Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 3
LAU&ARDÁÖÖ'á' 16. FÉÐRÚÁR'199ÍÁ 1 3 Fréttir Fyrirmæli vamarmálaskrifstofu til lögregluembættis á Keflavíkurflugvelli: Yfirmanni falið að kanna um- mæli lögreglumannsins í DV - ekki skerðing á Qölmiðlafrelsi, segir Pétur Thorsteinsson Varnarmálaskrifstofa utanríkis- ráðuneytisins hefur gefið lögreglu- stjóranum á Keflavíkurflugvelli fyr- irmæli um að kanna hvort aðstoðar- yfirlögregluþjónn embættisins hafi farið út fyrir starfssvið sitt og brotið trúnað er hann ræddi við DV vegna fréttar sem birtist í blaðinu á mið- vikudag. Lögreglustjóri hefur einnig veriö beðinn að afla upplýsinga um atvik í síöustu viku þegar kom til snarpra orðaskipta og stimpinga á milli íslensks lögregluþjóns og bandarískra öryggisvarða. Fyrirmæli varnar- málaskrifstofu Fyrirmæli varnarmálaskrifstof- unnar voru gefm eftir að frétt DV birtist á miðvikudag. Lögreglumað- urinn, ásamt formanni Lögreglufé- lags Suðurnesja, sagði ábt sitt í við- tali vegna óánægju sem ríkt hefur í lögregluliöinu vegna samskipta við bandaríska öryggisverði og herlög- reglu á Keflavíkurflugvelli. Lög- reglumenn segja óánægjuna sprottna af ágreiningi um starfssviö aðila, ókurteisi og vafasamar yfirlýs- ingar Bandaríkjamanna, auk þess sem herlögreglumenn hafa frá því í sumar borið vopn, innan sem utan varnarsvæðisins. Pétur Thorsteinsson, sendiráðu- nautur varnarmálaskrifstofu, sagði við DV í gær að búið heföi verið að gera ráðstafanir til að leiðrétta þann ágreining sem hafði verið í gangi á Keflavíkurflugvelli undanfarið: Útfyrir eðlileg mörk „Ég held að það hafi ekki verið búið að leiða það mál til lykta þegar þetta kom upp. En þegar svona frétt kemur eins og í DV er fyrsta skref að fá upplýst hvort einhver hafi farið út fyrir eðlileg mörk í umgengnis- reglum - hvort sem það er íslenskur eða bandarískur lögreglumaður.“ - Er þá misskilningur að kannað verði hvort lögreglumaðurinn hafi brotið trúnað er hann ræddi við DV? Segja upp og tala svo „Það er mál lögreglustjórans hvernig hann bregst við okkar fyrir- spurn. Ég get ekki sagt annað en að við báöum lögreglustjórann að upp- lýsa allt málið og við bíðum eftir hans niðurstöðu. Þá á ég við það sem gerðist í hliðinu og það sem haft er eftir mönnum í þessari grein á mið- vikudag. Það verður síðan að spyrja lögreglustjóra um hvernig hann framkvæmir sinn úrskurð. Ég sé á engan hátt að verið sé að skerða fjöl- miðlafrelsi með þessum hætti. En ef starfsmaður sættir sig ekki við að aðeins yfirmaður tjái sig um embætt- ismál þá getur hann alltaf sagt upp og tjáð sig í fjölmiðlum eftir það.“ - Er ekki ofbeldiskennt að mönnum sé meinað að tjá sig um óánægju þegar verið er að leggja á þá hendur og samstarfsmenn þeirra bera vopn á friðartímum, það er allar götur frá ULTRA GLOSS Þú finnur muninn þegar saltið og tjaran verða öðrum vandamál. Tækniupplýsingar: (91) 84788 ESSO stöðvarnar Oifufélagið hf. Stórkostlegar viðtökur á Nissan Sunny Um síðustu helgi var fullt út úr dyrum. Önnur sýningarhelgi laugardag og sunnudag frá kl. 1400-1700 Glæsilegar nýjungar: • Ný hönnun, nýtt útlit og gott rými • Nýjar 16 ventla 1,6 L og 2,0 L vélar • Ný 4ra þrepa sjálfskipting • Ný fjöðrun og frábær hljóðeinangrun VERÐ FRÁ KR. 869.000.- stgr. Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson flytja lifandi tónlist, Ijúfa tóna. , "TT L Ingvar | | = g Helgason hf. Sævarhöfða 2 —sími 91-674000 skipti lögreglumanna viö fjölmiðla en það er ákvöröun yfirmanns," sagði Pétur. -ÓTT 3 DYRA 5 DYRA SKUTBlLL 4x4 Nissan 100 NX Nýjasti sportbíllinn, fjörugur og skemmtilegur. því í sumar? „Ef starfsmenn vita að til funda hef- ur verið boðað til að leysa úr málinu, þá er algjörlega óeðlilegt að fjalla um það í dagblöðum - mál sem stendur til að leiðrétta hvort sem er. Það er þá ekki nema til að vekja upp tor- tryggni gagnvart þeim reglum sem gilda um þessi samskipti. Þarna er bara spurning hvort einhver trúnað- arbrestur hafl átt sér stað. Við höfum ekki gefið nein fyrirmæli um sam-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.