Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 23
22 LAUGARDAGUR 18. AGÚST 1990. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990. 35 Þeir tóku líka rúmið undan mér - segir Gunnar Hallgrímsson sem tapaði aleigunni á því að skrifa upp á víxla íyrir kunningja „Ég hef ekki sofið vel í nokkur ár og er með stöðuga vanlíðan. Áhyggj- umar hvíla alltaf á mér og maður sér ekkert í framtíðinni nema svartnættið eitt,“ segir Gunnar Hallgrímsson, 61 árs, fyrrum byggingameistari og vel stæður þriggja bama faðir. Gunnar treysti náunganum, gerðist ábyrgðar- maður á lánum og situr nú uppi tóm- hentur. Skórnir em götóttir því engir peningar eru til fyrir nýjum og hann segist ekki eiga nærföt til skiptanna. Saga Gunnars er eitt af mörgum slá- andi dæmum um greiðsluerfiðleika fólks - jafnvel þótt það hafi aldrei skul- dað neinum neitt. Gunnar hefur 37 þúsund krónur á mánuði í laun sem húsvörður í húsi aldraðra við Dalbraut en hann tók það starf að sér til að hafa húsnæði. Lög- fræðingar hafa hirt allt af honum nema forláta stól sem hann erfði eftir móður sína, gamlan skáp og verðlaust sjónvarp. Hjá Gunnari býr tvítug dótt- ir hans sem stundar nám í íjölbrauta- skóla. Hún er í tveimur störfum í sum- ar til að safna sér peningum og er í fullu starfi með skólanum á vetuma. Þau feöginin urðu sér úti um gamalt sófasett til að sitja í og dóttirin komst yfir sófaborð á 100 krónur fyrir stuttu. Eldhúsborðið er fengið að láni úr mat- sal hússins. Gunnar smíðaði sér rúm úr spónaplötum því hjónarúmið fór til lögfræðinganna eins og allt annað. Vel stæður bygginga- meistari „Ég var byggingameistari á Selfossi, átti einbýlishús, verkstæði, var með tuttugu menn í vinnu og hafði það mjög gott. Árið 1983 var ég að vinna uppi á þaki þegar ég féll niöur og hryggbrotnaði. Eg haföi áður lent í svipuðu slysi og brotið var verra vegna þess. Um hkt leyti missti ég eiginkonu mína úr krabbameini en hún hafði verið mikið veik í níu ár þegar hún dó. Vegna slyssins varð ég að hætta allri byggingavinnu og fá mér rólegra starf þar sem ég var dæmdur 65% ör- yrki. Ég seldi allt sem ég átti á Sel- fossi og ákvað að flytja til Reykjavík- ur. Fyrir einbýlishús á Selfossi gat ég keypt fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík en þurfti samt að bæta við heilmiklum peningum. Þá tók ég líf- eyrissjóðslán upp á 300 þúsund sem eru 900 þúsund nú og ég er enn að borga af. Ég fékk húsvarðarstarf í Austurbæjarskólanum og líkaði það ágætlega," segir Gunnar. Þegar hann hafði verið um tíma í Reykjavík kynntist hann fjölskyldu nokkurri og myndaðist mikill vin- skapur þar á milii. „Mér líkaði vel viö þetta fólk og treysti því. Einn aðih, sem tengdist fjölskyldunni, var í viðskipt- um og þar sem mér þótti þetta við- kunnanlegur maður og heiðarlegur skrifaði ég upp á fyrir hann sem ábyrgðarmaður. í fyrstunni voru þetta litlar fjárhæðir en síðan jukust þær jafnt og þétt og ahtaf treysti ég mann- inum. Síöan gerist það einn daginn að hann stingur af til Bandaríkjanna frá eiginkonu og tveimur ungum börnum án þess aö greiöa krónu og skuldin lenti öh á mér og eiginkonunni." Gunnar Hallgrimsson var vel stæður byggingameistari á Selfossi. Nú er hann allslaus. Hann gengur í ónýtum skóm og á ekki föt til skiptanna. Lögfræðingar hafa þó ekki hirt þennan gamla stól sem Gunnarerfðieftirmóðursínaenþeirtókualltannað. DV-myndJAK Endalaus hótunarbréf Gunnar átti góða íbúð og sex hundr- uð þúsund króna bíl. „Þessimaður var að fjárfesta í myndbandaleigum, bón- stöð, fiskverkunarhúsi og 'fínum bíl- um. Hann spilaði sig stórkarl. Ég treysti honum fuUkomlega en maður má víst