Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990. 13 Fréttir Rekaviður á Langanesi: Bændur geta aukið tekjur um milljónir „Til að vinna rekaviðinn var á sín- um tíma keypt notuð sögunarmylla frá Danmörku, sem flutt var til Þórs- hafnar. Þá var stofnað hlutafélagið Sögunarmillan h/f til þess að sjá um framkvæmdir. Afköst myllunnar við bestu aðstæður eru um það bil 4000 rúmmetrar á ári, og er þá reiknað með að sagað sé í algengar borðviöar- stærðir. Tveir menn munu hafa at- vinnu við sögunina en það þarf að sjálfsögðu íleiri starfsmenn við að safna saman rekaviðnum og flytja hann að Sauðanesi þar sem sögunar- myllan er staðsett," segir Sigurður R. Einarsson, einn af landeigendun- um á Eiði, en nokkrir bændur og áhugaaðilar á Langanesi og í Þistil- flrði hófu tilraunavinnslu á rekaviði í haust. „Við gerum þó ekki ráð fyrir að afköst sögunarmyllunnar verði nema 50 prósent til að byrja með eða um 2000 rúmmetrar á ári. Kemur þar ýmislegt til, til að mynda mismun- andi þykkt og lengd rekaviðarins." Miðað við að meðal útsöluverð á rúmmetra af borðviði sé rúmar 20.000 þúsund krónur þá telja bænd- ur að þeir geti skapað verðmæti úr rekaviðnum fyrir allt að 40 milljónir á ári. Miðað við að framangreind verð- mætasköpun náist, bendir allt til að meðal rekajörð á Langanesi og í Þist- ilfirði, geti aukið tekjur sínar um nokkrar milljónir á ári á bú, ef vel tekst til. -J.Mar Á ári hverju fellur mikið til af rekaviði á Langanesi, bændur þar um slóðir hafa nú ákveðið að hefja nýtingu á honum. Menriing Laddi - Of feit fyrir mig: Enginn grínverji, guði sé lof Laddi er skemmtilegur fýr. Hann hefur sýnt það margoft á liðnum hálfum öðrum áratug. Hann er reyndar svolítið mistækur en alveg dásamlega fyndinn á sínum bestu stundum. Á plötunni Of feit fyrir mig tekst Ladda sums staðar fantavel upp. Titillagið er bráðfyndið. Ég er afi minn er vafalaust einn af hápunktunum á ferli Ladda sem Nýjar plötur Ásgeir Tómasson tónlistarmanns. Óhappa Pési er dæmigerður Laddi og sömuleiðis Pabbi minn. Hins vegar dettur grínstemmningin sums staðar nið- ur á plötunni Of feit fyrir mig. Bláhetta er full lang- dregin þótt hún eigi sína góðu punkta. Þá hefði að skaðlausu mátt sleppa Sjálfsalanum. Bæði þessi lög eru þó hátíð miðað við bansettan Grínverjann sem Laddi býður upp á á plötunni Bestu vinir aðal sem einnig er með í jólaílóðinu að þessu sinni. Ég hef sagt það áður og segi það enn að best heppn- ast plötur Ladda þegar Björgvin Halldórsson er við stjórnvölinn. Hann hefur gert góða hluti í útsetningun- um að þessu sinni í samvinnu við hinn fjölhæfa Vil- hjálm Guðjónsson. Sér í lagi eru útsetningar fyrir blásturshljóðfærin áheyrilegar. Söngtextar Ladda eru jafnbetri að þessu sinni en stundum áður. Hann semur að sjálfsögðu alla texta Þórhallur Sigurðsson (Laddi). plötunnar. Hins vegar hefði ég ekkert haft á móti því að vita einhver deili á lagahöfundunum. Gleymst hef- ur að láta þeirra getið en það skrifast væntanlega frek- ar á reikning útgefanda en listamanns. í heildina tekið er Of feit fyrir mig ein af betri plötum Ladda. Nýjar persónur mæta til leiks í bland við aðrar eldri. Aðeins ein spurning að lokum varðandi þær nýju: Er sjónvarpskempan Dengsi laglaus? TOSHIBA Hátækni sjónvörp með afburða mynd og hljómgæðum Það stórglæsilega 34" Eitt glæsilegasta sjónvarpstækið sem sést hefut í Evrópu. Hlaðið tækninýj- ungum. Sjón er sögu ríkari. Takmarkað magn á jólatilboðsverði. II Það vinsæla 28 Gerð 285D8D 2x15 vött, nicam .stereo, 4 hátalar- ar, skjátexti, tele- text-super VHS, fjarstýring. Vérð 129.800, - Staðgr. 120.800, - Það kraftmikla 21 Gerð 218D9D stereo, 2x15 vött, lausir hátalarar, super-VHS, euro-multi stand- ard. Verð 86.900,- Staðgr. 79.900,- Það hagstæða 25' Gerð Tatung 25 stereo, 2x10 vött, FST flatur skjár, CX gangverk, fjar- stilling, euro-scart tengi. Verð 79.900,- Staðgr. 74.300,- Það ódýra 20' Gerð Tatung 20 Black Quarts, myndlampi, full- komin fjarstýring. Verð 44.900,- Staðgr. 42.700,- Euro - Visa greiðslukjör Einar Farestveit&Co.hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.