Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Síða 6
.... ■•.gnii.ijii.;,i ... i ■-■-....ure.m.M... LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990.
Útlönd dv
Prunskiene býst við
viðræðum skjótt
Sovéskir hermenn taka sér stöðu fyrir utan aðalstöðvar kommúnistaflokks-
ins í Osh í Mið-Asíulýðveldinu Kírgíziu.
Moshe Arens, fór í óvænta heim-
sókn tll Washington í gær. Segja
hemaðarsérfræðingar að til-
gangur heimsóknarinnar sé að
sýna Irökum fram á að stuðning-
ur Bandaríkjanna við ísrael sé
enn mikill.
írakar hótuðuí vikunni aðrefsa
Kuwait og Sameinuðu arabísku
furstadæmunum. Voru arabarík-
in sökuð um samvnmu rið
Bandaríkin í því að haida niöri
olíuverði með offramleiðslu.
Saddam Hussein íraksforseti
hét því tvisvar fyrr á þessu ári
að nota efnavopn gegn ísraelum
ef þeir réöust á land hans.
Tilkynnt var um heimsókn Ar-
ens til Bandaríkjanna aðeins
nokkrum klukkustundum áöur
en hann fór úr landí. í varnar-
málaráðuncytinu í ísrael var sagt
að hann myndi ræða við Richard
Cheney, bandariskavamarmála-
ráðherrann.
Reuter
A-þýskar af-
urðir seldar
í V-Berlín
Austur-þýskir bændur geta
sjálfir ekki selt frámleiöslu sína
en vona nú að einni glæsilegustu
versluninni í Vestur-Berlín,
KaDeWe. takist það.
í gær mátti fá í versluninni kjöt,
egg, flsk, ávexti, grænmeti og
jafhvel vin frá Austur-Þýska-
landi. Versianir í Austur-Þýska-
landi og almenningur þar vilja
heldur kaupa vestur-þýskar
landbúnaðarvörur þar sem þær
eru ódýrari og úrvalið meira. ■
Rcutcr
Waldheim
Vóclav Havel, forseti Tékkósló-
vakíu, varði í gær þá ákvörðun
sína að sefja tónlistarhátíöina í
Salzburg í Austurríki í næstu
viku. Vísaði forsetinn ásökun
mannréttindahreyfingar á bug að
hann væri aö falla frá stefhu sinni
með því að hitta Kurt Waldheim,
forseta Austurríkis. Waldheim
hefur sætt alþjóðagagnrýni fyrir
hlutverk sitt í þýska heraum í
síðari heimsstyrjöldinnl
Benti Havel á að sér hefði veríð
boðiö til Salzburg fyrir meira en
ári þegar hann hefði veriö ofsótt-
ur andófsmaður. Sagöist Havel
hafa litíð á þaö sem mikinn heið-
ur og viðurkenningu á ritstörfum
sínum, sem og haráttunni fyrír
mannréttindum.
Reuter
Sleppir ekki
samvisku-
föngum
Daniel arap Moi, forseti Kenýa,
hefur hafnað tilmælum um aö
láta lausa samviskufanga. Segir
forsetinn enga ástæöu vera til aö
vorkenna þeim.
Sex stjómarandstæðingar, þar
á meðal tveir fyrrverandi ráð-
herrar, voru handteknir í þessum
mánuöi 1 skjóh neyðarlaga sem
leyfa fangelsisvist án réttarhalda
í þrjá mánuði. Handtökur ráð-
herranna fyrrverandi, sem hvatt
höfðu til fjölflokkakerfis f Kenýa,
leiddu til fjogurra daga óelrða í
byrjun þessa raánaðar. Tuttngu
manns létu lifið í óeirðunum.
Bæði erlendir og innlendir aðil-
ar hafa íarið þess á leit viö forset-
ann að hann Iáti fangana lausa.
Reutcr
Viðræður yfirvalda í Litháen við
Moskvuvaldið gætu hafist þegar í
næstu viku, að því er Prunskiene,
forsætisráðherra lýðveldisins, sagði
í viðtali við Reuterfréttastofuna eftir
fund sinn með Gorbatsjov Sovét-
forseta í gær.
