Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 39
51 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚSL 1990. Afmæli Guörún Kristín ísaksdóttir, Ægis- síðu 23, Grenivík, er fimmtug í dag. Guörún fæddist á Svalbarði á Grenivík og ólst þar upp. Hún lauk fullnaðarprófi í Barnaskólanum á Grenivík og eftir það var hún tvö ár við nám í Alþýðuskólanum á Laugum í Reykjadal. Guðrún hefur í um átján ár unnið við útibú KEA á Grenivík auk þess sem hún hefur heitt við báta. Hún hefur alltaf búið á Grenivík. Guðrún giftist 27. maí 1965 Gunn- ari Sigurssyni sjómanni, f. 24. ágúst 1942. Foreldrar Gunnars eru: Sig- urður Gunnarsson og kona hans, AðalbjörgGuðmundsdóttir. Sigurð- ur bjó í Reykjavík en Aðalbjörg býr á Akureyri. Þau shtu samvistum og var Gunnar alinn upp á Einarsstöð- um í Norður-Þingeyjarsýslu hjá Halldóri Gunnarssyni og Nönnu, konuhans. Börn Guðrúnar og Gunnars eru þijú: Valborg, f. 26. júlí 1965, maður hermar er Ólafur Þorbergsson og sonur hennar er ísak Sigurjónsson, f. 31. maí 1988, Valborg er búsett á Grenivík; Arna, f. 22. september 1966, búsett á Grenivík; og Sigurður, f. 29. nóvember 1968, unnusta hans er Petrea Ósk Sigurðardóttir og dóttir þeirra er Margrét Sif, f. 18. apríl 1990, þau eru búsett á Greni- vík. Systkini Guðrúnar eru sjö: Odd- geir, kona hans er Margrét Sigríður Jóhannsdóttir og eiga þau fjögur böm; Hjördís, maður hennar er Er- hard Joensen og eiga þau tvö böm; Sjöfn, maður hennar er Þórður Magnússon og eiga þau fimm börn; Vilhjálmur, kona hans er Guðríður Guðmundsdóttir og eiga þau fjögur böm; Sveinn Þór, kona hans er Alda Demusdóttir og eiga þau þrjú börn; Borghildur Ásta, maður hennar er Gísh Jóhannsson, þau eiga tvö böm; og Sóley, maður hennar er Þor- steinn Harðarson og eiga þau fimm börn. Foreldrar Guðrúnar em ísak Vil- hjálmsson, f. 10. júní 1906, d. 12. des- ember 1986, útgerðarmaður á Sval- barða í Grenivík, og kona hans, Alma Oddgeirsdóttir, f. 19. desemb- er 1907. Foreldrar ísaks vom Vh- hjálmur Grímsson og Elín Þor- steinsdóttir. Systkini ísaks em Steingrímur, Jakobína og Ingólfur. Systkini Ölmu eru Agnes, móður Magnúsar Jónssonar óperusöngv- ara; Aðalheiður; Jóhann Adolf; Kristján; Vemharður; Fanney, móð- ir Kristjáns Jóhannssonar óperu- söngvara; Hlaðgerður; Margrét; Há- kon óperusöngvari; Sigríður og Björgvin. Alma er dóttir Oddgeirs, útgerðarmanns á Hlöðum í Greni- vík, Jóhannssonar, b. í Saurbrúar- gerði á Svalbarðsströnd, Gíslason- ar. Móðir Oddgeirs var Kristín Guðrún Kristín ísaksdóttir. Björg Sigurðardóttir, b. á Fehsseli í Kinn, Bjarnasonar. Móðir Ölmu var Aðalheiður Kristjánsdóttir, systir Jóhanns á Végeirsstööum, afa Jó- hanns Konráðssonar söngvara, fóð- ur Kristjáns óperusöngvara. Aðal- heiður var dóttir Kristjánssonar, b. á Végeirsstöðum í Fnjóskadal, Guð- mundssonar. Móðir Kristjáns á Vé- geirsstöðum var Lísibet Bessadóttir, b. á Skógum í Fnjóskadal, Eiríks- sonar, bróður Guðlaugs, langafa Hahdórs, foður Kristínar, formanns Ferðamálaráðs. Jónína Magnúsdóttir, Fjólugötu 15, Akureyri. ; Höfsstöðúm, Koibeinsstáðahreppi,; Snæfellsnessýslu. Benedikt Ólafsson, Hvassaleití 58, Reykjavík. SigurðurGuðmundsson, Torfnesi, Hlíf, ísafiröi. ara Helgi Ársaelsson, Grenimel 22, Reykjavík. Eggert Kristinsson, Tómasarhaga 13, Reykjavík. Gunnar Guðjónsson, Björn Björnsson, Hólabraut 4, Hrísey, Eyjafj sýslu. aröar- 60ára Steinþór Þorleifsson, Mánasundi 5, Grindavík. 