engum treysta í þessu þjóð- félagi,“ heldur Gunnar áfram. „Þegar maðurinn var faripn úr landi urðu lögfræðingarnir eins og vargar - þeir hafa farið mjög Ula með mig. Hót- unarbréf og símhringingar allan sólar- hringinn frá þessum mönnum hafa dunið á mér. Þeir hafa lagt mig í ein- elti. Ég lá t.d. eitt sinn fárveikur þegar lögfræðingur kemur og segist vera að sækja bíhnn minn sem ég var ekki til- búinn til að afhenda. Þá fór hann út, kom aftur hálftíma síðar með borgar- fógeta og þeir settu upp rétt í svefn- herberginu mínu. Mér var hótað að ef ég léti ekki lykilinn af hendi kæmu lögregluþjónar og sæktu mig. Bíllinn var sóttur, hann var settur á uppboð og lögfræöingurinn keypti hann fyrir 150 þúsund krónur og ekur á honum sjálfur. Þegar þeir voru búnir að taka bílinn heimtuðu þeir að íbúðin yrði seld. Mér tókst aö selja hana og lögfræðingamir vissu nákvæmlega hvenær ahar greiðslur kæmu því þeir hirtu hverja einustu krónu og eftir stóð samt tveggja milljóna króna skuld. Þeir hirtu auk þess aht mitt innbú. Það sem mér þykir verst er að ég sat í óskiptu búi og lögfræðingamir hirtu móðurarf barnanna. Ég hef ekki haft efni á að kanna hvort það er löglegt. Fyrir tveimur árum missti ég föður minn og fékk tvö hundruð þúsund króna arf eftir hann. Þetta vom pen- ingar sem gamli maðurinn haföi spar- að saman. Eg ákvað að nota þessa pen- inga til að kaupa föt á dóttur mína og sjálfan mig en lögfræðingarnir voru fljótir aö hirða þá af mér. Þá sámaði mér allra mest.“ Enga aðstoð aðfá Gunnar segist hafa gengið frá manni til manns og óskað eftir einhvers kon- ar aðstoð en enginn vill neitt fyrir hann gera. „Ég rekst alltaf á vegg, meðal annars hef ég talað við fjóra ráðherra en ekki fengið neitt út úr því. Á Selfossi var ég skuldlaus mað- ur,“ segir Gunnar ennfremur. „Á síðasta ári greiddi ég fjögur hundmð þúsund krónur í vexti en fékk ekki krónu í vaxtabætur þar sem ég á enga eign. Það eru tugir manna sem eiga engar eignir en greiða stórfé í vexti, þeir fá engar vaxtabætur. Ég þekki vel stöndugan mann sem á margar eignir. Hann telur sig borga mikla vexti og fær stórar upphæðir í vaxtabætur. Þetta er réttiætið - skrítið kerfi,“ segir Gunnar. Þegar Gunnar var búinn að missa aleigu sína reyndi hann að fá inni með dóttur. sinni í verkamannabústöðum. Hann tók sér lán til að fjárfesta í íbúð- inni. Gunnar segir að ekki hafi liðið á löngu er lögfræðingarnir fréttu það, fóm í stjórn verkamannabústaða, heimtuðu að íbúðin yrði tekin af hon- um og að þeir fengju alla þá peninga sem settir höföu verið í hana. Þetta gekk eftir og Gunnar situr uppi með lánið. Áekki fyrir brauði „Ég var ekki hálaunaður sem hús- vörður í Austurbæjarskólanum, leigu- húsnæði er dýrt og þess vegna var ég feginn þegar mér bauðst vinnan hér. Hins vegar er íbúðin metin í launum og þau 37 þúsund, sem ég fæ útbor- guð, fara beint í að greiða vexti af lán- um. Þar sem ég er 65% öryrki fæ ég bætur en þær era aðeins 2.795 krónur á mánuði. Ég fæ ekki krónu því 1.112 krónur fara í skatt og 1.683 krónur fara í afborgun af láni,“ segir Gunnar. „Það sér hver maður að ég lifi ekki á laununum og held því áfram að safna skuldum. Brauð eða mjólk hef ég ekki efni á að kaupa og ég skammast mín ekkert fyrir að segja að ég borða af- ganga frá gamla fólkinu í hádeginu. Ég skammta mat hér og ef eitthvað verður afgangs fæ ég að borða. Það er hrikalegt að hrynja svona niður og fá enga aðstoð til að rétta sig við aftur. Ólánið viröist elta mig.