Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
33
gaman og gefandi starfl. Ég stend á
dálitlum tímamótum og þarf að gera.
upp hug minn hvar ég vil starfa því
þörfin er víða fyrir hendi, það er
augljóst."
- En heldur fólk að þú sért fullkomin
á þessu sviði, vitir allt, lifir full-
komnu kynlífi o.s.frv.?
„Já, ég býst við því. Margir vita
náttúrlega ekkert í hveiju starfið er
fólgið. En þaö er erfitt að vera kyn-
fræðingur. Maður þarf virkilega að
hafa kjark og sterka og góða sjálfsí-
mynd og þekkja sín takmörk og geta
aðskilið starfið og einkalífið. Þetta
er það sem mér hefur þótt erfiðast.
Ég verð að þekkja mín takmörk. Ég
fræði og gef ráð eins og ég get en ég
tek ekki fólk í sálræna meðferð. En
undanfarin ár hef ég unnið mikið
með sjálfa mig, verið í svona nafla-
skoðun og gegnum námið, verið að
uppgötva sjálfa mig sem kynveru.
Þetta hafa verið erfið ár en góð.
Vil ekki taka
vinnuna með mér
heim
Það er erfitt þegar fólk hringir í
kvöldmatartímanum og vill fá ráð
við áhugaleysi sínu á kynlífi þegar
ég stend yfir pottunum og er að reyna
að skilja vinnuna eftir í vinnunni.
Hér áður hafði ég svo mikinn áhuga
á kynlífi að ég tók vinnuna með mér
heim og sofnaði út frá fræðibókum
um kynlíf. Þessu hef ég verið að
reyna að breyta. Ég vil geta komið
heim og slakað á, farið í bað og sinnt
syni mínum og farið snemma að sofa.
Ég er ekki boðin og búin hvenær sem
er þó fólk eigi bágt.“
Jóna Ingibjörg á einn son sem heit-
ir Kári Svanur Rafnsson og er fjög-
urra ára og rúmlega þó. Hann er á
barnaheimilinu Sælukoti í Skeija-
firði sem Ananda Marga hreyfmgin
rekur. Faðir hans heitir Rafn Geirdal
og er menntaður nuddari en þau
skildu fyrir tveimur árum eftir
tveggja ára hjónaband.
„Við höfðum þekkst frá 1983 og
staðið í ástarsambandi með eldheit-
um bréfum meðan hann var úti í sínu
námi sem nuddari. Síðan fórum við
saman út til Bandaríkjanna þegar ég
fór að læra, þá með strákinn 6 vikna
gamlan. Rafn var heima meö hann
og sá um heimilið meðan ég var í
skólanum en ég var samt með hann
á bijósti.“
- Nú vinnið þið bæði náið með fólk.
Hvers vegna gátu ekki nuddari og
kynlífsfræðingur lifað í velheppnuðu
hjónabandi?
„Eflaust hefði þetta allt getað
þjappað okkur betur saman ef við
hefðum getað unnið í okkar persónu-
legu málum. Okkar leiðir áttu hins
vegar ekki eftir að hggja saman og
okkar menntun og starfsferill kom
því ekkert við þó margir haldi það.
Skilnaður getur
verið þroskamerki
Skilnaður getur að mínu viti verið
þroskamerki en alls ekki merki um
vanþroska og mistök. Mér leið samt
mjög illa fyrst eftir skilnaðinn og
fannst eins og mér hefði mistekist
og kenndi sjálfri mér um. Svo lærði
ég að, skilja að það þurfti ekki að
þýða'að ég væri misheppnuð þótt
hjónabandið hefði ekki gengið. En
skilnaður getur aldrei orðið annað
en erfiður þó fólk skilji í fullri vin-
semd.
Síðan hefur Jóna Ingibjörg verið
einstæð móöir og hefur einbeitt sér
að starfmu og því að vera samvistum
við son sinn og skapa honum gott
heimili. En er það ekki galli fyrir
starfandi kynfræðing að hafa ekki
karlmann?
„Nei,“ segir hún eftir nokkra um-
hugsun. „Persónuleg þekking er
eflaust af hinu góða en ég þarf ekki
að hafa upplifað allt sem fólk leitar
til mín með. Ég hef reynslu af hjóna-
bandi og sambúð og hef sótt í þann
sjóð. En ég þarf ekki aö hafa upplifað
sifjaspell til þess að geta rætt við fólk
með þá reynslu."
