Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
21
Tryggvi Emilsson er fæddur 20.
október 1902 og var einn af átta systk-
inum. Móöir hans lést af bamsförum
daginn fyrir sex ára afmæliö hans.
Heimilið leystist upp og bömin
þurftu að vinna hörðum höndum.
Frá því segir Tryggvi í bókum sínum
Fátækt fólk og Baráttan um brauðið.
„Þetta voru erfiðir tímar,“ segir
hann. Tryggvi á tvær systur á lífi og
einn bróður en sá er kominn á tíræð-
isaldur.
Með frægum skáldum
Bækur Tryggva, Fátækt fólk og
Baráttan um brauðið, hafa verið
gefnar út á þýsku en þær voru báðar
tilnefndar til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. „Ég fór þangað
með frægum skáldum, Thor Vil-
hjálmssyni fyrra árið og seinna árið
með Þorsteini frá Hamri.“
Tryggvi segist vonast til að fleiri
bækur eigi eftir að koma út eftir
hann. Besti tími til skrifta segir hann
vera morgnana og þegar hann skrif-
aði fyrstu bækurnar byrjaði hann að
vinna klukkan fimm á morgnana.
„Ég átti alltaf gott með að hugsa og
muna á morgnana. Hugurinn var
opinn,“ segir Tryggvi. Eiginkona
Tryggva lést árið 1977. „Hún hafði
einnig gott minni. Ef það var eitthvað
sem ég mundi ekki fór ég til hennar.
Við bjuggum saman í 52 ár.“
„Mér fmnst að alhr gamlir menn
ættu að hafa eitthvað til að fást við,“
segir rithöfundurinn. „Annars er
tíminn svo lengi að líða.“ Þegar hann
er spurður hvort hann hafi verið í
póhtík, segir hann: „Já, róttækur og
fátækur. Það fór saman þar sem bar-
áttan var slík. Þetta er alit orðið
öðruvísi í dag. Mér hst vel á lífið því
fólk á íslandi hefur aldrei haft það
eins gott og undanfarin ár. Þetta hef-
ur verið góðæri og fólk hefur al-
mennara haft það sænúlegt. Hér áð-
ur fyrr kvartaði fólk ekki heldur
barðist fyrir því sem það vildi fá,“
segir Tryggvi ennfremur.
„Ég var ekki góður ræðumaður en
Sigfús Sigurhjartarson, sem var mik-
Tryggvi ásamt dóttursyni sínum, Þórarni Friðjónssyni, sem aðstoðað hefur
við útgáfu bókarinnar. Þórarinn vinnur hjá Vöku-Helgafelli.
ih ræðusnilhngur, kenndi mér að
skrifa ræðuna upp og læra hana síð-
an, en hafa aðeins htinn minnismiða
með á fundi. Þetta gerði ég eftir að
ég kynntist honum og tókst þá mun
betur með ræðumar enda hafði ég
gott minni. Ég var líka vel kunnugur
öðrum ræöusnhlingi sem var Einar
Olgeirsson. Við vorum fæddir sama
árið á Akureyri og höfum verið vinir
alla tíð. Ég hef samband við hann
einstöku sinnum í síma,“ segir
Tryggvi Emhsson rithöfundur sem
ætíar ekki að láta staðar numið að
miðla af þekkingu sinni, reynslu og
frásagnargleði þó aldurinn færist
yfir.“
-ELA
©Husqvarna
og
brother
saumavélar
ÓTRÚLEGT ÚRVAL
Verðfrá 18.900," til 128.000;'
Sýnikennsla alla daga frá kl. 12-17. Husqvarna og
Brother saumavélaumboðið er flutt í nýtt og glæsi-
legt húsnæði að Faxafeni 14 (Nútíð). Sala, nám-
skeiðahald, þjónusta.
VÖLUSTEINN
Faxafeni 14, s. 679505.
Umboðsmenn um allt land.
Demparar
í margar gerðir bíla. Gæðademparar.
Hagstætt verð.
Bílavörubúðin
FJÖÐRIN
Skeifan 2 simi 82944
! é.
: -
Kellen rannsóknarlögreglu-
maður kemst að því við rann-
sókn morðmáls að hann á i
höggi við glæpamenn sem
reyndu að heilaþvo hann fyrir
20 árum. Þetta verður til þess
að sársaukafullar ofskynjanir
og martraöir fara að hrjá hann
á ný.
Komið er með sundurskorið lik óþekkts
manns i likhús borgarinnar. Dr. Dori Caisson
hefst handa við krufningu líksins en verður
þess áskynja sér til mikiilar undrunar að
skotsár mannsins hafa gróið og hann (Tow-
nsend) rænir Dori.
DREIFING
MYNDFORM
Mario gjörbreytist þegar hann
kemur til New Yorfc. Hann verö-
ur gjörsamlega truflaöur og
sleppir fram af sér beíslinu.
Og þá er ekki Öll sagan sögð,
þvi HÚN birtist, hún Nicolel
SÍMI 651288