Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990. 49 Kvikrnyndir Denzel Washington leikur trompetleikarann Bleek Gilliam í nýjustu kvikmynd Spike Lees, Mo’ Better Blues. Hann er hér á sviðinu í Beneath the Underdog klúbbnum þar sem atburðarásin verður, ásamt kvintett sínum, sem verður orðinn kvartett áður en yfir lýkur. Mo' Better Blues: Spike Lee djassar tilveruna Do the Right Thing var mikill sigur fyrir hinn unga þeldökka leikstjóra og leikara Spike Lee. Fáar kvikmyndir hlutu jafngóöa dóma á síðasta ári og þessi svarta kómedía. Myndin var einnig vel sótt af almenningi. Þaö var aöeins bandaríska kvikmyndaakademían sem lét sem myndin væri ekki til þegar kom aö því að tilnefna mynd- ir til óskarsverðlauna. James Bond ásamt kvikmyndum sem gerðar hafa verið um hann og réttinum til að gera kvikmyndir rnn hann, er til sölu og það eru engir smápeningar sem Albert „Chubby" Broccoli sem „á“ Bond vill fá fyrir kempuna enda getur mikill gróði fylgt kaupunum. Taiið er aö Bond myndirnar hafi halað inn í heildina 50 milijarða íslenskra króna. Broccoli hefur lítið gert annað á síðustu tuttugu og fimm árum en búa til Bond myndir. Nú er aldur- inn farinn að segja til sín, enda er hann orðinn 81 árs gamall. Fast Spike Lee lét þetta ekki hafa áhrif á sig og þessa dagana er verið að frumsýna þriðju kvikmynd hans, Mo’ Better Blues. Kvikmyndir Hilmar Karlsson verð hefur ekki verið sett á Bond, en sérfræðingar í Hollywood hafa gefiö upp töluna 200 milljónir doll- ara sem samsvarar 11 milijörðum í íslenskum krónum en segja að verðið geti orðið hærra. Vitað er að margir hafa áhuga. Ekki fylgir þó allt með í kaupunum því Broc- coli hefur sagt að sá sem kaupi James Bond verði að framfylgja samkomulagi sem hann hafi gert við MGM/UA um rétt á dreifmgu myndanna. Þeir sem til þekkja segja að Broc- coli sé ekki að selja vegna þess að honum vanti peninga, heldur sé Lee segir að það fyrsta sem hon- um hafi dottiö í hug hafi veriö aö endurtaka ekki sjáifan sig: „Það er margt sem ég hef áhuga á og langar til að koma með skoðanir á, en ég varð að gera eitthvað sem væri ekki í líkingu við Do the Right Thing.” Eftir nokkra umhugsun ákvað Spike Lee að gera kvikmynd um djass. Ég kem úr djössuðu um- hverfi og ég haföi séö Bird og Ro- und Midnight. Þær kvikmyndir gera vel fyrir djassinn og gáfu hug- myndina af Mo’ Better Blues. Ef það er eitthvað sem ég hefa meira vit á en Clint Eastwood og Bertrant Tavemier, þá er það djass." Þaö kemur engum á óvart aö Spike Lee skuli gera kvikmynd um djassleikara. Faðir hans var þekkt- ur djassleikari lék á bassa með mörgum frægum tónlistarmönn- um og hann þarf því ekki að leita langt til að fá upplýsingar um líf djassleikarans. Það er Denzel Washington sem leikur trompetleikarann Bleek Gil- iam í Mo’ Better Blues sem lifir jafnhröðu lífi og trompetsólóin hans eru. Þegar myndin hefst leik- ur hann í Beneath the Underdog klúbbnum. Hann heldur við tvær konur sem eru afbrýðisamar út í hvora aðra. Það hitnar heldur bet- ur í kolunum eitt kvöldið þegar þær hann að forða því að skatturinn komist yfir hluta af eigninni þegar hann fellur frá. Þrátt fyrir að vinsældir Bond myndanna hafi minnkað nokkuð frá því þegar þær voru vinsælast- ar, sem var þegar Roger Moore var upp á sitt besta á miðjum áttunda áratugnum, þá segja fjármálaspek- ingar að hver sá sem kaupir James Bond geri mjög góðan bisness. Byrjað verður að filma næstu Jam- es Bond mynd í haust og það verð- ur Timothy Dalton sem leikur 007 í þriðja skiptiö. -HK mæta báðar í klúbbinn til að hlusta á hann, klæddar í samskonar raun- an kjól. Gilham hafði sem sagt sparað sér sporin og keypt tvo ná- kvæmlega eins kjóla handa stúlk- unum sínum. Ekki tekur betra við þegar báðar halda því fram að hann hafi lofað að giftast þeim. Fljótlega myndast vandræðaástand innan klúbbsins sem ekki verður