- Þú hefur oft talað um að þú viljir
taka þitt starf alvarlega. Hvernig
virkar það á þig þegar Flosi Ólafsson
skrifar grínaktuga pistla um það sem
þú segir og gerir?
Þolir ekki hræsni og yfirdrepsskap.
„Ég tek það ekki nærri mér. Ég er
viss um að Flosi er vænsti maður og
alls ekki eins forpokaður og hann
vill vera láta. Ég þekki hann ekki
neitt en veit þó að við eigum sama
afmæhsdag. Hann er 31 ári eldri en
ég.
Hitt er svo annað mál að fólk hefði
gott af því að komast af flissstiginu
þegar kynlíf er til umræðu. Það er
reyndar mjög eðlilegt þegar fólk er
hissa, forvitið og kvíðafullt. Allt um
kynlíf hefur fram til þessa veriö fyrst
og fremst fyndið. En ég vil láta taka
það alvarlega og sem betur fer er
þetta mikið að breytast. Nýjabrumið
er að fara af opinskárri umræðu um
kynlíf og ég er mjög ánægð með það.
Ég held stundum fyrirlestra um kyn-
líf hjá ýmsum karlaklúbbum og þar
hefur verið algengt að einhveijar
fyrirspurnir eru settar fram í hálf-
kæringi, svona dæmigerðum neðan-
beltishúmor sem kallaður er. Mér
hefur reynst mjög vel að slá vopnin
úr höndummanna með því að svara
þeim af fullri alvöru á fræðilegum
grundvelli. Þeir virðast vera óstyrk-
ari gagnvart þessu en konur.
Kannski finnst þeim sér ógnað af
konu sem þykist vita allt um kynlíf.
Konurnar taka af meiri alvöru á
málunum og ræða þau yfirleitt af
meiri hreinskilni.
Þetta fyndna viðhorf viðheldur for-
dómum og vanþekkingu sem ríkir
um kynlíf á íslandi.
Dansað við
dynjandi þungarokk
- Nú er andlit þitt þekkt vegna skrifa
um starfið og fastra skrifa í dag-
blöðin. Finnst þér það óþægilegt t.d.
þegar þú ferð út að skemmta þér?
„Það hefur komið fyrir eins og ég
býst við að aðrir megi þola sem eru
þekktir. Hitt er svo annað mál að ég
fer lítið út að skemmta mér þó mér
finnist afar gaman að dansa. Mér leið-
ist drukkið fólk þó ég sé ekki templari
og það sem fer fram hér á skemmti-
stöðum er ekki að mínum smekk.
Mér fmnst mest gaman að hlusta á
þungarokk og fíla það alveg í botn
eins og unglingarnir segja. I augna-
blikinu eru mínar uppáhaldshljóm-
sveitir Cult og Motley Crue svo eitt-
hvað sé nefnt. Þessi tónlist er ekki
spiluð hér á skemmtistöðum. Ég fór
hins vegar í leðurjakka og gallabux-
um á Whitesnake tónleikana um dag-
inn og dansaði og skemmti mér alveg
konunglega. Ég býst við að þetta sé
unglingurinn í mér sem er að brjót-
DV-myndir GVA
ast út og er alveg sama þótt ein-
hverjum þyki það ekki hæfa. Mér
finnst gaman að ögra fólki og gera
það sem má ekki. Ég þoli ekki hræsni
og yfirdrepsskap og því vil ég ögra
fólki til þess að fá það til þess að
koma fram eins og það er.“
Jóna tekur sér frí frá allri kynlífs-
umræðu á hverju sumri og notar
sumarfríið til þess að starfa við land-
vörslu í þjóðgarðinum í Skaftafelli.
Þar fer hún með fólki í gönguferðir
og kynnir því íslenska náttúru og
sögu staðarins.
„Þarna er afar gott að slaka á og
taka sér frí. Þarna get ég haft strák-
inn hjá mér og enginn nefnir kynlíf
við mig. Það finnst mér dásamlegt
og heillandi og hefði viljað leggja fyr-
ir mig eitthvað svona ef ég hefði ekki
orðið kynfræðingur.“
-Pá
f
«