Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991. Sælkerinn FYLLIN G AREFNI Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi. Gott efni, lítil rýrnun, frostþoliö og þjappast vel. Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi sand og möl af ýmsum grófleika. m&mmmww ww*. Sævarhðfða 13 - sími 681833 ESSEMM samlæsing á hurðum og 5 gíra kassi. Tempra fæst einnig með sjálfskiptingu. Reynsluakstur segir meira en mörg orð. Við bjóðum þér og fjölskyldu þinni að heim- sækja okkur í Skeifuna 17 og kynnast þessum nýja og glæsilega bíl. —————— Vélarstærðir 1.600 cc., 86 hö. Eyðsla 5,6 - 9,4 I á 100 km. Tempra notar eingöngu blýlaust bensín. VERÐ: 1.089.000 kr. (1.170.000 kr. m/sjálfskiptingu). Station 1.190.000 kr. Klaustur St. Hildegard. Hvítvín heilagrar Hildigerðar Ekki er hægt aö segja aö nú sé tími ferðalaga, ööru nær. Það er bruna- kuldi í Mið-Evrópu og óhugur í fólki vegna stríðsins við Persaflóa. Á slík- um tímum er kannski réttast að leita friðar og hvíldar í góðu klaustri. Sælkerasíðan var fyrir skömmu á ferð í Rínardalnum. Alls staðar var hægt að fá ódýra gistingu og ferða- maðurinn boðinn velkominn í marga vínkjallara. Rínarvínin eru léttari en Móselvínin og bragðið mildara. Það er tilvalið að drekka gott hálfþurrt Rínarvín fyrir framan arineld á kvöldin. Það var áð í hinum fagra vínbæ Rudesheim við Rín. í hhðinni fyrir ofan bæinn teygja vínakranir sig að því er virðist upp í himininn. Þetta eru vínakranir frægu: Berg Rottland, Berg Roseneck og Berg Schlossberg þar sem sólarljósið endurkastast af ánni og á akrana. Vínin frá Rudesheim eru dekkri og matarmeiri en önnur Rínarvín. Eftir að hafa bragðað á vínum frá hinum þekktu vínframleiðendum Schloss Groenesteyn og Staatsweingut voru vínakrarnir skoðaðir. Á hæðinni fyrir ofan Rudesheim gnæfir falleg kirkja og klaustur. Umhverfis klaustrið eru vínakrar eins langt og augað eygir. Þetta er nunnuklaustrið St. Hildegard. Heilög Hildegard var uppi á árunum 1098- 1179. Hún var ein af merkustu hugs- uðum síns tíma. Hún skrifaðist á við fjóra páfa, Hinrik II. Englandskon- ung og heilagan Bernard af Clairv- aux. Nunnurnar í klaustri St. Hilde- gard tilheyra reglu heilags Benedikts og þar eru framleidd frábær hvítvín. í dag eru 64 nunnur sem dveljast í klaustrinu. í stuttri heimsókn í klaustrið átti Sælkerasíðan kost á að spjalla við þá nunnu sem stjómar víngerðinni. Klaustrið var byggt árið 1900 og árið 1904 hófu nunnurnar vínrækt. í dag framleiða nunnurnar um 24.000 lítra af vini árlega, aðallega hvítvín. Benediktínar hafa ávallt verið duglegir vínframleiðendur og nunnurnar framleiða vín samkvæmt mjög gömlum hefðum eða allt frá 12. öld. Vínið frá St. Hildegard klaustr- inu er aðallega selt innanlands en nokkuð er flutt út til Bandaríkjanna. Nunnan, sem spjallað var við, var í strigaskóm og við beltið hékk far- sími. Það var mikið að gera í vínkjall- ara klaustursins enda stóð að fara dæla víni á flöskur. Systirin tjáði okkur að vín klaustursins, árgerð 1990, væri einstaklega gott. Sjálfar drekka nunnurnar aðeins eitt glas af víni með matnum á sunnudögum. Þrátt fyrir mikinn eril við víngerðina og fleiri störf, m.a. viðgerðir á göml- um handritum, fer mikill tími í messugerð og bænahald. Það var mikill friður í klaustrinu og vín syst- ranna ljúft og nokkuð þyngra en Rín- arvín almennt. Vart er hægt að hugsa sér neitt eins gott gegn streitu og fyrir sálina og að dveljast um stund hjá systrunum og hlýða á söng þeirra. Vínin þeirra eru sannkallaðar guðaveigar, holl fyrir sál og líkama. Systurnar í klaustri St. Hildegard geta tekið á móti nokkrum gestum. Þeir sem hug hafa á aö dveljast hjá systrunum eða heimsækja þær ættu að skrifa eða hringja áður. Heimilisfangið er: Abtei St. Hilde- gard. Postfach 1320, D-6220 Rudes- heim am Rhein. Sími 06722-499-0. Hótel-húsgögn Sérsmíðum húsgögn fyrir hótel og gistiheimili, til dæmis: rúm, náttborð, skrifborð, fataskápa, stóla, borð, töskubekki og fleira. Fáið ykkur ný húsgögn fyrir sumarið. Gerum tilboð. Grensásvegi 3 - sími 68 11 44 ujr _ «i i:|i ^ x Keilutilboð rw : 100 kr. leikurinn mánudaga til föstudaga l—-—;——í—^ kl. 12.00-17.00. Keilusalurinn Öskjuhlíð 5SS5SSS3 .. ittf&atai COO •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.