Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Page 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
Gengið frá samningsáfanga í álviðræðunum:
Sérstök bókun um
orkuverð vekur athygli
„Við höfum nú komist aö niöur-
stöðu um samningsgrundvöll um
marga þætti málsins en þaö er ennþá
allmikil vinna eftir. Fyrst og fremst
til að ganga frá samningum - fylla
inn í eyður og síðar affgánga frá loka-
samþykkt en það er háð samþykki
Alþingis, stjómar Landsvirkjunar og
að sjálfsögðu fyrirtækjanna," sagði
Jóhannes Nordal, formaður íslensku
samninganefndarinnar, þegar samn-
ingar voru undirritaðir við fulltrúa
Atlantsáls í Borgartúni í gær.
Samningurinn sjálfur lá ekki fyrir
til dreifingar en í útgáfu iðnaðar-
ráðuneytisins segir: „Þar er fjallað
um framvindu samningsgerðarinn-
ar, staðsetningu álversins og atriði
varðandi aðalsamning, orkusamning
og hafnar- og lóðarsamning. Þá er
staðfest málsmeðferð varðandi út-
gáfu starfsleyfis. Er þannig lagður
grundvöllur að frumvarpi til laga um
nýtt álver og þinglegri meðferð máls-
ins nú í haust.“
Það kemur engum á óvart að Keil-
isnes á Reykjanesi varð fyrir valinu
en hins vegar vekur athygh sérstök
bókun um „ . . . meginniðurstöður
viðræðna um orkusamning sem ráð-
gerður er milli Landsvirkjunar og
Atlantsálsaðilanna. ‘ ‘
í bókuninni segir að orkuverðið
verði ákveðið hlutfall af álverði og
að veittur verði afsláttur fyrstu árin.
„Þessi bókun hefur fyrst og fremst
þá merkingu að koma okkur niður á
hugsanlegan samningsgrundvöh um
nokkur mikilvæg atriði í sambandi
við orkuverð - hve mikil orka verður
seld og lágmarksákvæði um greiðsl-
ur,“ sagöi Jóhannes.
Því hefur verið haldið fram að með
þessu sé unnt aö fara framhjá neitun
stjómar Landsvirkjunar á að gefa
samþykki sitt. Jóhannes neitaði því:
„Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að stjórn Landsvirkjunar
er sá aðili sem á langmest undir þess-
um samningum komið, þess vegna
er eðlilegt að hún fari ofan í saumana
á öllum atriðum. En í því felst ekki
að menn séu neikvæðir um málið,“
sagði Jóhannes. Hann sagði að form-
lega myndi stjórn Landsvirkjunar
líklega ekki skrifa undir samning um
orkuverð fyrr en á næsta ári.
-SMJ
Atakafundur hjá stjóm Landsvirkjunar:
Orkuverðið er nánast
órætt í stjórninni
- segirSiguijónPétursson
„Það getur engin skuldbundið neitt
fyrir Landsvirkjun né ákveðið neitt
um orkuverð nema stjórn Lands-
virkjunar. Það er hennar umboð að
gera það og hún hefur ekki fallist á
eitt né neitt um orkuverð þannig að
allir samningar þar um væru hreint
ómark,“ sagði Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi, sem situr í stjórn
Landsvirkjunar sem fulltrúi Al-
þýðubandaiagsins, en á stjórnar-
fundi Landsvirkjunar í gær urðu
miklar umræður um orkuverð til
álvers..
Á fundinum var formaður stjórn-
arinnar, Jóhannes Nordal, spurður
hvort hann ætlaði að skrifa undir
drög að samningi viö Atlantsál sem
stjómarformaður Landsvirkjunar.
Mun Jóhannes hafa svarað því til að
hann myndi skrifa undir álsamning-
inn sem formaður íslensku viðræðu-
nefndarinnar.
Þá voru tvær bókanir lagðar fram
á fundinum, annars vegar af hálfu
Sigurjóns og Finnboga Jónssonar og
hins vegar af hálfu Páls Péturssonar,
þingflokksformanns framsóknar-
manna.
