Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1990, Page 22
22 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1990. Sigrún Finnsdóttir, 28 ára gamall Reykvíkingur: Gj örbreytt eftir eina aðgerð - þráði mest að geta lokað munninum almennilega Sigrún fyrir tannréttingarnar og lýtalæknisaðgerðina. „Þegar ég var krakki var gert grín að framstæðu tönnunum í skólanum. Ég gat ekki einu sinni lokað munninum almennilega og ég átti erfitt með að bíta saman. Misræmið í kjálkunum var mikið,“ segir hún í viðtali við helgarbiaðið í dag. „Ég var með hræðUega Ula hann- aðar tennur og góma. Tennurnar voru aUt of margar fyrir gómana sem áttu að bera þær. Auk þess var mik- ið misræmi á mUU kjálkanna. Ég hugleiddi lengi að láta laga tennurn- ar en hafði dregið það allt of lengi. Um haustið 1984 fékk ég svo hvatn- ingu frá vinnufélögunum. Þeir hvöttu mig endanlega tU þess að fara í tannréttingar og ég lét þá loksins verða af því - sem betur fer. Fram að þeim tíma hafði ég ekkert hugleitt að það þyrfti að gera eitthvað meira. En tannlæknirinn minn, Helgi Ei- ríksson, talaði um að það þyrfti að færa kjálkana eitthvað tU. Hann sagði að tannréttingamar vaém að- eins hluti af meiri aðgerð. Eftir þetta datt mér raunar aldrei annað í hug en að fara líka í kjálkaaögeröina fyrst ég var á annað borð byijuö í tannrétt- ingunum,“ segir Sigrún Finnsdóttir, 28 ára gamaU Reykvíkingur, sem fékk andliti sínu gjörbreytt með viða- mikUli lýtaaðgerð á Landspítalanum. Sigrún starfar hjá Lífeyrissjóði Málm- og skipasmiða. Hún á átta ára gamla dóttur. Hún er hress í við- móti, henni líður greinilega vel og hefur viðkunnanlegt bros - hún brosir líka með augunum. Var aldrei nein spurning Sigrún segir að þó svo að hér hafi verið um þriggja ára tímabil að ræða hafi ekki verið erfltt að gera upp hug sinn. „Þetta var aldrei nein spurning. Tannréttingarnar vora aðeins fyrsta skrefið og það tímabil stóð yfir í tvö ár - þangað tU ég fór í stóru aðgerð- ina þar sem kjálkamir vora lagaðir. Sú aðgerð fór fram í október árið 1988. Lýtalæknisaðgerðin var ákveðin í samvinnu Helga og Siguijóns H. Ól- afssonar munn- og kjálkaskurðlækn- is. Hann er einn af tveimur eða þrem- ur slíkum hér á landi. Siguijón sá að mestu leyti um að koma lýtaað- gerðinni í kring, panta tíma og koma öUum gögnum á rétta staði. Aðgerðin var síðan gerð í sameiningu af hon- um og lýtalækninum Knúti Bjöms- syni. Áöur en kom að kjálkaaðgerðinni þurfti ég að fara í nokkrar skoðanir til Siguijóns. Hann mældi allt út og ég fór í myndatökur hjá honum. Að- dragandinn var langur og það tekur líka tíma fyrir fóUc að komast aö á lýtalækningadeUd Landspítalans. Þetta dróst lengi og ég var orðin held- ur leið á að bíða eftir því að kæmi að þessu. En einhvem tímann um sumarið hringdi ég til Sigurjóns. Honum tókst samdægurs að pota mér inn - aðgerðin átti að fara fram sex vikum seinna. Ég var forvitin og vUdi fá að vera með nefið niðri í öUu. Siguijón er yndislegur maður og hann leyfði mér aö fylgjast með öUum ráðagerðum sínum, teikningum, afstöðu og öllu saman. Mér finnst miklu máU skipta að fá að fylgjast með. Manni er auð- vitað ekki sama um hvernig viða- mikil breytingaaðgerð er skipulögð. Ég hugsaði sem svo að ég væri ekk- ert eintak sem bara bíður eftir með- höndlun. Ég fór líka í skoðanir tíl Knúts,“ segir.Sigrún. Andlegtog líkamlegt álag Enginn reyndi að ráða Sigrúnu frá fyrirætlunum sínum varðandi þessa meðferð sem náði yfir þrjú ár. Sjálf var hún heldur aldrei í neinum vafa um að hún ætti að stíga skrefið tU fuUs. Hún var ákveðin í að láta ekki tannréttingarnar duga enda voru kjálkarnir og gómarnir svo ósam- stæðir að hún átti erfitt með að bíta saman - neðri kjálkinn var of aftar- lega en efri gómurinn of framstæður. „Þetta er ekkert sem maður stekk- ur út í án þess að velta mikið fyrir sér hvað tekur við á eftir. Ég þurfti líka að byggja mig upp líkamlega enda var ég á fljótandi fæði í sex vik- ur á meðan kjálkarnir vora að gróa. Ég gat ekki einu sinni opnað munn- inn. Kjálkarnir voru reyrðir saman allan þann tíma. Þaö eina slæma við sjúkrahúsvistina var fæöið. Ég nærðist þannig að vökva var komið inn á miUi tannanna. Að öðru leyti var þetta hrein sæluvist. Lýtalækn- ingadeildin, sem er í gamla spítalan- um, er með fjórum stofum og hún er mjög heimilisleg. Ég lá inni á spít- alanum í tvær vikur.“ Nokkurra klukku- stunda aðgerð „Þegar kom að aðgerðinni var ég svæfð. Knútur Björnsson og Sigurjón Ólafsson framkvæmdu hana báðir ásamt aðstoðarfólki sínu. Efri kjálkinn var tekinn í sundur og styttur um einn og hálfan sentí- metra. Neðri kjálkinn var hins vegar færður fram. Hann var fleygaður á ská í sundur, dreginn fram og ein- hvem veginn var hann víraður sam- an aftur. Þetta var allt gert í einni og sömu aðgerðinni sem tók um fjóra klukkutíma. Ég myndi vUja sjá myndir af því hvemig læknamir fóru að þessu. Munnurinn var ein- hvem veginn þvingaður upp á gátt og mér er eiginlega óskiljanlegt hvernig læknamir bára sig að þegar þeir löguðu kjálkana. Ekkert af þessu var gert utan frá - engir skurðir eða saumar. Mér finnst ótrúlegt að þetta skuli vera hægt. Andlitinu var breytt mjög mikið. Það var eiginlega stytt um hálfan annan sentímetra. Áður hafði ég verið mun langleitari. Ég gerði mér grein fyrir því aö andlitið myndi breytast mik- ið,“ segir Sigrún. Hún hafði engar umbúðir á andlitinu eftir aðgerðina sem var öU gerð „innan frá“. Vaknað upp eftir aðgerðina „Þegar ég vaknaði upp kom yfir mig sama óþægUega tilfinningin og kemur yfir flesta sem vakna upp af svæfingu. Læknarnir gættu þess vel að ég fyndi ekkert til. Ég gat varla komið upp nokkru hljóði. Um daginn varð mér óglatt og benti þá á magann á mér. Þeir voru fljótir að átta sig og komu strax með sprautu við því. Fyrstu dagana var ég mikið veik. Ég var þá í hálfgerðu móki og man lítiö eftir því. En' þegar ég jafnaði mig var ekkert mál að tala, þó svo að tennurnar væru víraðar saman - þannig var ég í hálfan mánuð. En ég gat loksins lokað munninum al- mennilega,“ segir Sigrún og sýnir hve auðvelt er að tala með saman- bitnar tennurnar. „Mamma kom strax til mín eftir aðgerðina. Hún sagðist aidrei vilja sjá neitt svona aftur. Henni fannst þetta hræðUegt, enda var ég rosalega bólgin. Ég var búin að gera mér grein fyrir því að það yrði mikil breyting á mér. Ég hafði til dæmis undirbúið mig með því að skoða myndir af mér og halda fyrir neðri hluta andlitsins á myndunum. En svo varð auðvitað ekkert eins og ég gerði mér í hugar- lund áður. Þetta varð dálítið öðruvísi en ég ætlaði. Ég sá sjálfa mig fyrst í spegh eftir þrjá daga. Þá hafði bólgan hjaðnað töluvert. Mér fannst þetta ekki fall- egt. Þar að auki hafði undirstaðan fyrir nefinu losnað. Nefið lagðist bara út að hægri kinn,“ segir Sigrún og hlær. „Það varð ekki til að bæta útlitið. Mér fannst bólgumar vera mjög lengi að hverfa. Eiginlega finnst mér þær ekki farnar að fullu ennþá. Allajafna má þó ætla að það taki um eitt ár fyrir allar bólgur að hverfa. Ég sat aldrei einsömul í rólegheit- um og skoðaði mig í spegU. Ég hugs- aði þó um hvað leyndist fyrir innan bólgurnar. Þetta gekk hægt fyrir