Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Síða 9
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
9
Utlönd
Kosningar til Lögþings 1 Færeyjum ákveðnar 17. nóvember:
Sundstein mistókst að
mynda nýja landstjórn
Pauli Ellefsen ákveðinn í að hætta þingmennsku endanlega
Lögþing Færeyja ákvaö í gær-
kvöld að þing skyldi rofið og boðað
til nýrra kosninga í nóvember. Jog-
van Sundstein, lögmaður og einn
af þingmönnum Fólkaflokksins,
sendir í dag frá sér tilkynningu um
kosningarnar sem líklegast er að
haldnar verði þann 17. nóvember.
Aðeins einu sinni áður hefur Lög-
þing Færeyja verið rofið áður en
kjörtímabili lýkur í þau 40 ár sem
eyjarnar hafa haft sjálfstjórn. Jog-
van Sundstein reyndi fram á síð-
ustu stundu að koma í veg fyrir
þingrofið en engir möguleikar virð-
ast vera á að mynda nýja stjórn
eins og valdahlutföll eru nú á þing-
inu.
Stjórnarsamstarfi þriggja flokka
var formlega shtið fyrr í vikunni
eftir að slitnaði upp úr stjórnar-
samstarfinu í vikunni áður. Sund-
stein reyndi í fyrstu að koma sam-
an nýrri meirihutastjórn borgara-
flokkanna en þegar það mistókst
var reynt að koma á minnihluta-
stjórn Fólkaflokksins og Þjóðveld-
isflokksins. Það tókst ekki og þá
reyndi Sundstein stjórnarmyndun
með Jafnaðarmönnum en það fór
á sömu leið.
Þrátt fyrir að lögþingsmenn væru
um það sammála við umræðurnar
í gær að engin leið væri að mynda
stjórn án nýrra kosninga komu
fram miklar efasemdir um að hlut-
föhin á næsta þingi yrðu hagstæð-
ari.
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum í Færeyjum færu Jafn-
aðarmenn með sigur af hólmi í
kosningunum. Þeir fóru með stjórn
eyjanna kjörtímabhið fyrir kosn-
ingarnar 1988. Þá biðu þeir ósigur
og hafa verið í stjórnarandstöðu
eftir það.
Þegar nýtt Lögþing kemur saman
verða frægar kempur í færéyskum
stjórnmálum sestar í helgan stein.
Pauli Ellefsen, fyrrum formaður
Sambandsflokksins, hefur þegar
tilkynnt að hann ætli ekki að bjóða
sig fram. Hann hefur verið ósáttur
við flokksmenn sína frá því að þeir
studdu hann ekki til formennsku í
þingflokkum í vor.
Karin Kjölbro, þingmaður Þjóð-
veldisflokksins, hefur einnig til-
kynnt að hún ætli ekki að bjóða sig
fram oftar. Hún komst fyrst á Lög-
þingið árið 1978 og var fyrsta konan
til að taka þar sæti.
Ritzau
Filippseyjar:
Gagnárás á uppreisnarmenn
Stjórnarhermenn á Filippseyjum
gerðu g£(gnárás á uppreisnarher-
menn á Mindanao-eyju í morgun.
Lýstu embættismenn því yfir að upp-
reisnarmenn myndu fljótlega gefast
upp.
Varpað var sprengjum úr tveimur
flugvélum á uppreisnarmenn sem
halda aðalbækistöðvum hersins við
Butuan. Einnig var skotið eldflaug-
um á uppreisnarmennina við Butuan
sem er önnur þeirra borga sem þeir
náðu á sitt vald í gær.
Að því er sjónarvottar sögðu særð-
ist einn uppreisnarhermaður alvar-
lega. Flestir uppreisnarmannanna,
Alexander Noble uppreisnarforingi.
Hann er fyrrum yfirmaður lífvarða-
sveitar Corazon Aquino, forseta
Filippseyja. Símamynd Reuter
sem eru sagðir vera þrjú hundruð,
höfðu yfirgefið herbúðirnar og flúið
til borgarinnar er þeir heyrðu í flug-
vélunum. Um sex hundruð uppreisn-
armenn eru sagðir vera í Cagayan
de Oro, hinni borginni sem þeir her-
tóku. Hefur leiðtogi uppreisnar-
manna, Alexander Noble, gert
Cagayan de Oro að aðalbækistöðvum
sínum.
Varnarmálaráðherra Filippseyja,
Fidel Ramos, flaug til Davao-borgar
á Mindanao í morgun th að stjórna
sjálfur aðgerðum hersins.
Reuter
m fesTM
Kosningarnar 1 Austurríki:
Frjálslyndum spáð auknu ffylgi
Tryggvi M. Baldvinsson, DV, Vín:
Baráttan fyrir þingkosningarnar í
Austurríki á sunnudaginn stendur
nú sem hæst. Samkvæmt skoðana-
könnunum munu stóru flokkarnir
tveir, Sósíalistaflokkurinn og Þjóð-
arflokkurinn, tapa þó nokkru
fylgi en Græningjar og sér í lagi
Frjálslyndi flokkurinn vinna mikið
á.
Síðustu ár hefur samsteypustjórn
sósíahsta og Þjóðarflokks farið með
völdin en nú bendir margt til þess
að Frjálslyndi flokkurinn komi í
veg fyrir „fílabrúðkaupið" én svo
var síðasta stjórnarmyndun köll-
uð.
