Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Síða 3
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
dv____________________________________________Fréttir
KristLnn Pétarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um Blöndu:
Spákaupmennska í
orkuverum er röng
- veikirsamningsstöðunaumorkuverðtilálvers
„Spákaupmennska í orkuverum er
ekki í samræmi viö hagsmuni þjóö-
arinnar. Það á auövitað fyrst að
semja um sölu orkunnar og svo á aö
byggja virkjanir. Það veikir samn-
ingsstöðuna mjög að virkja fyrst og
koma svo að samningaborðinu. Þá
eru menn komnir í verri samnings-
stööu þar sem lítið verður betra en
ekki neitt og orkan er seld fyrir lægra
verð. Það er sú staða sem samninga-
nefndin um álver hefur lent í,“ sagði
Kristinn Pétursson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við DV.
„Ef hugsað er um nytsemi íjárfest-
inga þá hefði sú fjárhæð sem búið
er að setja í Blönduvirkjun, 12-13
milljarðar, skilað þjóðinni mun meiri
arði hefði hún til dæmis verið komin
í nauðsynlegustu jarðgöng á Austur-
og Vesturlandi. Arður þjóðarinnar
af jarðgangnagerð er meiri en hingað
til hefur verið látið í veðri vaka.
Aukin framleiðni alls atvinnulífsins
Egilsstaðir:
10 ára drengur varð fyrir bíl
10 ára gamall drengur varð fyrir akandi. Ökumaður bílsins varð ekki sögn lögreglu fór betur en á horfðist
fólksbifreið á Tjarnarbraut á Egils- var við drenginn fyrr en of seint. í fyrstu. Drengurinn hlaut þó meiðsl
stöðum á þriðjudagskvöldið. Dreng- Lenti drengurinn framan á bílnum í andliti. Að lokinni meðferð hjá
urinn var að fara á reiðhjóli yfir götu og kastaðist síðan í götuna. lækni fékk hann að fara heim.
viðgangbrautþegarfólksbifreiðkom Hann var fluttur á sjúkrahús. Að -ÓTT
Kristinn Pétursson alþingismaður.
og möguleikar verslunar til að
minnka lagera sína og fleira eru ekki
inni í arðsemisútreikningum jarð-
gangna.
Það er mikið talað um offjárfesting-
ar í atvinnulífinu. Þessi samanburö-
ur á jarðgöngum og orkuveri er mjög
góður þar sem framkvæmdavaldið
er í bullandi oftjárfestingu yið
Blönduvirkjun. Það hefur auðvitað
neikvæð áhrif á lífskjörin í landinu
að fjárfesta í einhverju sem ekki skil-
ar þjóðinni neinu. Þannig er enn
ekki búið að selja orku úr Blöndu í
eina ljósaperu."
- Nú er litið á Blönduvirkjun nán-
ast sem sendingu af himnum í kostn-
aðarverði orku við nýtt álver þar sem
hún er þarna bara og orkusala af
henni reiknast sem hreinn gróði?
„Það er tómur þvættingur. Fram-
kvæmdahraðinn við Blöndu, níu ár,
er bara gutl og gauf. Öll spákaup-
mennska í orkuverum án þess að
hafa selt orkuna er röng þar sem hún
veikir samning'sstöðuna við sölu á
orkunni. Það er grundvallaratriði í
þessu máli.“
-hlh
ZE
S52E
3E
Tilboð vikunmr
Sérríbœtt rjómasveppasúpa
Kolagrilluð nautafillet-sneið
með béarnaisesósu, grœnmeti,
bakaðri kartöflu og kaffi
kr. 980,-
Pizzutilboð
mánudag, þriðjudag og miðvikudag
kr. 450,-
Opiðfrákl. 11.30 til 23.30
Hamraborg 11 - sími 42166
ER TÍMINN FYRIR
HELGARFERÐIR - VERSLUNARFERÐIR
HÓTEL I MIÐBORG AMSTERDAM
Verð frá kr.
Innifalið er: flug og gisting í 3 nætur á Crest Hotel í 2ja manna herbergi
í miðborg Amsterdam með morgunverði.
Flugvallaskattur ekki innifalinn. Verð miðað við verðskrá 1.10.90.
BROTTFÖR ALLA ÁÆTLUNARDAGA FLUGLEIÐA TIL AMSTERDAM
KANARÍEYJAÁÆTLUN OG VERÐ Á SKRIFSTOFUNNI
Ferðaskrifstofan Alís býður upp á aðstoð við skipulagningu viðskiptaferða og útvegar góð
hótel og bílaleigusamninga.
Helgarferðir á áfangastaði Flugleiða, t.d. Glasgow, London, Lúxemborg (Trier), Kaupmanna-
höfn og New York svo eitthvað sé nefnt.
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Hafið samband - Sjáumst
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði