Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990.
Skák
Sjö vimiingsskákir í röð tryggöu
Hannesi stórmeistaraáfanga
- og glæsilegan sigur á opna mótinu í Gausdal
Hannes Hlífar Stefánsson: Svaf yfir sig í fyrstu skákinni i Gausdal en
sigraöi samt á mótinu og krækti um leið í áfanga að stórmeistaratitli.
Frábær árangur Hannesar Hlíf-
ars Stefánssonar á fjallahótelinu í
Gausdal í Noregi hlýtur aö vera
öðrum íslenskum skákmönnum
hvatning tii frekari afreka. Hannes
braut ísinn - náði fyrsta áfanga að
stórmeistaratitli. Hann er fyrstur
íslendinga til að afreka þetta, að
stórmeisturunum sjálfum undan-
skildum.
Karl Þorsteins hefur komið næst-
ur stórmeisturunum að styrkleika
um nokkurt skeið; er sterkur al-
þjóðameistari en áfangi til stór-
meistara hefur látið bíða eftir sér.
Hannes Hlífar, Þröstur Þórhallsson
og fleiri hafa veitt honum harða
keppni. Nú hefur Hannes sýnt að
hann getur þetta og félagar hans
hljóta því einnig að fá byr í seglin.
Svaf yfir sig
Máltækið góða „fall er farar-
heill“ á vel við um tafl Hannesar í
Gausdal. í fyrstu umferð tapaði
hann fyrir lágt skrifuðum Svía,
Carlhammar að nafni, en Hannes
tapaði einnig fyrir honum í fyrstu
umferð á Rilton-Cup mótinu í Sví-
þjóö fyrir tveimur árum. í skák
þeirra í Gausdal stóð Hannes lengst
af með pálmann í höndunum en lék
af sér í 40. leik og er skákin fór í
bið var staðan flókin en jafnteflis-
leg.
Biðskákina átti að tefla morgun-
inn eftir en þá bar svo við að Hann-
es svaf yfir sig! Hann mætti hálfri
klukkustund of seint til leiks, lenti
í tímahraki og fann ekki bestu leið-
ina. Að lokum varð hann að játa
sig sigraðan.
En stundum er gott að tapa. Sjálf-
sagt hefur Hannes talið vonlaust
að keppa að stórmeistaraáfanga
eftir svo slysalegt tap og þar með
hefur þrýstingnum af herðum hans
létt. Eftir tapið tefldi hann að því
er virtist áreynslulaust og var vel
að sigrinum kominn. Ekki var að
sjá aö taugaspenna hamlaði honum
á nokkurn hátt, eins og oft vill
veröa er áfangi er í augsýn.
Sjövinningsskákir
í 2. umferð vann Hannes stiga-
lausan mótherja sinn létt; í 3. um-
ferð lagði hann þýska alþjóða-
meistarann Maus (2400 stig) og í 4.
umferð var annar stigalaus and-
stæðingur auðveldur viðureignar.
Eftir það fór róðurinn að þyngj-
ast. í 5. umferö tókst Hannesi að
vinna búlgarska stórmeistarann
Inkioff (2510 stig) eftir hasarfengna
skák, þar sem Búlgarinn beitti svo-
nefndu Alatortsjev afbrigði af Mer-
an vörn. í 6. umferð hafði Hannes
svart gegn sovéska alþjóðameistar-
anum Kovalev (2500 stig) og vann
eftir að hafa komið peði í verö, sem
andstæðingur hans lék af sér
snemma tafls. í 7. umferð vann
Hannes annan sovéskan alþjóða-
meistara, Jurtajev (2505 stig) eftir
sjötíu leikja baráttu. Þá hafði
Hannes unniö sex skákir í striklotu
og þurfti einn vinning til viðbótar
úr tveimur síðustu umferðunum til
að ná áfanga, svo fremi hann tefldi
við tvo stórmeistara.
Vinninginn fékk Hannes strax í
næstu skák gegn nýkrýndum
grískum stórmeistara, Kotronias,
en til gamans má geta þess að sá
hinn sami náði fyrsta áfanga sínum
að stórmeistaratitli á Reykjavíkur-
skákmótinu 1988. Þar með var til-
skildum vinningafjölda náð og svo
heppilega vildi til að Hannes tefldi
við sovéska stórmeistarann Valery
Tsjekhov í lokaumferðinni. Hannes
lenti þar í kröggum en tókst að
halda jafntefli og þar með hafði
hann einnig sigrað á mótinu.
Glæsilegur árangur!
Röð efstu manna varð þessi: 1.
Hannes 7,5 v. 2. Kotronias 7 v. 3. -
6. Tsjekhov, Jurtajev, Kovalev og
Svíinn Ernst 6,5 v. 7. - 16. Lein,
Jansa, Hector, Vladimirov, Smirin,
Östenstad og Gausel 6 v. o.s.frv.