“ Gunnar leitaði th G-samtakanna í örvæntingu sinni. Þar kynntist hann stórum hópi manna sem svipað var ástatt fyrir, mest ungu fólki. „Þaö er hrikalegt hvernig margt fólk hefur farið út úr hlutunum. Vaxtabyrðin er að drepa marga. Ég get t.d. ekki séð að ég komist úr mínum sjcúldum á þessum launum enda hækka lánin stöðugt á meðan kaupið stendur í stað. Mér þætti gaman að sjá þann mann sem á minna en ég,“ segir Gunnar. „Það versta er þó hvernig svona álag fer með fólk. Maður dregur sig inn í skel og fer einförum. Ég þarf að vera með lyf vegna stöðugs kvíða yfir að geta ekki staðið í skilum. Maður er alinn upp við heiðarleika og vill standa skil á skuldum sínum. Ég var stór og hraustur maður og vel á mig kominn. Nú er ég flak á sál og líkama," segir Gunnar. Margir eiga bágt „Tvö barna minna, sem eru búsett á Selfossi, hafa hjálpað mér gríðarlega mikið, stutt mig og skrifað upp á lán. Það er ekki síst vegna þeirra sem ég verð að standa í skilum. En það eru margir sem eiga bágt. Mig minnir að það hafí verið fjögur hundruð fjöl- skyldur sem voru í G-samtökunum en þeir eru margir sem gefa sig ekki fram. Á fundum hjá G-samtökunum sögðu alhr frá erfiðleikum sínum og það mæltist mjög vel fyrir. Fólki létti við að tala og heyra af öðrum sem hefðu það svipað.“ í starfi sínu þarf Gunnar stöðugt að vera með vakandi auga yfir að aht sé í lagi og vera viðbúinn að hlaupa th, hvort sem er að nóttu eða degi. Hann sér um að halda húsinu hreinu utan og innan, hugsar um eldhús, viðgerð- ir, brunaboða og neyðarbjöllu, svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem hann fer í sendiferðir fyrir íbúana. Það er því ekki auðvelt fyrir hann að taka sér frí enda hefur ekki verið um slíkt að ræða í þau þrjú ár sem hann hefur starfað í húsinu fyrir utan niu daga í sumar. „Ég hef gaman af að ferðast og einnig að veiða en um slíkt er ekki að ræða. í eitt skipti hef ég komið til útlanda og það var árið 1960. En ég er heppinn að hafa þetta starf því hér hef ég húsnæði." Gunnar segir það hrikalegt að geta ekki treyst nokkrum manni en hann segist verða að vara fólk við að skrifa upp á fyrir aðra. Hann segir að stór hópur þess fólks, sem leitað hafi th G-samtakanna, hafi einmitt lent í sömu sporum og hann. „Það er htið fyrir þetta fólk að gera enda hafa margar fjölskyldur flutt til annarra landa til að freista gæfunnar." Sjálfsvíg algeng Gunnar segist einnig vita th þess að sjálfsvíg séu algeng meðal þessa fólks. „Ég veit um fjöldamörg dæmi þess,“ segir hann. „Maður á kannski ekki að segja frá svona hlutum en ég veit dæmi þess að hjón hafi fyrirfarið sér vegna greiðsluerfiðleika. Þar sem ekki er tal- að um svona hluti gerir enginn sér grein fyrir hversu algeng sjálfsvíg eru hér á landi. Þá er einnig algengt að fólk leiðist út í víndrykkju. Vextir og verðbætur hér á landi hafa farið hroðalega með fólk. Meðan ástandið er áfram óbreytt hækka lánin stöðugt og lítið breytist hjá þessu fólki sem er að reyna að standa viö sínar skuldbindingar. Þótt fólk verði gjald- þrota losnar það ekki við að greiða skuldir sínar eins og margir halda,“ segir Gunnar Hahgrímsson og spyr: „Máttu þeir taka rúmið mitt?“ -ELA Erfiðleikarnir eru hvað mestir hjá fólki á milli þritugs og fimmtugs. Sjálfsvíg hafa aukist og sorglega mörg dæmi eru um að böm hafa dregið foreldra sina með sér i skuldafenið. „Því er ekki að neita að ástandið þá finnst mér erfiðleikarnir fyrst erhörmulegt.Égverðaðmestuvör byrja.