„Hvorki stjórn Landsvirkjunar né
nokkur aðili í umboði hennar hefur
fjallað um orkuverð við þessa aðila,“
sagði Sigurjón, en í bókun hans segir
meðal annars: „Þrátt fyrir að stjórn
Landsvirkjunar hafi sáralítið rætt
hugsanlegt orkuverð og þó hún eða
fulltrúar í beinu umboði hennar hafi
aldrei hitt eða rætt við væntanlega
orkukaupendur virðist nú vera kom-
ið aö lokum samninga." Einnig segir
í bókuninni að það sé augljóst að það
eigi að stilla stjórninni upp gagnvart
fullbúnum orkuverðssamningi.
Sigurjón sagðist ekki geta séð ann-
að en að enn væri langt í land með
að stjórn fyrirtækisins gæti sam-
þykkt orkuverð til nýs álvers enda
væri málið svo að segja órætt í
stjórninni. Þá sagði hann að það yrði
ekki fyrr en 20. október sem næsti
fundur um málið yrði.
-SMJ
Undirritun iðnaðarráðherra:
Ekki skuldbinding
fyrir ríkisstjórnina
- segir Gunnar G. Schram lagaprófessor
„Samkvæmt starfsskiptingu ráð-
herra innan ríkisstjórnarinnar þá
heyra stóriðju- og orkumál undir iðn-
aðarráðherra og hann hefur heimild
til að fjalla um þau sem slíkur. Hins
vegar þarf meira til ef skuldbinda á
íslenska ríkiö' eða ríkisstjórnina í
heild í álmálinu. Samkvæmt yfirlýs-
ingum þarf ríkisstjórnin öll að
standa að því og tryggur þingmeiri-
hluti að vera fyrir hendi,“ sagði
Gunnar G. Schram lagaprófessor
þegar hann var spurður um stjórn-
skipunarlegt mikilvægi yfirlýsingar
þeirrar sem iðnaðarráðherra skrif-
aði undir í gær.
Sein kunnugt er þá greinir menn
rpjög á um mikilvægi þessarar undir-
skriftar enda telja til dæmis ráð-
herrar Alþýðbandalagsins að þar
hafi iönaðarráðherra skrifaö undir í
eigin nafni og á eigin ábyrgð. Undir-
skriftin hafi í raun ekkert meiri
merkingu.
Þeir sem DV leitaöi til varðandi
lögfræðilegan þátt málsins taka und-
antekningalaust fram að þeir geti
ekki undir nokkrum kringumstæð-
um litið á þetta sem samning. Þarna
sé fyrst og fremst um viljayfirlýsingu
að ræða sem veröur að semja laga-
frumvarp úr.
Á þaö verður hins vegar að benda
að ekki verður skrifað undir neitt
meira fyrr en samningurinn sjálfur
verður undirskrifaður að fengnu
samþykki Alþingis. Ekki hefur til
dæmis fengist botn í hvort íslending-
ar yrðu skaðabótaskyldir ef fallið frá
framkvæmdunum.
Þá hefur DV heimildir fyrir því að
meðal embættismanna og þeirra sem
í samningaviðræðunum hafa staðið
sé litið á þetta sem mikilvægan
áfanga. Það slær reyndar á mikil-
vægiö að Jóhannes Nordal skyldi
ekki fá samþykki stjómar Lands-
virkjunar til aö skrifa undir orku-
verðsþáttinn.
„Ég held að þetta sé stöðuyfirlýs-
ing, svona hálfgerð áfangaskýrsla og
lítið meira,“ sagði einn lögfræðingur
sem leitað var til.
-SMJ
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra skrifaði undir „staðfestingu á samningsáfanga" í álviðræðunum í Borgartúni í
gær. Við hlið hans situr einn af varaforsetum Alumax, Robert G. Miller, en hann er talsmaður samninganefndar
álfyrirtækjanna.
Stjóm Landsvirkjunar fær nýjar orkuverðstölur:
Meðalorkuverð til ál-
vera er 20,3 mills
„Með þeim hugmyndum sem nú
eru uppi er verið að binda alla bestu
virkjanakosti Landsvirkjunar við
verð sem er umtalsvert lægra en
meðalverð til álvera í heiminum,"
sagði Sigurjón Pétursson sem situr í
stjórn Landsvirkjunar.