íslendingurinn Arnþór Sævar
Einarsson, sem býr í Svíþjóð, hlaut
5 v. en keppendur voru ríflega 80
að tölu. Vart þarf að taka fram að
„íslandsvinurinn" Arnold Eikrem
haíði veg og vanda að mótinu í
Gausdal.
Hér koma tvær síðustu skákir
Hannesar frá mótinu, sem báðar
voru afar mikilvægar. í þeirri fyrri
tryggir hann sér stórmeistaraá-
fanga en sigurinn á mótinu í þeirri
síðari.
Hvítt: Hannes Hlífar
Svart: Vasilios Kotronias
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 f5
Þetta er svonefnt Jánisch-bragð
af spænskum leik, sem á vinsæld-
um að fagna eftir að Speelman hinn
enski bryddaði upp á því i áskor-
endaeinvíginu við Timman í fyrra.
Kotronias hefur beitt því nokkrum
sinnum fyrr en það var Hannesi
kunnugt um og hann var því vel
undirbúinn.
4. Rc3 fxe4 5. Rxe4 Rf6
Skarpasti leikurinn er 5.. - d5 en
þannig lék Speelman í áðurnefndi
skák.
6. Rxf6+ Dxf6 7. De2 Be7
Býður upp á peðsfórn, sem Hann-
es þiggur. Færi svarts hafa verið
álitin gefa gott mótvægi fyrir peðið
en Hannes sýnir fram á meö rök-
réttri taflmennsku aö svartur nær
ekki að jafna taflið.
8. Bxc6 dxc6 9. Rxe5 Bf5 10. d4 0-0
11. 0-0 Bd6 12. c3 c5 13. Bf4 Hae8 14.
Hfel cxd4 15. cxd4 Be6 16. Bg3 c6 17.
Dd2! Hd8 18. Dc3 Bc7 19. a4 Bb6 20.
Rf3 Bg4
I 1 #
á 1 1 A
ii ■
A A £
W
A A A A
H s *
ABCDEFGH
21. Bh4!
Nú er ljóst að eitthvað verður að
láta undan. Drottning í uppnámi
og hrókur í skotlínu.
21. - g5
Vonast eftir 22. Bxg5 Dg6 23. Bxd8
Bxí3 með vissum gagnfærum. En
Hannes á einfaldari leið.
22. Rxg5! Hd5 23. Dg3 Df4 24. Dxf4
Hxf4 25. He8+ Hf8 26. Hxf8+ Kxf8
27. Rxh7+ Kf7 28. Rf6 Hxd4 29. a5!
Best að sögn Hannesar. Nú leiðir
29. - Bxa5 30. Rxg4 Hxg4 31. Hxa5
Skák
Jón L. Árnason
Hxh4 32. Hxa7 leiðir til vinnings á
hvítt. En leikur svarts í skákinni
breytir ekki úrslitunum. Hvítur
fær unnið hróksendatafl.
29. - Bc7 30. Rxg4 Hxg4 31. Bg3 Bxg3
32. fxg3 Hb4 33. Ha2 Ke6 34. Kf2 Kd5
35. Ke3 Kc4 36. h4 Kd5 37. Kf3 Ke5
38. g4 Hb3+ 39. Kf2 c5 40. g3 Hb4 41.
g5 Kf5 42. Kg2 c4 43. Kh3 Kg6 44.
Hal Hxb2 45. Ha4! c3 46. Hc4 c2 47.
a6 b5 48. Hc6+ Kf7 49. h5 Ha2 50.
g6+ Ke7 51. Hc7+ Kf6 52. g7 cl = D
53. g8 = R + ! Kg5 54. Hxcl
Nú hefði svartur getað gefist upp
með góðri samvisku.
54. - Kxh5 55. Hc5+ Kg6 56. Hxb5
Hxa6 57. Hb7 Hal 58. Re7+ Kf6 59.
Rc6 a5 60. Ha7 a4 61. Ha5 a3 62. Ha6
Kg5 63. Rd4 Hhl+ 64. Kg2 Hal 65.
Rb5
Og nú kom loks að því - svartur
gafst upp.
Hvítt: Valery Tsjekhov
Svart: Hannes Hlífar
Griinfeldsvörn.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4
c5 8. Re2 Rc6 9. Be3 0-0 10. Hcl
Polugajevsky hefur dálæti á þess-
um leik, í stað þess að hróka stutt.
Nú er 10. - cxd4 11. cxd4 Da5+ 12.
Kfl algengasta framhaldið en
Hannes beitir annarri leikaðferð
sem gefist hefur svörtum vel i
nokkrum nýlegum skákum.
10. - Ra5 11. Bd3 e5 12. dxe5!? c4 13.
Bc2 Bxe5 14. 0-0!?