Frjálslyndir hafa lagt mikla
áherslu á útlendingavandamálið
svokallaða en þúsundir flótta-
manna hafa sest að í Austurríki á
síðustu mánuðum. Vilja frjálslynd-
ir herða eftirlit með landamærum
og auka löggæslu til muna vegna
síhækkandi glæpatíðni sem sögð
er fylgja innflytjendum. Einnig
hafa tíð hneykslismál í stjórnartíð
fráfarandi stjórnar verið vatn á
myllu frjálslyndra og ber þar
sennilega hæst Noricum-vopna-
sölumáhð en Austurríkismenn
seldu írönum fallbyssur á meðan
styrjöld írana og Iraka stóð sem
hæst. Samkvæmt lögum er bannað
að selja vopn til þjóða sem eiga í
stríði. Mál þetta hefur valdið ýms-
um fyrrverandi og núverandi ráða-
mönnum þjóðarinnar álitshnekki.
Þó nokkurt áhyggjuefni þykir að
um tíu prósent þeirra sem kusu
síðast segjast ekki ætla að kjósa nú
og hefur hlutfall þeirra aldrei áður
verið svo hátt. Eitt er þó víst, kosn-
inganna á sunnudag er beðið með
óþreyju í herbúðum frambjóðenda
sem og annars staðar.
Lögreglan í Osaka grýtt
- lögreglumenn sakaðir um mútuþægni
Um 60 lögregluþjónar hafa slasast
í mótmælum borgara í Osaka í Japan
vegna stöðugra sögusagna um spill-
ingu innan lögreglunnar. Nú í morg-
un komu um 400 verkamenn saman
fyrir utan lögreglustöð í einu af fá-
tækrahverfum borgarinnar og köst-
uðu grjóti að lögreglumönnum.
Þetta er þriðji dagurinn í röð sem
Osakabúar hafa í frammi mótmæli
við lögregluna. í morgun voru 28
mótmælendur handteknir en slys
urðu ekki á fólki.
Ólætin byijuðu á miðvikudaginn
þegar lögregluþjónn var handtekinn,
grunaður um að hafa þegiö háar
mútur frá glæpaflokkum sem eru
öflugir í borginni. Lögreglumaður-
inn heitir Tsutomu Haga.
Þeir sem báru féð á Haga hafa ver-
ið handteknir. íbúar í Osaka halda
því þó fram að þeir verði aldrei
ákærðir því að þeir tilheyra voldug-
ustu glæpahringjum í Japan. Reuter
Mál lögregluþjónsins Haga hefur komiö af stað ólátum i Osaka.
Simamynd Reuter
Jaruzelski, forseti Póllands, hefur ákveðið að draga sig í hlé. Baráttan um
forsetaembættið stendur nú milli Mazowieckis forsætisráðherra og Walesa,
leiðtoga Samstöðu. Teikning Lurie.
Forsetakosningamar í Póllandi:
Barátta Walesa og
Mazowiecki haf in
Eftir margra vikna hik hefur nú
forsætisráðherra Póllands, Tadeusz
Mazowiecki, thkynnt að hann æth í
framboð th embættis forseta. Barátta
mihi hans og fyrrum leiðtoga hans í
Samstöðu, Lech Walesa, fyrir for-
setakosningarnar 25. nóvember er
því hafin.
Mazowiecki, sem nýtur mikhlar
virðingar og stuðnings sem forsætis-
ráðherra, thkynnti ákvörðun sína í
gær. Kvaðst hann hafa velt málinu
fyrir sér vikum saman.
Ýmsir aðrir stjórnmálamenn hafa
thkynnt að þeir muni bjóða sig fram
ef þeir geti safnað þeim hundrað
þúsund undirskriftum sem th þarf.
Hins vegar er tahð víst að aðalbarátt-
an verður milli Mazowieckis og Wa-
lesa.
Þá greinir helst á um hvaða leið
eigi að fara th að koma á fullu lýð-
ræði í landinu. Walesa er hlynntur
skjótum breytingum og vill enga
samninga við fyrrum kommúnista.
Mazowiecki vill aftur á móti fara
hægar í sakirnar og halda stöðug-
leika í þjóðfélaginu. Hann er heldur
ekki hlynntur hefndaraðgerðum.
Frá því að Walesa útnefndi
Mazowiecki í embætti forsætisráð-
herra fyrir ári hefur ágreiningurinn
milh þessara tveggja fyrrum félaga
farið vaxandi og hefur hann valdið
pólítískum klofningi í Samstöðu.
Þjóðarnefnd Samstööu lýsti á mið-
vikudaginn yfír stuðningi við Walesa
og þykir því víst að félagar í Sam-
stöðu muni skipuleggja stuðrhng við
hann um allt land. Það eru helst
menntamenn innan samtakanna
sem styðja Mazowiecki sem er fyrr-
um blaðamaður.
Reuter
Nýjar sögur eru nú famar á flot
um hörmulegan aðbúnað rúmen-
skra barna. I kvöld verður sýnd í
Bandaríkjunum ný heimildar-
mynd um heimili fyrir munaðar-
leysinga í Rúmeníu. Að sögn þeirra
sem séð hafa er ástandið í þessum
búðum nú likast því sem var í út-
rýmingarbúðum nasista.
Börnin er höfð nakin og mörg
þeirra era nær dauða en lífí af
hungri. Þegar stjórn kommúnista
féll um síðustu jól voru sýndar
myndir af hungruðum rúmenskum
bömum en sagt er að ástandið hafí
ekkert batnað því að ríkisstjórn
landsins hafi engan áhuga á að
bæta hlut barna sem eru of langt
leidd til að geta orðið að mönnum.
í þættinum kemur fram að stjórn
Rúmeniu viðurkemhr að 8000 börn
séu enn geymd á munaðarleys-
ingjahælum fyrri stjórnar.
Reuter