Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990. 15 Bleikt og blátt Allir vita um yfirburði karl- mannsins. Hann er hinn stóri og sterki, kjölfesta fjölskyldunnar, fyrirvinna heimilisins, hetja hvunndagsins. Karlmaðurinn er öruggur í fasi, sjálfstraustið upp- málað og veit hvað hann syngur. Hann segir börnunum fyrir verk- um, á síðasta orðið við úrlausn vandamálanna og gengur út frá því sem vísu að frammistaða hans til borðs og sængur sé konunni þókn- anleg. Hvar eru inniskórnir, góða?, er maturinn ekki tilbúinn? og svo sinnir hann kynferðislegum hvöt- um sínum með velþóknun á sjálf- um sér. Hann snýr sér á hina hlið- ina með sælubros á vör. Reynsluheimur karla byggist ekki á tilfmningum eða orðræðum. Hann talar, hún hlustar og nú er hinn sanni karlmaður búinn að koma sér upp farsíma í bílinn sinn til að auðvelda tjáskipti sín. Vei þeim manni sem játar á sig veikleika eða vegsummerki sem benda til að hann standi sig ekki í stykkinu. Vei þeim kvenmanni sem vogar sér að kasta kuski á hvítan flibba hins óaðfinnanlega manns. Sú kona, sem brýtur niður sjálfs- traust og sjálfsímynd hins sanna karlmanns, situr uppi með einskis vert hrak. Niðurbrotinn karlmaður er ekki til neins brúks hafandi. Það mega konurnar eiga að und- irmeðvitundin hefur fyrir löngu kennt þeim að láta karlmanninn komast upp með sjálfsímynd sína. Kvennabyltingin nú til dags stork- ar einmitt þessu viðurkennda lög- máli í samskiptum kynjanna og er á góðri leið með að eyðileggja far- sældina í hjónaböndunum og róm- antíkina í ástarsamböndunum. Það er verið að kreista lífsneistann úr körlunum og þurrka burtu sjálfs- blekkinguna sem flestum körlum er bæði hald og traust. Þær konur, sem ennþá hafa ekki ánetjast kvenfrelsinu, eru sem bet- ur fer í meirihluta, enda er reynslu- heimur kvenna í því fólginn að ráða með því að leyfa karlinum að halda að hann ráði. Þær beita sín- um aðferðum með táknum og skila- boðum og gæta þess að ögra ekki sjálfsímynd karlanna með skipun- um eða skömmum. Og smám sam- an lærum við karlarnir á tákn- málið hjá kvenfólkinu og skiljum áður en skellur í tönnum. Látum að stjórn án þess að virðingu okkar sé misboðið. í þessu er galdurinn fólginn. Góðráðdýr Ég hef þennan almenna formála að þessari frásögn minni í dag til að útskýra fyrir lesendum að mað- ur verður að vera vel á verði til að halda heimihsfriðinn. Táknin eru mörg og táknin eru teikn um að nú þurfi að taka til hendinni eða beita stimamýkt eða koma á réttum tíma í matinn. Ég er orðinn verald- arvanur maður pg þykist þekkja mitt heimafólk. Ég veit til dæmis upp á hár að þegar ryksugan er komin út á mitt stofugólf og liggur þar hreyfingarlaus er ætlast til að maður ryksugi þegjandi og orða- laust. Ryksugur færast ekki sjálf- viljugar úr stað. Svo var það einn daginn fyrir skömmu að á eldhúsborðinu liggja nýjar og áður óþekktar bókmenntir á mínu heimili. Þar er komið „Bleikt og blátt“, timarit um kynlíf og á forsíðunni blasir við mynd af tveimur kviknöktum englakropp- um karls og konu sem láta blítt hvort að öðru. Ég hafði að vísu tek- ið eftir þessu tímariti í sjoppunni og hafði haft spurnir af því að hér væri á ferðinni eitt mest lesna og mest keypta bókmenntant vorra daga, en einhvern veginn hafði mér aldrei