Sagði forsætisráðherrann að Gor-
batsjov hefði gefið í skyn að hann
væri reiðubúinn til viðræðna þegar
í stað. Litháar þyrftu hins vegar að
skipa menn í sendinefnd og síðan
gætu viðræðumar hafist. Kvaðst
Prunskiene vonast til að það gæti
orðið þegar í næstu viku.
Gorbatsjov átti í gær fund með leið-
togum Sovétlýðveldanna fimmtán
um hvemig mætti koma í veg fyrir
fyrir sundmngu lýðveldanna, auk
þess sem önnur málefni vora rædd.
Á meðan urðu róstur í sovésku lýð-
veldunum Armeníu og Kírgízíu.
Fjórir biðu bana í sprengingu í lest
nálægt Svartahafi. Þjóðemissinnar í
Armeníu skutu á sovéskar skrifstof-
ur og lögðu eld að þeim og Kírgízum
og Úzbekum lenti saman í Kírgíziu.
Gorbatsjov ræddi við leiðtogana
um drög að nýjum samningi þar sem
gert er ráð fyrir svolitlum vaida-
flutningi frá miðstjórninni til lýð-
veldanna. Óháða fréttastofan Inter-
fax skýrði frá þessu í gær.
í suðurhluta Rússlands létu íjórir
lífið og tíu slösuðust í sprengingu um
borð í lest og talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins sagði að lögreglan leit-
aði aö Azerbajdzhana sem hefði
hrópað til farþeganna rétt áöur en
sprengingin varð. Yfirvöld kváðust
ekki geta fullyrt aö um sprengju
heíði verið að ræða. Talsmaðurinn
sagði heldur ekki hvort granur léki
á að sprengju hefði verið komið fyrir
í pólítískum tilgangi. Fyrr á þessu
ári bældu sovéskir hermenn niður
átök í Azerbajdzhan vegna deilna um
yiirráö yfir Nagomo-Karabakh.
í Armeniu, þar sem deilan um hér-
aöið hefur einnig kynt undir þjóðem-
issinnum, var gerð árás á skrifstofur
Sovétmanna. Þingið í Armeniu gerði
hlé á störfum sínum er fregnir hár-
ust um aö herskáir þjóðemissinnar
um hreinsaði í gær Oliver North,
fyrrum starfsmann bandaríska
þjóðaröryggisráðsins, af einu ákæra-
atriði af þremur vegna aðildar hans
að íran-kontrahneykslinu í forsetatíð
Ronalds Reagan.
Úrskurður áfrýjunardómstólsins
er mikið áfaU fyrir ákærandann sem
er enn að rannsaka leynilega sölu
bandarískra vopna til írans og veit-
ingu ágóðans af sölunni til kontra-
skæruiiöa í Nicaragua á áranum 1985
til 1986. Þá hafði slík aðstoð verið
bönnuð af þingi.
North var í fyrra fundinn sekur um
þrjú ákæraatriði af tólf. Hann var
hreinsaður af ákæraatriðinu um
eyðileggingu leynilegra skjala vegna
tæknilegra atriða. North var einnig
fundinn sekur um að hafa reynt að
hindra þingrannsókn í málinu og um
að hafa þegið ólöglega gjöf aö verö-
mæti nær fjórtán þúsund doliara.
Lögfræðingar Norths áfrýjuöu
dómnum á þeim forsendum að hon-
um hefði verið neitað um réttlát rétt-
arhöld vegna þingyfirheyrslna yfir
honum 1987. Yfirheyrslunum var
sjónvarpað um öll Bandaríkin og því
erfitt að fá kviðdóm sem var ókunn-
ugt um málið. f
Úrskurður áfrýjunardómstólsins
var sá að dómarinn í málinu hefði
átt að láta fara fram réttarrannsókn
til að komast að því hvort vitnis-
burður Norths fyrir þingi hefði haft
áhrif á kviðdóm eða vitni. Áfrýjunar-
dómstóllinn ógilti þvi dóminn og fyr-
hefðu tekið sovéska hermenn í Ash-
tarak til fanga en þingnefnd gat ekki
fengið fregnina staðfesta.
