Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990.
ÞORLÁKSHÖFN
Nýr umboðsmaður okkar frá 15. ágúst er Unnur
Jónsdóttir, Oddabraut 17, sími 98-33779.
^ RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða verkstjóra með
aðsetri á Hvolsvelli.
Rafvirkjamenntun áskilin.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, sendist
til Rafmagnsveitna ríkisins fyrir 30. ágúst nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Dufþaksbraut 12
860 HVOLSVELLI
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar í Reykja-
vík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.,
verða lögtök látin fara fram fyrir vongoldnum opinberum
gjöldum utan staðgreiðslu álögðum 1990, skv. 98. gr., sbr.
109. og 110. gr. laga nr. 75/1981, sbr. einnig 8. kafla laga
nr. 45/1987.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, verðbætur á ógreiddan tekju-
skatt, eignarskattur, lífeyristryggingagjald atvr. skv. 20. gr.,
slysatryggingagjald atvr. skv. 36. gr„ kirkjugarðsgjald, vinnu-
eftirlitsgjald, útsvar, verðbætur á ógreitt útsvar, aðstöðugjald,
atvinnuleysistryggingagjald, iðnlánasjóðsgjald og iðnaðar-
málagj., sérst. skattur á skrifst.- og verslunarhúsn., slysatrygg-
ingagjald v/heimilisstarfa, sérstakur eignarskattur og gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hvers konar gjaldhækkana
og til skatta sem innheimta ber skv. Norðurlandasamningi,
sbr. lög nr. 111/1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram fara að 8 dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar verði þau eigi að
fullu greidd innan þess tíma.
Reykjavík 16. ágúst 1990
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
DRÖGUM ÚR FERÐ
AÐUR EN VIÐ
BEYGJUM! |
UMFERÐAR
RÁÐ
Hinhliðin
Uppáhaldssjónvarpsmaðurinn er Kermlt froskur á góðum degi.
• V* •
Jakob Magnússon Stuðmaður sýnir á sér hina hliðina
Jakob Magnússon Stuðmann
þarf ekki að kynna en hann og aðr-
ir meðlimir Stuðmanna hafa að
undanfornu verið í sviðsljósinu
vegna spurningarinnar um virðis-
aukaskattinn. Það er að segja hvort
þeim beri að greiöa virðisaukaskatt
af þeirri skemmtun sem þeir héldu
uppi í Húnaveri um verslunar-
mannahelgina. En hvað sem því
líður þá ætlar Jakob að sýna á sér
hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Jakob Frimann Magn-
ússon.
Fœðingardagur og ár: 4. maí 1953.
Maki: Ragnhildur Gísladóttir.
Börn: Ema, 12 ára, og Bryndís, 3
ára.
Bifreið: Viö eigum 26 ára Dodge,
17 ára Range Rover jeppa og 3 ára
Citroen.
Starf: Ég sem og túlka lög.
Laun: Mismunandi eftir verkefn-
um.
Áhugamál: Tónlist, kvikmynda-
gerð, íslensk menning o.fl. o.fl.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? 3.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að ferðast til framandi landa,
kynnast nýrri menningu og dvelja
með skemrátilegu fólki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hlusta á væl og barlóm.
Uppóhaldsmatur: Austurlenskur
grænmetisréttur að hætti hennar
Ragnhiidar minnar.
Uppáhaldsdrykkur: Ferskur gló-
aldinsafi.
Hvaða iþróttamaður fmnst þér
standa fremstur i dag? Ég er alltaf
hrifinn af Jóni okkar Páli.
Uppáhaldstímarit: „Heima er
bezt“.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Harpa
Sjöfn Hermundardóttir.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Eru þetta ekki beztu
skinn?
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Ríkisskattstjóra í heita
pottinum.
Uppáhaldsleikari: Gísli Rúnar
Jónsson í „Góða dátanum Svejk“.
Uppáhaldsleikkona: SigríðurHaga-
lín í „Húsi Bernörðu Alba“ í upp-
færslu Leikfélags Akureyrar,
Uppáhaldssöngvari: Heijutenórinn
Ragnhildur Gísladóttir í laginu
„Auga fyrir auga“ er mér minnis-
stæður og kær.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Gylfi
Þ. Gíslason.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Andrés önd og þau hjónin.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Þættir
Spaugstofumanna á vetrum, 19.19
þess á milli, dýralífsmyndir, MTV
þegar ég kemst í þaö og svo góðar
bíómyndir auðvitað.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnariiðsins hér á landi? Sem
stendur höfum við af því of miklar
tekjur til að geta með góðu móti
rekið það burt fljótlega. Eftir alda-
mótin veröum við þó vonandi laus
viö allt slíkt
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2 og Bylgjan eftir því
hver stendur vaktina.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Múli
Árnason finnst mér tvímælalaust
skemmtilegasti útvarpsmaður 20.
aldarinnar á íslandi.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Miðað við fréttatímana,
sennilega Stöö 2 því þeir eru fyrr á
ferðinni.
Uppáhaidssjónvarpsmaður: Kerm-
it froskur á góðum degi.
Uppáhaldsskemmtistaður: Sund-
, laug Seltjarnamess þegar ég sé
fram á að eiga fritíma.
Uppáhaldsfélag i íþróttum? Vals-
menn eru mínir menn og hafa ver-
ið alia tíð.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtiðinni? Já, mörgu, m.a. að ís-
lensk tónlist sitji við sama borð og
aörar listgreinar í landinu.
Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí-
inu? Eg ætla að njóta Jífsins á Akur-
eyri með fjölskyldu og vinum.
RóG.