingunni. Fimmtíu manns voru
viö vinnu í verksmiöjunni þegar
slysiö varð. Enginn sem var
nærri sprengingunni liföi af.
Sjónarvottar sögöu að hún hefði
lxkst kjarnorkusprengingu.
Bush setur
úrslitakosti
Bush Bandarikjaforseti sagði
að sljóm sín myndi taka á ný upp
viðræöur við fiilltrúa PLO, Frels-
issamtaka Palestínu, ef samtökin
fordæmdu árás palestínskra
skæmliöa á ísraelsmenn nýlega
og refsuðu þeim sem að baki
henni stóðu. Bandaríkjastjórn
sleít viðræðunum í síðasta mán-
uði þar sem leiðtogi PLO, Yasser
Arafat, fordæmdi ekki árásina.
Samkomulag
um sameiningu
Samkomuiag, þar sem kveðiö
er á um hvernig aö sameiningu
þýsku ríkjanna skuli staðið, verð-
ur reiðubúiö til staðfestingar
þinga beggja ríkja í lok ágúst, að
því- er háttsettir embættismenn
beggja ríkja skýrðu frá x gær. Þá
verðxxr ljóst í lok þessa mánaðar
hvemig fyrirhugaðar sameigin-
legar kosningar, sem áætlað er
að veröi haldnar þann 2. desemb-
er, fari fram.
Fuiltrúar Austur- og Vestur-
Þýskalands fimduöu í Austur-
Berlín í gær um hvernig haga
skuli sameiginlegum kosningum
þýsku rikjaxma, sem og pólitiskri
sameiningu þeirra.
í Suður-Afríku
Hátt í þijátíu manns slösuðust
þegar sprenging varö í bíðstöö
strætisvagna í Jóhannesarborg t
Suður-Afríku í gær. Margt var
um manninn þegar sprengingin
varö á mesta annatímanum í
gærmorgun. Talsmaður lögregl-
unnar sagði að sprengjan hefði
verið faiin i ruslatunnu. Þetta er
sjötta sprengingin í borginni á
einni viku.
Háttsettur embættismaður
Afríska þjóðarráðsins, Andrew
Mlangeni, taidi hvíta öfgamenn
ábyrga fyrir sprengjutilræðinu
og væri tilgangurinn að trufla
viðræður fulltrúa blökkumarma
og minmhlutastjórnar hvítra í
landinu.
Jeltsin leggur
til breytingar
Boris Jeitsin, hinn róttæki for-
seti sovéska lýöveldisins Rúss-
lands, sagði kommúnistum á
þingi þeirra í gær að innleiða rót-
tækar breytingar innan flokksins
ella eiga á hættu aö falla í
gieymskunnar dá.
' Jeltsin hélt því fram að flokkur-
inn gæti, undir öðru nafni, lagt
grunninn að nýju bandalagi lýð-
ræöisafla þar sem lækju þátt lýö-
ræðislegir hópar annarra stjóm-
málaflokka, Að öðrum kosti
tnyndi klofningur eiga sér staö
og fyrr eða síðar myndi flokkur-
inn missa völdin. Þingi sovéska
koimnúnistaflokksins var fram-
haldiö í Moskvu í gær.
Heuter
Kanslari Vestur-Þýskalands, Helmut Kohl, sem hér sést fyrir miðri mynd, telur að nýafstaðinn fundur aðildarrikja
NATO kunni að auðvelda sameiningu þýsku ríkjanna. Símamynd Reuter
NATO-ríkin bjóða Varsjárbandalaginu griðasáttmála:
Tímamóta-
fundur
Vestur-þýski kanslarinn, Helmut
Kohl, sagöi i gær aö nýafstaðinn leiö-
togafundur NATO, Atlantshafs-
bandalagsins, markaði tímamót í
sögu hins vestræna hemaðarbanda-
lags og myndi auðvelda sameiningu
þýsku ríkjanna. Bush Bandaríkjafor-
seti er sama sinnis um mikilvægi
fundarins og sagöi að leiðtogar
NATO hefðu markað nýja braut stöð-
ugleika og samvinnu austurs og vest-
urs.
