Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1990, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990.
35
Gillian og Chris.
Gillian haföi byijað nýtt líf með
dótturinni Nínu og hélt aö hún
þyrfti hvorki að óttast ofbeldi né
misþyrmingar framar. Svo gerðist
það dag einn að fyrrverandi eigin-
maður hennar, Tony, kom í heim-
sókn og bað um að fá að sjá Nínu.
Vildi verða ólétt
Það var í mars 1976 að Gillian og
Tony Maville gengu í hjónaband.
Þá var Gillian komin fjóra mánuði
á leið en hún hafði af ásettu ráði
orðið ólétt til að geta fengið Tony
til að kvænast sér. Nokkrum dög-
um fyrir brúðkaupið varð Gilhan
hins vegar ljóst hve heimskulega
hún hafði hegðaö sér. Þá sá hún
fyrir að hún myndi fá að gjalda
fyrir hegðan sína en þar eð svo
skammt var til brúðkaupsins
treysti hún sér ekki til að snúa
baki við Tony.
Næstu fímm mánuði misþyrmdi
hann henni reglulega. Þá beitti
hann hana andlegum þvingunum.
Gillian reyndi að fá aðstoð foreldra
sinna en þeir töldu sig ekki vera í
aðstöðu til að gera mikið. Þeir
vöktu aftur athygli hennar á því
að þeir hefðu varað hana við því
að giftast Tony.
Gillian hélt hjónabandið út í hálft
annað ár til viðbótar en þá yfirgaf
Tony hana. Einn góðan veðurdag
hvarf hann af heimilinu án þess
að gefa upp nokkra ástæðu. Og
nokkrum dögum síðar kom hann
til að taka eigur sínar.
Æðiskast
Ekki löngu eftir þetta komst Gilli-
an að því að hann hafði tekið sam-
an við stúlku, Ohve White, sem
hann vann með. Gillian hafði hins
vegar ekki trú á að samband þeirra
stæði lengi. Til þess þóttist hún
þekkja Tony of vel.
Enginn veit hvaö Olive White,
sem var aðeins tuttugu og tveggja
ára er hún tók saman við Tony,
fannst um hann eftir náin kynni.
Til þess lifði hún ekki nógu lengi.
Innan þriggja mánaða var hún lát-
in. Tony varö henni að bana.
Hann var ákærður fyrir morð en
ákæruvaldið tók tillit til þess sem
nefnt var mildandi aðstæður. Full-
yrt var að Ohve hefði sífeht verið
að gefa öðrum mönnum undir fót-
inn og hefði Tony orðið henni að
bana í afbrýðikasti. Þegar hann
hefði áttað sig á því hvað hann var
að gera hefði hún verið látin.
Gillian trúði ekki frásögn Tonys.
Til þéss þekkti hún hann aht of
vel. Hún var sannfærð um að hann
hefði drepið Ohve í reiðikasti.
„Mig langarbara
til að sjá Nínu"
Tony var dæmdur í níu ára fang-
elsi. Hann sat inni í sjö ár og var
látinn laus í ágúst 1986. Þá hafði
Ghhan tekið saman við Chris Glo-
ver, þrjátíu og fimm ára gamlan
sjónvarpsviðgerðarmann. Þau
höfðu nú búið saman í allmörg ár,
eða síðan 1981 þegar þau fluttust
th Newton Aycliff fyrir utan Darl-
ington á Englandi þar sem sagan
gerðist.
En fimmtudaginn 16. október
1986 var friðurinn úti á því heimili.
Síðdegis var dyrabjöllunni hringt
og þegar Gihian opnaði sá hún að
fyrir utan stóð fyrrverandi eigin-
maður hennar, Tony.
„Hvað vht þú hér?“ spurði hún
og vék ekki til hliðar til að .sýna
honum að hann væri ekki velkom-
inn. Hefði Chris verið heima hefði
hún látið hann um að ræða við
Tony. En Chrls var enn þá í vinn-
unni.
„Það er engin ástæða til að taka
iha á móti mér,“ sagði Tony. „Mig
langar bara th að sjá Nínu.“
„Gamallvinur"
Ghlian þóttist sjá að Tony myndi
ekki fara fyrr en hann hefði fengið
að sjá dótturina. Hún bauð honum
því inn í stofu þar sem Nína sat og
var að horfa á sjónvarp. „Vertu svo
góður að segja ekki neitt við hana
sem getur komið henni úr jafn-
vægi,“ sagði hún um leið og þau
gengu í stofuna. Tony kinkaði kolli.
„Þetta er TonýA gamall vinur
minn,“ sagði Gilhan við Nínu.
„Hæ,“ sagði Nína og hélt áfram
að horfa á sjónvarpið.
Skyndilega breyttist svipurinn á
Tony. Hann gekk hratt út úr stof-
unni og Gillian fylgdi á eftir hon-
um. Þegar þau voru komin fram á
gang spurði hann: „Hvað á það að
þýða að kalla mig gamlan vin? Hef-
urðu hugsað þér að neita barninu
um að fá að vita hver faöir þess
er?“ Gilhan th undrunar virtist
hann rólegur. Svo leit hann á konu
sína fyrrverandi og sagöi: „Jæja,
þá. Hafðu það eins og þú vht. Ég
skal lofa þér því að koma henni
ekki úr jafnvægi ef þú lofar mér
því að ég fái að sjá hana aftur.“
Móðursjúk
Um kvöldið þegar Chris var kom-
inn heim sagði Gihian honum frá
heimsókn Tonys. Chris varð reið-
ur.
