Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Síða 13
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
13
Lesendur
íslensku dilkarnir líkastir villibráð - en herferðir skrifstofubáknsins sliga bændur," segir m.a. í bréfinu.
r"7"4^rF"iir"TT
M nru
i **»*>&«
Milliliðaokur á afurðum
íslendingur skrifar:
íslenska dilkakjötið er ómengað og
trúlega eitt það besta sem völ er á til
manneldis. Sé nokkuð til sem kalla
mætti villibráð eru það íslensku dilk-
amir sem koma af fjalli á haustmán-
uðum eftir að hafa nærst á kjarn-
miklum gróðri afréttarlandanna. -
íslensku dilkamir hafa ekki verið .
fóðraðir með hormónum og alls kyns
ólyfjan eins og svo mörg dýr sem
ahn era í „búrum“ eða lokuðum
geymslum.
Það er illa gert að úthúða bændum
fyrir að framleiða fyrsta flokks fæðu,
hvort heldur era mjólkurvörur eða
kjöt. Ekki er rétt að ásaka bændur
fyrir verðlag þessara afurða, það má
ekki gleyma milliliðunum sem
mergsjúga allt og alla. - Slátur- og
geymslukostnaður, heildsalan og
„okur“-smásalan eru blóðsugumar.
Þá er ostaokrið óheyrilegt. Jógúrt
og skyr eru munaðarvara en ættu
ekki að vera þaö. Þegar kjötkaup-
menn pakka saman nokkrum bitum
á plastbakka og selja t.d. framhryggs-
parta á 850 kr. hvert kíló er engin
furða þótt fólk snúi sér að öðru mat-
arkyns. Væri verð á dilkakjötinu
skaplegra myndi það rokseljast öll-
um til heilla.
Það væri vitlegra en að senda það
til meginlandsins til þess að seðja
óeirðarseggi og uppreisnarmenn. Við
höfum ekki efni á að ala uppreisnar-
menn á meginlandi Evrópu, enda
munu Búlgarar hafa eyðilagt megnið
af því kjöti sem þeim var sent, vegna
þess að frystikistur þekkjast varla
þar á bæ.
Nú ætti að selja umfram-fram-
leiðsluna á skaplegu verði hér heima
og láta auglýsinga delluna, sem
fylgdi síðustu „herferð" þeirra
lambakjötsmanna á lágmarksverði,
lönd og leið. Sú endemis della var
ekkert annað en kák og kostnaður,
skilaði engu öðru en ergelsi lands-
manna yfir illa frágengnu innihaldi
pokanna, sem geymdu illa flokkað
kjöt. - Herferð af þessu tagi skilar
engu, hún er tákn skrifstofubáknsins
sem er að sliga bændur.
Athugasemd frá utanríkisráðherra:
Rangar f ullyrð-
ingar Ólafs
ísleifssonar
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra hringdi:
Fullyrðingar Ólafs ísleifssonar,
fyrrv. efnahagsráðgjafa í ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar í DV hinn 3. okt.
sl„ um að heimild til forkönnunar
vegna varaflugvaUar hafi strandað á
núverandi utanríkisráðherra er
röng.
Ósk um slíka forkönnun var fyrst
komiö á framfæri 1985, þegar sjálf-
stæðismenn fóru bæði með utanrík-
is- og samgöngumál í ríkisstjórn ís-
lands. - í stað þess að veita slíka
heimild fólu þeir Flugmálastjórn að
framkvæma könnun á eigin vegvun
og veittu til þess 1 milljón króna.
Erindi Mannvirkjasjóðs Atlants-
hafsbandalagsins var ekki sinnt fyrr
en af núverandi utanríkisráðherra, á
árinu 1989. Máhð var fuUundirbúið
og komið á lokastig og öllum málsað-
ilum, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, stjórn Mann-
virkjasjóðs og yfirstjóm Atlantshafs-
bandalagsins í Norfolk, var kunnugt
að utanríkisráðherra íslands væri
reiðubúinn að veita þessa heimild.