Á tveggja daga fundi sínum, sem
lauk í London í gær, komu leiðtogar
NATO sér saman um að bjóða aðild-
arríkjum Varsjárbandalagsins griða-
sáttmála. Leiðtogamir buðu Sovét-
ríkjunum og hinum aöildarríkjum
Varsjárbandalagsins að undirrita
sameiginlega friðaryfirlýsingu þar
sem áðilar skuldbinda sig tii að ráð-
ast ekki hvor á annan. Sovésk stjóm-
völd, sem áður hafa lagt til formlegan
friðarsamning milli aðilanna, lýstu
yfir ánægju sinni með samþykkt
fundarins.
Róttækar breytingar
í lokayfirlýsingu fundarins skuld-
bindur hið vestræna hemaðar-
bandalag sig til að innleiða róttækar
breytingar í herafla NATO, sem og
nýtt hlutverk kjamorkuvopna er
endurspegla myndi þær lýðræðis-
legu breytingar sem átt hafa sér stað
í ríkjum Austur-Evrópu og ekki síst
endalok kalda stríðsins. Samþykkt-
um og ályktunum fundarins er
greinilega ætlað aö fullvissa Gor-
batsjov Sovétforseta um að NATO
ógni ekki öryggishagsmunum Sovét-
ríkjanna, jafnvel þó sameinað Þýska-
land eigi aðild að bandalaginu. Sovét-
ríkin hafa ítrekað lýst yfir andstöðu
sinni við hugsanlega aðild Þýska-
lands að NATO að sameiningu þýsku
ríkjanna lokinni.
Fundurinn samþykkti breytingar á
þeirri stefnu bandalagsins sem gerir
ráð fyrir „sveigjanlegum viðbrögð-
um“. Þeim breytingum er ætlað að
endurspegla breytta kjamorku-
stefnu NATO en samkvæmt henni
er kjarnorkuvopnum ekki beitt nema
í síðustu lög. Þá samþykktu leiö-
togamir breytingar á varnarstefnu
bandalagsins um „framvarnir",
breytingu á uppbyggingu herafla
síns og hétu því að íjarlægja öll
kjamorkuhylki í stórskotaliðsvopn
heria sinna frá Evrópu geri Sovét-
menn hið sama.
Buðu Gorbatsjov til Brussel
Auk þessa má nefna að aðildarrík-
in samþykktu að þrýsta á um Vínar-
viðræðumar svokölluðu um fækkun
heíðbundins herafla í Evrópu en
vonast er til að samningur um slíka
fækkun liggi fyrir áður en árið er á
enda. í lokayfirlýsingu fundarins
segir og að í Vínarsainningnum skuli
kveðið á um hámarksfjölda herafla
sameinaös Þýskalands.
Þá lögðu leiðtogamir til að hlut-
verk RÓSE, Ráðstefnu um öryggi og
samvinnu í Evrópu, verði aukið. En
aðildarríki NATO áskilja sér þó rétt
til að hafa umsjón með eigin varnar-
málum. Tillögur NATO í þessum
málum gera m.a. ráð fyrir árlegum
leiðtoga- eða ráðherrafundum. Þess-
ar tillögur ganga ekki eins langt og
Svétmenn hafa hvatt til. Þeir vilja
að hlutverk RÖSE verði aukið til
muna og að ráðstefnan, sem í eiga
sæti fulltrúar 35 þjóöa, verði samevr-
ópsk öryggisstofnun sem að lokum
leysi af hólmi bæði hemaðarbanda-
lögin.
Þá hafa leiðtogarnir ákveðið að
bjóða sovéska forsetanum að heim-
sækja höfuðstöðvar handalagsins í
Brussel og ávarpa fund aðildarríkj-
anna. Framkvæmdstjóri NATÓ,
Manfred Wömer, mun sækja Sovét-
forseta heim síðar í þessum mánuði
til að færa honum þetta boð.
Styrkir stöðu Gorbatsjovs
Talsmaður sovéska utanríkisráðu-
neytisins, Gennadí Gerasimov, sagði
að fundurinn myndi styrkja stöðu
Gorbatsjovs Sovétforseta í deilum
hans við harðlínumenn. Sovéskir
harðlínukommúnistar hafa mjög
gagnrýnt utanríkisstefnu Gor-
batsjovs og segja að fall kommúnism-
ans í Austur-Evrópu sé til komið
vegna uppgjafar Sovétríkjanna.