„Eru gengin af vitinu?“ sagði
hann. „Þú veist að maðurinn er
morðingi og samt býðurðu honum
heim til þín.“
Gilhan lét þá þau orð faha að
hvað svo sem hann kynni að hafa
gert tilheyrði það nú fortíðinni. Þá
yrði því ekki neitað að hann væri
faðir Nínu og hún hefði rétt til að
fá að kynnast honum. í raun væri
eðhlegast að hún fengi að ráöa því
hve mikið hún vildi umgangast
hann.
Chris var henni ekki sammála en
Ghhan hélt fast við sitt. Næsta
laugardag fór Chris út tveimur tím-
um áður en Tony átti að koma í
heimsókn. Sagðist hann ekki koma
heim fyrr en hann væri farinn.
Ghlian fannst það ágætt því þá
fengi hún tækifæri til að vera ein
með Nínu áður en Tony kæmi. Hún
hélt að hún yrði glöð að heyra að
Tony væri faðir hennar. En þar
hafði hún rangt fyrir sér.
Þegar hún sagði Nínu að Tony,
maðurinn sem komið hefði í heim-
sókn nokkru áður, væri í raun fað-
ir hennar en ekki Chris, sem hún
hafði fram til þessa tahð foður sinn,
varð Nína hreinlega móðursjúk.
Gillian reyndi að tala um fyrir
henni en án árangurs og lauk sam-
ræðum þeirra með því að Nína
hljóp upp á loft og inn í herbergið
sitt.
„Farðuburt''
Tony kom á hádegi og þá var
Nína enn uppi hjá sér.
Gillian sagði honum hvernig hún
hefði brugðist við því að heyra að
hann væri faðir hennar. Hún þorði
þó ekki að særa tilfiningar Tonys
með því að segja honum að í reynd
hefði Nína alltaf haldið að Chris
væri faðir hennar.
Tony hafði komið með gjöf handa
Nínu. Gilhan varð hrærð þegar
hún sá pakkann því Tony var iha
klæddur og hafði greinhega ekki
mikið fé mUli handa.
GUlian vísaði Tony á herbergi
Nínu og þangað fór hann. Hann
gekk til hennar og rétti fram gjöf-
ina.
GiUian stóð fyrir utan dyrnar
sem voru opnar. „Ég verð hérna
fyrir utan, elskan, ef þú þarft á mér
að halda,“ sagði hún við Nínu. Hún
gekk síðan inn í baðherbergið við
hliðina en þaðan taldi hún sig geta
heyrt allt sem sagt væri inni í her-
bergi dótturinnar.
í fyrstu talaði Tony svo lágt að
hún heyrði ekki hvað hann sagði.
Svo heyrði hún að Nína hrópaði:
„Nei! Nei! Þú ert ekki pabbi minn.
Þú getur ekki mútað mér með gjöf-
um. Farðu burt! Láttu mig í friði!“
„Það erumlífeða
dauða aötefla"
GUlian hélt niðri í sér andanum.
Á næsta augnabhki heyrði hún
skell. Það var greinUegt að Tony
var að löðrunga Nínu. Um leið
hrópaði Nína: „Mamma! Mamma!“
Gilhan hljóp fram á ganginn og
ætlaði inn til Nínu. En um leið og
hún tók um hurðarhúninn heyrði
hún að hurðinni var læst. Hún
hrópaði til Tonys og bað hann um
að opna en það var ekki tíl neins.
„Það er ég sem er pabbi þinn,“ •,
hrópaði hann. „Ekki þessi aumingi
sem hún mamma þín fór að búa
með. Það er ég sem er pabbi þinn.
Heyrirðu hvað ég segi?“
Nína hélt áfram að kalla á hjálp.
Gillian hljóp nú niður stigann og
hringdi á lögregluna. „Komið
strax. Það er um líf eða dauða að
tefla."
Tveir lögregluþjónar komu von
bráðar. Þá var Nína hætt að kalla
á mömmu sína. Áður en þeir kom-
ust að dyrunum á herbergi litlu
stúlkunnar opnuðust þær. Fram
gekk Tony, með blóð á höndunum
og skyrtunni. Á gólfinu lá Nína.
Þegar Gilhan sá hvað gerst hafði
missti hún meðvitund.
Lífstíðardómur
Þegar GUhan rankaði við sér á
ný lá hún í sófanum í setustofunni
á neðri hæðinni.
„Hún er dáin, er það ekki?“ voru
fyrstu orð hennar. Ánnar lögreglu-
þjónanna kinkaði koUi.
Þegar Chris Glover kom heim
klukkan hálffimm varð honum
ljóst að eitthvað skelfilegt hafði
komið fyrir. Þá beið hans Simon
Perret yfirlögregluþjónn. Hann
skýrði honum frá því sem gerst
hafði. Svo leiddi hann hann inn í
stofuna þar sem Gillian sat.
„Þú hafðir rétt fyrir þér,“ var það
fyrsta sem hún sagði þegar hún sá
Chris. „Ég hefði ekki átt að hleypa
honum inn.“
En sjálfsásakanir komu að htlu
gagni. GUlian hafði haldið að hún
hefði gert það sem best var fyrir
dótturina en hún haföi enn á ný
metiö Tony ranglega. Henni hafði
aldrei komið til hugar að hann
myndi vinna dóttur sinni tjón.
Líkskoðun leiddi í ljós að Nína
hafði látist af áverkum sem hún
hafði fengið þegar Tony sparkaði í
höfuð hennar. Þá var hún einnig
með marbletti á hálsinum en það
táknaði að hann hafði reynt að
kyrkja hana.
Tony ManviUe kom fyrir rétt
þann 12. ágúst 1987 og málflutning-
urinn stóð í sex daga.
Kviðdómurinn var fljótur að taka
ákvörðun. Tony var sekur fundinn
um morð að yfirlögðu ráði og
dæmdur í lífstíðarfangelsi, þyngstu
refsingu lögum samkvæmt.