Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990.
33
DV_________________________________________Lffsstfll
Árlegt magn sorps á íbúa:
Er í sland að
kafna í rusli?
- aðeins Danir og Hollendingar með meira magn í Evrópu
íslendingar státa sig af hreinu landi
og ómenguðu umhverfi og telja sig
til fyrirmyndar meðal annarra þjóða
í þeim efnum. Það má hugsanlega til
sanns vegar færa en hitt er staðreynd
að sorp á íbúa á ársvisu er mjög í
hærri mörkunum sé samanburður
tekinn viö stærstu iðnaðarþjóðir
heims.
Gífurlegt sorp
í Bandaríkjunum
Þennan samanburð má sjá á töfl-
unni hér til hliðar og þar sést að ís-
land er ótrúlega hátt á listanum. At-
hygli vekur aö Danmörk og Holland
eru þó hærri á listanum í Evrópu en
þessi lönd státa sig nokkuð af því að
ve'ra „græn“ og umhverfissinnuð.
Tölurnar sem taflan byggir á er
reiknuð út frá sorpi sem kemur frá
heimilunum en ekki fyrirtækjum.
Bandaríkin eru þarna með langmest
sorpmagn á íbúa, meira en tvöfalt
Neytendur
meira en Japanir sem eru furðu lág-
ir.
Allar þessar tölur eru vaxandi í
þessum löndum, ef undan eru talin
Holland, Þýskaland og Japan en þar
fer talan minnkandi. Mestur vöxtur
sorps á íbúa er á Spáni, írlandi og
Portúgal en þar er jafnframt tölu-
verður hagvöxtur. Því viröist sem
tengja megi saman efnahagslega vel-
megun og magn sorps á íbúa. Japan
er þó undantekningin.
Japanir eru mjög duglegir að
brenna sitt sorp en tveir þriðju hlut-
ar sorps frá heimilum þeirra fara í
brennslu. Á meðan fara 88. af hundr-
aði sorps beint til urðunar í Banda-
ríkjunum. Ætla má nærri lagi að um
þriðjungur sorps sé brenndur að
meðaltali í þeim löndum sem tekin
eru í samanburðinum. Á íslandi er
þetta hlutfall um fjórðungur en mun
fara vaxandi á næstu árum.
Brennsluaðferðirnar eru þrenns
konar hér á landi. Opin brennsla,
brennsla í sorpbrennsluþróm og
brennsla í sérstökum sorpbrennslu-
stöövum.
Samsetning rusls frá heimilum á
íslandi er þannig; af 380 tonnum eru
75 kg af matar- eða garðúrgangi, 35
kg gler, 40 kg plast, 20 kg timbur, 10
kg ál, 20 kg járn, 10 kg gúmmí og 135
kg pappír. Afgangurinn, 35 kg er
ýmiskonar úrgangur af öðru tagi.
Arlegt magn sorps á íbúai 1
'kg........
í ) ) | } | | / 1 f i *
311
X313
318
340
355
I i ! j í j í | j ! I * j I
ö
C/> Q
£
m
£
œ
- • —
r'ví'Á:-:'
Islendingar henda meira magni af rusli að meðaltali á íbúa en flest iðnriki
heims.
Þorláksmessuskata
Helgi Helgason hjá fiskbúð Hafliða heldur hér á vænum og vel lyktandi skötustykkjum en sá matur er algengur
á borðum landsmanna á Þorláksmessu. Hjá honum fást mörg tilbrigði af skötu, útvötnuð, söltuð og kæst á hefð-
bundinn máta, þurrkuð, kæst og ósöltuð skata, meira þurrkuð á vestfirskan máta og tindabikkja sem er minni fiskur
af skötuættkvísl. DV-mynd BG
Nú líður senn að Þorláksmessu og
þá vilja margir íslendingar hafa
kæsta skötu á borðum hjá sér og
þeir allra þjóðlegustu láta heldur
ekki vestfirska hnoðmörinn vanta.
Sá siður að eta skötu á Þorláksmessu
er töluvert útbreiddur en þó algeng-
astur á Vestfjörðum.
Soðin eða stöppuð
Kæst skata hefur frá aldaöðli verið
algengur matur á Vestfjörðum, við
Húnaflóa, Breiðafjörð og á Snæfells-
nesi. Hún þótti herramannsmatur
áður fyrr og þykir enn en menn eru
þó mishrifnir af henni. Skáldið
kunna, Eggert Ólafsson, kunni vel
að meta skötu enda segir í einu
kvæða hans: „Rammstæka skatan
rétt er fín, rarari er hún en brenni-
vín.“
Algengasti framreiðslumátinn á
skötu er þannig að skatan er soðin í
vel rúmum potti í 15-20 mínútur við
vægan hita eða þar til flskurinn er
orðinn vel laus frá brjóskinu. Hún
er þá færð upp á fat og borin fram
með soönum kartöflum og hnoðmör
eða hömsum. Sumir nota rúgbrauð
með.
Til eru aðrir framreiðslumátar.
Sumir eru hrifnir af heitri skötu-
stöppu. Þá er sömu aðferð beitt við
suðuna á skötunni en þegar hún er
Mlsoðin er allt brjósk hreinsað frá.
Hnoðmör er síðan bræddur í potti
við vægan hita og ræðst magn hnoð-
mörsins af smekk hvers og eins.
Skatan er síöan sett út í feitina og
hrærð vel saman við. Skötustappan
er borin fram með soðnum kartöflum
og rúgbrauði. Einnig er möguleiki
að brylja kartöflumar út í stöppuna
um leið og fiskinn. Athugið vel að
hnoðmörinn má aldrei ofhitna eða
sjóöa. Hann er best aö bræða yfir
gufu.
Hnoðmör finnst mörgum ómiss-
andi með skötunni. Hann er seldur
í svokölluðum mörtöflum og fæst í
flestum fiskbúðum. Til gamans má
geta þess hvernig hann er búinn til.
Eftir slátrun er mörinn tekinn og
geymdur í nokkurn tíma þar til hann
fer að „fiöra" það er að svolítil mygla
sést í honum. Mörklumpurinn er þá
skorinn í sneiðar og allir eitlar tekn-
ir úr. Hann er síðan hakkaður en
þegar því er lokiö er hakkiö hnoöað
aftur saman eins og deig. Þá eru
mörtöflurnar mótaðar.
Hætt er við aö ekki líki öllum
bragðið af þessu hnossgæti en sum-
um finnst skata ómissandi á Þorláks-
messu.
ÍS
BW Svissneska parketið
erlímtágólfið og er
auðvelt að leggja það.^
Parketið er full lakkað
með fullkominni tækni.
Svissneska parketið er
ódýrt gæðaparket og
fæst í helstu
byggingavöruverslun- /
um landsins. /
^ 10%
AFSLÁTTUR
HREINLÆTISTÆKI
WC, kr. 16.100,-
WC + handlaug,
kr. 19.000,-
WC + handlaug í
borði, kr. 22.500,-
10% afsláttur af öllum
blöndunartækj um
Innimálning,
útimálning,
þakmálning.
PaiYTfX
’UstMÁl.WSNO
3UWAFELL
Bíldshöfði 14,
s. 676840 og 672545
20% ódýrara í 10 lítra
umbúðum
■ík 3UR57AFELL
Bíldshöfði 14,
s. 676840 og 672545