komið til hugar að gerast kaupandi. Sennilega undir niðri verið þeirrar skoðunar að í kynlíf- inu væri ekkert nýtt undir sólinni hjá jafnreyndum manni og mér og þess vegna óþarfa útgjöld að kaupa svona blað. Þar að auki er það hálf- asnalegt fyrir fullorðinn manninn að vera staðinn að því að kaupa kynhfsblöð í sjoppum, algjörlega að thefnislausu og gæti veriö mis- skilið. En þarna var það aht í einu mætt á eldhúsborðinu heima hjá mér og ég gekk úr skugga um að unghngurinn á heimihnu var ekki kaupandinn og konan hafði komið með það heim með sér, án þess að það væri skýrt frekar. Og nú voru góð ráð dýr. Þögul áminning Bleikt og blátt. Hvað var að ger- ast? Gat það verið áð þetta væru óbein skilaboð til mín um að ég þyrfti að taka mig á í kynlífmu? Kynlífsumræður eru ekki beinlínis tabú á heimihnu en þær eru ekki hvunndags og þar að auki er ég þeirrar kynslóðar og karlmennsku að flokka kynlíf undir feimnismál í viðurvist annarra. Það var helst í strákahópnum í gamla daga sem menn gerðust op- inskáir og tóku upp í sig, en mest var það karlagrobb og lygi. Trölla- sögur og bósasögur og sjaldan þurfti að spyrja að endalokum þeirra ástaleikja sem ofurmennin í hópnum höfðu upplifað. Þar stóðu þeir uppi sem sigurvegarar og óþekktar og blásaklausar stúlkur urðu máttvana en yfir sig ástfangin fórnarlömb þeirrar óstöðvandi kyngetu sem frægust er meðal þeirra sem minnst hafa af henni. Nei, kynlífsumræður eru ekki stundaðar við eldhúsborðið á'mínu heimili og bósasögur eru ekki lesn- ar, nema þá einhver geymi þær undir koddanum og eigi þær fyrir sig. En nú lá þetta kynlífstímarit í öhum sínum regnbogans htum á Laugardags- pistill Ellert B. Schram borðinu, rétt eins og það hefði dott- ið inn um lúguna fyrir slysni. Það hlaut að vera tilgangur í þessu. Það gat ekki verið tilviljun ein sem réði því að konan mín færi að festa kaup á bleiku og bláu, án þess að eitthvað meira en lítið lægi að baki. Það hlutu að vera dulin skilaboð í þessum innkaupum, kannske einhver grein í blaðinu sem höfðaði til mín, ráðleggingar, upplýsingar, hagnýt ráð, sem ég átti að tileinká mér. Alveg eins og ryksugan talaði sínu máh, án þess að vera sett í samband. Þögul áminning um yfirbót eða athöfn sem mér hafði hingað til yfirsést. Læknisfræðilegt lauslæti Ég fletti blaðinu varfærnislega. Tuttugu merkir áfangar í sögu kyn- lífsins. Varla gat ég þurft á sögu- legri upprifjun að halda? Það var að vísu fróðlegt að lesa um forsögu- legt klám frá því um 3000 fyrir Krist og að Casanova hefði kynnst smokknum á sínum velgengnisár- um. Veslings Casanova hefði ekki borið sitt barr af öllum meðlögun- um ef hann hefði ekki verið svo lánsamur að smokkurinn var fund- inn upp á átjándu öldinni og gerði honum kleift að láta blítt að rekkju- nautum sínum án eftirþanka. Mik- ill ágætis maður, Casanova, og hefði sómt sér vel í strákahópnum þar sem flestir voru honum líkir. Þarna var líka hægt að fræðast um kynlífsfíknina. Hún mun vera nýjasta vandamál kynlífsins og er gerð ítarleg grein fyrir þessari dul- arfullu fíkn sem felst í því að karl- maðurinn er haldinn óstöðvandi löngun til að halda framhjá konu sinni og endar með því að hann brotnar gjörsamlega undan synd- um sínum og brestur í grát, fullur iðrunar og