Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1990, Page 26
34
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990.
Afmæli
Sigtryggur Helgason
Sigtryggur Helgason, forstjóri
Brimborgar hf„ Hlyngeröi 12,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Sigtryggur fæddist í Vestmanna-
eyjum og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann kom til Reykjavíkur
1946, stundaöi nám við Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar og lauk lands-
prófi 1947, stúdentsprófi í MR1951
og prófi í viðskiptafræði í HÍ1955.
Sigtryggur var skrifstofustjóri hjá
Helga Benediktssyni 1955-1962.
Hann var framkvæmdastjóri Þ.
Jónsson & Co 1962-1974, fram-
kvæmdastjóri Toyota-varahlutaum-
boðsins hf. frá 1974, stofnaði ásamt
Jóhanni Jóhannssyni og fleiri fyrir-
tækiö Brimborg árið 1977 og hefur
verið þar forstjóri síðan.
Fjölskylda
Sigtryggur kvæntist 10. apríl 1955
Halldóru Guðmundsdóttur, f. 29.
nóvember 1934. Foreldrar Halldóru
eru: Guömundur Hróbjartsson, skó-
smiður í Landlyst í Vestmannaeyj-
um, og kona hans, Þórhildur
Guönadóttir.
Börn Sigtryggs og Halldóru: son-
ur, f. 18. júlí 1955, d. sama dag; Þór-
hildur, f. 14. september 1956, læknir,
en hún á þrjú börn, gift Hrafnkatli
Óskarssyni skurðlækni; Kristbjörg
Hrund, f. 28. maí 1962, viðskipta-
fræðingur, og Fjölnir, f. 18. júlí 1967,
d. 24. janúar 1989, jarðfræðinemi.
Systkini Sigtryggs: Stefán, öku-
kennari í Vestmannaeyjum; Páll,
ferðamálafrömuður í Vestmanna-
eyjum; Guðrún er rekur líkams-
ræktarstofu í Reykjavík; Arnþór,
formaður Öryrkjabandalagsins, og
Gísli tónlistarmaður. Auk þess lét-
ust tveir bræður Sigtryggs um tví-
tugt, Guömundur og Helgi.
Foreldrar Sigtryggs: Helgi Bene-
diktsson, f. 3. desember 1899, d. 8.
apríl 1971, útgerðarmaður og kaup-
maður í Vestmannaeyjum, og kona
hans, Guðrún Stefánsdóttir, f. 30.
júní 1908.
Ætt og frændgarður
Helgi var sonur Benedikts, b. og
oddvita á Þverá, bróður Jónasar,
læknis, afa Jónasar Kristjánssonar
ritstjóra. Benedikt var sonur Krist-
jáns, b. á Snæringsstöðum, Krist-
jánssonar, b. í Stóradal, Jónssonar,
b. á Snæringsstööum, Jónssonar, b.
á Herjólfsstöðum í Laxárdal, Jóns-
sonar, b. á Mörk í Laxárdal, Jóns-
sonar, ættfoður Harðabóndaættar-
innar. Móðir Kristjáns í Stóradal
var Sigríður Jónsdóttir, b. á Grund
í Svínadal, Hálfdánarsonar og konu
hans, Þorbjargar Sveinsdóttur, b.
og hreppstjóra á Grund, Bergsson-
ar. Móðir Þorbjargar var Sigríður
Stefánsdóttir, lögréttumanns á
Nautabúi, Sigurðssonar og konu
hans, Þorbjargar Aradóttur, oíflc-
ialis á MæÚfelli, Guðmundssonar.
Móðir Benedikts var Steinunn, syst-
ir Jóhannesar Nordal, föður Sigurð-
ar Nordal. Steinunn var dóttir Guð-
mundar, b. í Kirkjubæ í Norðurár-
dal, Ólafssonar. Móðir Guömundar
var Sigríður Guðmundsdóttir, systir
Skáld-Rósu.
Móðir Helga var Jóhanna Jóns-
dóttir, b. á Höskuldsstöðum í Lax-
árdal, Kristjánssonar. Móðir Jóns
var Jóhanna Jónsdóttir, b. í Kast-
hvammi, Ásmundssonar, bróður
Helga á Skútustöðum, ættfóður
Skútustaðaættarinnar. Móðir Jóns
var Aldís Einarsdóttir b. í Reykja-
hlíð, Jónssonar, b. í Reykjahlið, Ein-
arssonar, ættfóður Reykjahliðar-
ættarinnar eldri. Móðir Jóhönnu
Jónsdóttur frá Höskuldsstöðum var
Helga María, systir Guðrúnar, móð-
ur Jóhanns Eyfirðings, afa Leifs
Dungal læknis. Helga var dóttir
Jóns, b. og læknis á Hofsá í Svarfað-
ardal, Halldórssonar og konu hans,
Þórdísar Bjarnadóttur.