Á fundinum var lítið rætt um tillög-
ur Kohls um fimmtán milljarða doll-
ara efnahagsaðstoð til Sovétríkj-
anna. Kohl virðist hafa gefið eftir í
þessu máli og fallist á að stjórn sín
sé reiðubúin að fara hægar í efna-
hagsaðstoð við Sovétríkin ef marka
má ummæli hans á fundi með frétta-
mönnum í gær. Þá sagði hann að
efnahagslegar umbætur yrði að inn-
leiða áður en tekin yrði ákvörðun
um efnahagslega aðstoð.
Reuter
Kommúnistar fá
reisupassann
Pólski forsætisráðherrann,
Tadeusz Mazowiecki, rak komm-
únista og bandamenn þeirra úr
ríkisstjórninni í gær og hvatti til
þess að kosningar yrðu haldnar
sem fyrst til að setja endapunkt-
irrn á lýöræðisþróunina í landinu.
Mazowiecki rak fimm ráðherra
úr embætti, þar á meðal sam-
göngumálaráðherrann, varnar-
málaráðherrann og innanríkis-
ráðherraim. Þeir voru ailir
kommúnistar.
Hann lagði til að tekið yrði til
athugunar að flýta frjálsum
kosningum í landinu. „Uppruna-
lega lagði ég til að lýöræöislegar
kosningar færu fram eigi síðar
en næsta vor. í dag legg ég
áherslu á orðin „eigi siðar“ þar
sem ég tel að vert sé að taka til
athugunar að flýta kosningun-
um,“ sagði ráðherrann.
Stjóm Mazowieckis horflst i
augu við vaxandi óróa i pólsku
þjóðfélagi. Mikil óánægja er með
efnahagsaðgerðir stjórnarinnar
en þær hafa leitt til skerðingar
kaupmáttar um allt að helming
og mikla flölgun atvinnulausra.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6 mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5,5 lb
18 mán. uppsögn 11 ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
ísl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandarikjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16.8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán .5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
överðtr. júni 90 14,0
Verðtr. júní 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajúlí 2905 stig
Lánskjaravísitalajúni 2887 stig
Byggingavísitala júli 549 stig
Byggingavísitala júlí 171,8 stig
Framfærsluvísitala júni 145.4 stig
Húsaleiguvísitala hækkar 1,5% l.júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4.963
Einingabréf 2 2.706
Einingabréf 3 3,267
Skammtímabréf 1,679
Lífeyrisbréf -
Gengisbréf 2.157
Kjarabréf 4.915
Markbréf 2,613
Tekjubréf 1,973
Skyndibréf 1,470
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,388
Sjóðsbréf 2 1,759
Sjóðsbréf 3 1,668
Sjóðsbréf 4 1,417
Vaxtarbréf 1,6865
Valbréf 1,5850
Fjórðungsbréf 1.028
islandsbréf 1,028
Reiðubréf 1,017
Sýslubréf 1,029
Þingbréf 1,028
Öndvegisbréf 1,027
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 462 kr.
Flugleiðir 180 kr.
Hampiðjan 162 kr.
Hlutabréfasjóður 154 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 160 kr.
Eignfél. Alþýðub. 115 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
islandsbanki hf. 157 kr.
Eignfél. Verslunarb. 135 kr.
Olíufélagið hf. 467 kr.
Grandi hf. 168 kr.
Tollvörugeymslan hf. ; 107 kr.
Skeljungur hf. 500 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Búlgaría:
Forsetinn segir af sér
Forseti Búlgaríu, Petar Mlad-
enov, sagði af sér í gær í kjölfar
mikilla mótmæla og háværra
krafna almennings og stjómarand-
stæðinga um afsögn hans. Þetta
kom fram í fréttum búlgarska sjón-
varpsins í gær.
Krafan um afsögn Mladenovs,
sem var útnefndur forseti í apríl
síðastliðnum, fékk aukinn hljóm-
grann meðal Búlgara síðustu daga.
Hún varð þó háværari eftir að
myndband, þar sem hann sást
hvetja til þess að hemum yrði beitt
í mótmælunum í desember síðast-
liðnum, kom fram á sjónarsviöið.
Þegar DV fór í prentun í gær-
kvöldi var ekki ljóst hver tæki við
af Mladenov.
Reuter