Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAG LÍR 16J PEBRÚAR1991.
Veiðivon __________________________________________pv
Veiðiáhuginn mikill þessa dagana:
Fullt út úr dyrum í
fluguköstunum
„Þessar æfingar stytta biðina eftir
sumrinu og maður fær góðar leið-
beiningar frá góðum kennurum,“
sagði einn af veiðimönnunum sem
mættu í Kennaraháskólann í flugu-
köst um síðustu helgi. En þessa daga
eru það færri en vilja sem komast á
þessi námskeið. Fluguhnýtingar eru
líka kenndar víða um bæinn og hafa
veiðimenn fjölmennt í þær líka. Bið-
in eftir að fyrstu veiðiárnar verði
opnaðar fyrir sjóbirting styttist óð-
um enda vita veiðimenn það vel:
Tíminn gengur á fiskana þessa dag-
ana.
Áhuginn skín úr augum kastar-
anna þegar ég yflrgef staðinn, ein og
ein veiðisaga er sögð undir vegg. Það
eru ekki nema nokkrar mínútur í að
veiðitíminn hefjist fyrir alvöru.
-G.Bender Þeir standa í röðum og æfa sig að kasta fiugustöngunum og kennararnir iáta sitt ekki eftir liggja.
Það er æft og æft til að ná réttu handtökunum fyrir sumarið.
DV-myndir G.Bender
Kolbeinn Grímsson notar hverja mínútu til að sýna réttu handtökin og segja
hvernig fiskurinn tók fluguna hjá honárm síðasta sumar.
Þjóðar-
spaug DV
Níræðisafmælið
Pétur gamli átti niræðisafmæli
og í tilefhi dagsins þótti ættingjum
viðeigandi að fá mynd af jaeim
gamla með öllum ijölskyldumeð-
limum. Pétur gamli bar aldurinn
vel en var þó eilítið farinn að
kalka og heyra illa, Er Ijósmynd-
arinn hafði stillt öllum upp sagði
hann:
„Nú hrosum við dálítið og sýn-
um tennurnar... nei, nei Pétur
minn, ekki taka þær út úr þér.“
í eigin
erindagjörðum
Nýr prestur er alltaf mikiU við-
burður á smástöðum á lands-
byggðinni. Einhverju sinni var
nýjum presti í sveitaþorpi boðið
í samkvæmi og hélt hann þar
þrumandi ræðu um kristilegt sið-
gæði. Eftir ýmsar fleiri ræður var
síðan tekið til viö dans og
drykkju, hvar prestur var hrókur
aUs fagnaðar. Seint um kvöldið
náði prestur síðan að króa eina
gifta konu af út í horni og bauð
henni með sér heim:
„Ekki hefði ég trúað þessu á þig
eftir siðgæðisræðuna fyrr í
kvöld,“ svaraði konan. Prestur
lét sér hins vegar í engu bregða
og sagði:
„Fyrr í kvöld gekk ég erinda
Drottins en nú er ég í einkaer-
indagjörðum fyrir sjálfan mig.“
Faðernið
Erlendur og Björg voru ábú-
endur á bæ einum í Austur-
Húnavatnssýslu fyrir mörgum
árum. Ekki var hjónaband þeirra
taUð farsáslt og gekk sá orðrómur
um sveitina að Björg væri manni
sínum ótrú.
Einhverju sinni kom maður af
næsta bæ í heimsókn til þeirra.
Settust þeir Erlendur að drykkju
sem lauk með því að þeir lentu,
báðir blindfullir, í handalögmál-
um inni i stofu. Er Björg kom að
sat Erlendur ofan á gestinum og
barði hann hvað eftir annað í
andUtið. Henni ofbauö þessi
„gestrisni“, gekk að manni sin-
um, þreif í hár hans og æpti:
„Þú ætlar þó ekki að drepa fóð-
ur bamsins þins, Erlendur?“
Finnur þú fimm breytingai? 93
Afsakið hvað ég er seinn en ég fann ekkert bílastæði. Nafn:........................................................
Heimilisfang:..................................................
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós aö á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningarnir koma frá versl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 91
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir nítu-
gustu og fyrstu getraun
reyndust vera:
1. Sigurúna Sigurjónsdóttir,
Gránufélagsgötu 12,
600 Akureyri
2. Agúst Jóhannsson,
Hvammstangabraut 20,
530 Hvammstanga
Vinningar verða sendir heim