Tuttugu og sjö manns létu lífið í
maí í bardögum mifii herskárra
Armena og sovéskra hermanna. Sov-
éskir hermenn í Armeníu gáfu út
yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem
þeir sökuöu yfirvöld á staðnum um
irskipaði dómaranum að láta réttar-
rannsókn fara fram.
Dómaramir tveir, sem hreinsuðu
North af einu ákæraatriðanna, vora
skipaðir af Reagan Bandaríkjafor-
seta en sá sem var andvígur er demó-
krati, skipaður í forsetatíð Car-
ters.
North, sem hélt því fram að hann
Símamynd Reuter
að loka augunum fyrir aðgerðum
öfgasinna.
I Kírgízíu særðust fimm manns í
gær í átökum milli Kírgíza og Úz-
beka. Frá því í júní hafa tvö hundruð
manns látið lííið í átökum vegna
deilna um úthlutun landsvæöis.
Reuter
hefði farið að fyrirmælum yfirmanna
sinna, hlaut tveggja ára skilorðs-
bundinn dóm. Hann var einnig sekt-
aður um hundrað og fimmtíu þúsund
dollara og fyrirskipað að vinna tólf
hundrað klukkustundir í þegn-
skylduvinnu.
Reuter
Hafna boði
Suður-Kóreu
Yfirvöld i Norður-Kóreu höfn-
uðu í gær tillögu suður-kóreskra
yfirvalda um opnun landamæra
ríkjanna. Þaö höfðu ekki iiðið tíu
kiukkustundír frá því að Roh
Tae-woo Suður-Kóreuforseti
hafði boðist til að opna landa-
mærin i fimm daga um miðjan
næsta mánuð þar til Norður-
Kóreumenn seltu ströng skiiyrði
fyrir opnuninni. Sjálfir höfðu
Norður-Kóreumenn lagt fram til-
lögu fyTÍr tveimur vikum um
opnun landamæranna en henni
var þá hafnað af Suður-Kóreu-
mönnum sem áróðri.
Talsmaður Roh sagöi að yfir-
völd í Suður-Kóreu myndu opna
landamærin þrátt fyrir neikvæð
viðbrögð Norður-Kóreumanna.
Þeir krefjast þess að svokallaður
veggur meðfram landamærunum
verði rifinn og aö felld verði úr
gildi lög sem banna ferðir til
Norður-Kóreu. Einnig vilja þeir
að sett verði á laggirnar nefnd,
skipuð mönnum frá báðum ríkj-
unum, sem ieysa skuli landa-
mæradeilurnar. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTiR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3.0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6 mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5,5 ib
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupoengi
Almenn skuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
, Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
överðtr. júní 90 14,0
Verðtr. júní 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajúlí 2905 stig
Lánskjaravísitalajúní 2887 stig
Byggingavísitala júlí 549 stig
Byggingavisitala júli 171,8 stig
Framfærsluvísitala júlí 146,4 stig
Húsaleiguvísitala hækkar 1,5% 1 .júlí.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,981
Einingabréf 2 2,718
Einingabréf 3 3,279
Skammtímabréf 1,687
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,163
Kjarabréf 4,940
Markbréf 2,627
Tekjubréf 1,984
Skyndibréf 1,476
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,399
Sjóðsbréf 2 1,768
Sjóðsbréf 3 1,678
Sjóðsbréf 4 1,426
Vaxtarbréf 1,6950
Valbréf 1,5940
Islandsbréf 1,033
Fjórðungsbréf 1,033
Þingbréf 1,032
Öndvegisbréf 1,031
Sýslubréf 1,034
Reiðubréf 1,021
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 488 kr.
Flugleiðir 189 kr.
Hampiðjan 170 kr.
Hlutabréfasjóður 159 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 162 kr.
Eignfél. Alþýðub. 126 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 160 kr.
Eignfél. Verslunarb. 138 kr.
Olíufélagið hf. 515 kr.
Grandi hf. 180 kr.
Tollvörugeymslan hf. 107 kr.
Skeljungur hf. 520 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Dómur yfir North ógiltur
Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjun-
Oliver North á leið i réttarsal.
Símamynd Reuter