Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 7
7
LAUGÁRDAGÚR lðí ÁGTJST 1990.
dv Fréttir
Bæjarráö Njarðvíkur:
Krefst svara
Bæjarráö Njarðvíkur hefur sent frá
sér ályktun vegna flugslyssins sem
varð á Reykjanesbraut sunnudaginn
5. ágúst. Alyktunin er svohljóðandi:
„Bæjarráð Njarðvíkur lýsir yfir
þungum áhyggjum vegna mikillar
flugumferðar yfir íbúðabyggð í
Njarðvík og vill að gefnu tilefni
vegna nauðlendingar feijuflugvélar
á Reykjanesbraut sunnudaginn 5.
ágúst síöastliðinn klukkan 21.59.
leggja fyrir samgönguráðherra eftir-
farandi spurningar:
1. Hvers vegna var umræddri flug-
vél, sem augljóslega var í miklum
vandræðum, beint í aðflug yflr
íbúðabyggð í Njarðvíkurbæ?
2. Eru til reglur hjá flugmálayfir-
völdum um hvernig stjórna skuli
aöflugi flugvéla í neyð og þegar að-
flugsstefna flugbrautar er yfir íbúða-
byggð? Ef þessar reglur eru til, hverj-
ar eru þær og hvernig hefur þeim
verið fylgt? Ef engar reglur um slíkt
eru til krefst bæjarráð Njarðvíkur
þess að slíkar reglur verði settar og
sveitarféiög viö flugvelli verði höfð
með í ráðum við að setja slíkar regl-
ur.
Bæjarráð Njarðvíkur lítur flug-
slysið á Reykjanesbraut mjög alvar-
legum augum og k'refst svara. En að
sögn sjónarvottar rétt skjögti flugvél-
in hikstandi yfir húsaþök íbúða-
blokka í Móahverfi í Ytri-Njarðvík.“
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í
Njarðvík, sagði Njarðvíkinga lang-
þreytta á því hversu herþotur brytu
gegn reglum þegar þær hefja sig til
flugs af norður-suöurbraut. Vélarnar
eiga að beygja til hægri en gera það
ekki alltaf. -sme
Bækurogblöð:
Vask ekki greiddur
aflágum upphæðum
Margir þeir sem panta bækur, blöð
og smáhluti að utan hafa furðað sig
á að misræmi virðist ríkja í því af
hvaða sendingum þarf að greiða
viröisaukaskatt. Oft á tíðum hefur
gengið illa að fá útskýringar á því
hjá tollinum af hvaða munum og
sendingum þarf að greiða vaskinn.
Samkvæmt upplýsingum frá toll-
stjóraembættinu þarf ekki að greiða
virðisaukaskatt af bókum, blöðum
og munum sem pöntuð eru erlendis
frá ef verðmæti sendingarinnar er
ekki meira en 20 STR sem eru rúmar
1500 krónur. Það er því ekki greiddur
virðisaukaskattur af smásendingum.
-J.Mar
Sunset
Stórgóö spetmu- og grámynd
með Bnicc Wilfis og James Gam-
er í aðalhlutveritum. k-ir hiýða
engum regium, elska allar konur,
taka alla áhættu.
Blind Fury
Hðrkuspennumynd með Rutger
Hauer í aðalhlutverki. Hann á
ekkert nema sverðið sitt og sína
blindu reiði. En hann þarfnasí
Toppmyndir
Grafarvogi
Sporhömrum
Sími 676740
Toppmyndir
Hraunbæ 102 B
Sími 671707
Toppmyndir
Sólvallagötu 27
Vesturbæjarvideo
Sími 28277
Videotæki aðeins
100 kr.
The Kiss
Bak við Ijölskylduframhhðina
leynist óhugnanlegt leyndannál.
Nú á að vígja Amy inn í regluna.
Hún veit ekki að martröðin er
rétt að byrja.t________________
Heartbreaker
Þeir Don Johnson og Jeff Dani-
els sýna stórleik í þessari mynd
um einlæga vináttu tveggja
manna.
Óperur á Sólvallagötu
Bjóðum upp á eitt mesta úrval
landsins af óperum, ballettum o.fl.
Dreifmg
Arnarborg
sími 652710
Kvöld- og
76277
helgarsími
FERÐASMELLIR ÆS "öp^SríVt364i522 Upplýsingar og farpantanir í símum 652266 og 641522
Sumarauki í Flórída 15 daga ferð með íslenskum fararstjóra. Brottför 22. september. Verð frá kr. 79.760* Innifalið: Flug, gisting, akstur, íslensk fararstjórn og aðstoð. Skemmtileg ferð á frábæru verði Trier - helgarferðir Brottför 22. nóvember. íslensk fararstjórn. Verð frá kr. 32.800* Innifalið. Flug til Lux, akstur til Trier, gisting í 3 nætur og íslensk fararstjórn.
Borgarpakkar - Flug og bíll
★ Tyrkland ★ Fortúgal
★ Egyptaland ★ Malta
Skipulagðar ferðir með
íslenskri fararstjórn til Flórída,
Malasíu, Singapúr og Tælands.
4 sæti laus í 15 daga draumaferð 30. ágúst til
Malasíu, Singapúr og Tælands - aigjör iúxus.
Næsta ferð í febrúar - látið skrá ykkur strax!
Ferðasmellir boðnir af ferðaskrifstofunum.
Ratvís og Alís tryggir gæði og öryggi.
* Verð á mann, 2 i herbergi. IATA
Flugvallarskattur ekki innifalinn. Ferðaskrifstofur
RATViS
rTœvel