sektarkenndar. Þessi fíkn hefur verið þekkt und- ir nafninu lauslæti og er ekki með öllu óþekkt hér á landi. Þótt ég hafi aldrei heyrt lauslætið skil- greint sem sjúkdóm þá er sjálfsagt að taka því með þökkum. Enda verður sjálfsagt margur kynlífs- fíkillinn harla glaður þegar hann getur haldið því fram að lauslætið og ótryggðin sé óviðráðanlegur sjúkdómur sem hann gengur með. Nú geta menn væntanlega játað syndir sínar með vísindalegum rökum, þegar þeir eru staðnir að verki, og sótt síðan um meðferð á hæli, rétt eins og áfengissjúkling- arnir eiga það sér til afsökunar að ráða ekki við víndrykkjuna öðru- vísi en samkvæmt læknisráði. í Bleiku og bláu má svo sjá grein- ar um sjómannslífið þar sem þeir kúra kvenmannslausir í kulda og trekki. Enda er sagt að sjómenn bæti sér upp kvenmannsleysið með bláum myndum og sjálfsfróun og lifi hamingjusömu hjónabandslífi í hvert skipti sem þeir koma í land. Síminn órómantískur Síðast en ekki síst var þarna að finna lesningu um að síminn hefði gengið af ástarbréfum dauðum. Bannsettur síminn. Hann hefur komið rómantíkinni fyrir kattarnef og nú eru menn meira að segja komnir með farsíma líka og sér er nú hver rómantíkin þegar karlinn slær á þráðinn utan úr miðri um- ferðinni á rauðu ljósi! Satt er það með ástarbréfin að hvergi logar ástin heitar en á síðum tárvotra sendibréfa frá fjarlægum elskend- um, enda hefur margt ástarsam- bandið lifað af utanferðir og fjar- vistir í krafti þeirra bréfaskipta. Kannski er hér komin skýringin á tíðum hjónaskilnuðum og tilfinn- ingalausum ástarsamböndum að nú skrifast elskendur ekki lengur á. Og síminn er ógnvekjandi trufl- un þegar elskendur þurfa hvOd hvort frá öðru - með öðrum. í Bleiku og bláu voru ennfremur greinar sem flokkuðust undir neyt- endamál og fjölluðu um töfralyf og skyndhausnir sem elskendur skyldu forðast. Hugleiðingar um erótík í myndlist og hommarnir fengu sinn skammt og mér varð hugsað til þeirra fordóma minna að halda því fram opinberlega að samkynhneigð væri ónáttúruleg og sjálfsagt kemur að því að homm- arnir verða viðurkenndur kyn- stofn í ríki náttúrunnar og maður fær á baukinn fyrir að vera ekki eins og þeir. Ætli maður verði ekki talinn abnormal með því að vera normal! Hetjanáheimilinu Ég velti því fyrir mér hvaða lesn- ing það væri sem ég ætti að taka til mín, úr því það var ætlast tO að kynlífstímarit væru lesin yfir mat- arborðinu. Hvar hafði mig borið af leiö? Hvar hafði mér mistekist í hjónabandinu? Hvers vegna var þessi ryksuga lögð á eldhúsborðið? „Nei, ertu að lesa Bleikt og blátt," sagði konan blaðskellandi þegar hún stóð mig að lesningunni. Ekki orð um það hvort hún hafði keypt blaðið eða fengið það gefins. Ekki orð um ástæðuna fyrir tilveru tímaritsins á eldhúsborðinu. Rétt eins og það hefði dottið af himnum ofan og rétt eins og það væri ekki til þess ætlast að ég læsi það. Ég setti upp kæruleysissvip á andlitið, lokaði blaðinu og lét eng- an bObug á mér finna. Ég, hetjan í heimihslífinu, karlmennið í fjöl- skyldunni, sat eftir og sit enn með þá óráðnu spurningu: hver voru skilaboðin? Ég get ekki verið þekkt- ur fyrir að spyrja. Karlmennska mín bannar það. Hins vegar er ég hættur við að kaupa mér farsíma! Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.