Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR ÍB. ÁGÚST 1990-
Veidivon
Veiðivötn á Landmannaafrétti:
Mokveiddutvö-
hundruð silunga á
fáum klukktímum
Þegar laxveiðin „klikkar“ er sil-
ungsveiöin oft góð. Bleikjuveiði hef-
ur víða verið feiknalega góð og hefur
verið landað þúsundum af bleikjum.
Sjórinn hefur verið hlýrri en oft áður
og það virðist hafa góö áhrif á vöxt
fisksins. Feiknavænar bleikjur hafa
líka komið á færi veiðimanna,
stærstar um 5-6 pund. Það getur ver-
ið gaman aö fá svona vænan fisk til
aö taka fluguna, kannski nýkominn
úr sjónum. En þetta er ekki allt
bleikja, öðru nær. Veiðimenn, sem
voru í Veiðivötnum fyrir nokkrum
dögum, veiddu um 200 silunga. „Það
var gaman að þessu, við fengum fisk-
ana á stuttum tíma,“ sagði Bragi
Reynisson en hann var við fjórða
mann í vötunum. „Fiskurinn var á í
hverju kasti, en við fengum bara
veiði, hinir við hhðina á okkur fengu
lítið sem ekkert. Við höfum líklega
lent á torfunni og þessa vegna gekk
þetta svona vel,“ sagði Bragi í lok-
in.
Það eruekkialltaf
jóliníveiðinni
Laxveiðin er langt frá því að vera
einhver dans á rósum í sumum veiði-
ánum, þetta er bara hrein ördeyða.
En það er einn og einn ljós punktur
í veiðinni. Hollið sem veiddi á eftir
útlendingunum með fluguna veiddi
100, en fyrir ári veiddust 169 laxar á
þessum tíma. Núna eru komnir 500
laxar, fyrir ári fengust 813 laxar á
þessum tíma og fyrir tveimur árum
voru laxarnir 1344. Svona er veiðin,
það eru ekki alltaf jólin.
„Þetta er bara alls ekki nógu gott í
Húnvatnssýslunni, reyndar bara lé-
legt,“ sagði Tumi Tómasson í vikunni
ogþettaeruorðaðsönnu. -G.Bender
• Óskar Pálsson með góða bleikjuveiði fyrir fáum dögum en margar veiði-
ár hafa gefið vel af bleikju. DV-mynd JJ
.
• Magnús Sigurðsson, veiðivörður í Elliðaánum, sker hausinn af laxi sem
veiddist í ánni og reyndist vera örmerktur. En vel er fylgst með eldislöxum
sem veiðast. DV-mynd G.Bender
Prestur nokkur var eitt sinn
á gangi í Austurstræti. Mætir
hann þá manni, alldigrum, sem
labbar beint upp að honum og
segir:
„Ég vík ekki fyrir svínurn."
Prestur leit sem snöggvast
framan í manninn en svai'aði
svo:
„Það geri ég.“ ;
Bóndi í sveit einni norðan-
lands fór eitt sinn í tvær messur
sama daginn. Eftir síðari mess-
una spurði prestur hann hvi
hann hefði sótt tvær messur hjá
sér sama daghm.
„Æ, því meira sem maður fær
af lélegu fóðri, þess meira þarf
maður af því.“
Þegar verið er aö ræða um
sóknir presta er gjarnan talað
um brauð þeirra. Sr. Pétur
Maack starfaöi mikið meðal
áfengissjúkra og lýsti hann því
sjálfur á þann veg að hann
„heföi fengið vínarbrauð." :
Ungur drengur kom í fyrsta
skipti í barnaguðsþjónustu um
daginn. Að henni lokinni rétti
presturinn honum biblíumynd-
ir. Stráksi skoðaði myndirnar
dágóða stund, gekk síðan til
prestsins og spuröi:
„Hvar á eiginlega að skafa af
þessum miðum.“
„Hún Sigurbjörg var grönn
sem sálin.“
Finnur þú firran breytingai? 68
Ef þú ætlar einhvern timann að komast með tærnar þar sem Mendel- Nafn:.............
son hafði hælana þá er þér fyrir bestu að hlusta á það sem ég segi...
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitáteppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningarnir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 68
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir sextug-
ustu og sjöttu getraun
reyndust vera:
1. Ingvar Unnarsson,
Höfðabraut 2, 300 Akranes.
2. Jóhanna Hauksdóttir,
Fagrabrekka 43, Kópavogi.
Vinningarnir verða
sendir heim.