Guðrún er dóttir Stefáns, útgerð-
armanns í Skuld í Vestmannaeyj-
um, Björnssonar, b. á Bryggjum í
A-Landeyjum, Tyrflngssonar, b. á
Jaðri í Þykkvabæ, Einarssonar.
Móðir Björns á Bryggjum var Anna
Bjömsdóttir, b. í Sperðli, Magnús-
sonar og konu hans, Sigríðar Magn-
úsdóttur, b. í Ártúnum, Árnasonar,
prests í Steinsholti, bróður Böðvars,
prests í Holtaþingum, afa þeirra
systra, Þuríðar, langömmu Vigdísar
forseta; Gyðríðar, langömmu Magn-
úsar Sch. Th., fóður Davíðs, for-
stjóra í Sól, og Sigríðar, langömmu
Önnu, móður Matthíasar Johann-
essen. Árni var sonur Högna „pre-
stafoöur" Sigurössonar. Móðir Stef-
áns var Guðríður Sigurðardóttir, b.
á Geldingalæk, Magnússonar, bróð-
ur Sigríðar, langömmu Ingólfs Jóns-
Sigtryggur Helgason.
sonarráðherra.
Móðir Guörúnar var Margrét,
systir Guöjóns, foður Guðmundar
óperusöngvara. Margrét var dóttir
Jóns í Búð í Þykkvabæ Ólafssonar.
Móðir Margrétar var Guðflnna Eg-
ilsdóttir, b. á Hákoti í Þykkvabæ,
bróður Gísla, langafa Eggerts G.
Þorsteinssonar, forstjóra Trygg-
ingastofnunar ríkisins, Þorsteins
fiskimálastjóra og Eggerts skip-
stjóra Gíslasona. Gísli var afi Guð-
finnu, ömmu Gunnars Amar Gunn-
arssonar listmálara. Egill var sonur
Gísla, b. í Bjóluhjáleigu í Holtum,
Gíslasonar, bróður Margrétar,
langömmu Þorgríms, föður Sveins,
staðarverkfræðingsBlönduvirkjun-
ar.
90 ára
Þórunn Guðjónsdóttir,
Skipasundi 26, Reykjavík.
80 ára
Þóra Jónsdóttir*
Bleiksárhlíð 56, Eskifirði.
75 ára
Árni J. Haraldsson,
Víðimýri 3, Akureyri.
Helga Hjálmarsdóttir,
Vagnbrekku, SkútustaðahreppL
Markús Guðmundur Guðmunds-
son,
Ási, Reykhólum, Reykhólahreppi.
70ára
ÞuríðurKr. Hjólmtýsdóttir,
Langholtsvegi 95, Reykjavfk.
Stefán Sigurðsson,
Vesturgötu 23, Akranesi.
Anna Lilja Gísladóttir,
Sunnubraut 5, Keflavík.
Ásta Þórarinsdóttir,
Selvogsgrunni 16, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum í Sóknar-
salnum, Skipholti 50A, eftir klukk-
an 17.00.
60 ára
Garðar Magnússon,
Sjávargötu 24, Njarðvíkum.
Ólafur Magnússon,
Hólagötu ll, Njarðvíkum.
Sigurður Steinsson,
LóranstöðinniGufuskálum, Nes-
hreppi.
Hallgrímur Guðmundsson,
Goðatúni 30, Garðabæ.
Ólafur Sveinsson,
Skógargerði 7, Reykjavik.
50ára
Unnar Ragnarsson,
Borgarbraut 2, Hólmavík.
40ára
Kári Svavarsson,
Koltröð 13,Egilsstöðum.
Kristjana Magnúsdóttir,
Birkimel 10A, Reykjavík.
Ásthildur Kjartansdóttir,
Logalandi 13, Reykjavík.
Bryndís Gísladóttir,
Melgerði 7, Reykjavík.
Páll Árni Jónsson,
Nesbala 78, Seltjamamesi.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Hannes Pálsson
Hannes Pálsson aðstoðarbanka-
stjóri, Sólheimum 43, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Hannes er fæddur á Hólum í
Hjaltadal. Hann lauk stúdentsprófi
í MR1940. Hannes hefur verið
starfsmaður Búnaðarbanka íslands
frá 1940. Hann yar útibússtjóri Aust-
urbæjarútibús Búnaðarbankans
1948-1976 og hefur verið aðstoðar-
bankastjóri frá 1976.
Hannes hefur setið í stjóm Banka-
mannaskólans frá upphafi 1959.
Hann var formaður Sambands ís-
lenskra bankamanna 1959-1961 og
1967-1975. Hann var í stjóm Nor-
ræna bankamannasambandsins
(NBN) 1967-1975 og í fræðslunefnd
NBN1967-1975. Hann var formaöur
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reykjavík í átta ár og hefur verið
fulltrúi íslands á þingi Sameinuðu
þjóðanna fjórum sinnum. Hann sat
í stjórn Íslenska-ameríska félagsins
1976-1989.