50 ára Elrna Kristín Steingrímsdóttir, Hafralæk, Aðaldælahreppi, S-Þing- eyjarsýslu. Jón Rafnkelsson, Silfurbraut 6, Hafnarhreppi, A- Skaftafehssýslu. Gróa Gunnarsdóttir, Breiðvangi 4, Hafnarfiröi. ísak Valdemarsson. Víöimýri 11, Neskaupstað. 40 ára Ingvur Már Pólsson, Snorrabraut 77, Reykjavík. : Bjarni Ingólfsson, Hraunbæ 70, Reykjavík. Valgeir Þórðarson, Lindargötu 45, Reykjavík. Valdimar Jónsson, Reykjabraut 7, Reykhólahreppi, A-Barðastrandarsýslu, Andlát Jóhanna Jóhannesdóttir, Álakvísl 67, lést að morgni 16. ágúst í Landa- kotsspítala. Bima Þórðardóttir andaðist föstu- daginn 17. ágúst. Sigurjón Sigurðsson, Höfðagrund 15, Akranesi, andaðist 16. ágúst. Friðrik Rósarsson lést 15. ágúst sl. Valur H. Jóhannsson, Reynigrund 1, Akranesi, lést þann 15. ágúst. Magndís Anna Aradóttir andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, fimmtudag- inn 16. ágúst. Tilkyimingar Gronn í Reykjavík Grenn námskeiðin era haldin fyrir fólk sem á við matarfíkn að stríða, hvort sem því fylgir offíta eða ekki. í sumar hefur Grann verið á hringferð mn landið og haldið námskeið viða. Á þeim stöðum, sem námskeið hafa verið haldin, era bak- arar nú famir að bjóða upp á grann brauð. Mánudagskvöldið 20. ágúst kl. 21 verður haldinn opinn kynningarfyrir- lestur á veitingastaðnum Á næstu grös- um, Laugavegi 20b, þar sem kynntar verða þær hugmyndir sem liggja til grundvallar námskeiöunum. Ef næg þátttaka fæst verður síðan haldið nám- skeið dagana 28.-30. ágúst kl. 20.30^23 ásamt laugardeginum 1. september kl. 9-17. Skráning á námskeiðið fer fram á fyrirlestrmum og nauðsynlegt er fyrir væntanlega þátttakendur að mæta þar. Leiðbeinandi er Axel Guðmundsson'en hann hefur sjálfur átt við matarfíkn að stríöa og nýtt sér þetta kerfi með góðum árangri. Heiðmerkurferð Fornbíla- klúbbs íslands Heiðmerkurferðin verður farin 19. ágúst nk. Lagt verður af stað frá Rafmagns- veitunni við Suðurlandsbraut kl. 13.30. í Heiðmörk verða griUaðar pylsur og verða þær ókeypis. Hins vegar þurfa menn að sjá fyrir einhverju að drekka með pylsun- um. Kaupstaðaferðin verður svo 9. sept- ember nk. og verður með svipuðu sniði og í fyrra. Sýning á handmáluðum módel-samkvæmisjökkum Sverrir Sv. Sigurðsson heldur sýningu á handmáluðum módel-samkvæmisjökk- um úr silki í Gallerí 15, Skólavörðustíg 15, kj. Þar gefst einnig kostur á að skoða tískuteikningar Sverris frá árunum 1986-89. Sverrir er 22 ára að aldri og sjálf- menntaður í tískuhönnun og fatagerð. Sýningin verður opin helgamar 18.-19. og 25.-26. ágúst kl. 13-18. Allir velkomnir. 