Ný tilraun í stöðunni, í stað þess
að skipta á drottningum. Svo virð-
ist sem þetta gefi hvítum álitleg
færi.
14. - De7 15. Del b6 16. f4 Bg7 17.
Df2 f5 18. e5 Bb7 19. Rd4 Had8 20.
Hcdl Bd5 21. Hd2 Rc6 22. Rb5 Be6
23. Rd6 Kh8 24. Hfdl
Hvítur á óumdeilt betri stöðu. En
hér kom 24. h4!? einnig til greina,
sem þrengir enn að svörtum.
24. - g5 25. g3 gxf4 26. gxf4 Dc7 27.
Dh4 Hg8 28. Hg2
I
1 m ii
á * A
A Á
1 A
A ÉL
A Jt S A
A s B C D E F <á? G H
28. - Rxe5!?
Hannes hefur ekki í hyggju að
verjast í þrengri stöðu. Frekar
fórnar hann manni fyrir óljósar
bætur. Þar veðjaöi hann á réttan
hest. Fórnin stenst ekki en hún
kom mótherja hans mjög á óvart,
sem nær ekki að fóta sig á svellinu.
29. fxe5 Bxe5 30. Bd4?
Eftir langa yfirlegu að skákinni
lokinni komust teflendur að því að
með 30. Bg5! Hxg5 (þvingað) 31.
Dxg5 Hxd6 32. Hxd6 Dxd6 33. Hd2!
ætti hvítur að vinna. Eftir leikinn
í skákinni leystist taflið upp í jafn-
tefli.
30. - Hxg2+ 31. Kxg2 Dg7+ 32. Dg3
Bd5+ 33. Kgl Bxd4+ 34. Hxd4 Hxd6
35. Bxf5 De7 36. Be4 He6 37. Db8+
Kg7 38. Dg3+ Kh8 39. Db8+ Kg7 40.
Dg3+ Kh8
Og jafntefli með þráskák.
Bridge
EM yngri spilara í Þýskalandi:
Geir Helgemo frá Noregi sýndi besta úrspilið
Eins og kunnugt er af fréttum stóð
unglingalandslið íslands sig vel á EM
yngri spilara í Þýskalandi fyrir
stuttu. Sveitin hafnaði í 9. sæti af 22,
vann 11 leiki, jafnaði einn en tapaði
9, þar af 5 með mjög htlum mun.
En það var hins vegar norska sveit-
in sem varð Evrópumeistari. Hún
var skipuð eftirtöldum spilurum:
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Per Ame Flaatt, Frode Nybo, Geir
Helgemo, Ole Berset, Paul Thomass-
en, Svein Ernstsen, Sverre Johnsen
NPC. Félag Alþjóöabridgeblaða-
manna, IBPA, valdi m. a. besta úr-
spil mótsins og féll sá heiður í hlut
nýkjörins Evrópumeistara Geir Hel-
gemo frá Noregi.
Viö skulum skoða handbragðið.
A/Alhr
♦ 10985
¥ 10
♦ 10875
+ DG85
♦ 74
¥ KG965
♦ K2
+ Á976
♦ ÁK3
¥ D8732
♦ DG43
4» 3
Spihð kom fyrir í leik Noregs og
Tékkóslóvakíu. í opna salnum sátu
n-s Kaplan og Stupka en a-v Helgemo
og Flaatt. Þar gengu sagnir á þessa
leið:
Austur Suður Vestur Norður
lhjarta pass lspaði pass
21auf pass 2tíglar pass
2 grönd pass 3 grönd pass
pass pass
Suður spilaöi út tígulþristi og Hel-
gemo drap á kónginn heima. Að
vörmu spori birtist hjartagosi sem
fékk að eiga slaginn meðan Helgemo
horfði með velþóknun á hjartatíu
norðurs. Síðan kom lítið lauf á kóng-
inn, þá laufatía, gosinn frá norðri og
gefið. Suöur var byrjaður að finna
þrýstinginn og lét spaðaþrist. Norður
hélt áfram meö tígulinn, Helgemo gaf
einu sinni og átti næsta slag á ásinn
meðan hann lét hjarta að heiman.
Næst var laufaníu svínað og síðan
kom hjartaás. Staðan var nú þessi:
♦ 1098
¥ -
♦ 10
+ D
♦ DG62
¥ -
♦ -
4» 4
♦ ÁK
¥ D8
♦ D
Og nú kom banabiti suðurs þegar
Helgemo spilaði laufi á ásinn og byij-
aði að skrifa 600 í sinn dálk. Einhver
hefði sagt að hann spilaði eins og
maður sem sæi öll spilin!
Stefán Guðjohnsen
Úrval
- verðið hefur
laekkað
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
* UUbZ
¥ Á4
♦ Á96
-1. i/m/to