Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Page 11
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
11
Utlönd
Efasemdir um öryggi „rússnesku aðferöarinnar“ við fæðingar:
Barn drukknaði
við fæðingu í vatni
- foreldramir handteknir og ákærðir fyrir manndráp
Flestir læknar telja að fæðingar i vatni séu hættulausar og telja að barnið
hafi drukknað vegna kunnáttuleysis foreldranna.
þessa aðferð víða og starfar nú í
Lundúnum að því eina aö aðstoða
konur við slíkar fæðingar. Odent seg-
ir að hann hafi aldrei orðið vitni að
óhappi við fæðingar í vatni og segir
að annaðhvort hafi barnið verið of
lengi í vatninu eða það hafi fæðst
andvana.
Ekki hafa þeir sem skoðuðu lík
barnsins gefið upp hvort það var
andvana fætt en flest þykir benda til
að það hafi fæðst heiibrigt en síðan
drukknað skömmu eftir fæðinguna.
Fjölmargir foreldrar hafa orðið til
þess að vitna með fæðingum í vatni
eftir að fréttist af drukknun barns-
ins. Eru þeir á einu máli um aö að-
ferðin sé hættulaus og mun þægi-
legri en heföbundnar aðferðir við
fæðingar.
í Frakklandi hafa síðustu daga
komið fram kröftug mótmæh við að
yfirvöld leyfi mæðrum að fæða börn
sín í vatni. Ástæðan er að fyrir
skömmu drukknaði barn við slíka
fæðingu. Foreldrarnir, sem tóku
ákvörðunina um að barnið skyldi
fæðast í vatni, hafa verið handteknir
og ákærðir fyrir manndráp.
Barnið átti að fæðast á heimili
hjúkrunarkonu sem býr nærri borg-
inni MarseiUes. Hún var viðstödd
fæðinguna og hefur nú einnig verið
ákærð fyrir að hafa ekki komið til
hjálpar í nauð.
Hjúkrunarkonan heldur því þó
fram að hún hafi ráðið foreldrunum
frá því að reyna aðferðina og bent
þeim auk þess á að hún væri ekki
lærð ljósmóðir.
Fæðingar í vatni eru oft kallaðar
„rússneska aðferðin“ vegna þess að
þar var hún fyrst reynd. Nokkrir
læknar á Vesturlöndum hafa mælt
með henni og sumir hafa gert aðstoð
við fæðingar í vatni að atvinnu sinni
Michel Odent - læknirinn sem kynnti
fæðingar i vatni á Vesturlöndum.
enda nýtur aðferðin vaxandi vin-
sælda.
Því er haldið fram að ef barn fæð-
ist í vatni verði koma þess í heiminn
ekki eins mikið áfah og við venjuleg-
ar aðstæður. Þetta er þó mjög um-
deilt og margir læknar telja aðferð-
ina bábilju eina.
Frönsku foreldrarnir völdu sér
litla plastsundlaug fyrir fæðingar-
stað og hugðust standa einir að öllu.
Þegar bamið fæddist náði það aldrei
andanum og var látið áður en læknir
kom á staðinn. Svo virðist sem for-
eldrarnir hafi ekki áttað sig fullkom-
lega á því sem hafði gerst því fast að
klukkustund leið áður en kallað var
á lækninn.
Læknar segja að þetta eina dæmi
sýni ekki endilega að aðferðin sé
hættuleg heldur hafi foreldrarnir
sýnt mikla fávisku í að reyna þetta
á eigin spýtur. Læknarnir segja að í
höndum fagmanna þurfi börnunum
ekki að vera hætta búin.
Upphafsmaður þess að konur eigi
börn sín í vatni er læknir að nafni
Michel Odent. Hann hefur kynnt
NUERAÐ HITTA A RETTU KULURNAR
Efþú hittirfœrðu mill/ónir
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.