Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
Viðskipti
Stríö innflytjenda viö skipafélögin leiöir af sér aukna samkeppni:
T-línan til Islands til
að ógna Eimskip og SÍS
- stórkaupmenn vilja einfaldari og lægri gámataxta
Flutningaskipið Hove, sem danska skipafélagið T-line hefur tekið á leigu
fyrir íslandssiglingarnar. Þetta skip hafði Eimskip á leigu fyrir nokkrum
árum. Það er er um 1 þúsund brúttólestir og ber 110 gáma.
Agreiningur á milli Félags ís-
lenskra stórkaupmanna við Eimskip
og Sambandið, um að gámataxtar
félaganna verði færri, einfaldari og
með jafnari afslætti, hefur leitt af sér
nýja og óvænta samkeppni í sigling-
um á milli íslands og Evrópu með
siglingum danska skipafélagsins T-
line. Þetta félag var stofnað í sumar
og að því standa danskir kaupsýslu-
menn sem þekktir eru í skiparekstri.
íslandssiglingar eru aðaltilgangur
félagsins. Það verður með eitt skip,
sem tekur 110 gáma, í siglingum á
milli íslands, Englands, Hollands og
Þýskalands á hálfsmánaðarfresti.
Heimahöfnin verður Hafnarfjörður.
Árni Reynisson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra stórkaupmanna.
„Við viljum sjá taxtaflækjuna víkja
fyrir jafnari töxtum. Við viljum að
taxtarnir séu einfaldir, sanngjarnir
og öllum skiljanlegir."
Skipafélögin hafa ekki
gefið eftir með taxtana
Forsaga málsins er sú að íslensku
skipafélögin gáfu ekki eftir í viðræð-
um við hagræðingarnefnd Félags ís-
lenskra stórkaupmanna og sögðust
þau hafa sína gámataxta áfram og
vinna eftir þeim. Krafa nefndarinnar
var að innflytjendur greiddu eitt verð
fyrir einn gám án tillits til þess hvað
væri í gámnum þannig að mismunur
á gámatöxtum færi eingöngu eftir
stærð gámanna. Um þetta náöist ekki
samkomulag.
Ódýrari frakt til landsins
Einstakir félagsmenn á meðal stór-
kaupmanna mynduðu þá með sér
áhugasamtök um ódýrari frakt til
landsins. Þeir vildu láta reyna á
málið með aukinni samkeppni og
höfðu samband við Baldvin Jónsson,
sem áður rak Skipamiðlunina. Hann
hefur brett upp ermarnar og fengiö
danska skipafélagið T-line til að sigla
til íslands og er Baldvin umboðsmað-
ur félagsins hér á landi.
Samkeppni sé ævinlega
í hámarki
„Ég vil að það komi fram aö Félag
íslenskra stórkaupmanna stendur
ekki fyrir komu þessa danska skipa-
félags heldur einstakir áhugamenn
úr röðum innflytjenda,“ segir Árni
Reynisson, framkvæmdastjóri Fél-
ags íslenskra stórkaupmanna.
„Félagi stórkaupmanna er ætlað
að stuðla að því að samkeppni sé
ævinlega í hámarki og vekja á því
athygli þegar félagsmönnum finnst
vera farið að dofna yfir samkeppn-
inni.“
Árni segir aö koma danska skipa-
félagsins til íslands sé eðlileg afleið-
ing þess að ekki hafi í venjulegum
viðræðum náðst samkomulag um að
breyta verði fyrirkomulagi gáma-
flutninganna. Fyrir því séu dæmi að
farið hafi verið út svipaðar aðgerðir
til að ná fram betri þjónustu.