“ við það þar sem ég er með neyðar- Ásta segist því miður þekkja ótal síma. Það er allt upp í tíu, tólf mörg dænh þess að fólk gefist upp manns sem hringja á hverju ehi- á lifinu og margir hafa fahið fyrir asta kvöldi til mín,“ segir Ásta Sig- eigin hendi. „Hingað leita konur valdadóttir en hún er einn af tals- sem eiga menn í sjálfsmorðshug- mönnum G-samtakanna - samtaka leiðingum, einnig fólk sem róar sig gjaldþrota og greiðsluerfiðleika- á alls kyns ólyijan og er komiö í fólks. „Þetta virðist ganga í bylgj- þessar hugleiðingar. Stundum um, t.d. var mikið hringt áður en hringir fólk, hágrætur og segist borgarfógeti fór í frí og svo aftur ekki geta meira. Þetta er hræði- nuna þegar hann er að koma úr legt,“ segir Ásta. fríi. Þegar neyöin stendur í dyrun- Hún telur að bankakerfið bjóði um veit fólk ekkert hvað það á að upp á þetta að vissu leyti þar sem gera. Viö ræöum viö fólkið og reyn- fólk viröist endalaust geta bætt á um aö leiðbeina því enda liafa þeir sig lánum - bara ef það hefur ein- sem í samtökunum eru gengið í hvern ábyrgöarmann. „Þegar fólk gegnum það sama,“ segir Ásta. kemst í greiðsluerfiöleika missir Flestir sem leita th samtakanna það alla stjórn á peningamálum. eru á aldrinum mihi þrítugs og Þaö má líkja þessu við alkóhól- fimmtugs. Ásta segir aö því miður isma.“ sé oft um að ræöa að fólk hafi reist sér huröarás um öxl en einnig er rnjög algengt aö fólk lendi i þessu vegna uppáskrifta á lánura. „Það era sorglega mörg dæmi þess að foreldrar eru að hjálpa börnum sín- um en dragast slðan meö þeim í skuldafenið." Asta telur aö þjóðfélagiö eigi sök á hvenhg komiö er fyrir þessari kynslóö. „Lánskjaravísitalan og vaxtabyrðin er helsta orsökin. Tímarnir breyttust rajög/ört og peningamat fólks brenglaðist. Það haföi áöur getað íjárfest oghlutim- ir redduðust en þaö er bara ekki þennig lengur. Fólk leitar til okkar ahs staðar frá. Mér þykja vanda- málin frekar aukast úti á landi með tilkomu atvixmuleysis. Akureyri, Ásta sagði að ftmdir heföu legið Suðumesin og Austfiröir era hvað niöri hjá samtökunum vegna anna verst. Manni virðist aö Vestfiröir þess fólks sem að þeim standa. „Þaö búi við meiri stöðugleika.“ er sammerkt meö öllu þessu fólki, Aukið atvinnuleysi hefur ekki sem til okkar leitar, aö þaö vhl bætt ástandið aö sögn Ástu og hún borga skuldimar sínar. Þó fólk segist ekki vera að tala um ein- verði gjaldþrota era skuldirnar hverja tugi fólks heldur þúsundir. ekkert famar. Sumir líta þannig á „við tölum ekki í hundruöum leng- að gjaldþrot sé einhver lausn en ur,“ segii- hún. Jóhanna dýrkuð Ásta segir þaö frábært að sett hafi verið upp ráðgjafarstöð hjá Húsnæðisstofnun og segir miklu bjartar framundan hjá ibúöar- kaupendum við þessa breytingu. „Ég ætla nú bara ekki aö segja hvað Jóharína Sigurðardóttir er dýrkuð í okkar hópi. Hún hefur lijálpað mörgum sem átt hafa í vanda. Maður vonar að lífsgæða- græðgin fari að réna og fólk veröi ánægðara með sitt Ég fmn á ungu fólki að það athugar hvar gahabux- ur era ódýrastar áður en þær era keyptar. Dýru merkin era ekki keypt eins mikið og áður,“ segir Ásta Sigvaldadóttir. Prestar, sem DV ræddi viö, staö- festu aht sem Ásta segir en mikiö er leitað th þeirra vegna greiðslu- erfiðleika. Prestur í nýbyggðu hverfi í Reykjavík sagði að hann þekkti mjög vel mörg dæmi þess aö fólk væri hla fariö vegna greiðsluerfiðleika. „Viö eram bundnir trúnaöi við okkar skjól- stæðinga og eigum því erfitt raeö aö tjá okkur um einstök dæmi. Hitt er Ijóst aö erfiðleikamir eru miklir og víöa. Prestar hafa rætt þetta sín á mihi og það hefur komið til tals aö kirkjan setjl upp eins konar fjöl- skylduráögjöf, bæöi í sambandi við skilnaði sem margir tengjast pen- ingaerfiöleikum og sálarástandi fjölskyldnanna vegna greiðsluerf- iöleika. Viö erum þakklátír fyrir aö svo virðist sem fólk leiti æ meira til kirkjunnar í vandræöum sín- um.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.