sig og ég aðlagaðist breytingunum á löngum tíma. Dóttir mín var sex ára gömul þegar aðgerðin var fram- kvæmd. Hún var smeyk við mig þeg- ar hún sá mig fyrst. Það sem hún sá var auövitað ekki mamma hennar. En hún var tíltölulega fljót að venj- ast mér. Ég held að hún muni Utið eftir því núna hvemig ég leit út áð- ur,“ segir Sigrún. Ég hafði skánað „Fyrstu vikurnar eftir aðgerðina var ég dálítið óörugg. Bólgurnar fóru ekki nærri strax. Mér fannst ég asna- leg í framan svona bólgin. Þetta var svo óeðlfiegt. Ég var ekki bara breytt heldur vissi ég í rauninni ekki hvern- ig ég kæmi til með að verða. TU að byrja með var erfitt að gera sér grein fyrir því hvemig ég yröi. Ég sá þó að ég hafði skánað - aUavega ekki versnað," segir Sigrún og glottir. Hún segist aldrei hafa fundið fyrir neinum verkjum að ráði. Hún var íjarverandi úr vinnu í þrjár vikur. „Leiðinlegast þótti mér að vera úr umferð um stundarsakir. Ég var heima í tvær vikur eftir spítalavist- ina en fór svo að vinna aftur. Þegar ég ætlaði aö hitta fólk, sem ég hafði ekki séð lengi, fékk ég aUtaf óþægi- lega eftirvæntingartilfmningu. Fjöl- skyldan brást þó mjög vel við. í dag er ég ekki alveg sátt við mig. En hver er alveg dús við sjálfan sig? Finna ekki allir eitthvað að sér,“ seg- ir Sigrún og bætir því við að sér finn- ist það hreint og beint pjatt að hug- leiða aðra aðgerð. Nefið lá út á hlið „Við vorum þrjár sem lágum sam- an á lýtalækningadeUdinni. Ein var að láta laga í sér neðri kjálkann. Báðir kjálkarnir voru lagaðir í hinni. Auminga konurnar komu inn á deildina um einni viku eftir aö ég fór í mína aðgerð. Þær urðu taugaó- styrkar þegar þær sáu mig í allri minni hryggðarmynd. Á þessum tíma var nefið á mér laust og komið út á hUð. Þær spurðu sín á milli: „Hvað er eiginlega að þessari stúlku? Af hverju lét hún ekki laga á sér nefið í leiðinni?" Þær skildu þetta ekki. Nefið á mér var svo lagað. Það var ekki beint þægUegt því Knútur treysti mér ekki í svæfingu. Ég átti svo erfitt með að anda. Ég var vak- andi og mér þóttu handtökin ekki beint mjúk. Fyrst var ég deyfö og nálum var stungið á nokkra staði. Knútur ýtti síðan af öllu afli - þetta var óhuggulegt. En það tók hann aðeins þrjú handtök að rétta nefið. Hann er snUlingur, þessi maður,“ segir Sigrún. Kunningjar þekktu mig ekki „Þegar farið er í stóra aðgerð, sem maður sér ekki greinilega fyrir end- ann á, blundar eitthvað óljóst á bak við. Eflaust var ég með of miklar væntingar. Á eftir hafði ég fengið nýtt andUt að sjálfsögðu. En sáUn breyttist ekkert. Ég tel að ég hefði átt að búa mig betur undir þetta and- lega. Lýtalæknisaðgerð af þessu tæi er mun erfiðari að því leyti en líkam- lega. Erfiðast þótti mér þegar ég var á gangi niðri í bæ og sá gamla skólafé- laga og þeir þekku mig ekki - jafnvel einhveijir sem höfðu heilsað mér nokkrum mánuðum áður. Ég fór þá gjarnan til viðkomandi og kynnti mig. Viðbrögðin eru alltaf að fólk verður hissa. „Svakalega ertu breytt!“ Þetta er ennþá að koma fyr- ir - tveimur árum seinna. Það kom að því að ég gafst upp á þessu - að ganga að fólki og láta það vita hver ég væri. Ég nennti ekki að ganga í gegnum þessa dagskrá. Ég sagði við sjálfa mig: „Ég læt þetta bara eiga sig.“ Það er voðalega skrýtin tilfinn- ing að standa andspænis kunningj- um sem þekkja mann ekki. Ég er ennþá að hitta fólk með þessum hætti. Samt hitti ég stundum ótrúleg- asta fólk sem þekkir mig strax.“ Sjálfsöryggið óbreytt Sigrún telur að mun erfiðara hefði verið fyrir ungling að ganga í gegn-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.