Bifröst og Lion Air
Hann segir að gott dæmi þar um
sé þegar bílainnflytjendur tóku
höndum saman og stóðu aö skipafél-
aginu Bifröst. Afleiðingin hafi orðið
aukin þjónusta skipafélaganna. Enn-
fremur megi minna á það þegar
verkalýðshreyfingin leitaði út fyrir
landsteinana um leiguflug og náði
samningum við franska flugfélagið
Lion Air. Það hafi síðar leitt til hag-
kvæmari samninga verkalýðshreyf-
ingarinnar við Flugleiðir.
Varðandi mismunandi taxta í
fanngjöldum segir Ámi að upphafið
megi rekja til þess þegar skipafélögin
fluttu hingað vörur aðallega í
stykkjatali og augljóslega hafi verið
mismikil vinna og áhætta við að
flytja mismunandi vörategundir. Á
þeim tíma mátti rökstyðja mismun-
andi verð eftir vörutegundum.
„Taxtaflækjan víki“
„Framþróun í flutningum hefur
hins vegar leitt til þess að nú er inest
flutt inn með gámum. Það er mjög
svipuð vinna og áhætta við aö flytja
vörur með gámum og því verður að
teljast eðlilegt að gámataxtar sé einn-
ig svipaöir án tillits til vörutegunda.
Þess vegna viljum við ekki byggja
taxtana áfram á einhveijum söguleg-
um ástæöum heldur vfil Félag ís-
lenskra stórkaupmanna sjá taxta-
Baldvin Jónsson, fulltrúi T-line hér á landi:
Átti að gerast fyrir
meira en tíu árum
„Þaö er ekki aðeins aö við séum
að tala um miklu ódýrari frakt held-
ur er hér um grundvallarbreytingu
að ræða í gámaflutningum til lands-
ins. Það skiptir ekki máli hvað er í
gámunum eða hvort þeir eru fullir
eða tómir. Það er aðeins eitt verð
fyrir að flyfja hvern gám. Um eigin-
lega taxtabók verður ekki að ræða
heldur eru taxtarnir eingöngu fyrir
ákveðnar gámastærðir. Þetta skiptir
öllu,“ segir Baldvin Jónsson, fulltrúi
T-line skipafélagsins hér á landi.
Aö sögn Baldvins hefði sú breyting,
sem verður með nýrri verðlagningu
T-line skipafélagsins í gámaflutning-
um, átt að gerast fyrir meira en tíu
árum hérlendis.
„Það hefur ekki tekist að fá Eim-
skip og Skipadeild Sambandsins til
að taka upp þetta fyrirkomulag sem
tíðkast alls staðar erlendis og gerir
flutningamiðlunum miklu auðveld-
ara að gera innflytjendum tilboö í
fraktina. En þetta á eftir að breytast.
Berlínarmúrinn hrundi og það eru
allir múrar að hrynja í viðskiptum í
Evrópu. Það á eftir að gerast hér á
landi líka.“
Baldvin segir ennfremur að T-line
sé danskt skipafélag sem stofnað
hafi verið í sumar fyrir íslandssigl-
ingamar. Eigendur þess séu aðilar í
skiparekstri og ýmsir fjárfestar. Fé-
lagiö hefur tekið skipið Hove á leigu.
Heimahöfn T-Une verður Hafnar-
íjörður. Skipið fer frá Hafnarfirði
annan hvem þriðjudag og verður í
Grimsby .í Englandi á sunnudegi, í
Rotterdam í Hollandi á þriðjudegi og
Hamborg í Þýskalandi á fimmtudegi.
Þaðan heldur skipið til Hafnarfjarð-
ar.
„Ég hef enga trú á öðru en að næg
verkefni verði fyrir skipið. Það er
mikill áhugi á þessu máh af hálfu
innflytjenda, jafnt stórra sem
smárra. Þaö er búið að vinna að
Þetta verður siglingaleið T-line.
Heimahöfnin verður Hafnarfjörður.