Fjölskylda
Hannes kvæntist 28. maí 194Q,
Sigrúnu Helgadóttur, f. 27. septemn-
ber 1920, fyrrv. starfsmanns Erfða-
fræðinefndar HÍ. Foreldrar Sigrún-
ar era Helgi Guðmundsson, kaup-
maður í Reykjavík, og kona hans,
Sigrún Kristín Óladóttir.
Börn Hannesar og Sigrúnar eru
Guðrún Helga, f. 18. júní 1944, bóka-
safnsfræðingur á Landakotsspítala,
gift Þorbimi Broddasyni lektor;
Kristín Hulda, f. 8. febrúar 1948,
arkitekt í Edinborg, gift Nicholas
Groves-Raines arkitekt; Halla Þur-
íður, f. 22. ágúst 1951, sjúkraþjálfari,
gift Vífli Magnússyni arkitekt; Páll
Helgi, f. 7. desember 1956, skóla-
stjóri Bankamannaskólans; Pétur
Hörður, f. 30. júlí 1960, læknir í
Lundi í Svíþjóð, kvæntur Erlu Dís
Axelsdóttirlækni.
Systkini Hannesar era Unnur, f.
23. maí 1913, húsmóðir, var gift Sig-
tryggi Klemenssyni seðlabanka-
stjóra sem lést 1971; Zóphónías, f.
17. apríl 1915, fyrrv. skipulagsstjóri
ríkisins, kvæntur Lis Nelleman;
Páll Agnar, f. 9. maí 1919, fyrrv. yfir-
dýralæknir, kvæntur Kirsten Hen-
riksen dýralækni; Hjalti, f. 1. nóv-
ember 1922, fyrrv. forstjóri innflutn-
ingsdeildar SÍS, kvæntur Ingigerði
Karlsdóttur, og Vigdís, f. 13. janúar
1924, fyrrv. handavinnukennari í
KHÍ, gift Baldvini Halldórssyni leik-
ara.
Ætt
Foreldrar Hannesar voru Páll
Zóphóníasson, f. 18. nóvember 1886,
d. 1. desember 1964, búnaðarmála-
stjóri og alþingismaður, og kona
hans, Guðrún Þuríöur Hannesdótt-
ir, f. 11. maí 1882, d. 11. nóvember
1963. Páll var sonur Zóphóníasar, f.
1845, prófasts í Viðvík, Halldórsson-
ar, b. á Brekku í Svarfaðardal,
Rögnvaldssonar. Móðir Halldórs
var Soffla Þorsteinsdóttir, systir
Hallgríms, föður Jónasar, skálds.
Móðir Páls var Jóhanna Sofía, f.
1855, systir Jarþrúðar, konu dr.
Hannesar Þorsteinssonar, ritstjóra
og þjóðskjalavarðar, Þóru, konu
Jóns Magnússonar forsætisráð-
herra, og Elínborgar, konu Geirs
vígslubiskups, Sæmundssonar. Jó-
hanna var dóttir Jóns, alþingis-
manns og dómstjóra, bróður Péturs
biskups og Brynjólfs, „Fjölnis-
manns". Jón var sonur Péturs, f.
Hannes Pálsson.
1754, prófasts á Víöivöllum, Péturs-
sonar, og konu hans Þóru, f. 1766,
Brynjólfsdóttur gullsmiðs, Hall-
dórssonar, biskups á Hólum, Brynj-
ólfssonar. Móðir Jóhönnu var Jó-
hanna Bogadóttir, b. á Staðarfelli,
Benediktssonar, ættföður Staðar-
fellsættarinnar og konu hans, Jar-
þrúðar Jónsdóttur, prests í Holti,
Sigurðssonar. Móðir Jarþrúðar var
Solveig Ólafsdóttir, lögsaganara á
Eyri, Jónssonar, ættföður Eyrar-
ættarinnar.
Guðrún var dóttir Hannesar, b. og
hreppstjóra i Deildartungu, Magn-
ússonar, b. og hreppstjóra á Vil-
mundarstöðum, Jónssonar, b. á Vil-
mundarstöðum, Auðunssonar.
Móðir Jóns var Margrét Þorvalds-
dóttir. Móðir Guðrúnar var Vigdís
Jónsdóttir, b. í Deildartungu, Jóns-
sonar, dbrm. í Deildartungu, Þor-
valdssonar, ættföður Deildartungu-
ættarinnar, bróður Margrétar.
Hannes tekur á móti gestum í Fé-
lagsheimili tannlækna að Síöumúla
35, klukkan 16.30-18.30 á afmælis-
daginn.
Já... en ég nota
yfirleitt beltið!