Það sem drap málið var heildar-
endurskoðun á framkvæmdaáætlun
Mannvirkjasjóðs í Ijósi breyttra
stöðu í alþjóðamálum og niðurskurð-
ur á fjárveitingum til sjóðsins. - Nið-
urstaðan varð því sú að stjóm sjóðs-
ins tilkynnti með formlegum hætti
að hún hefði faUið frá áformum um
byggingu varaflugvallar fyrir Norð-
ur-Atlantshafssvæðið.
Því má svo bæta við að þótt for-
könnunin hefði farið fram hefði það
því miður engu breytt um niðurstöð-
una, því að samkvæmt upphaflegri
áætlun áttu framkvæmdir ekki að
hefjast fyrr en árið 1994. - Grein efna-
hagssérfræðingsins missir því gjör-
samlega marks.
Stórkost-
leg bók
Lúðvig Eggertsson skrifar:
Ég hef stundum lagt orð í belg
um efnahagsmál enda þótt leik-
maður sé. En ég las nýlega fram-
úrskarandi bók eftir dr. Magna
Guðmunddson hagfræðing, „Líf
og landshagir“, sem ég hvet
landsmenn til að lesa, sér í lagi
alþingis- og stjórnsýslumenn.
I fyrstu segir nokkuð frá náms-
og starfsferU höfundar, nauðsyn-
legur og skemmtUegur inngang-
skafli. - Síðan er verðbólguferil-
inn rakinn, aUar götur frá stríðs-
byrjun, árið 1940 til þessa dags
og framvindan skýrð faglega og
sannfærandi.
Niðurstaðan er sú að verðbólg-
an hafi stafað af eyðslustefnu rík-
isins, erlendum lántökum og
seðlaprentun - ekki af kaupkröf-
um launþegasamtaka. Erfiðleik-
ar atvinuveganna, gjaldþrot og
stöðnun er skrUuð á reikning
ijármagnskostnaðar, lánskjara-
vísitölu og skuldaupphleöslu.
Sérhver íslendingur, sem lætur
sig varða þjóðarhag, ætti að lesa
þessa bók sem fæst í bókaversl-
unum.
rANITECH§öoo
HQ myndbandstæki
14 daga, 6 stöðva upptökuminni, þráð-
laus fjarstýring, 21 pinna „Euro Scart''
samtengi „Long play'' 6 tíma upptaka
á 3 tíma spólu, sjálfvirkur stöðvaleit-
ari, klukka + teljari, ísl. leiðarvísir.
Sumartilboð 29.950 •” stgr.
Rétt verð 36.950.- stgr.
E3 Afborgimarskilmálar
ELIZABETH ARDEN
KYNNING I DAG
OPIÐ LAUGARDAGA 10-14
Latígavegi 17
Laugardagskaffi Kvennalistans
Stóriðja - kostir og gallar
Munið laugardagskaffi Kvennalistans
Laugavegi 17 kl. 10.30
laugardaginn 6. október.
Gestir:
Sigurbjörg Sæmundsdóttir umhverfisverkfræðingur
Jón Ingimarsson verkfræðingur
Yngvi Harðarson, ritari Þjóðhagsnefndar
Jóhann Rúnar Björgvinsson hagfræðingur
Kristín Einarsdóttir opnar umræðuna sem Þórhildur
Þorleifsdóttir mun svo stýra.
Kvennalistinn í Reykjavík
Helgarskammturinn
Föstudagurinn 5. október og
laugardagurinn 6. október
Hinir ungu og efnilegu drengir
sem nefna sig Jón forseta, þó enginn
þeirra hafi orðið forseti svo vitað sé,
leika fyrir unga sem aldraða
dynjandi stuðmúsík.
Sunnudagurinn 7. október
Sigurvegari kántrísöngvakeppninnar 1989
Ann Andreasen og Einar Jónsson
leika fjöruga kántrítónlist o.fl.
fyrir síðbúna gesti.
Opið í hádeginu kl. 12-15
laugardaga og sunnudaga.
Munið dansgólfið þar sem léttir snúningar
eiga sérstað.
Snyrtilégur klæðnaður
BJORWHOLUN
HF.
GERDUBERGII
111REYKJAVÍK SÍMI75800