Á fundi stjórnar Landsvirkjunar í
gær var lagt fram línurit frá James
F. King, sem unnið hefur að orku-
og álverðsspám fyrir Landsvirkjun,
sem sýnir að meðalorkuverð til ál-
vera á Vesturlöndum er 20,3 mills.
Hér er hins vegar rætt um að meðal-
verðið til Atlantsáls verði 18,3 mills.
Þetta verð sveiflast frá 6 mills upp í
60 mills.
Þá mun vera gert ráö fyrir að há-
marksverð til álversins verði bundið
fyrstu árin sem þýði að það fari ekki
upp fyrir 14 mills. Sigurjón sagði að
þetta hámark yrði einmitt við lýði á
þeim tíma sem gert er ráð fyrir að
álverðið verði í hámarki. í þeim spám
sem lagðar hafa fyrir er gert ráð fyr-
ir að verðið verði í hámarki til 2003.
„Á þeim tíma sem spáð er háu ál-
verði er búið að tryggja orkukaup-
endunum hámarksverð eöa lágt
orkuverð en þegar óvissan tekur við
og spáð er að álverð fari lækkandi
þá verður orkuverðið aö fullu tengt
álverðinu. Öll áhættan er sett á ís-
lenska aðila,“ sagði Sigurjón.
Erum með svipað verð
og í Kanada
„Það sem þarna er verið að tala um
er meðalverð til allra bræðslna sem
eru starfandi í heiminum í dag. Inni
í því eru margar bræðslur sem eru
með hátt orkuverð frá fyrri tíð og
munu vafalaust ekki starfa mjög
lengi úr þessu,“ sagði Jóhannes
Nordal, stjórnarformaður Lands-
virkjunar, þegar hann var spurður
um þetta meðaltal.
„Það kom einnig fram hjá King að
í þeim samningum, sem er verið að
gera í heiminum, liggur orkuverð á
bihnu 10 til 20 mills. Þaö sem er til
dæmis verið að semja um í Kanada
er á svipuðu róli og við erum að tala
um. Það skiptir auðvitaö miklu máli
að við erum í samkeppni við aðra
staði í heiminum. Það eru margir
sem vilja fá álbræðslur byggðar í sín-
um löndum og við erum frekar í
hærri kantinum í verði miöað við þá
sem nýlega hafa samið um orkusölu
til álvera,“ sagði Jóhannes. -SMJ
Þingflokkur Alþýðubandalagsins:
Fráleitt að iðnaðarráðherra skrif i undir
„Þingílokkur Alþýöubandalagsins
bendir á að gefnu tilefni að flestir
þættir hugsanlegra samninga um
nýtt álver þarfnast nánari athugun-
ar, til dæmis hvaö varðar umhverfis-
mál og mengunarvamir, svo og
ákvæði um orkuverð sem bersýni-
lega eru ekki nógu hagstæð og fela í
sér mikla áhættu," segir meðal ann-
ars í samþykkt þingflokks Alþýðu-
bandalagsins frá í gærmorgun.
Þá minnir þingflokkurinn á yfir-
lýsingu forsætisráðherra um að rík-
isstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa
ekki tekið afstöðu til neinna efnisat-
riða í samningsvinnunni. Þá segir:
„Þingflokkurinn telur því fráleitt
að iðnaðarráðherra undirriti áfanga-
niðurstöðu í nafni ríkisstjórnarinnar
með hinum erlendu samningsaöilum
þegar ekkert samkomulag liggur fyr-
ir um málið milh stjórnarflokkanna
og lýsir því yfir aö Alþýðubandalagið
er með öllu óbundið af undirskrift
ráðherrans í þessu máh.“
Loks lýsir þingflokkurinn furðu
sinni yfir formlegum viðræðum ráð-
herra Alþýðuflokksins við forystuliö
Sjálfstæðisflokksins um máhð með-
an það er enn til umfjöllunar í ríkis-
stjórn og harmar ef vinnubrögð ráð-
herrans verða til að spilla samvinnu
stjórnarflokkanna. -hlh