50 ára útskriftarafmæli Nemendur efri deildar Héraðsskólans á Laugarvatni veturinn 1939^10 hafa í hyggiu að koma saman á Laugarvatni laugardaginn 25. ágúst nk. kl. 13 og halda upp á 50 ára útskriftarafmæli. Þar ætla þeir að dveljast til sunnudags og rifja upp gömul kynni en margir hafa ekki hist í þau 50 ár sem liðin era frá því að þeir kvöddust á hlaðinu á Laugarvatni. Þátt- töku skal tilkynna til einhvers eftirtal- inna manna í síðasta lagi sunnudaginn 19. ágúst og munu þeir jafnframt veita allar nánari upplýsingar: Bjami Ey- vindsson, Hveragerði, s. 98-34153, Hjalti Þórðarson, Selfossi s. 98-21166, Konráð Gíslason, Varmahlíð, s. 95-38199, og Páll Þorsteinsson, Reykjavík, s. 91-82941. Era bekkjarfélagar hvattir til að koma og eiga góða stund saman í gamla skólanum. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík Fyrirhuguð er ferð 7. og 8. september. Lagt verður af stað frá kirkjunni fóstu- daginn 7. september kl. 17. Ekið verður að Flúðum og þar snæddur kvöldverður og gist yfir nóttina. Næsta dag verður farið að Gullfossi og Geysi og heim um Laugarvatn og Þingvöll. Konur era beðn- ar að skrá sig fyrir 25. ágúst. Nánari upp- lýsingar gefa Sigurborg, s. 685573, Ágústa, s. 33454 og Berta s. 82933. Frönsk farandsýning í Mynd- listaskólanum á Akureyri Laugardaginn 11. ágúst sl. var opnuð í Myndlistaskólanum á Akureyri við Kaupvangsstræti sýning á grafíkverkum eftir 26 þekkta listamenn sem eiga það sameiginlegt að hafa unniö verk sín á frönskum listprentstofum. Á sýningunni verða kynntar ólíkar grafískar aðferðir og fjölbreytt vinnubrögð sem viðhöfð era á litprentstofum. Að sýningunni standa Myndlistaskólinn á Akureyri og sendiráð Frakklands en erlendir styrktaraðilar era utanríkisráðuneyti Frakklands og frönsk samtök til eflingar lista („L’Assoc- iation francais d’Action Artitique’j. Sýn- ingin verður opin daglega kl. 14-17 og lýkur 2. september. Hjálpræðisherinn Flóamarkaður verður hjá Hjálpræðis- hernum, Kirkjustræti 2, á þriðjudag og miövikudag kl. 10-17. Málverkasýning í Þrastalundi Aðalbjörg Jónsdóttir sýnir málverk og tvö veggspjöld með myndum af hand- pijónuðum kjólum í Þrastalundi við Sog. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Bandarískur listamaður sýnir litskyggnur og segir frá ferðalögum Mark Sadan er bandarískur listamaður sem kom til íslands 4. ágúst sl. til að taka ljósmyndir víðs vegar um landið. Hann fæddist í Syracuse, New York, á timum seinni heimsstyrjaldarinnar. Sautján ára gamall fór hann til ísrael þar sem hann vann á „kibbutz”. Er hann kom aftur til New York nam hann leiklist, lék og stjómaði leikritum og vann seinna við kvikmyndagerð. Mark er einn þeirra sem hófu framleiöslu fræðsluþátta fyrir börn. Nefnast þeir The Sesame Street og hafa notið fádæma vinsælda í Bandaríkjunum og víðar. Á síðustu árum hefur Mark snúið sér æ meira að ljósmyndun og hef- ur m.a. haldið ljósmyndasýningar í Museum of Modern Art í New York. Verk hans hafa verið sýnd í fjölmörgum virt- um galleríum vítt og breitt um veröldina. Nk. mánudag, 20. ágúst, kl. 20.30 mun hann sýna litskyggnur og segja frá ferða- lögum sínum viðs vegar um heiminn 1 húsakynnum Bahá’ía í Mjóddinni (á haBðinni fyrir ofan Svein bakara). Húsdýragarðurinn í Laugardal Dagskrá laugardaginn 18. og sunnudag- inn 19. ágúst. Ath.: Ratleikur í húsdýra- garði og grasagarði frá kl. 10-15. Garður- inn verður opnaður kl. 10. Kl. 11 verður selum gefið, kl. 11.30 hestar teymdir um svæðið, kl. 14 selum gefið, kl. 14.30 loð- kanína klippt, kl. 15 hreindýr teymd um svæðið, kl. 16.15 selum gefið, kl. 16.30 nautgripir reknir í fjós, kl. 16.45 kindur, geitur og hestar teknir í hús, kl. 17 hæn- ur og kjúklingar teknir í hús, kl. 17.15 minkar og refir fóðraðir, kl. 17.30 kýr mjólkaðar. Lokað kl. 18. Verð 100 kr. fyr- ir böm, 200 kr. fyrir fullorðna. Upplýs- ingasími 32533. Tombóla Nýlega héldu þessir krakkar, þau Ásta, Díana, Gunnar, Skúlína, íris, Berghnd og Dóra, tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Þau söfnuðu 2.428 krón- um. Tónleikar Tónleikar á ísafirði og í Bolungarvík Tónleikar verða haldnir í Félagsheimil- inu í Bolungarvík laugardaginn 18. ágúst kl. 16. Þá munu Sigurður Halldórsson sellóleikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja sónötu í F-dúr eftir Brahms, ásamt verkum eftir Fauré, Hin- demith, Martinu og Boccherini. Þá halda þeir félagar tónleika í frímúrarasalnum á ísafirði sunnudaginn 19. ágúst kl. 16. Þá munu þeir flytja Arpeggione, sónötu Schuberts, sónötu í A-dúr eftir Beethov- en, ásamt verkum eftir Fauré og Hindem- ith. Á tónleikum í byijun árs 1983 hófst áralangt samstarf þeirra Daníels og Sig- urðar á sviði fijálsrar spunatónlistar. Reyndist það hinn ákjóssuilegasti jarð- vegur er þeir fóra að spila saman sígilda tónhst fyrir þremur árum eftir að hafa stundað hefðbundið tónhstamám hvor í sínu horni frá unga aldri. Daníel lærir nú við Sweelinck-tónhstarskólann í Amsterdam en Sigurður lauk fyrir nokkra frá Guhdhal School of Music and Drama í London og sækir þar enn tíma. „Óli blaðasali“ leikur í Firðinum „Óh blaðasah” leikur um þessa helgi í Firðinum, Hafnarfirði. „Óh blaðasali” er ný hljómsveit, skipuð þeim Steingrími Guðmundssyni, trommur, Páh Pálssyni, bassa, og Guðmundi Rúnari, söngur og gítar. Væntanleg er ný hljómplata með Ola blaðasala. Á henni koma einnig fram ýmsir þekktir spilarar, m.a. Björn R. Ein- arsson á básúnu, Eyþór Arnalds á selló, Magga Stína risaeðla á fiðlu og fleiri. Hljómsveitin er skirð í höfuðiö á einum þekktasta blaðasölumanni landsins og er hugmynd að halda útitónleika í Skotinu á Reykjavíkurapóteki honum til heiðurs. Sem kunnugt er stóð Óh þar og seldi dagblöðin. „Óh blaðasah” mun leika á Ölhúsum borgarinnar, svo og úti á landi. Efnisskrá hijómsveitarinnar er geyshega blönduð, allt frá frumsömdu til krumma sem svaf í klettagjá. . Studioblóm Þönglabakka 6, Mjódd, norðan við Kaupstað, sími 670760

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.