Þar verður skipið hálfsmánaðar-
lega. Leiðin er Hafnarfjörður -
Grimsby - Rotterdam - Hamborg -
Hafnarfjörður.
máUnu í allt sumar og það er orðið
að veruleika. Skipið kemur hingað
til landsins um næstu mánaðamót,"
segir Baldvin Jónsson. -JGH
Egilsstaðir:
Ferðamálaf ulltrúi til starfa
Karen Erla Erlingsdóttir á skrifstofu
sinni á Egilsstöðum.
DV-mynd Sigrún
Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum;
„Hér er óplægöur akur í ferðamálum
og ég hygg gott til starfsins," sagði
Karen Erla ErUngsdóttir en hún tók
nýlega til starfa sem ferðamálafull-
trúi fyrir Austfirðingafjóröung á
vegum Ferðamálasamtaka Austur-
lands. Hún er ættuð frá Fáskrúðs-
firði og hefur starfaö mörg sumur
sem leiðsögumaður en er menntuð í
iþróttafræðum í Þýskalandi og nam
síðan stjórnunarfræði í Noregi.
Karen Erla sagði að í fyrstu myndi
starf hennar beinast að því að safna
saman öllu því sem til boöa stendur
í ferðamálum í fjórðungnum í því
skyni að gefa út sölubækUng og
kynna fjórðunginn á Vest-Norden
sýningu í Færeyjum næsta haust.
„Langtímamarkmið okkar er svo
að efla ferðamannaiðnaðinn í fjórð-
ungnum og fjölga atvinnutækifær-
um,“ sagði Karen Erla.
flækjuna víkja fyrir jafnari töxtum.
Viö viljum að taxtarnir séu einfaldir,
sanngjarnir og öllum skiljanlegir,“
segir Ámi Reynisson. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst.
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur ób. 2,0-2,5 Lb.Bb,- Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2,5-3 Allir nema Bb
6mán. uppsögn 3,5-4 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5 . ib
18mán. uppsögn 10 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 2-2,5 Lb.Bb,- Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Allir nema Ib
Innlán með sérkjörum 3-3,25 lb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7.25 ib
Sterlingspund 13.5-13.6 Sp
Vestur-þýskmörk 7-7,25 Sp
Danskar krónur 9-9.4 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almenmrvixlar(forv.) 12,25-13,25 Allir
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 11,25-13.5 Ib
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr ) 15,5-16,0 Bb.lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,5 Lb
Útlántilframleiðslu
Isl.krónur 11,75-13,5 Ib
SDR 11-11,25 Lb.Bb,-
Sb
Bandaríkjadalir 10-10,2 Allir nema Sp
Sterlingspund 16,5-16,7 Allir nema Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Allir
nema
Húsnæðislán 4.0 Sp
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Overötr. okt. 90 14,0
Verðtr. okt. 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala okt. 2934 stig
Lánskjaravísitala sept. 2932 stig
Byggingavisit^la okt. 552 stig
Byggingavisitala sept. 172,5 stig
Framfærsluvisitala sept. 146,8 stig
Húsaleiguvisitala óbreytt l.okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.103
Einingabréf 2 2.772
Einingabréf 3 3,358
Skammtimabréf 1.720
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5.043
Markbréf 2.685
Tekjubréf 1,991
Skyndibréf 1,506
Fjölþjóöabréf 1.270
Sjóósbréf 1 2,450
Sjóðsbréf 2 1,774
Sjóðsbréf 3 1,706
Sjóðsbréf 4 1,459
Sjóðsbréf 5 1,027
Vaxtarbréf 1.7290
Valbréf 1,6235
Islandsbréf 1,058
Fjóröungsbréf 1,033
Þingbréf 1,058
Öndvegisbréf 1.052 ,
Sýslubréf 1,062
Reiöubréf 1.043
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 560 kr.
Flugleióir 215 kr.
Hampiðjan 173 kr. >
Hlutabréfasjóður 170 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 175 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 420 kr.
Islandsbanki hf. 171 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Oliufélagið hf. 558 kr.
Grandi hf. 188 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 635 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaó-
inn birtast í DV á fimmtudögum.