betra þegar saxó- fónleikari Gilliam reynir við aðra dömuna í vonsku yfir að fá ekki lengri sóló. Spike Lee leikur sjálfur umboðsmanninn Giant, sem er ævivinur Gilliam, sá er forfallinn fjárhættuspilari sem á það til að tapa þrjú þúsund dollurum á dag. Söguþráðurinn er í anda tónlist- arinnar, villtur og svolítið öðru- vísi. Klúbburinn þar sem atburður- irnir gerast er nefndur eftir ævi- sögu Charhe Mingus. Faðir Spike Lee, Bill Lee, sem lék á sínum tíma á þekktum djassstöðum eins og Village Vanguard og Blue Note samdi meirihlutann af tónlistinni ásamt saxófónleikaranum þekkta Branford Marsalis. Það verður forvitnilegt að vita hvernig almenningur tekur Mo’ BetterBlues. Gagnrýnendur lofuðu bæði Bird og Round Midnight, en áhorfendur létu sig vanta. Kannski tekst Spike Lee að breyta þessari þróun. Sean Connery var sá leikari sem fyrstur lék James Bond. AKIRA KUROSAWA segist taka afetöðu gegn kjarnorku í nýjustu kvikraynd sinni Rhapsody in Au- gust, en tökum á henni lýkur í október. Verður þetta fyrsta kvik- mynd hins áttræða leikstjóra i tuttugu ár sem Japanir fjár- magna að öllu ley ti. Aöalhlut- verkið leikur Richard Gere. Fjall- ar myndin um áttræða konu sem eyðir sumarleyfi sínu í bænda- samfélagi og dularfulla atburði sem fyrir hana koma. Gere leikur frænda hennar sem er af jap- önsku og bandarísku bergi brot- inn. Þótt Kurosawa sé þekktasti og virtasti leikstjórí sem Japanir hafa eignast hefur þjóð hans ekki treyst sér til að kosta kvikmynd eftir hann síðan 1970. Menn á borð við Steven Spielberg og Ge- orge Lucas hafa komið gamla manninum til hjálpar, má þar nefna meistaraverkin Kagemus- ha og Ran. ★ ★ ★ TERRY GILLIAM, sem síðast leikstýrði The Ad ventures of Bar- on Munchausen,segir að það verði engin tækniatriði i næstu kvikmynd sinni The Fisher King. Segir hann myndina vera svarta kómedíu um prófessor einn sem Robin Wihiams leikur. Prófessor- inn fær langtíma æðiskast þegar eiginkona hans er myrt, aö þvi er virðist vegna leiöbeiningar út- varpsmanns sem Jeff Bridges leikur. Aðrir leikarar eru Tom Waits, Mercedes Ruehl of Amanda Plummer. ★ ★ ★ NÚ ÞYKIR ljóst að ævintýrið frá í fyrrasumar endurtekur sig ekki vestan hafs. Engin kvikmynd kemst nálægt því að veröa jafn- vinsæl og Batman varö í fýrra ogþóttdýrustu kvikmyndirnar eins og Total Recall, Dick Tracy og Die Hard 2 hafl gert mikla lukku og komist yfir 100 milljón dollara múrinn þá voru þær s vo dýrar í framleiðslu að gróðinn veröur Utíll þegar miöaö er viö mynd eins og Pretty Woman sem gerö var fyrir fimmtung þess sem fyrrnefndar myndir kostuðu en hefur halað inn jafhmikið af doll- urum. Robocop 2 er ein af þessum dýru myndum sem rétt hafa náð fyrir kostnaði í Bandaríkjunum. Það kom þvi framleiðendum hennar skemmtilega á óvart þeg- ar hún var frumsýnd utan Bandaríkjanna og sló aðsóknar- met í Mexíkó, Hong Kong, Japan, Puerto Rlco og Suður-Kóreu. ★ ★ ★ EMILIO ESTEVEZ fékk lítið ann- að en skammir fyrir kvikmynd- inaWisdom sem hann leikstýröi, lék í og skrifaði handritið að. Hann er þó ekki á þvi að gefast upp pilturinn, því nú er verið að frumsýna aðra kvikmynd sem haxm leikur, leikstýrír og skrifar, heitir húnMen at Work. Hefur hann fengið bróður sinn, CharUe Sheen, tíl Uðs við sig. Leika þeir tvo öskukarla sem finna einn daginn Uk innan um rusUÖ. ★ ★ ★ PRINCE gerði fyrir fáum árum kvikmyndina Purple Rain sem fjallaði um Prince, var skrifuð af honum og leikstýrt af honum. Nú - hefurhanskonunglegaótukt, eins og hann er kaUaður, gert aðrakvikmynd sem er eitthvað í 1 íkingu við Purple Rain, aUavega leikur Prince sama hlutverkið aftur. Heitir hún GraflBti Bridge. Fjallar myndin um árekstra sem veröa í rekstri næturklúbbs. Meðleikari hans veröur sem og í fyrri myndinni Morris Day og að sjálfsögðu skrifar og leikstýrir Princemyndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.